Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1984, Qupperneq 6
6
DV. LAUGÁRDÁÖÍfR 7. AF^RlL 1S64.'
Hvað segjaþeir um
sparnaðarleððarann?
í forystugrein DV á fimmtudag í fjárlögum. DV hefur boriö forystu-
síðustu viku var fjallað um 3.089 greinina efnislega undir tvo þing-
milljóna króna sparnað i opinberum menn í fjárveitinganefnd og fylgir
útgjöldum. Nefndir voru til sögunnar álit þeirra hér.
15 „óþarfir” liðir í fjárlögum og láns- HERB
3089 milljóna spamaður
Landsfeður okkar viröast vera i mestu vandræöum
meö að fvlla í f'öt fjai laga og lánsfjaraætlunar þessa ais
Peir telja ut'lokað að spara þær UH5 milljomr, sem þui .
íifao S m»m mmm. Umt* ***** 4 >
útgjöldum bendir þó til, aö spara megi 3089 nultionir
Su upphæð nytist að visu ekk. til fulls Þcgar cri™
nærri [jórðunt-ur ársins, svo aó buast ma viö, að þcgar st
búið aö greiöa sumt, scm bctur heföi venö sparaö. V ö
þurfuin því að draga frá 772 n.illjön.r og fa ut 2317
mílliönir til að f jalla raunsætt um mal'.ð.
Hins vej'ar getuin við rnætt ýmissi röskun og oðrum
herkostnaði af þessum niöurskuröi mcö þv. aö gefa
frjálsan i.influtning landbúnaöarafuröa. I>að mundi bæta
hag neytonda um 500 milljónir að^ninnsta kosti og senni-
W;i um lOOOmitljónir.
K„ Hverjir oru þc-r liöir. sem óþarfir cru og samtals
nema 3000 milljónum á fjárlögum og tansfjaraætluru
200 milljón króna útflutningsuppbætur landbunaðara
uröa livetja til viögangs peningab'rennslu og dulbums at-
vinnuleysis í kinda- og kúabúskap. ,
...,11k,.,s,.n heinir. stvrkir til kinda- og kuabu-
Leiðari DV um sparnad i opinberum útgjöldum.
Geir Gunnarsson, þingmaður Alþýðubandalags:
Óraunsæjar í heild
þótt sumt sé bitastætt
„I heild þykja mér þessar tillögur
óraunsæjar og að ýmsu leyti búinn til
vandi í staö þess sem leysa á úr og
hann skilinn eftir í lausu lofti. Ég hef
aldrei talið þaö hyggilegt né raunar
framkvæmanlegt að skella á sparnaði í
stórum höggum. Það þarf að fikra sig
áfram og sumt í leiðaranum er þess
eölis,” segir Geir Gunnarsson þing-
maöur.
„Ég er ekki sammála því að leyfa
eigi frjálsan innflutning á land-
búnaðarvörum. En ég tel að breyta
eigi viömiðunum og laga landbúnaðinn
frekar að kröfum nútímans. Útflutn-
ingsbætur ættu að geta lækkaö tals-
vert, séu þær notaðar á réttan hátt, til
dæmis miðaðar við vissan vanda um
tiltekið tímabil í senn og undir ákveðnu
þaki.
Niðurgreiðslur hafa gegnt talsverðu
hlutverki í þágu þeirra sem lökust kjör
hafa og þess vegna er fráleitt að svipta
þeim af í einu lagi. Þaö þarf hins vegar
aö minnka þær smátt og smátt um leið
og öðru er breytt til hins betra, án þess
aðskerðakjörin.
Byggðasjóöur hefur hlutverki að
gegna ef menn ætla yfirleitt að byggja
Utihuröii — Gluggar
Fullkomin samsetning
Ódýrara, sterkara og mun íallegra
Þéttigrip
Gerum verötilboö
Fúavariö í gegn
Sendum gegn póstkröfu.
TRESMIÐJAN MOSFELL H.F-
HAMRATÚN 1 MOSFELLSSVEIT SÍMI 6 66 06
Auglýsing:
aa
ertiaöívorsem
Spaúttöyrahurð
frá manni einum
ibK»unum.Hann
, 4 timann
dukkustundir. Mer
g^vaúadskrapa
s?s2fe
11 és heim og
tot-ur & iösiu-
tir túsogn w.
sStæts
sKSsrff*
riKsvs
Fæst í öllum málningarverslunum landsins,
kaupfélögum, stórmörkuðum og víðar.
International Sími 12879
landið. Framlög til hans hafa dregist
saman, líklega helmingast á síöustu 10
árum. Og þannig er raunar um margt
fleira af þessu. Verðbólgan hefur nag-
að af raunvirðinu og jafnvel verið not-
uö til þess af stjórnvöldum.
