Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Qupperneq 27
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984.
27
eru glösin sem allir eru meö á mynd-
unum nema maðurinn sem er að
halda langa ræðu úti í homi, hann er
yfirleitt alltaf glaslaus og er það
dálítið einkennilegt því að eftir þögn-
inni á myndunum að dæma er ræöan
mjög góö og fólkiö með glösin horfir
svo stíft á ræðumanninn að maður
efast um að því takist að horfa jafn-
stíft á málverkin þegar ræðunni er
lokið.
Að visu lýkur hann aldrei ræðunni
á áðurnefndum myndum og fólkið
fer heldur aldrei að horfa á mál-
verkin en ef hann gerði það myndi
hannsjálfsagtsegjaaölokum: Ognú
skulum við gefa þessum ágæta lista-
manni og syni islensku þjóðarinnar,
sem ég man ekki í augnablikinu hvað
heitir,gott klapp.
Þar sem það er erfiðleikum bundið
að gefa ágætum listamanni og syni
þjóðarinnar gott klapp með glas í
hendi stinga allir viðstaddir glasinu
upp i sig og klappa aö því búnu eins
og þeir eigi lífið að leysa á meðan
þeir geta haldið glasinu á milli tann-
anna.
Og nú, segir sá glaslausi, skulum
við njóta listaverkanna og gengur
fylktu liði við tilheyrandi glasa-
glaum inn í salinn þar sem lista-
verkinhanga.
Þegar inn í salinn er komið fara
menn að rýna í sýningarskrána sem
er prentuð í mörgum litum og þar
hefur hver mynd sitt nafn og númer
og þar aö auki verð sem er skítur á
priki að dómi þeirra sem hafa fengið
sér oft í glasiö og þeir hafa á orði að
réttast væri að kaupa þessar
fimmtíu myndir á einu bretti, sem
samkvæmt sýningarskránni eru
tuttugu og fimm, en vegna þess að
þeir eru nýbúnir að kaupa þrjár sýn-
ingar á einu bretti ekki alls fyrir
löngu hætta þeir við það þar sem
veggplássið í stof unni er takmarkað.
Gagnrýni
Daginn eftir málverkasýninguna
birtist gagnrýni í blöðum þar sem
talað er um isma og andrúmsloft,
línur og liti en hins vegar er ekkert
minnst á glösin sem eru þó miklu
meira áberandi á myndunum í blöð-
unum en ismamir og andrúmsloftiö.
Stundum eru það ungir menn og
upprennandi sem halda svona sýn-
ingar þar sem kennir margra glasa
en oftar eru þeir gamtir því að nú til
dags eru menn ekki fyrr orðnir
sjötugir en þeir hlaupa út í búð eins
og fætur toga og kaupa málningu og
striga.
Að því búnu hlaupa þeir eins og
fætur toga heim til sín aftur, setja
upp trönur í stofunni sinni og fara að
skapa ódauðleg listaverk að mati
gagnrýnenda en ódauðlegan bakverk
aö mati lækna.
Gagnrýnendur kalla þessi hlaup
naívisma sem er fínt orð yfir bama-
skap og lýsir sér í því að þegar
gamtir menn ætla að teikna hól
teikna þeir f jall af því að þeir em svo
skjálfhentir eftir öll hlaupin en gagn-
rýnendur segja hins vegar að fjaitið
sé hestur af því aö þeir hafa svo
mikið vit á þessu enda hafa þeir próf
upp á það frá institjútum i útlandinu.
Mig hefur oft langaö til að fara á
svona glasasýningar en ekki treyst
mér til þess hingað til þar sem ég er
frekar slakur í þvi að standa á höföi
en einhverra hluta vegna finnst mér
myndimar stundum vera á hvolfi og
hefur mér verið sagt að það stafi af
því hvað ég hef lítið vit á myndlist.
Nú til dags þarf nefnilega að hafa
vit á öllum sköpuðum hlutum og ef
menn vilja ekki vera álitnir algjörir
fávitar á listræna sviðinu er vissara
fyrir þá að lýsa tistaverkinu með
nokkmm vel völdum og hástemmd-
um lýsingarorðum áður en þeir fara
heimtilaökasta upp. Kveðja
Ben. Ax.
