Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Side 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ1984. Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra: Lífeyrissjóðimir stjómlausþáttur ípeningakerfinu Steingrímur Hermannsson forsætis- ráöherra sagöi í framsöguræðu sinni fyrir efnahagsaðgerðum ríkisstjómar- innar að það væri orðið umhugsunar- efni að lífeyrissjóöirnir væru nánast sem stjómlaus þáttur í peningakerfi þjóöarinnar. „Utlán þeirra eru án umtalsverðra takmarkana og renna að vemlegu leyti til einstaklinga til allskonar útgjalda. A síðastliðnu ári nam útlánsaukning lífeyrissjóða 25% af útlánsaukningu innlánsstofnana án endurseldra lána en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs er útlánsaukning lífeyrissjóðanna orðin 40% af útlánsaukningu innlánsstofn- ana. Viðleitni stjómvalda til þess að draga úr peningaþenslunni gegnum bankakerfið bitnar því fyrst og fremst á atvinnuvegunum eöa þar sem síst skyldi. Ur þessu verður að ráða bót og það fyrr en síðar. Lífeyrissjóðina verð- ur að fella inn í peningakerfi þjóðar- innar,” sagði forsætisráðherra. Steingrímur Hermannsson sagði í sarntali viö DV að það væri óeðlilegt aö útlánsaukning lífeyrissjóðanna væri meiri en innan hins almenna banka- kerfis. Seðlabankinn gæti sett bindi- skyldu á útlánastarfsemi bankanna en það væra engin lög sem leyfðu að skerða útstreymi fjármagns úr lífeyrissjóðunum. Ríkisstjómin gæti aðeins haft áhríf á það meö frjálsum samningum við sjóðina. Þó væri vitað að lífeyrissjóðimir fjármögnuðu aö veralegum hluta bifreiðakaup og utanlandsferðir landsmanna og ykju þar með þensluna á peningamarkaði. Sagði Steingrímur aö um þennan vanda heföi verið talað í mörg ár án þess að grípið hefði verið til aðgerða og engar aðgerðir væru enn fyrirhugaðar af hálfu ríkisstjómarinnar í þessum efnum. -OEF. Frá málflutningi í hæstarétti í gær. Þórður Björnsson ríkissaksóknari er að;flytja mál sitt. Verjandinn, Sveinn Snorrason, er honum á hægri hönd. Hinn ákærði fylgdist með réttarhaldinu. DV-mynd: KMU KLEPPSVEGARMORÐK) FLUTT í HÆSTARÉTTI Mál ákæruvaldsins gegn Þórði Jó- hanni Eyþórssyni var flutt fyrir hæstarétti í gær. I undirrétti var Þórður Jóhann fundinn sekur um að hafa ráöið Oskari Árna Blomster- berg bana á nýársnótt 1983 og dæmd- ur í 13 ára fangelsi. Ríkissaksóknarí áfrýjaði málinu, eins og honum er skylt þegar ákært er fýrir svo alvarlegt brot sem manndráp. Þórður Bjömsson ríkis- saksóknari krafðist þess i réttar- haldinu í gær að refsing ákærða yrði þyngd. Verjandi ákærða er Sveinn Snorrason hæstaréttarlögmaður. I sakadómi Reykjavíkur komst Birgir Þormar dómarí að þeirri niðurstöðu að sannaö væri með játn- ingu ákærða, framburði vitna og öðr- um gögnum málsins að ákærði réð Oskari Arna bana í íbúð við Klepps- veg. „Sannaö er með framburði vitna, að ákærði hafði viðhaft þau orð skömmu áður að hann ætlaði að drepa Oskar Áma. Sjálfur kveðst hann hafa tekið hníf í eldhúsi til þess að geta hrætt Oskar Ama með hon- um, ef til átaka kæmi á milli þeirra, en hann kvaðst hafa vitað að hann værí enginn maður til aö standa í slagsmálum sökum ölvunar. Þrátt fyrir ummæli ákærða veröur ekki talið f ullsannað að hann hafi sótt hníf í eldhúsiö í þeim tilgangi aö vega Oskar Árna. Hins vegar er ljóst, að ákærði hlaut að gera sér grein fyrir hvaöa afleiðingar það kynni að hafa, þegar hann keyrði hníf fjórum sinn- um í bak Oskars Ama. Verður því að reikna honum verknað þennan til ásetnings,” segir í dómi undirréttar. Sakadómur taldi refsilækkunar- ástæður ekki vera fyrir hendi. Akærði, Þórður Jóhann Eyþórs- son, þekkti Oskar Árna Blomster- berg ekki með nafni fyrr en eftir at- burði nýársnætur. Hann kannaðist við hann undir viðumefninu Skari. Fyrstu kynni þeirra voru um tiu ár- um áður er þeir á unglingsaldri lentu í slagsmálum við veitingahúsið Þóns- kaffi. Þeim varð sundurorða vegna stúlku og ruku saman. A næstu áram hittust þeir einstaka sinnum af tilviljun á dansleikjum. I desembermánuöi, nokkra fyrir hina örlagaríku nýársnótt, hittust þeir af tilviljun er Þórður Jóhann, sem ók sendibíl, var fenginn til að aka kjöti til kjötiðnaðarfyrirtækis sem Oskar Ami starfaði hjá. Oskar Ami tók við kjötinu. Spannst rifrildi milli þeirra, bæði vegna hlífðarpappa sem fylgdi kjötinu og akstursreikningsins. Þeir hittust enn af tilviljun í íbúð- inni við Kleppsveg. Þar fóru þeir fljótlega að karpa út af fyrri sam- skiptum. Rifrildiö þróaðist. Loks tók- ust þeir fangbrögðum en þá var ákærði kominn með hníf í hægri hönd. -KMU REGATA LOKSINS TIL AFGREIÐSLU A bílasýningunni AUTO ’84 í síðasta mánuði kynntum við REGATA, nýjasta gœðinginn í FIAT FJÖLSKYLDUNNI. REGATA vakti mikla athygli á sýningunni og nú vomm við að fá fyrstu sendinguna til landsins. REGATA er íramhjóladrifinn og búinn öllum aksturseiginleikum FLAT gœðinganna léttur í stýri, rásíastur, liggur vel og er sérlega viðbragðsíljótur. REGATA er rúmgóður og íarangursrými er ótrúlega mikið. Sparneytnin er þó líklega stœrsti kosturinn viö þennan glœsilega bíl, hann eyöir allt niöur í 5.4 lítra á hundraöiö, sem er hreint ótrúlegt tyrir bíl í þessum stœröarflokki. KYNNINGARVERÐ - OG KJOR 1 Á þessari íyrstu sendingu bjóöum viö sérstakt kynningarverö og reynum aö haía hátíöaryíirbragö á kjömnum. Útbomn í REGATA getur verið allt ofan í 100.000,- krónur og verðið er hreint ótrúlegt fyrir rúmgóöan, framhjóladrifinn glœsivagn. Sex ára ryðvarnarábyrgð kr. 329.000.- (gengi 2/5 '84) EGILL VILHJÁLMSSON HF. Smidjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.