Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1984, Page 38
38
DV. LAUGARDAGUR 7. APRlL 1984.
gott’ aö MacLaine og Nicholson séu
ekki viökvæm fyrir því aö vera sýnd
dálítiö ellilegri en í fyrri myndum
sínum, en í rauninni hlýtur þaö að
vera ákaflega áhugavert fyrir leik-
ara aö takast á viö nýja tegund af
persónum.
Stórstjörnur í auka- og
aðalhlutverkum
Terms of Endearment segir frá at-
burðum þrjátíu ára í lífi Auroru
Greenway og dóttur hennar, Emmu
(Debra Winger). Dauöinn myndar
nokkurskonar ramma um samband
þeirra; í upphafi er Aurora hrædd
um að ungbamið kunni aö deyja í
vöggu og í enda myndar veröur
Emma aö lúta í lægra haldi fyrir
banvænum sjúkdómi. Kvikmyndin
lýsir því hvernig konurnar bregðast
við vofeiflegum tíðindum og finna
ráö til að sætta sig viö raunveru-
leikann sem bæöi er yfirþyrmandi og
ógnvekjandi á stundum.
Aurora helgar sig uppeldi dóttur-
innar og giftist ekki ööru sinni, en
Emma vex úr grasi og tekur saman
viö kennarann Flap Horton (Jeff
Daniels). Hjónabandiö er á marga
vegu öðruvísi en þaö ætti aö vera;
Flap er Emmu ótrúr þegar honum
býöur svo viö aö horfa, kennaralaun-
in eru lág og hjónin hlaöa niðurfleiri
börnum en þau hafa efni á aö sjá far-
borða samkvæmt amerískum miö-
stéttarkröfum. Til að jafna metin viö
eiginmanninn tekur Emma svo upp
ástarsamband viö Sam nokkum
Burns (John Lithgow).
Aurora á líka í ævintýrum og
meöal ástmanna hennar er aö finna
geimfara á eftirlaunum, Garrett
Breedlove (Jack Nicholson). Garrett
nýtur lífsins til hins ýtrasta og er
ekkert á þeim buxunum aö binda sig.
Þau Aurora hafa veriö nágrannar í
10 ár þegar honum dettur í hug aö
bjóða henni í mat og þaö er ekki fyrr
en fimm árum síðar að Aurora
þiggur boöið.
Kunnuglegt efni í nýrri
útfærslu
Söguþráðurinn í Terms of Endear-
ment kann aö viröast heldur hvunn-
dagslegur og líkur ýmsu sem frá
Hollywood hefur komiö, en í meðför-
um leikstjórans, James L. Brooks,
veröur efniö eftirminnilegt. Kvik-
myndin segir frá fjölda vandamála
sem flestir kannast við, eöa eiga eftir
aö ganga í gegnum. Þetta eru ein-
mitt erfiöleikar af þeim toga sem ýta
manneskjunum áfram gegnum lífiö,
oftast nær til einhvers þroska. I
Terms of Endearment miöar allt aö
því aö lýsa sambandi móöur og dótt-
ur á gamansaman hátt þó jafnan sé
grunnt á alvörunni.
Skyldleiki Auroru og Emmu er
meiri heldur en sá sem leiöir af líf-
fræðilegu eðli málsins: Aurora þolir
ekki ömurlegt hjónaband Emmu, en
fleygir sér engu aö síöur út í ástar-
ævintýri meö Garrett geimfara, þótt
þaö sé byggt á sama grunni og hjóna-
band dótturinnar. Og mæðgurnar
eru ævinlega jafnháðar hvor annarri
þótt áraskipti séu aö því hvor þarf
meira á hinni aö halda. Emma stend-
ur í endalausum flutningum um
Bandaríkin með eiginmanninum og
þá er bara að grípa til þess ráös aö
láta landssimann sjá um að halda
uppi sambandi móöur og dóttur.
Tengslin milli þeirra tveggja virðast
aldrei rofna, ekki einu sinni þegar
dauöinn tekur í taumana því aö þá
þarf aö líta til með barnabörnun-
um. . .
Fjögurra ára vinna að baki
Leikstjóri og handritshöfundur
Terms of Endearment, James L.
Brooks, vann í fjögur ár aö gerö
myndarinnar. Hann byrjaði á því aö
kaupa réttinn aö samnefndri bók og
byggöi handritið á henni. Síöan tók
viö löng og ströng barátta fyrir því
að fá fjármagn til kvikmyndageröar-
innar og það var loks Paramount
sem gaf grænt ljós áriö 1982. Brooks
er raunar enginn byrjandi í handrits-
gerö þótt Terms of Endearment sé
fyrsta verkiö sem hann leikstýrir
sjálfur. Svo merkilega vill til aö ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur fengu
aö njóta verka hans fyrir nokkrum
árum, því aö Brooks var annar
tveggja höfundanna aö þáttunum
The Mary Tyler Moore Show. Af öðr-
um þekktum verkum hans má nefna
handritið aö Starting Over meö Burt
Reynolds í aðalhlutverki.
