Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Side 23
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984. ’ 23 Myndir: Gunnar V. Andrésson Vidtal: Sigurdur G. Valgeirsson svona. Þetta er mjög algengt. Alfreð Andrésson var manna stressaðastur áður en hann fór á senuna. Hann lá veinandi áður en hann kom fram. En hann var svo skemmtilegur aö fólk var farið aö hlæja áöur en hann kom inn á sviðið. Menn bera sviðsskrekkinn misjafn- lega. Eg gekk um eins og ljón í búri áður en ég átti að koma fram en þegar ég var kominn á sviðið var ég alveg öruggur.” Tvo vetur í leiklistarskóla — Laa-ðirðu eitthvaö til þess í skóla að verða skemmtikraftur? „Já, ég var í tvo vetur í leiklistar- skóla Lárusar Pálssonar. Eg fór þangað til aö læra aö verða sólóisti. Vildi læra sviðstækni og taltækni. Lárus bar virðingu fyrir að ég vildi vera einn. Hann lét mig læra eintöl og fara með. Hann var óskaplega skemmtilegur persónuleiki.” — En nú eru Baldur og Konni hættir að koma fram: og komin kynslóð sem ekki þekkir Baldur og Konna. „Blessaður vertu, ég gat aldrei gengiö um götur svo að ekki væri öskr- að: „Hvar er Konni?” En það er ekki gaman að fara upp á svið sem skugg- inn af sjálfum sér. Þá er betra að hafa verið eitthvað. Núna skemmti ég svolítið í gegnum aðra. Eg skrifaði Galdraland sem var sýnt og er til á videospólu. Svo er ég með leikrit sem ég er að reyna að selja. Eg geri mikið að því að skrifa og mér finnst ég vera frjórri en áður. En það væri of erfitt fyrir mig í dag að ferðast um og skemmta. Einu sinni kom ég til dæmis til Vestmannaeyja grænn í framan af sjóveiki. Eg fór beint af skipsfjöl upp á svið og fór upp á sen- una. Það er of hasarderað fyrir mig í dag. Stærsta kompliment sem ég hef fengið um dagana er þegar ég var að skemmta einu sinni og það var komið með aukamíkrófón fyrir Konna.” $aman aftur” * liann lítnr yfir f arinn veg strákur. Hann á það til að vera dálítið fýldur. Gallinn við Baldur er að hann er of alvörugefinn.” -j- Er ekki leiöindalíf að vera lokaður i tösku? ,|Það er ekki beinlinis skemmtilegt. En það er ekki hægt að ota Baldri áfijam. Hann er orðinn latur eða gam- alli Svo er hann slæmur til heilsunnar gréyið.” I— Þér leiöist aðgerðaleysiö? „Það versta við að gera ekki neitt er aö maður getur aldrei tekið sér frí. ” 4- Þú finnur ekki til neinnar sam- kenndar með tréstrákum eins og Gosa? ,|Eg lék nú einu sinni Gosa í útvarp- inu. En ég er ekki kominn af timbur- mönnum eins og hann. ’ ’ Ein gömul spuming. Hver er munur- innádúrogmoll? „Þegar maður syngur í moll verður. maður svo þreyttur að maður verður aðfásérdúr. Hvers vegna söng Baldur aldrei með þér á plötunum? „Hann er alveg laglaus. ” Þegar þú lítur yfir farinn veg hvað myndirðu þá vilja hafa verið? „Eg hefði orðiö búktalari aftur. Eg myndi vilja gera þetta allt saman aftur. En helst með annarri brúðu.” Með það er Konni kominn aftur í töskunasína. SGV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.