Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1984, Page 2
2
DV. LAUGARDAGUR7. APR1L1984.
Bjórfrumvarpið:
Engin ástæða til að bíða
— segir annar f lutningsmanna
Bjónnáliö er nú komið enn eina
ferðina inn á Alþingi eins og kom
fram í DV í gær. Þá var lagt fram
frumvarp til laga sem gerir ráð fyrir
aö verði þaö samþykkt veröi ríkis-
stjórninni heimiit að leyfa bruggun
öls sem hefur inni að halda meira en
2,25 prósent af vínanda að rúmmáli
samkvæmt nánari ákvæðum. Einnig
yrði hömlum á innflutningi á áfengu
öli aflétt.
Flutningsmenn þessa frumvarps
eru þeir Jón Magnússon (D) og Jón
Baldvin Hannibalsson (A).
Alþingi hefur nú einnig til
meöferðar þingsályktunartillögu
þess efnis aö þjóðaratkvæöagreiðsla
fari fram um hvort leyfa skuli áfengt
öl hérlendis.
Aö sögn Jóns Magnússonar,
annars flutningsmanna bjór-
frumvarpsins, er frumvarpinu aUs
ekki stefnt á neinn hátt gegn þings-
ályktunartillögunni. Hins vegar sjái
hann enga ástæðu til' að bíöa með
bjórinn jafnlengi og þingsályktunar-
tUlagan geri ráöfyrir.
Þar er lagt til að hugsanleg þjóðar-
atkvæðagreiðsla fari fram viö næstu
alþingis- eða bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningar og ef rikisstjórnin
situr út kjörtímabUið gefst því fyrst
tækifæri við bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningar eftir tvö ár. Þá á
Alþingi eftir að taka málið til
meöferöar, setja lög og ákveöa aöra
þá skipan mála sem þaö telur þurfa.
Þannig getur málið tafist í ein þrjú
til fj ögur ár enn, eða tU 1987 eða 1988.
I greinargerð með frumvarpinu er
rakin stuttlega saga áfengs öls á
Islandi og getiö þeirra frumvarpa og
þingsályktunartUlagna sem komið
hafa framá Alþingigegnumárin.
Bent er á aö landiö sé langt því frá
Bjór eða ekki bjór. Um fátt hafa menn deilt meira og lengur a ísianai.
að vera öllaust þrátt fyrir bann.
Farmenn, flugUðar og ferðamenn
megi taka með sér ákveðiö magn af
áfengu ÖU við komu til landsins. Og
þá megi fullyröa að verulegu magni
af öli sé smyglað inn í landið.
Ennfremur sé nú selt á aUmörgum
veitingastöðum í landinu öUíki þar
sem sterku áfengi sé blandað saman
við það öl sem leyft sé á markaðnum,
þannig að styrkleiki drykkjarins
verði svipaður því sem gerist um
áfengt öl í nágrannalöndum okkar.
Flutningsmennirnir gera ráð fyrir
að ákveðinn tími verði að líða frá því
að bruggun og sala áfengs öls er
samþykkt af Alþingi þangað tU lögin
taka gUdi. Þetta sé nauðsynlegt tU að
tryggja innlendum framleiðendum
svigrúm til að undirbúa framleiðslu
áfengs öls. I frumvarpinu er miðaö
við að þessi undirbúningstími vari tU
næstu áramóta og aö lögin öölist þá
gildi. Hugsanlegt sé að framlengja
þennan frest eitthvað fram eftir ár-
inul985.
Einnig kemur fram í frumvarpinu
aö kanna þurfi hvort áfengt öl, fram-
leitt innanlands, verði einungis á
markaðnum til að byrja meö og inn-
flutningur erlends öls hefjist ekki
fyrr en aö loknum eðlilegum
aðlögunartíma íslensku ölgeröar-
fyrirtækjanna. SþS
Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas:
Aðlögunartími
er sanngjarn
Mér líst mjög vel á þetta frumvarp
og ég er hress meö að það skuli vera
lagt fram ákveðiö frumvarp í þessa
átt og vonandi verður það ekki saltað
eins og fyrri bjórfrumvörp,” segir
Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas,
um bjórfrumvarpið sem lagt var
•framáAlþingiígær.
