Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 26
26
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984.
r
LISTIR OG MENNDIG
Ef sumir opinberir starfsmenn
færu í verkfall yrði eina breytingin
K^hjá þeini sú að þeir þyrftu ekki að hafa^
il fyrir því að fara í vi.nnuna
\/ i ‘*i morgnana.
Menningin á Islandi er sem betur
fer ekki bundin við þaö eitt að gefa út
ævisögur og bækur um dulræn efni
fyrir jólin og friða gömlu húsin eins
og endumar á Tjörninni, hún er
einnig fólgin í því að búa til kvik-
myndir sem eru bannaðar börnum
og svo dýrar að við sem megum kvik-
myndaeftirlitsins vegna fara að sjá
þær veröum að gera það tvisvar svo
að fyrirtækið borgi sig þar sem ríkið
hleypur ekki undir bagga með öðrum
fyrirtækjum en þeim sem eru
atvinnuskapandi eins og guð almátt-
ugur hefði orðaö það ef hann hefði
verið að skapa heiminn í gær niðri í
ráöuneyti.
Menningunni er hins vegar guðvel-
komið að fara á höfuðið þegar henni
sýnist þar sem hún verður hvorki
hausuð né slægö og þar að auki borin
von aö Japanir vildu éta hana þótt
þeir viröist eftir myndum í blöðum
að dæma ekki sérlega matvandir.
Mér er sagt að bókaútgefendur
hafi farið frekar illa út úr vertíðinni í
ár þótt myndabókagerðarmenn í
Belgíu og Alistair MacLean hafi veitt
upp í kvótann sinn og á síðum þessa
blaðs hafa menn haft dálitlar
áhyggjur af íslenskri barnabóka-
gerð sem er auðvitað alger óþarfi og
álíka skyhsamlegt og að hafa
áhyggjur af því hvort tekinn verði
upp virðisaukaskattur á tunglinu.
Það væri miklu nær aö hafa
áhyggjur af málaralistinni í landinu
sem virðist oröin talsvert vandamál
þótt hún flokkist hvorki undir land-
búnað né sjávarútveg og geti þar að
auki ekki farið á höfuðiö eins og önn-
ur menning sem er háö jólunum og
kvikmyndaeftiriitinu.
Málaralistin er nefnilega sér á
parti eins og ráðherrar segja þegar
þeir lenda í vandræðum með byggða-
stefnuna sína og hafa ekki upp á
annaö að bjóða en gatið í fjárlaga-
frumvarpinu til að bjarga útgerð og
bændum.
Stefnur og ismar
Ég hef fylgst talsvert með málara-1
list í dagblööum og sjónvarpi á
undanförnum árum og það sem mér
finnst kannski helst einkenna hana
Háaloftið
Frá skákmétinu í Ne§kaupstað:
Helgt mátufli séra Lombardy
Skák Helga Olafssonar við banda-
ríska stórmeistarann William
Lombardy átti óskipta athygli áhorf-
enda sem fylgdust með 3. umferð
alþjóðamótsins í Neskaupstað. Helgi
ætlaði sér greinilega að leggja prest-
inn því að hann tefldi bæði hratt og
örugglega. Knezevic smitaðist
forðum af hraða Helga en Lombardy
fór sér að engu óðslega, tefldi fremur
of hægt, þar sem hann lenti í tíma-
hraki. Eftir 28 leiki haföi hann mjög
slæma stöðu og átti aðeins 3 mínútur
eftir á klukkunni. Þá hafði Helgi
aðeins notaö eina klukkustund af
umhugsunartíma sínum og ekki
vafðist úrvinnslan fyrir honum.
Mest kom þó áhorfendum á óvart
hversu lengi Lombardy streittist á
móti, jafnvel þótt staöa hans væri
gjörtöpuð. Reyndar gafst klerkur
ekki upp heldur lét Helga máta sig,
sem stórmeistarar, og gott ef ekki
allir skákmenn, reyna að forðast. Að
skákinni lokinni undirrituöu þeir
pappírana og stóðu upp frá borðum
en sögðu ekki eitt aukatekiö orð.
Ekki svo að skilja að Lombardy hafi
verið sár yfir tapinu heldur átti þessi
óíþróttamannslega framkoma
þeirra sér dýpri rætur. ..
Að loknu mótinu í Grindavík tóku
þeir nokkrar „bröndóttar” hrað-
skákir, eins og skákmanna er
siður og þykir raunar ekki í frásögur
færandi. Slíkar skákir eru sjaldan al-
varlegs eðlis enda gefur um-
hugsunartiminn ekki tilefni til þess.
