Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1984, Blaðsíða 44
VISA ISLAND
VISA
í öllum viöskiptum.
Austurstræti 7
Sími 29700
LUKKUDAGAR
24. mars
6463
TÆKI AÐ EIGIN VALI
FRÁ FÁLKANUM AÐ
VERÐMÆTI KR. 6000.
Það borgaði sig fyrír
Lárus að banka aftur!
KAFFIVAGNINN
wm GRANOAGARÐ110
Viti
HÖFUM
30
{jgnors
Bakarí vorurnah
TEGUNOIR AF KÚKUM
0G SMURÐU BRAUÐI
OPNUM ELDSNEMMA
- LOKllM SEINT
9769? AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR
AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
_______ÞVERHOLTI11__
RITSTJÓRN
SÍOUMÚLA 12-14
AKUREYRI SKIPAGÖTU 13
AFGREIÐSLA (96)25013
BLAÐAMAÐUR (96)26613
86611
Ferðabæklingur
Atlantik fylgir
DVídag
Feröabæklingur Atlantik fylgir til á-
skrifenda DV í dag. Bæklingurinn er
átta litprentaðar síöur og er í honum
greint frá helstu feröamöguleikum
sem ferðaskrifstofan býður upp á
næsta sumar.
Man. Utd. mætir
Juventus
I gær var dregiö í Evrópukeppninni
í knattspymu. Liverpool mætir Dyna-
mo Bukarest og á Liverpool aö eiga
mikla möguleika á að komast í úrslitin
í Evrópukeppni meistaraliöa. Skosku
meistaramir Dundee lentu á móti
Roma frá Italíu.
I Evrópukeppni bikarhafa dróst
Manchester United gegn Juventus frá
Italíu og ætti Man. Utd að eiga mikla
möguleika í þeirri viöureign. Porto frá
Portúgal mætir skosku bikarmeistur-
unum Aberdeen.
Og í UEFA-keppninni dróst Ander-
lecht gegn Nottingham Forest og
Tottenham gegn júgóslavneska liðinu
Hajduk Split.
Fyrri leikirnir fara fram 11. apríl en
þeirsíðari þann 25. apríl.
________________________-SK.
Bókageröar-
menn semja
Samningar tókust í gær milli Félags
bókagerðarmanna og viðsemjenda
þeirra. Samkvæmt heimildum DV er
samningurinn í meginatriðum sam-
hljóða samkomulagi ASI og VSI utan
hvað svonefndur unglingataxti var
felldur niður þannig að aðstoðarfólk og
iðnnemar hækka í launum og breyting-
ar voru geröar á starfsaldursþrepum.
-OEF.
Verður láninu
breytt í styrk?
— eggjadreif ingarstöð tekur ef til vill til starfa með vorinu
Gert er ráð fyrir að láni því sem
veitt hefur verið úr Kjamfóðursjóði
til byggingar eggjadreifingar-
stöðvar verði með tímanum breytt í
styrk. Af þeim sökum hefur ekki ver-
iö samið um lánsskilmála.
Samband eggjaframleiöenda fór
upphaflega fram á aö þvi yrði veittur
rúmlega 5 milljón króna styrkur til
byggingar eggjadreifingarstöðvar.
Eftir að málið varð ágreiningsefni
innan stjómarflokkanna og af-
greiðsla þess dróst fór stjóm sam-
bandsins fram á aö fá 2 milljón króna
bráðabirgðalán. Samkomiúag varð
innan stjómarflokkanna um að þetta
lán yrði veitt úr Kjarnfóðursjóði. I
bréfi landbúnaðarráðherra segir að
lánið sé veitt með því skilyrði „að
öllum framleiðendum verði heimiluð
afnot af stööinni en enginn skuld-
bundinn til viðskipta og öðrum aðil-
um sem kynnu að vilja stofna eggja-
dreifingarstöð á sama grundvelli
verði veitt sama fyrirgreiösla. ”
Að sögn Gunnars Guðbjartssonar,
framkvæmdastjóra Framleiðsluráðs
landbúnaðarins, er ekki búið að
semja um lánsskilmála þar sem þaö
liggur á bak við þessa heimild ráð-
herra að láninu kynni að verða
breytt í styrk. Sagði Gunnar að ölium
ákvörðunum um fyrirgreiöslu til
annarra aðila svo og veitingu heild-
söluleyfa til annarra eggjaframleið-
enda yrði frestað þar til ljóst yrði
hverjir yrðu aðilar að þessari stöð.