Helgi Olafsson.
Ekki gengur 31. — gxf5, vegna 32.
Bxf5+ og hrókurinn fellur.
32. f6+ Kg8 33. Rf5 Bf8 34. Bxd5 e6
Hann þotir náttúrlega ekki 34. —
Bxd5 35. fxe7 Bg7 36. exd6 o.s.frv. en
eins mátti gefast upp.
35. Ba2! dxe5 36. Re7+ Bxe7 37. fxe7
exdi 38. Hxe6! Kg7 39. He4 He8 40.
Bxf7 Kxf7 31. Bb4 c5 42. Hf2+ Kg7 43.
Bxc5 Hxa5 44. Hf8 Haa8 45. Bxd4+
Kg6 46. Hf6+ Kh7 47. Hee6 Hxa4 48.
Hxh6+ Kg8 49. Heg6+ Kf7 50. Hg7
mát.
Opna mótið í Lugano
Að loknu Reykjavíkurskákmótinu
héldu nokkrir keppendur til Lugano í
Sviss og tefldu í hinu árlega opna
móti. Þaö er með nokkuö öðm sniði
en Reykjavíkurskákmótið, kepp-
endur em mun fleiri og þar af
leiöandi fleiri snillingar og fleiri
skussar sem sitja að tafli. Frægastir
að þessu sinni voru Kortsnoj og
Spassky en hvorugur náði sínu besta
— Kortsnoj lék af sér skiptamun í
tímahraki gegn Hort og Spassky
gerði of mörg jafntefli.
Sigurvegari varð ungverski stór-
meistarinn Sax, sem hlaut 8 v. af 9
mögulegum. Jafnir í 2.-5. sæti urðu
Nunn (Englandi), Gheorghiu
(Rúmeníu), Seirawan (Banda-
ríkjunum) og Júgóslavinn Cvitan,
fyrrum heimsmeistari unglinga,
sem náði áfanga að stórmeistaratitti
með sína 7 vinninga. Næstir komu
Hort (Tékkóslóvakíu), Spassky
(Sovét-Frakkland?), Kudrin
(Bandaríkin), Lematchko (Sviss),
Van der Sterren (Hollandi) og
Czerna (Ungverjalandi) með 61/2 v.
og í 12.—29. sæti komu m.a. stór-
meistararnir Kortsnoj (Sviss),
Vukic (Júgóslavíu), Torre (Fitipps-
eyjum), Farago (Ungverjalandi) og
Bandaríkjamennimir Gurevic og
Mednis.. Einnig Englendingurinn
King, sem tefldi á Reykjavíkurskák-
mótinu. Altir hlutu þeir 6 1/2 v. en
þátttakendur á mótinu voru hvorki
meira né minna en 196 að tölu.
Hér kemur dæmi um léttleikandi
taflmennsku sigurvegarans:
Hvítt: Sax
Svart: Nunn
Sikileyjarvöm.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 Rf6 4. Rc3 cxd4
5. Rxd4 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be6 8. Dd2
Rbd7 9. f4 exf410. Bxf4 Re511.0—0—
0 Be7 12. Rd4 Da5 13. Rf5 Bxf5 14.
exf5 Hc815. Kbl Dc7
abcdefgh
16. g4! Rexg4 17. Hgl g6 18. Hxg4!
Rxg4 19. Rd5 Dd8 20. Hel Re5 21.
Bxe5 dxe5 22. Hxe5 0-0 23. Rxe7+
Kh8 24. Bd3 Dd6 25. He4 Hcd8 26.
Dc3+ f6 27. fxg6 Dxh2 28. gxh7
— Og svartur gafst upp.
XjQ Bridge
Stefán Guðjohnsen
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Nú er lokið 6 umferðum af 13 í board
a match keppni félagsins en 14 sveitir
taka þátt í keppninni. Staða efstu
sveitaerþessi:
Runólfur Pálsson 60
Guóbrandur Sigurbergsson 60
Jón Hjaltason 54
Urval 53
Sigurður Steingrimsson 52
Þórarinn Sigþórsson 50
Þorfinnur Karlsson 49
Næstu 4 umferðir verða spilaðar nk.
miðvikudag en mótinu lýkur miðviku-
daginn 4. apríl.
