Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1984, Blaðsíða 16
16
ÁVALLT I LEIÐINNI
HJÓLBARÐA-
VERKSTÆÐI
SIGURJÓNS
'HÁTÚNI 2A—SÍM115508
',Opið frá kl. 8-21,
— opið í hádeginu — um helgar — laugardaga
kl. 9— 19 — sunnudaga kl. 10—12 og 1—19.
Sænskunámskeið í
Framnás lýðháskóla
Dagana 30. júlí til 10. ágúst nk. gefst 15 íslendingum kostur á
aö sækja námskeið í sænsku í lýöháskólanum í Framnás í
Norður-Svíþjóö.
Þeir sem hyggja á þátttöku í námskeiðinu verða að taka þátt í
fornámskeiði í Reykjavík sem ráðgert er aö verði 15.—17. júní.
Námskeiðið hefst síðdegis á föstudag og lýkur um hádegi á
sunnudag.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um skipulag
námskeiðsins og þátttökukostnað fást í menntamálaráðuneyt-
inu, verk- og tæknimenntunardeild, sími 25000.
Umsóknarfrestur er til 18. apríl.
Undirbúningsnefnd.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar, skiptaréttar Reykjavíkur, Eimskipa-
félags Islands hf., Hafskips hf., ýmissa lögmanna, banka, stofnana
o.fl., fer fram opinbert uppboö í uppboðssal tollstjóra í tollhúsinu viö
Tryggvagötu (hafnarmegin) laugardaginn 14. apríl 1984 og hefst það
kl. 13.30.
Eftir kröfu skiptaréttar úr þrotabúi Hegraness hf., allskonar notuö
handverkfæri til bifreiöaviðgerða o.fl., nýir og notaðir varahl. í bif-
reiðar, örbylgjuofnar, smergiiskifa, kaffivél og fleiri hlutir til matar-
gerðar, súr- og gaskútar, skrúfstykki, slökkvitæki, tjakkar, rafsuðu-
vél, þrýstikútur, krafttalía, frystikistur, vatnsdæla, mælistikur,
mælingatæki á þrífót, hillur, borð, stólar og margt fleira.
Eftir kröfu ýmissa svo sem drifsköft, opnunarlokur 4 stk., 2
bifrvélar, ca 500 kg, 20 stk. hleraskór, ca 75 stk. galvs-stálplötur, ca 40
stk. álrör, 6m Iögn 18 mm, reiknibækur, kakó ca 240 kg, húsgögn, borð-
plötur ca 220 kg, flugvélavarahlutir, nælonnet, gólflakk, flísar, 10
karton plasi reiðhjól, 5 rúllur gólfteppi, 1 pll. bakarabakkar, 30
kassar servíettur, 15 kassar plastfilma, heimilistölva, uppþvottavél,
þvottavélar, bækur, útvarpstæki, sjónvarpstæki, lit og svart hvítt,
hljómburðartæki, kven-, barna- og karlmannaskófatnaður, töskur,
allskonar húsgögn og búnaður, allskonar skrifstofubúnaður, video-
tæki, saumavélar, leirtau ca 4.720 kg, hurðir ca 850 kg, hillur ca 530 kg,
varahlutir ca 1600 kg., rafmagnstæki ca 450 kg, fúavarinn viður ca
10.200 kg, 21 balli pökkunarnet ca 600 kg, 3 rl. teppi ca 700 kg og margt
fieira.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
OPIÐ TIL KL. 4.00 í DAG.
Ný sending af efnum, m.a. net - jogg-
ing - bómuli - gaberdin - kaki -
prjónaefni.
Úrval af prjónagarni.
30 afsláttur af barnabuxum - skyrt-
um - sumarjökkum - peysum. **
Sendum
í póstkröfu.
Opið til kl. 21.00 á föstudögum og til kl.
16.00 á laugardögum.
VERSLUNIN
SPOI# E
nnffi Engihjalla 8 EUROCARD
(Kaupgarði), sími 46866.
DV. LAUGARDAGUR 7. APRIL1984.
Ræningjarnir góðu og aumingja Ijónið.