Samband eggjaframleiðenda mun
hafa í hyggju að koma upp eggja-
dreifingu til bráðabirgða nú í vor en
eggjadreifingarstöðin mun taka til
starfa í september. Mun ætlunin að
fulltrúar samtakanna fari utan inn-
an skamms til að semja um kaup á
vélum. OEF
Það þurfti að hafa hraðar tiendur til að bjarga þessum báti þar sem hann kastaðist að og frá Torfunes-
bryggjunni á Akureyri í rokinu í fyrrakvöld. Að lokum tókst að hemja hann og draga að syðri bryggjunni
þar sem var minni sjögangur. Báturinn hafði þá brotnað mikið. Harðsnúið lið vann að björgunar-
aðgerðunum.
-DV-mynd JBH/Akureyri.
Verömæt íslensk frí-
merki boðin upp í
Sviþióð
Aðeins tvær 40 aura fjórblokkir
eru til í heiminum.
Islensk frímerki, 40 aura fjór-
blokk, eru aöalnúmerið á miklu
frímerkjauppboði sem fram fer í
Málmey í Svíþjóð dagana 6. til 7.
apríl næstkomandi. Lágmarksboð í
fjórblokkina er 150 þúsund sænskar
krónur sem þýðir að kaupandi þarf
að greiða með kostnaði að minnsta
kosti 600 þúsund krónur.
40 aura-frímerkin voru prentuð
skömmu fyrir aldamót, árið 1898.
Þau voru hins vegar aldrei gefin út.
Þau fóru í notkun árið 1902 og þá með
yfirprentun „í gildi”.
Ostimpluð merki voru í vörslu
Póststjórnarinnar íslensku. Slík
merki komust í umferð eftir að þeim
hafði verið stolið á sjötta áratug
þessarar aldar. Varð úr því sakamál
sem lauk með því að nokkrir menn
voru dæmdir um 1960.
-KMU.
Dagsbrún og
1fSÍsömdu
— „unglingataxtinn”
felldur niður
Samningar tókust milli Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar og
Vinnuveitendasambands Lslands í
gærmorgun. Samningsaðilar
vörðust allra frétta af innihaldi
samningsins í gær og vísuöu til
þess að samkomulag hefði orðið
um aö opinbera samninginn fyrst á
félagsfundi Dagsbrúnar sem
haldinn verður á mánudag.
Samkvæmt heimildum DV
náðist samkomulag milli aðila um
að fella niður svonefndan unglinga-
taxta eða lægri lágmarkslaun. Að
öðru leyti mun samningurinn ekki
fela í sér veigamiklar breytingar.
Asmundur Stefánsson, forseti
ASI, sagðist í gær ekki hafa séð
samninginn og gæti hann þvi ekki
sagt til um hvort ASI myndi gera
kröfu um að fá samskonar
breytingar fyrir þau aðildarfélög
sem þegar hafa samþykkt sam-
komulag ASI og VSI.
Þröstur Olafsson, framkvæmda-
stjóri Dagsbrúnar, sagði í gær að
félagið mætti þokkalega við una
þennan samning miðað við
aöstæður. Sagði hann þaö hafa gert
stööu Dagsbrúnar miklu þrengri að
samningurinn hefði verið felldur á
félagsfundi en samþykktur hjá
flestum öörum félögum. -OEF.
Útvegsbankinn:
LárusogÓlafur
bankastjórar
Lárus Jónsson alþingismaður og
Olafur Helgason aöstoðarbanka-
stjóri voru í gær ráðnir bankastjór-
ar Utvegsbanka Islands frá og með
L júní næstkomandi. Þeir Jónas. G.
Rafnar og Armann Jakobsson láta
af störfum sem bankastjórar frá og
meðsamatíma.
Armann Jakobsson verður 70
ára á þessu ári og lætur því af
störfum fyrir aldurs sakir. Jónas
G. Rafnar veröur 64 ára á þessu
ári.
DV spurði Jónas í gær hvers
vegna hann hefði ákveðiö að hætta.
,,Eg er búinn að vera bankastjóri
Utvegsbankans í um 21 ár og þaö er
ekkert leyndarmál að ég hef hug-
'leitt alllengi að hætta. Mig langar
einfaldlega til að snúa mér að
öðrum verkefnum, breyta til.”
Þess má geta að Bjöm Dag-
bjartsson mun skipa sæti Lámsar á
Alþingi.
__________________ -JGH.
EnemyMine:
Þekktirleikarar
hingað tillands
Aöalhlutverkin i myndinni
Enemy Mine verða í höndum
þekktra leikara, þeirra Louis Goss-
et og Dennis Quaid. Gosset er Öllu
þekktari en íslenskir kvikmynda-
húsagestir ættu að miina eftir hon-
um úr myndinni An Officer And A
Gentleman sem sýnd var hér ný-
lega. Fyrir leik sinn í þeirri mynd
fékk hann óskarsverölaun fyrir leik
í aukahlutverki.
Leikstjóri Enemy Mine verður
Richard Loncraine, tiltölulega lítt
þekktur leikstjóri, en af fyrri
myndum hans má nefna The
Missionary sem sýnd var hérlendis
fyrirskömmu.
-SþS