Arangur Brooks meö fyrstu kvik-
myndina er ekki síst því aö þakka aö
hann fékk úrvalsleikara í öll hlut-
verk myndarinnar. Shirley
MacLaine leikur nú í fyrsta sinni
konu sem komin er yfir miöjan aldur
og Jack Nicholson er heldur ekkert
unglamb í myndinni. Gagnrýnendur
hafa látiö þau orö falla að þaö sé eins
Shirley MacLaine veröur fimmt-
ug eftir hálfan mánuö og hún hefur
veriö útnefnd til óskarsverðlauna
oftar en flestir leikarar aðrir.
Endanleg ákvöröun dómnefndar hef-
ur þó ævinlega verið henni í óhag,
hvemig svo sem fer aö þessu sinni.
MacLaine kom fyrst fram í einni af
minna þekktum kvikmyndum
Alfreðs heitins Hitchcocks, The
Trouble With Harry. Utnefningar
sínar til óskarsverðlaunanna hefur
hún m.a. hlotið fyrir Some Came
Running, Irma La Douce, The Apart-
ment og The Tuming Point.
MacLaine hefur einnig getiö sér
frægöar fyrir endurminningar sínar
sem nú eru komnar út í þrem bind-
um. Fyrstu tvær bækurnar fengu af-
bragös viötökur og seldust meö ágæt-
um og sama má einnig segja um
þriöja bindiö, Out On A Llmb, en sú
bók olli miklu f jaörafoki víöa í Evr-
ópu (Island þó undanskiliö aö ég
hygg) því aö í bókinni kvaöst leik-
konan hafa haldið viö fjörugan en
harögiftan forystumann krata í
ónafngreindu landi. Margir vildu
eiga glæpinn og Svíar veöjuöu mjög
á Olaf sinn Palme.
Jack Nicholson viröist óragur viö
að taka að sér aukahlutverk þótt
hann sé kominn í stjörnuflokkinn.
Astæðan kann aö vera sú að hann var
lengur viö leik í þriöja flokks mynd-
um en nokkur annar leikari sem síð-
an hefur náö því að verða Hollywood-
stjarna og kallar því ekki allt ömmu
sína. Gott aukahlutverk í góðri mynd
á borö viö Terms of Endearment er
líka betra en aðalhlutverk í lélegri og
raunar hefur Nicholson tekiö að sér
stærstu hlutverkin í nokkrum heldur
misheppnuðum kvikmyndum upp á
síökastið.
Nicholson fékk óskarsverðlaun
fyrir leik sinn í One Flew Over The
Cuckoo’s Nest en síöan hafa eftir-
minnilegustu hlutverk hans verið í
The Shining og The Postman Always
Rings Twice. Aörar myndir hans
hafa ýmist verið misheppnaöar f jár-
hagslega eöa iistrænt séö, og þaö á
ekki síst við um myndina sem hann
leikstýrði sjálfur, Goin’ South.
En hvað sem fyrri ferli stórstjarn-
anna MacLaine og Nicholson líður þá
er einsýnt aö þeim hefur tekist upp í
Terms of Endearment.
Emma (Derba Winger) á góðri stund með elskhuga sínum, Sam Burns (Jobn
Lithgow).
Samband móður og dóttur einkennist af ást og trúnaði og dauðinn einn nær að
slíta tengslin milli Emmu og Auroru.
Meðal þekktari verka leikstjórans James L. Brooks eru handritin að sjónvarps-
þáttunum The Mary Tyler Moore Show.
sur
a úr líflnu
Fyrsta kvikmynd W5T
leikstjórans James L.
Brooks, Terms of
Endearment, hefur f
hlotið ellefu dtnefn-
ingar t i I ðskarsverð-
launa og allt bendir
til þess að Óskari
skjdtlist ekki að
þessu sinni
mm
hr
Aurora (Shirley MacLaine) lætur vel aö Garrett geimfara (JackNicholson).
A síöustu árum hafa glæpa- og hryllingsmyndir sett svip sinn á
markaðinn öðrum fremur og það þykir því kærkomin tilbreyting þegar
'nærfærin mynd sem fjallar á gamansaman hátt um vandamál venju-
legs fólks nær að slá í gegn. En þótt Terms of Endearment flokkist með
kómedíum þá byrjar myndin á andlátsfregn og endar á annarri. í upp-
hafi myndar situr Aurora Greenway (Shirley MacLaine) ein uppi með
dóttur sína unga, en eiginmanninn í gröfinni, og i lok myndar er
Aurora orðin alveg ein.