Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Side 10
Miftr P.RAM K HUDACIHAOUAJ ,VO
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984.
Auðugur maður gaf uppáhaldsþræli
sínum frelsi. Hann gaf honum og skip
fullt af vörum. „Þú hefur þjónað mér
dyggilega,” sagði hann við leysingj-
ann. „Leitaðu gæfunnar í hinum stóra
heimi!”
Skipið hreppti óveður og í fárviðri
brotnaði það í spón á klettóttri strönd
fjarlægrar eyju. Ungi maðurinn komst
með naumindum lífs af. Hann reikaði
um að leita sér hjálpar uns hann bar að
stórri borg. Mikill mannfjöldi
streymdi móti honum. Fólkið rak upp
fagnaðaróp þegar það sá ókunna
manninn. „Heill þér, konungur!”
hrópaði það og færði manninn furöu
lostinn í sigurgöngu til hallarinnar.
Hirðhöfðingjamir íklæddu hann
purpuraskikkju, settu kórónu á höfuö
honum og buðu honum að stíga upp í
hásætiö.
Maðurinn, sem var alveg utan við
sig, hlustaði á orð þeirra sér þvert um
geð. Ráðherrar og hershöföingjar sóru
trúnaðareiða og vesírinn spurðist fyrir
um skipanir hins unga konungs.
Manninum, sem áöur haföi verið
þræll, kom þetta allt kynlega fyrir. Er
mig aö dreyma? hugsaði hann og kleip
sig í kinnina. Hann kenndi sársauka.
Hann var þá ekki að dreyma. Þetta
hlýtur aö vera undarlegt land, hugsaði
hann.
„Hvað á allt þetta að þýða?” spurði
hann vesírinn. ,,Þið geriö mig aö kon-
ungi ykkar án þess að þekkja mig. Þiö
fagniö og vitið ekki hverjum þið eruð
að fagna. Þú verður að skýra það út
fyrir mér.”
„Herra minn,” svaraði vesírinn,
„eyjan okkar heitir „Land reynslunn-
ar”. Fyrir langa löngu báðu áar okk-
ar Allah — nafn hans sé lofað —, að
senda þeim árlega einhvern framandi
til þess að stjórna þeim. Allah hefur
heyrt bæn þeirra. Síðan þá förum við
eftir okkar eigin lögum, lögum for-
gengileikans. Fólkið hlýðir nýja þjóð-
höföingjanum en yfirráö hans vara
ekki nema eitt ár.”
„Ogþá?”
„Þjóðhöfðinginn missir tign sína og
völd. Menn svipta hann kórónunni og
færa hann í hversdagsleg föt. Skip
flytur hann til „Eyjar efndanna”. Þar
er ekki neitt. Ekkert hús, enginn akur,
enginn brunnur. Allir konungar okkar
stíga á land á eynni án fylgdar og
hjálparlaust verða að treysta á sjálfa
sig. Þeir rata í vandræði og fá enga að-
stoð s vo f ramarlega sem þeir hafa ekki
kunnað að færa sér í nyt ríkisstjórnar-
Rak Guð Adam og Evu
lir paradís til að
firra þau leiðindum?
L EIÐINDI — hvers konar fyrir-
bæri er það? Bandarískur fræðimað-
ur við Columbíu-háskóla í New York,
Robert Nisbet, segir að rekja megi
sögulegt og félagslegt samhengi
þessa fyrirbæris til þeirra tíma þegar
menn fóru af stigi hirðingja yfir á
stig akuryrkju og urðu háðir jarðvegi
og árferði. I nýútkominni bók um for-
dóma segir prófessor Nisbet að eitt af
þeim öflum sem hafi mótað mannlíf
öðru fremur og á víðtækan hátt séu
leiðindi.
Nisbet segir að þótt ekki sé hægt
að skilgreina áhrif leiðinda í sögu
mannkyns ó sama hátt og stríð, far-
sóttir, hungursneyð, byltingar eöa
efnahagskreppu séu áhrif þessa
„afls” engu að síður augljós í nútíð
sem fortíð. Leiðindi og áhrif þeirra
má merkja í greinum, ævúninning-
um, dagbókum og sögum.
HVI AÐURINN er eina skepnan sem
hefur getu eða hæfileika til að láta
sér leiðast. En bæði maöur og dýr
merkurinnar upplifa þaö einhvern
tíma á lífsleiðinni að finna fyrir tíma-
bundnu sinnuleysi en sinnuleysi og
leiðindi er tvö ólik fjrirbæri. Sinnu-
leysi er bælt hreyfingarleysi sem sér-
hver lífvera getur orðið fyrir þegar
taugakerfiö á crfitt með að samlagast
umhverfinu. Er hér um að ræða
nokkurs konar brotthvarf frá meðvit-
und. Þegar lifvera er gripin sinnu-
leysi er hún aögeröalaus þar til eitt-
hvert ytra áreiti losar hana úr
ástandinu ellegar dauði fylgir í kjölfar
þess.
M TILFINNINGASKALANUM eru
leiðindi miklu ofar en nokkum tima
sinnuleysi. Til að láta sér leiöast þarf
í raun það þróað taugakerfi að óhætt
mun að fullyrða aö eingöngu mann-
skepnan sé fær um slfkt. Og sé ein-
göngu iitið á manninn er það aðeins
maður sem telst nokkurn veginn
„eðlilegur” hvað varöar geðheilsu
sem getur fundið fyrir þessu ástandi.