Um þann hluta málsins sem að
honum snýr, framleiðslu á öli, segir
hann að Sanitas þurfi í raun og veru
engan aðlögunartíma til framleiöslu
á áfengu öli.
„Viö erum nýbyrjaðir framleiöslu
á sterkum bjór sem viö seljum í
fríhöfnina, skipin og fleiri staði,”
segir Ragnar.
Hann telur að Sanitas geti annaö
um einum þriðja af markaðnum hér-
lendis, sem hann giskar á aö verði
milli 12 og 15 milljónir lítra af öli á
ári verði sala leyfð.
„Annars finnst mér sanngjarnt að
við fáum aölögunartíma til að ná fót-
festu á markaðnum eins og annar
innlendur iðnvamingur hefur fengið.
Við erum jú aö byrja og þurfum aö
þreifa okkur áfram en það þurfa
þessir erleniiiu framleiöendur ekki.
Með aölögunartíma gæfist okkur
færi á aö berjast viö hina á markaön-
um í staö þess að þeir flæddu yfir
okkur ef innflutningur yrði leyfður
strax,” segir Ragnar Birgisson.
-SþS
Halldór Kristjánsson f rá Kirkjubóli:
Afengt öl veröur einungis viöbót
„Mér finnst það mun lánlegra að
fara þessa leiöina og iáta þingið taka
afstöðu til bjórsins í stað þjóðar-
innar,” segir Halldór Kristjánsson
frá Kirkjubóli, einn af helstu bar-
áttumönnum bindindishreyfingar-
innar hér á landi um áratuga skeið,
er DV spyr hann álits á nýfram-
komnu bjórfrumvarpi.
,,Eg get ekki séð að það sé hægt að
láta þjóðaratkvæði koma í stað
áfengislöggjafar. Það þarf að spyrja
um svo margt annað en bara hvort
leyfa eigi áfengt öl eöa ekki,” segir
Halldór.
Um hugsanlega bruggun og sölu á
áfengu öli hérlendis segir Halldór að
þar sem hafi verið reynt aö laga
áfengismál með áfengu öli hafi það
sýnt sig að það hafi einungis orðið
viöbót. Hann bendir á að Danir hafi
beitt veröstýringu í 70 ár til aö fá fólk
til aö drekka áfengt öl í staö brenni-
víns. Og það hafi vissulega tekist hjá
þeim, þar sé minna drukkið af
brennivíni á mann en hér á Islandi.
En afleiðingamar séu líka þær að
lifrarsjúkdómar séu þriöja algeng-
asta dánarorsökin þar í landi og
áfengisvandamálið gífurlegt.
' Um framgang bjórfrumvarpsins,
sem lagt var fram í gær, vildi
Halldór ekki spá en giskaði á aö
stuðningsmönnum bjórsins hefði
eitthvað fjölgað á síðustu ámm í
þinginu.
„Hins vegar tel ég vafasamt aö
frumvarp sem kemur svo seint fram
fái þinglega afgreiðslu fyrir þing-
lok,” segir Halidór Kristjánsson.-SþS
AcTMsíon
Fyrir ATARI 2600
fermingargjöf
AÐEINS SMÁ-
SÝNISHORN AF
OKKAR MIKLA
ÚRVALI.
VIDE0SP0RT
ER OPIÐ
ALLA DAGA
KL. 13-23.
Einkaumboð á
íslandi,
BERGVÍK,
sími86470.
IDEO-LEIKIR frá
V1DEO
Miðbæ, Háaleitisbraut, sími 33460.
Eddufelli 4, Breiðholti, sími 71366.
Ægisíðu 123, sími 12760.