Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Síða 38
38
DV. LAUGARDAGUR 24. MARS1984. 'T
Mitre bauð Magn-
úsi á Wembley!
— því miður gat ég ekki þegið boðið, sagði Magnús V. Pétursson,
knattspymudómarinn kunni
— Jú, það er rétt, mér var sér-
staklega boðið til að vera viðstaddur
úrslitaleikinn á Wembley þegar
Everton og Liverpool mæta þar i
Milk Cup. Því miður gat ég ekki
þegið þetta glæsilega boð þar sem ég
er á ieið til Danmerkur, sagði
Magnús V. Pétursson, knattspyrnu-
dómarinn kunni, sem var einn a(
hundrað mönnum sem Mitre bauð tii
London.
Magnús er umboðsmaður Mitre á
Islandi, en þaö er einmitt Mitre-
knöttur sem rúllar um Wembley á
morgun. Það hefur ávallt verið leikiö
með knetti frá fyrirtækinu á
Wembley. — Mitre er aö kynna nýjan
knött, sem verður notaður í fyrsta
skipti í leik Everton og Liverpool.
Það er knöttur af Delta gerð, sagði
Magnús, en hann fékk sendan þannig
knött fyrir stuttu og má sjá hann á
myndinni hér til hhöar. Þá sendi
Mitre Magnúsi sérstakan bikar, sem
sést einn á myndinni, og hefur verið
ákveðiö að gefa Þrótti bikarinn í
tilefni þess að félagið varð Islands-
meistari í knattspymu innanhúss.
Bikarinn veröur því notaður innan
Þróttar í f ramtíöinni.
Magnús V. Pétursson sést hér með Mitre knöttinn nýja og bikarinn sem
fyrirtækið gaf Þrótti. DV-myndS.
T revor Brooking kveður
Þegar Trevor Brooking hættir at-
vinnuknattspyrnu í iok keppnistíma-
bilsins bindur hann enda á 18 ára frá-
bæran knattspyrnuferil sinn. Hann
hefur alltaf verið hinn sanni herra-
maður, á vellinum sem utan hans, og
enginn cfast um frábæra knatt-
spyrnuhæfileika hans.
Trevor hefur nú þegar komið sér
vel fyrir í heimi viðskiptanna og mun
því ekki þurfa aö óttast að
peningarnir hætti að streyma inn.
John Lyall, framkvæmdastjóri
West Ham, fer ekkert í launkofa með
það að hann vill hafa Brooking
áfram en Brooking er sjálfur
staðráöinn í að standa viö þá
ákvörðun sem hann tók í haust, að
hætta.
Síðasta ósk Trevor er að hjálpa
West Ham liðinu að tryggja sér sæti í
UEFA-keppninni næsta ár og veröa
möguleikar á því að teljast nokkuö
góðir þótt liðiö sé í talsverðri lægð
þessa dagana.
Meiösli hafa háö Brooking talsvert
í gegnum árin en þaifverstu komu í
veg fyrir að hann gæti leikið með í
heimsmeistarakeppninni á Spáni
sumarið 1982 og keppnistímabilið á
eftir lék hann aðeins einn leik með
aðalliðinu og allt stefndi í aö hann
þyrfti að leggja skóna á hilluna.
Það var gröftur í beini sem or-
sakaöi hið mikla hlé á leik Brooking.
En þrátt fyrir hrakspár hans sjálfs
tókst læknum að bjarga málunum,
tóku bein úr mj' ðm hans og græddu
þaö á sköflunginn.
John Bailey — hinn gamalkunni
leikmaöur Everton.
Ef tir átján ár í knattspyrnunni ætlar hann
að snúa sér að viðskiptunum
Til að byrja með lék Brooking 14
leiki með varaliðinu en fór síðan til
Hong Kong og var um tíma meö
Eastern FC til að ná fyrra formi Með
gífurlegri vinnu tókst Brooking að
vinna upp allt sitt þrek og tækni, bar-
átta sem margur maðurinn hefði
fariö halloka í.
Það var árið 1966 sem Brooking
lék sinn fyrsta leik með West Ham
liðinu, stuttu eftir að Englendingar
unnu heimsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu. Brooking lék því við hliðina
á mönnunum sem unnu úrslita-
leikinn, Bobby Moore (fyrirliði),
Geoff Hurst (3 mörk) og Martin
Peters (1 mark). Ekki svo lítil
upphefö fyrir átján ára ungling sem
meö mikilli ákveðni og hörku, sam-
fara gífurlegum hæfileikum, vann
sig inn í liðið og hreif framkvæmda-
stjórann, Ron Greenwood, svo að
segja upp úr skónum.
Sá fyrsti af hinum 47 landsleikjum
Brooking kom árið 1974 þegar
Englendingar unnu Portúgali í
Lissabon. Þetta var síðasti leikurinn
þar sem Sir Alf Ramsey var við
stjórnvöl enska liðsins.
Þegar Brooking minnist eftir-
minnilegra landsleikja er þaö jafnan
leikurinn við Ungverja árið 1981 sem
kemur fyrst upp í huga hans.
Það er ósköp skiljanlegt.
Fyrirfram var talið að Englendingar
hefðu misst af lestinni sem hafði
Spán ’82 sem endastöð. Þeir höfðu þá
nýlega tapað óvænt fyrir
Svisslendingum 2—1 og Ron Green-
wood, einvaldur og þjálfari liðsins
hafði verið rakkaður niður af ensku
pressunni í kjölfar þess leiks.