Mér þykir talað nokkuð djarft úr
flokki þegar blöð tengd stjórnmála-
flokkunum eru kölluö sorprit og er
raunar sannfærður að lýöræðinu er
betur borgið fyrir þá upphæð sem
tryggir að skoðanir þeirra fá aö kom-
ast fyrir augu fólks.
Það má vafalaust stíga skref út úr
orkustyrkjum og hugsanlegt er að
fresta vegagerð að einhverju marki,
þótt þar sé um að ræða einhverjar
þjóðhagslega hagkvæmustu fram-
kvæmdir hér á landi. Þjóðarbókhlöðu
og ýmsum skólabyggingum hefur ver-
ið frestað og gengið talsvert langt í
þeim efnum. Þó mætti bæta Blöndu-
virkjun við, að ég tali ekki um flugstöð-
ina.
Ég er sammála því að Flugleiðir
eigi að borga úr því félagiö er komið á
réttan kjöl. Hins vegar er það nánast
bókhaldsatriði hvar fé Seðlabankans
liggur. Hlutabréfakaupum í iðnfyrir-
tækjum má að mínum dómi fresta,
minnst sumum. En ég er ekki bjart-
sýnn á að 200 milljónir í viðbót fáist
með hertri söluskattsheimtu á þessu
ári. Það tekur lengri tíma.
Sem sagt, ég get tekið undir sumt,
Geir Gunnarsson alþingismaður.
sem raunar er meiri og minni sam-
staða um, en tillögurnar í leiðaranum
eru sem ein heild óraunsæjar, eigi þær
að fylla í fjárlagagatið núna. Hins
vegar kemur margt annað til greina,
.eins og að leggja niður embætti húsa-
meistara og Sölunefnd varnarliös-
eigna, sem er hreint sýndarfyrirtæki
og hýsir drasl í plássi sem dygði yfir
þrjár ríkisstofnanir minnst.”
HERB
Guðmundur Bjarnason,þingmaður
Framsóknarflokks:
Að mestu
óraunhæfar
sem skyndi-
aðgerðir
„I fyrsta lagi eru megindrættirnir í
leiöaranum andstæöir grundvallar-
skoðunum mínum. Um það hvernig
eigi að byggja og nýta landið. Ég get
fallist á að skoða þurfi gaumgæfilega
hvernig staðið er að byggðamálum og
landbúnaöi, en tel þaö alls ekki fram-
kvæmanlegt sem lagt er til í leiðaran-
um. Það vantar hreinlega botninn í
þær hugmyndir,” segir Guðmundur
Bjarnason þingmaöur.
„Þarna er fyrst og fremst verið að
f jalla um það, hvernig loka megi fjár-
lagagatinu upp í tæpa tvo milljaröa.
Nokkrir liðir sem nefndir eru í
leiðaranum eru einungis lántökur, eins
og til Byggðasjóös, vegna Blönduvirkj-
unar, flugstöðvar í Keflavík og hluta-
bréfakaupa í nýiðnaði. Þótt hætt yrði
við þær kæmi ekkert upp í f járlagagat-
ið.
Ef fella ætti niður niðurgreiðslur og
útflutningsbætur, styrki til landbún-
aðarins, framlag til Byggðasjóðs og
styrki til þess að jafna orkukostnað
landsmanna, allt á einu bretti, eins og
lagt er til, myndi það hafa í för með sér
stökkbreytingu á kjörum fólks í heilum
byggðarlögum og landshlutum.
Og þá vantar alveg hina hliðina.
Með hverju ætti að borga þá landflutn-
inga í þéttbýlið, sem leiddu af þessu?
Þetta myndi stefna öllum Vestfjörðum
og öllum Austfjörðum í eyði. Og fleiri
landsvæðum. Húsnæði og atvinna,
þjónusta og annað fyrir allt það fólk í
þéttbýlinu fengist varla ókeypis.
I leiðaranum er ennfremur skotið
yfir markið þegar talað er um út-
gjaldaliði með hreinum gárungsskap.
Þar er talaö um frekju landeigenda viö
Blöndu og flugstöðina sem gróðurhús.
Guðmundur Bjarnason alþingis-
maður.
Og blöð tengd stjórnmálaflokkunum
eru kölluð pólitísk sorprit. Rök af
þessu tagi vinna tæpast nokkrum mál-
staö samúð.
Ég get hins vegar verið sammála
því að til dæmis eigi að endurskoða
styrki til Flugleiða, þegar vel gengur
hjá því fyrirtæki. Og að Seðlabankinn
gefi eftir af vöxtum til ríkissjóös, sé
það hægt, og að hann hægi á byggingu
sinni. Eins er um herta skattheimtu,
svo að hver borgi það sem honum ber.
Á heildina litið er ekki mikið upp úr
þessum leiðara að hafa í skyndingu.
Og í stórum dráttum getur hann ekki
leitt til þess sparnaðar, sem látinn er í
veðri vaka. Þjóðfélaginu verður ekki
breytt með svo einfölduðum sjónar-
miðum, þau standast engan veginn. ”
HERB