Af einhverjum ástæðum tókst þeim
þó að verða sundurorða og á end-
-anum rauk Lombardy á dyr meö
þeim orðum að ef hann ætti aö tefla
viö Helga í Neskaupstaö myndi hann
ekkimæta tilleiks!
Daginn eftir var ekki að sjá að at-
vik þetta væri ofarlega í huga þeirra
en vafalaust hafa einhverjar
minningar vaknað til lífs er þeir áttu
að tefla á miðvikudag. Lombardy
mætti þó til leiks eins og ekkert hefði
í skorist en ef marka má skákina
hefði hann betur mátt sitja heima.
Hvítt: Helgi Ölafsson.
Svart: William Lombardy.
Hollensk vörn.
1. d4fS2. g3 Rf6 3. Bg2 g6
Svonefnt Leningrad-afbrigði, sem
á nafn sitt að rekja til nokkurra
skákmanna frá Leningrad, m.a.
Skák
lón L. Áraason
Kortsnoj, sem gerðu afbrigðið vin-
sælt. Nú hefur stórmeistarinn
Beljavsky bætt afbrigðinu í vopna-
búrið, beitti því tvisvar á stórmótinu
í Wijk aan Zee og vann í bæði skiptin.
4. Rf3 Bg7 5.0-0 0-0 6. b3 d6 7. Bb2
c68. c4
Helgi notar óvenjulega leikaðferð,
því að oftast er riddarinn settur á c3-
reitinn strax í 6. leik. Hann ætiar
honum stað á d2, þar sem hann lokar
ekki sjónlínu biskupsins. Traustasta
leið svarts er nú 8. — Dc7, ásamt a5,
Ra6, Bd7, Hae8 og síöan e7—e5, þótt
moguleikar hvíts séu eitthvað betri.
8. — Ra6 9. Rbd2 Kh810. a3!
Betra en 10. Dc2 Rb4 11. Dcl a5 12.
a3 Ra6 13. Dc2 sem teflt hefur verið.
Svartur vill gjarnan koma peði sínu
til a5 en þarf nú að hörfa með ridd-
arann.
10. — Rc711. Dc2 a512. Hfel a4?
1 hundruðum skáka hefur slíku
peði verið leikið fram og sjaldan er
gott að drepa það því að þá rifnar
peðakeðjan og svartur nær peðinu
aftur fyrir eða síðar. En stundum
getur of mikil kunnátta slævt vitund-
ina. Lombardy hefur e.t.v. ekki hug-
leitt svar Helga af þessum sökum.
13. bxa4!
Nú eru menn svarts nefnilega það
illa staösettir að hann nær ekki
peðinu aftur og að auki opnar hvítur
b-línuna að peði svarts á b7.
13. — Be6 14. Bc3 Bg8 15. Habl Ha7
16. a5!
Yfirburðir hvíts eru greinilegir.
Helgi hafði nú notað um hálfa
klukkustund en Lombardy 2
klukkustundir.
16. — Re417. Rxe4 fxe418. Dxe4 Bxc4
19. Dc2 Bg8 20. a4 Rd5 21. Bd2 Rf6 22.
e4 Dd7 23. e5
Eftirlætur riddaranum d5-reitinn
en í staðinn „stingur hann upp í”
biskupinn á g7 og peðakeöjan fer af
stað.
23. — Rd5 24. Rg5 Df5 25. Dxf5 Hxf5
26. f4 Hf8 27. Hb2 h6 28. Rf3 Hc8?
Slæmur leikur í erfiðri stöðu.
Lombardy átti nú aðeins 3 mínútur
eftir.
29. Rh4 Kh7 30. Be4 Bf7 31. f5! g5
I
I
Vörnin var engaii veginn auöséö
Síðasta spilið í tvímenningskeppni
Bridgehátíðar 1984 var athyglisvert
bæði til sóknar og varnar.
Austur gefur/a-v á hættu.
Norhiik
A DG1064
.> K8
* AG842
Ai's.nin
A 93
KG3
D9643
+ K53 .
SUDI'H
A A2
AD87
G1075
* 976
Við eitt boröiö sátu n-s Stefán
Guðjohnsen og Þórir Sigurðsson, en a-
v Símon Símonarson og Jón Asbjöms-
son.
Þar gengu sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
pass pass pass 1S
pass 2G pass 3L
pass 3G pass pass
pass Noröri, sem haföi opnaö til þess aö fá
sér bút, leist ekki á blikuna, að vera
kominn í game meö passaðan makker.
En við skuium fylgjast meðspilinu.
Vestur átti sjálfsagt útspil í hjarta,
en hann valdi að spOa út hjartatíu og
þar með birti aðeins hjá sagnhafa.
Austur setti eðlilega kónginn og
sagnhafi drap með ás. Hann spilaöi
síðan litlu laufi, tían, gosi og kóngur.