Fáviti getur fundið fyrir sinnuleysi en
hæpiö er að hann láti sér leiðast, að
mati Robert Nisbet. Venjulegur maö-
ur verður mjög fljótt leiður á síendur-
tekningu í starfi sem krefst ekki ein-
beitingar hugans en ööru máli gegnir
um fávita við svipaðar kringumstæð-
ur. Starf sem hentar skapgerð eða
atgervi einstaklings er líkast til besta
vörnin gegn leiðindum. Eins og John
Maynard Keynes hefur bent á, ef
efnahagsvandinn verður leystur — þá
er búiö að firra fólk hefðbundnum til-
gangi tilveru þess. Er það mannkyni
til góðs að þurfa ekki lengur að stríta
í sveita síns andlitis? Já, segir Nis-
bet, ef maður trúir á hin sönnu gildi
lífsins — ef... Hins vegar er maður-
inn svo mikið afsprengi venja sem
skapast hafa í aldanna rás aö óvist er
hvernig eða hvort hann gæti aölagast
lífi þar sem starfsorku hans væri ekki
vænst.
I SÖGUNNI eru þó dæmi um lög
innan samfélagsins þar sem iöjuleysi
var algert, til dæmis stór hluti Róm-
verjar til foma eða um hálf milljón af
tveimur milljónum íbúa keisaraveld-
isins. Sagnfræðingurinn Amold Toyn-
bee segir að þessi hluti Rómverja,
sem var iöjulaus, eigi stærstan þátt í
falli Rómaveldis sé litið til innri þátta
aðeins. Úll þekkjum við dæmi úr
samtíðinni af því hvemig annaðhvort
atvinnuleysi eða iðjuleysi fer með
fólk. Má nefna fólk sem komiö er á
eftirlaunaaldur og hreinlega deyr úr
leiðindum eöa ofbeldi sem brýst út
meðal atvinnulausra unglinga. Leið-
indi sökum iðjuleysis geta leitt til
sinnuleysis og langvarandi þung-
lyndis.
Þetta skýra vísindamenn nánar á
þann liátt að taugakerfi mannsins í
aldanna rás sé mótað af því að þurfa
að vera í viðbragsstöðu til að við-
halda iífi sínu eöa komast af.
Því má gera ráð fyrir því að það
hafi mikil áhrif á taugakerfi fólks
þegar það sætir miklu aðgerðaleysi
eða iðjuleysi sem þaö vill ekki sjálft.
Þannig eru leiðindi svörun taugakerf-
isins við aðstæðum sem em mannin-
um óvenjulegar.
«Ð HAFA ALLT af öllu er án efa
lykillinn að leiðindum. Einhver skrif-
aði einhvers staðar að einn hlutur
væri verri en só að sjá aldrei ávöxt
erfiðis síns og það væri að uppskera
alveg eins og maður hefði sáð. Leið-
indi hljóta að vera fylgifiskur þess ef
allir draumar fólks rætast. Þannig
má búast við því að atferlissinninn
frægi, B.F. Skinner, hafi gleymt þætti
leiðinda þegar hann kom fram meö
þá kenningu að með virkri skilyrð-
ingu mætti uppræta alla félagslega
kvilla. George Orwell gleymdi hins
vegar ekki þætti leiðinda í ritun
skáldsögu sinnar „1984”. I „Brave
New World” lætur höfundurinn, Al-
dous Huxley, sögupersónumar fá lyf-
ið Soma til að ná þeim upp úr leiöind-
um og þunglyndi. I stuttu máli sagt,
markar útópían eða fyrirheitna landið
ekki endalok leiðinda?
Leiðindi eiga eitt sammerkt með
yfirráðum eða valdi — því nánara
eða lokaðra sem samskiptaformiö er
þar sem annaö þessara fyrirbæra rík-
ir því sterkari verða áhrif þess. Ekk-
ert er eins leiðingjamt og það sem er
smátt eða þröngt í sniðum. Ef mað-
ur er leiður á kunningjahópnum verð-
ur leiðinn hlutfallslega meiri því
smærri sem hópurinn er. Þetta íeng-
ist því þegar talað er um leiöa fólks
sem býr í smábæjum eða þorpum —
þar sem almenningsálitið gleypir
hvert fótmál. Eða leiðinn sem fylgir
einangrun — að vera lokaður inni eða
búa afskekkt.
rijONABANDIÐ er jafnvel frjó-
samasti jarðvegur leiöinda og þá oft-
ar fýrir konuna en karlinn, alla vega
lengst af, þar sem tækifæri hennar til
upplifunar annarra samskiptaforma
voru öllu takmarkaðri en útivinnandi
eiginmanns. En með þeirri þróun
sem hefur átt sér stað í fjölskyldu-
málum í hinum vestræna heimi á um-
liðnum árum skapast nýjar víddir í
þessu sambandi. Afleiðing iðnbylt-
ingarinnar hefur breytt fjölskyldunni
úr sérstæðri framleiðslueiningu þar
sem hver fjölskyldumeðlimur hafði
sitt ákveðna hlutverk og sitt ákveðna
starfssviö yfir í einingu þar sem per-
.sónuleg samskipti eru mynstrið en
ekki efnahagsleg. Það er ekki lengur
hinn efnahagslegi grundvöllur sem
eingöngu bindur fjölskylduna saman
eins og í samfélagi sjálfsþurftabú-
skaparins. I dag gengur fólk í hjóna-
band af „ást” fremur en efnahags-
legri nauðsyn. En það er einmitt só
nýi grundvöllur fyrir spennumyndun
eða átök svo ekki sé nú minnst á leið-
indin.
Er ekki hugsanlegt að Guð hafi
rekið Adam og Evu úr paradís til að
firra þau þeim örlögum að verða leið-