Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Síða 15
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984.
15
Það voru tónleikar á síðasta
föstudag í Sigtúni. Fjórar af stærstu
minnstu rokksveitum okkar léku en
SATT stóð fyrir tónleikunum.
Eg mætti með fyrri skipunum, gott
ef ég var ekki fyrsta skipið. Klukkan
var tíu og ein sveitin var í „sándtesti”.
Þetta var Kikk. Eg man einu sinni eftir
að hafa heyrt í þeirri sveit, í sjón-
varpinu, upptökur frá 17. júní.
Hljóðupptökumenn sjónvarpsins voru
þá í essinu sínu og vindurinn gnauöaöi
eins og um væri að ræða suðaustan 17.
Kikkið kom ágætlega út þá, betur en
Arni Johnsen. Eg þóttist heyra að
þama væru á ferðinni talsverð efni og
beið því spenntur eftir því að heyra í
þeim „læf” og án milligöngu
snillinganna hjá sjónvarpinu.
Svo var testið búið og Queen tók við.
Svo var spilaö eitthvað meira og fólk
fór að smátínast inn en enginn
drukknaði í mannhafinu. Það var
fámennt en hvort var góðmennt ætla
ég ekki aö dæma um.
Klukkan hálftólf stendur Kikkið upp
og vinir og vandamenn óska góðrar
ferðar. Músíkin hefst.
Þau eru ekki slæm. Margt er gott
Hræðilegur hljómburður í Sigtúni á tðnleikum
Frakkanna,
Vonbrigða,
Orafikur
og Kikks
hjá þeim fimm en æði margt sem laga
þarf. Þau eru að fara í stúdíó og
væntanlega kemur stór plata í apríl, en
ýmislegt þarf að pússa.
Eg giskaði á að Sigríður syngi á
ensku, enda kom það líka á daginn er
ég yfirheyrði hana eftir að Kikkið var
búið. Hún var óhress með sándið en
sagði að þetta hefði tekist ágætlega að
öðru leyti, þau voru afslappaðri en
venjulega, bara að sándið hefði ekki
verið svona.
Guömundur á gítamum tók í sama
streng (gítarstreng hehe). — Sándið
var lélegt, hræðilegt, sagði hann, en
annars tókst okkur ágætlega upp. ,,Um
hvað fjalla textarnir?” „Við höfum
enga stefnu i því. Við erum ekkert að
keppast við að bjarga heiminum með
því að krítisera eitt og annað sem við
eigum kannski eftir að lenda i sjálf
seinna. Sumir hafa hengt sig í þessu.”
Eg hálfmissti af Grafíkinni en tókst
þó að grípa í þrjú lög. Þetta er sveit
sem á eftir að hafa mikið að segja í
framtíðinni. Þeir eru nú þegar búnir að
skapa sér nafn, tvær plötur litið
dagsins ljós og þykja í betri kantinum.
Grafíkin tók þarna reggí-lag, flott hjá
þeim. Einhver sagðist heyra í Police í
þessu lagi og það var nú engin lygi. Ég
vil ekki fjölyrða um frammistöðu Is-
firðinganna því ég heyrði lítið í þeim og
stóridómur um f rammistöðu einstakra
meðlima verður að bíða betri tíma. En
það var eitthvað sérstakt við þá.
Næst á dagskrá voru Vonbrigði en
þau voru bara ekkert næst á dagskrá.
Frakkamir komu næstir, öllum fer-
lega á óvart. Mér var sagt að pró-
gramminu hefði verið breytt vegna
þess að trommarinn í Vonbrigðum
væriörvhentur. Þabara það.
Frakkarnir eru með marga af bestu
hljómlistarmönnum landsins innan-
borðs. Þorleifur bassaleikari, Asgeir í
slagverk, Björgvin á gítar og Þor-
steinn fyrrum Þeysari er líka kominn í
sveitina. Þeir gætu einhvem timann
orðið þmmugóðir, efniviðurinn er alla-
vega til staðar.
Þaö besta við Frakkana þetta kvöld
var samleikur Þorsteins og Björgvins
Gísla. Hann var príma enda báðir með
betri mönnum.
Bjöggi sagði mér að þeir væm vanir
að vinna saman i session svo þaö þyrfti
ekkert að koma á óvart að þeir væru
samstilltir.
Þorleifur er þéttur bassaleikari sem
á allt gott skilið. Eg skildi hins vegar
ekki alveg Asgeirs þátt Oskarssonar.
Hann var ekki mjög áberandi, nema
kannski í einu eða tveimur lögum.
Trommuleikarinn er nýr, mikil
uppskipti í herbúðum Frakkanna. Eg
hlustaöi ekki neitt sérstaklega eftir
honum og ætla því að þegja. Mike
Pollack yfirfrakki finnst mér ekki sér-
stakur söngvari. Hann hefur ekki ljóta
rödd en heldur ekkert fallega og þetta
kvöld gerði hann ekki stóra lukku í
mínum haus og heila. Hann fær vafa-
laust annað tækifæri, hljómsveitin í
heild sinni var góð. En væri hægt að fá
að greina orðaskil næst? Plís, mér
finnst þaö mikilvægt, sérstaklega ef
reynt er að seg ja eitthvað af viti.
Og svo komu Vonbrigði. Eg man
þegar ég heyröi fyrst í þeim. Það var í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
snemma árs 1981 og Rokk í Reykjavík
var ekki til. Þau stóðu svo sannarlega
undir nafni þá. Þau voru hin full-
komnu vonbrigði. Svo kom Rokkið og 0
Reyk javík og V onbrigði komust í tísku.
Og svo fór Rokkið og Vonbrigði voru
„kúltíveruð” sveit með skoðun.
Hljómsveitin er að verða góð — og
verður það. Hún er ung og hennar er
framtíöin.
Svo var allt búið. 1 heildina voru
þessir tónleikar ekki góðir. Hræðilegur
hljómburður hússins sá um það. En ég
var samt hissa á hinni lélegu mætingu.
Þessi nöfn heföu átt að draga fleiri aö
enraunbar vitni.
En af hverju heyrist aldrei í
söngvurunum? Það er gáta sem leysa
verður f yrir næstu tónleika.
-SigA.
VÖNDUÐ VARA
VIÐ VÆGU
VERÐI
oinoT'
VESTURÞYSKU
VERÐLAUNASETTIN!
Hin heimsfræga
framleiðsia frá KOINOR í
Vestur-Þýskalandi fæst nú á j
íslandi. Verksmiðjan /
er fræg fyrir /
vönduð /
/ leðursófasett. /
/ Lögð er sérstök áhersla^^^^^^/
/ á mjög vandað leður sem
endist a.m.k. i öld.
Vegna sérstakra fjölskyldutengsla við ís
land er verð sérstaklega hagstætt.
LAUGARDAGA
TIL KL. 16.00
Smiöjuvegi 6, — Kópavogi, — Sími 44544