Þá kom hjartagosi, sem sagnhafi
drap með drottningu. Hann spilaði
síðan laufi, drap drottningu vesturs
meö ás og svínaði síðan spaðadrottn-
ingu.
Vestur drap á kóng og reyndi rétti-
lega ekki að spila undan tígulás, sem
áreiðanlega hefði leitt til yfirslags hjá
sagnhafa. Austur hefur jú passað í
upphafi og þegar sýnt tvo kónga og
gosa.
Heppnisspil hjá n-s? Aö vísu, en
vestur gat banað spilinu, þrátt fyrir
óheppilegt útspil. Þegar sagnhafi
spilar laufi í öðrum slag, þá verður
hann að láta drottninguna, sem er
engan veginn auðséð.
Barðstrendingafélagið
Eftir 14 umferðir er staöa 6 efstu í
barómeterkeppni félagsins.
1. Ragnar —Hjálmtýr 177
2. Sigurður—Halldór 111
3. Sigurbjöra — Ragnar 104
4. Jóhann — Kristján 82
5. Ingvaldur — Þröstur 72
6. Hermann — Gunnlaugur 62
Bridgefélag Hornafjarðar
Nýlokið er aðaltvimenningi félags-
ins.
18 pör mættu til leiks en 10 efstu
urðu:
stig
1. Skeggi Ragnarss.-Örn Þ. Þorbjömss. 961
2. Karl Sigurösson-Birgir Bjömsson 935
3. Ragnar Bjömsson-Borgþór Pétursson 932
4. Áml Stefánsson-Jón Sveinsson 928
5. Ragnar Snjólfss.-Sigf. Gunnarss. 920
6. Stefán Amgrimss.-Þorvaldur Hjarðar 879
7. Ölafur Jóhanness,-Jóhann Sveinss. 858
8. Guðbrandur Jóh.-Jón G. Gunnarss. 855
9. KolbeinnÞorg.-GisliGunnarss. 846
10. Svava Gunnarsd.-Gunnh. Gunnarsd. 831
Næst verður spilaöur einmenning-
ur/firmakeppni.
Bridgefélag Breiðholts
Þriðjudaginn 20. mars var spilaður
eins kvölds tvímenningur í tveimur 12
para riölum. Urslit urðu þessi:
A-RIÐIU.
1. Tómas Sigurjónss.-Hjálmar Pálss. 141
2. -3. Tómas Baldvinss.-Jónas Gissurars. 131
2.-3. Jens-Bjöm 131
4. Friðrik Jónsson-Erlendur 124
B-RIÐH.I,
1. Sveinn Sigurgeirss.-Baidur Amas. 153
2. Gunni. Guðjónsson-Orwei Utley 128
3. Valdemar Elíass.-Halldór Magnúss. 122
4. Helgi Skúlas.-Guðm. Grétarsson 115
Meðalskor í báðum riðlum 110
Næsta þriðjudag hefst barómeter,-
tvímenningur og er skráning hafin hjá
Baldri í síma 78055. öllum er heimil
þátttaka meðan húsrúm leyfir og eru
spilarar hvattir til að mæta vel og
tímanlega til skráningar. Spila-
mennskan hefst stundvíslega kl. 19.30.
Spilað er í Gerðubergi. Keppnisstjóri
er Hermann Lárusson.
Bridgedeild Skagfirðinga
Siðastliðinn þriðjudag lauk board a
match keppni deildarinnar með sigri
Sigrúnar Pétursdóttur. Auk Sigrúnar
spiluðu Albert Þorsteinsson, Oli
Andreasson og Stígur Herlufsen. Hlutu
þaul46stig.
2. Sveit Guðna Kolbeinssonar 131
3. Svelt Sigmars Jónssonar 130
,4. Sveit Bjöms Hermannssonar 124
Þriöjudaginn 27. mars og næstu
þriðjudagskvöld verður spilaður tví-
menningur.
Félagar eru minntir á að skrá sig í
tíma á sæluvikubridgemótið á Sauðár-
króki 6.-8. apríl. Sími 687070 og 35271
(Sigmar).
Bridgedeild Breið-
firðingafélagsins
Hraðsveitakeppni, úrslit eftir þriðju
umferð urðu þessi, með fyrirvara.
Ingibjörg Halldórsdóttir 1892
HansNielsen 1835
GuðlaugurNielsen 1817
Kristján Olafsson 1814
Esther Jakobsdóttir 1800
Magnús Halldórsson 1774
Elís R. Helgason 1774
Erla Eyjólfsdóttir 1756
Davíð borgarstjóri seglr fyrstu sögn Bridgehátíðar 1984 fyrir Sontag heims-
meistara.
Vksti k
A K875
’ 109654
O A2
* D10