Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Page 37
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984.
Islenska hljómsveitin leikur:
Tónlist á tyllidögum
Islenska hljómsveitin heldur
tónleika í Gamla bíói þriðjudaginn 27.
mars kl. 20.30. Tónleikamir bera yfir-
skriftina „Tónlist á tyllidögum”. Sér-
stakur gestur hljómsveitarinnar
verður sænski háöfuglinn Bo Maniette
og mun hann flytja tónverkið Hr.
Frankenstein eftir austurríska
tónskáldið H.K. Gruber en það verk
þykir í fyndnara lagi og verður í
þessum mánuði flutt í alls níu borgum í
Evrópu.
Þá verða frumflutt á tónleikunum
tvö íslensk tónverk sem bæöi voru
samin í vetur að tilhlutan hljóm-
sveitarinnar. Hið fyrra er eftir Atla
Ingólfsson og heitir Negg, en hið
síðara er eftir Pál P. Pálsson og heitir
Tónlist á tyUidögum.
Aö auki flytur hljómsveitin Dansa
frá Vínarborg eftir Strohmayer og
Schrammel-bræður, sem og Keisara-
vals eftir Johann Strauss yngri í út-
setningu Arnold Schönberg.
— segirÁskell
Másson um tónleika
með verkum
HansíLondon
„Þetta gekk mjög vel í alla staði
og tónleikarnir fengu fína krítik,”
sagði AskeU Másson tónskáld í
viðtali við DV, en fyrr í vikunni voru
haldnir tónleikar helgaðir verkum
hans í Wigmore HaU í London og er
það i fyrsta sinn sem tónleikar
erlendis eru eingöngu helgaðir verk-
um eins íslensks tónskálds.
, Ji’lutningurinn tókst mjög vel og
aðsókn var góð, miöaö viö það sem
gerist á svona tónleikum,” sagði
AskeU.
Aðspurður sagði AskeU að þessir
tónleikar hefðu verið lengi í bigerð,
Áskell Másson tónskáld.
umþaöbil2ár.
„Það má segja að upphafiö hafi
verið að maöur að nafni Archie New-
man, sem stjórnar almanna-
tengslum fyrir Royal PhiUiarmonic
hljómsveitina, hefur fylgst með mér
lengi. Hann hafði samband viö Einar
Benediktsson, sendiherra í London,
og bauö upp á samstarf um aö koma
á tónleikum. Það hefur síðan tekið
svona langan tima að koma þeim á,
það er mikið sótt í svona góða saU og
langir biðUstar.”
Bo Maniette sóst Itér í gervi Dracula greifa en með íslensku hljómsveitinni
syngur hann Hr. Frankenstein eftir Gruber.
Laugardags-
diammí
Tónkvísl
GítarskóUnn Gítarinn heldur
tónleika í Tónkvísl, Laufásvegi 17,
laugardaginn 24. mars klukkan
þrjú.
Fram koma Björn Thoroddsen og
Gammamir, Guömundur Ingólfs-
son og félagar ásamt fleirum.
myndinni má sjá Björn Thorodd-
sen þenja gítarinn sinn.
,. -SGV.
ÞEIR GROTNA EKKI
MMNIÐUR ÞESSIR
mrnSrn &§ EUgmé málmng er ekki
mvandamál hjá
. .V.C. plast gluggar og hurðir, er
sterk, endingargóð og áferðarfalleg
framleiðsla, sem hentar bæði i ný
og eldri hús. P.V.C. Primó eykur
verðgildi fasteigna og sparar við-
haldskostnað og vinnu.
Hagstætt verð, föst verðtilboð. Þið
hringið, við tökum gamla gluggann
(hurðina) úr og setjum [ þann nýja.
í glugga- og hurðadeild framleiðum
vió einnig ál-glugga og hurðir.
Vegna hagstæðra samninga á
kaupum á hráefni, bjóðum við mjög
hagstætt verð og kynningarafslátt.
P.V.C. Primó plast gluggar og hurðir
eru notaöir á öllum Norðurlöndum
að meðtöldum Færeyjum, Græn-
landi og Norður-Noregi.
Gæði Prlmó plast glugga og hurða
byggir á notkun nýjustu tækni í vél-
búnaði við framleiöslu glugga og
hurða og stöðugu gæðaeftirliti. Við
þéttleikaprófanir á Norðurlöndum
er Primó i hæsta gæðaflokki. 60%
þeirra sem endurnýja glugga i eldri
húsum ( Danmörku nota P.V.C.
Primó plastglugga og mjög mikil
aukning hefur verið ( notkun á
plastgluggum ( nýjum húsum.
Primó gluggar henta jafnt í ein-
býlishúsum og fjölbýlishúsum og
þar sem erfitt er um vióhald, s.s
skólum, opinberum byggingum,
atvinnuhúsnæði og allsstaðar sem
viðhald þarf að vera i lágmarki.
Til að ná auknum styrkleika eru stál
prófllar notaðir innan I Primó plast
gluggum og hurðum. Hægt er aó
velja um þrjá liti á gluggum og hurð-
um, hvítt, brúnt og grátt.
MÁLMTÆKNI SF.
Vagnhöfða 29 110 Reykjavik. Slmi 83705 og 83045
VIÐ LEGGJUM ÁHERSLU Á GÓÐA ÞJÓNUSTU.