„TBK"
Siöastliðinn fimmtudag, 22. mars,
lauk aðalsveitakeppni félagsins. Sveit
Gests Jónssonar sigraði nokkuð örugg-
lega, hlaut 114 stig úr 7 leikjum. Með
Gesti í sveitinni voru: Ragnar
Magnússon, Sigtryggur Sigurðsson,
Sverrir Kristinsson og Orwell Utley.
Annars varð lokastaðan þessi.
1. Gestur Jónsson 114
2. Gunnlaugur Úskarsson 94
3. Gísli Steingrimsson 86
4. Auðunn Guðmundsson 88
5. Þórður Jónsson 83
6. Anton Gunnarsson 82
7. Bernharð Guðmundsson . 77
Næstkomandi fimmtudag, 29. mars,
hefst svo hinn sívinsæti barómeter-tví-
menningur hjá félaginu og stendur
skráning yfir. Félagar og aðrir eru
hvattir til þátttöku í spennandi keppni.
Eitt símtal og við erum með. Við
skráningu taka: Tryggvi Gislason í s.
24856, Bragi Jónsson í s. 30221.
Við byrjum stundvíslega kl. 19.30 í
Domus Medica. Sjáumst.
mTI
öflgr TILBOÐ
Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar í því ástandi sem þær
eru í.
Bifreiðarnar hafa skemmst í umferðaróhöppum.
BMW320......................................... 1982
Daihatsu Charade............................... 1983
Oldsmobile Cutlas dísil........................ 1979
Pontiac grand Le Mans.......................... 1976
Toyota Corona MKII............................. 1972
Subaru 1600 DL................................. 1978
FordMaverick................................... 1974
Ford Escort.................................... 1975
Lada 1300 Safir................................ 1982
Datsun 180 B................................... 1978
ToyotaCarina................................... 1977
OpelRekord..................................... 1971
DodgeSwinger................................... 1975
Bifreiðarnar verða til sýnis mánudaginn 26. mars 1984 í
Skaftahlíö 24 (kjallara) frá kl. 10—12 og 13—16.
Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 17.00 sama dag til bifreiða-
deildar Tryggingar hf., Laugavegi 178 Reykjavík.
Trygging hf.
VEIÐILEYFI
Höfum til sölu veiðileyfi á komandi sumri í eftirtöldum ám:
Blöndu, 2 stangir, neðan stiga, auk tilraunastangar í Langa-
dal. Einnig í Laxá ytri en þar er veitt á 2 stangir á dag.
Veiðihús fylgir með veiðileyfum í Laxá. Upplýsingar í sima
95-4383 á Blönduósi.
Stangaveiðifélag
Austur-Húnavatnssýslu.
BIFREIÐAEFTIRLIT
A SELFOSSI
Tilboð óskast í innanhússfrágang á hluta stálgrindahúss að
Gagnheiði 20 á Selfossi fyrir Bifreiðaeftirlitið.
Húshlutinn er um 110 m2 að flatarmáli. Verktaki skal m.a.
setja nýjar dyr og glugga í húsið, setja milliloft og innveggi,
mála, ganga frá gólfum og smíða innréttingu. Auk þess skal
hann leggja vatns-, skolp-, hita- og raflagnir í húshlutann.
Verkinu skal að fullu lokið 30. júní 1984.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7
Reykjavík. gegn 1500 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 6. apríl 1984 kl.
11.30.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
V1Ð GETUM
LETT DER SPORIN
OG AUDVELDAÐ DÉR FYRIRHÖFN
Við viljum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá
um að svara fyrir þig símanum. Við tökum á móti
upplýsingum og þú getur síðanfarið yfir þær í góðu tómi
• Afsöl og sölutilkynningar bifreiða
• Húsaleigusamningar (löggiltir)
• Tekið á rnóti skriflegum tilboðum
virka daga kl. 9—22
OPIÐ: laugardaga 9—14
sunnudaga kl. 18—22
Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og
þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9—17.
SÍMINN ER 27022.
ATHUGIÐ
Ef smáauglýsing á að birtast í helgarblaði
þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17 föstudaga.
SMÁAUGLÝSINGADEILD,
ÞVERHOLT111, SÍMI 27022.