Leikmenn enska liðsins, sem
sluppu nokkuð vel frá blöðunum,
vissu að þaö var ekki rétt að taka
Greenwood svona fyrir því sökin var
að mestu þeirra. Þeir voru því
staðráðnir aö vinna leikinn gegn
Ungverjum, en hann fór fram á
heimavelli Ungverja, velli sem mörg
stórlið hafa beðið hræðilegt skipbrot
á. Þeir unnu og gott betur. Ung-
verjarnir voru teknir í karphúsið
með 3—1 sigri og gerði Brooking tvö
markanna.
Það var ekki sama hátíðin uppi á
teningunum þegar í sjálfa úrslita-
keppnina kom. Brooking og reyndar
Kevin Keegan líka voru meiddir
mestan tímann og komu aðeins inn á
rétt í lok síðasta leiksins, gegn Spán-
verjum, en hann endaöi 0—0 og gerði
útslagið á þaö að Englendingar fóru
heim en Þjóðverjar komust í und-
anúrslit.
Það er aðeins eitt sem Brooking
sér eftir er hann lítur til baka á hinn
langa og litríka leikferil sinn.
Það er að West Ham liöiö skuli ekki
hafa unnið deildina. Liðið endaði
aldrei hærra en númer sex og þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir, bæði hjá
Greenwood og Lyall, þá tókst
hvorugum að búa liðinu þann stöðug-
leika sem þarf til að krækja í titilinn.
I ár hafa gífurleg meiðsl komiö í
veg fyrir titilvonir liösins því eins og
fram hefur komið voru um tíma sjö
af fastaleikmönnum liðsins meiddir.
Brooking minnist einnig úrslita-
leikjanna tveggja sem töpuðust.
Annars vegar í Evrópukeppni bikar-
hafa árið 1976 er þeir töpuöu fyrir
hollenska liðinu Anderlecht 4—2.
Leikurinn var frábærlega vel leikinn
og synd væri að segja aö West Ham
liðiö hefði átt minna í honum en and-
stæðingarnir.
Hins vegar leikurinn er þeir töpuöu
gegn Liverpool í úrslitum deilda-
bikarsins árið 1981. Liverpool var
meistari en West Ham í annarri deild
og þáverandi bikarmeistari. Það
þurfti tvo leiki til að fá botn í úrslitin,
fyrst varð jafntefli 1—1 á Wembley,
bæði mörkin gerð á tveimur síöustu
mínútum leiksins. I seinni leiknum,
sem háður var á Villa Park, stóð
West Ham lengi vel í meisturunum
en varö aö lokum að láta undan siga
og leikurinn tapaðist 2—1.
Ekki má gleyma tvennum
John Bailey, Everton
Þó John Bailey hafi ekki verið i liðinu síðan Howard Kendall tók Ian Rush í sjónvarpsleiknum fyrir
iengi hjá Everton, síðan 1979, þá við stjórastöðunni. þremur vikum. Vafasamt er að
hefur hann verið þar lengst allra Helsti galli þessa færa vinstri Kendall muni láta Bailey gæta Rush
leikmanna liðsins. Hann er einn af bakvarðar er að hann er allt of í úrslitaleiknum en það er þó aldrei
þeim örfáu sem haldið hafa sæti sinu þungur og seinn á sér. Það sást að vita og þá fær hann möguleika á
beriega er hann átti að hafa gætur á að hefna sín.
Kcppnis- UA DeUd DeUd MilkCup EACup AIls
tímabU leikir mörk leikir mörk leikir mörk leUtir mörk
1975-76 Blackburn 2 4+2 1 5+2
1976-77 Blackbum 2 31+3 3 3 37+3
1977-78 Blackburn 2 41 1 2 2 45 1
1978-79 Blackbum 2 31 2 3 36
1979-80 Everton 1 42 2 5 5 52 2
1980-81 Everton 1 31 2+1 4 37+1
1981-82 Everton 1 12 3 15
1982-83 Everton 1 37 1 3+1 3 43+1 1
1983-84 Everton 1 25 5 5 35
AUs: 1975—79 1979-84 Blackbura Everton 107+5 147 1 8 3 15+2 8 20 123+5 1 182+2 3
Samtals 1975-84 254+5 4 23+2 28 305+7 4
Kaupverðið á Bailey árið 1979 var
300.000 pund. Bailey hefur aidrei
unnið til verðlauna á leikferlinum og
er þetta í fyrsta skipti sem hann leik-
ur í úrslitaleik í bikarkeppni.
verðlaunum sem Brooking vann,
tvöfaldur FA bikarmeistari. Fyrst
1976 er þeir unnu Fulham 2—0 og
síðan er þeir unnu Arsenal 1—0 árið
1980, þá í annarri deild. Brooking
gerði markið með skalia, nokkuð
sem var sjaldgæf sjón að sjá.
Og Brooking viðurkennir að hann
heföi mátt gera fleiri mörk á ferli
sínum en í um sex hundruð deilda-
og bikarleikjum eru mörkin nú
tæplega hundrað.
Það er að vísu ekki svo slæmt af
miðjumanni sem upptekinn er af því
að stjórna spili liðsins en Brooking
segir að hann hefði skilið sáttari við
knattspyrnuna ef þau hefðu verið
fleiri.
Það er engin hætta á ööru en
Trevor Brooking geti kvatt heim
knattspymunnar með góðri
samvisku. Hvar sem hann hefur
farið hefur hann aidrei getið sér
nema gott orð. Sannur séntilmaður
eins og t jallinn kemst að orði.
-SigA.
Trevor Brooking — ætlar að hætta.
J