D V-myndir JBH.
Leikfélag Akureyrar frumsýnir
Kardimommubæiim eftir
Thorbjörn Egner á sunnudaginn:
Þeir Kasper
og Jesper
og Jónatan
„Ja, fussum svei, ja, fussum
svei,” segir hún Soffía frænka í
Kardimommubænum. En það er víst
lítil ástæða til að fussa og sveia yfir
því ágæta leikriti, ungir og fullorönir
jafnt hafa fyrir löngu tekið ástfóstri
við þaö. Hver kynslóðin á fætur ann-
arri sem vex úr grasi hefur fengið að
kynnast þeim Kasper, Jesper og'
Jónatan, Bastían bæjarfógeta,
Sörensen rakara, Tobíasi í turninum,
pylsugerðarmanninum, bakaranum,
Syversen sporvagnstjóra og öllum
hinum í Kardimommubæ. Já, og
blessuninni henni Soffíu frænku líka.
Sú lætur ekki vaða ofan í sig, festan
og stjórnsemin á sér engin takmörk.
Enda þurftu ræningjamir að líða
fyrir það þegar þeir fengu sér konu í
húsverkin.
Kardimommubærinn er ósköp
venjulegur bær og fólkið sem þar býr
harla blíðlynt og gott. Eina sem
plagar það eru ræningjarnir þrír
sem hafast við í kofa skammt frá. I
skjóli næturinnar heimsækja þeir
Kardimommubæ og næla sér í
nauðsynjar. Eins og ræningja er
siöur borga þeir ekki fyrir það sem
þeir fá sér, hvorki brauö né annað.
En af hverju er þetta látið viðgang-
ast, bærinn á jú Bastían, virðulegt
yfirvald? Það er víst þetta með
ljónið, þeir nefnilega hafa hjá sér
ljón þannig að enginn þorú að koma
nærri húskofanum þeirra.
Dag einn, eða öllu heldur nótt, fara
þeir í eina af þessum ránsferðum
sínum til Kardimommubæjar.
Strákgrislingur hafði heyrt á tal
þeirra þannig að menn voru viðbúnir
heimsókninni. Þar með snúast málin
öll við og lífið í Kardimommubæ
breytist. En hér verður ekki sagt orð
um hvaö gerðist, nei, ekki aldeilis.
Þaöer Theodór Júlíusson sem hefur
leikstýrt Kardimommubænum hjá
Leikfélagi Akureyrar. Þráinn
Karlsson hannaöi leikmyndina,
búningahönnuðir voru Freygerður
Magnúsdóttir og Anna Torfadóttir.
Viðar Garöarsson raöaði upp ljós-
kösturunum og galdrar með nýja og
fína ljósaborðinu, í hljómsveitar-
gryfjunni heldur Roar Kvam á
tónsprotanum. Það voru þau
Kristján frá Djúpalæk og Hulda
Valtýsdóttir sem þýddu leikritið.
Ræningjatríóið, Kasper, Jesper og
Jónatan, leika Þráinn Karlsson.
Bjarni Ingvarsson og Gestur Einar
Jónasson. Soffíu frænku leikur Sunna
Borg, Bastían bæjarfógeta Björn
Karlsson, Tobías gamla Marinó Þor-
steinsson, frú Bastían er Signý Páls-
dóttir eða Þórey Aðalsteinsdóttir.
Enn má nefna Gunnar Rafn
Guðmundsson sem Sörensen rakara,
Guðlaug Maria Bjamadóttir er
Syversen sporvagnstjóri, Leifur
Guðmundsson pyslugerðarmaðurinn
og Jónsteinn Aðalsteinsson bakar-
inn. Halla Jónsdóttir er Kamilla litla
og Haukur Steinbergsson Tomrsi.
önnur hlutverk eru fólk, dýr og börn
í Kardimommubæ. 1 sýningunni
leika 28 manns, þar af eru nokkur
böm og 11 hljoðfæraleikarar sem
leika undir.
JBH/Akureyri.
Bastian bæjarfógeti bliður á manninn.