Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Blaðsíða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1984. 11 íþrótta- og tómstunda- miðstöö rís i Öskjuhlíð Þórhallur Vilmundarson. — þar sem hægt verður að leika keiluspil, spað og snarbolta Þeir sem hafa átt leið meðfram vestanverðri Oskjuhlíðinni undan- farna daga hafa væntaniega tekið eftir miklum framkvæmdum í gömlu grjótnámi í hlíðinni rétt fyrir ofan Bilaleigu Flugleiða. Þar er nú að rísa fyrsti áfangi þriggja hæöa íþrótta- húss sem með tímanum á einnig að hýsa ráðstefnu- og veitingasali. Á fyrstu hæð þessarar byggingar, sem tekin verður í notkun á þessu ári, á að starfrækja bólíng eða keiluspil og eru tækin þegar komin til landsins. Á annarri hæðinni verður síðan rými fyrir iðkun íþrótta sem í enskumælandi löndum eru nefndar squash og racketball en kallaðar eru spað og snarbolti á íslensku. Á þriðju hæðinni á síöan aö starfrækja ráðstefnu- og veitingasali og ef til vill verður þar dansgólf. Það eru fyrirtækin Oöal og Sæl- kerinn sem eru að reisa þessa íþróttamiöstöð. Að sögn Jóns Hjalta- sonar, framkvæmdastjóra Oðals, höfðu þeir lengi leitað að húsnæði fyrir bólíng árangurslaust er þeir réðust í að reisa þetta hús. En slíkur skáli þarf að vera minnst 22 metrar að breidd og 55 metrar að lengd og hann fannst hvergi. Bólíng- brautirnar voru fluttar hingaö til lands árið 1978 og bíða nú notkunar í geymslu. I fyrsta áfanga hússins verða 12 brautir í fyrstu og möguleiki til fjölgunar um 6 brautir. Fyrsti á- fangi byggingarinnar mun kosta um 24 milljónir króna. Jón Hjaltason segir að ætlunin sé að gera þarna alhliða íþrótta- og tómstundamiðstöð sem henti fyrir alla fjölskylduna. Fólk á að geta komið þarna til að skokka í rjóðrum Öskjuhlíðar, farið síðan í heita potta, nudd eða sólarlampa og stundað íþróttir eins og bóling, innigolf, spað, snarbolta eöa leikfimi. Og til að gera öllum auðveldara um vik á aö starf- rækja þama bamagæslu. Eftir puöið á síðan að vera hægt að kaupa veitingar. Fagmaður á hverju sviði á að reka hverja deild en veitinga- 'i**r.. Svona kemur hin fyrirhugaða iþróttamiðstöð til með að líta út séð úr vestri. Gólfflötur hússins er um 4 þúsund fermetrar og innanmálið 20 þúsund rúm- metrar. DV-myndir EÖ A þessu likani ma sja staösetnmgu byggingarinnar. Vegurinn til vinstri er aðkeyrslan að Hótel Loftleiðum og lágreistu húsin sem standa við veg- inn eru aðsetur Bílaleigu Flugleiða. íþróttamiðstöðin stendur í gömlu grjótnámi sem notað var við hafnar- gerð fyrr á öldinni. stofa, böð og skiptiklefar verða reknir sameiginlega. Ekki er tQ nein áætlun um hvenær öllum þessum framkvæmdum verður lokið en Jón Hjaltason segir að stefnt sé að því að ljúka byggingunni á þessum áratug enda sé þaö gagnkvæmur skilningur eig- enda og borgaryfirvalda að óæskilegt sé að framkvæmdimar taki lengri tíma. En framkvæmda- hraöinn ræöst auðvitað af því hvernig keiluspilið leggst í landann, hvort þaö nær jafnmiklum vinsældum hér og í Vesturheimi. -ÖEF. TVEIR NYIR VARAÞINGMENN Slæmt vinnuslys við Esjuna Tveir varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í gær vergna utanlandsferða þingmanna og hefur hvorugur þeirra tekið sæti áöurá yfirstandandi þingi. Elsa Kristjánsdóttir, bókari í Sand- gerði, tók sæti Geirs Gunnarssonar, þingmanns Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi, en hann er nú í opinberri heimsókn í París á vegum franska þingsins. Elsa Kristjánsdóttir skipaði 2. sætið á lista Alþýðu- bandalagsins á Reykjanesi í síðustu kosningum. Bjarni Guðnason prófessor hefur tekið sæti Jóns Baldvins Hannibals- soknar, þingmanns Alþýðuflokksins í Reykjavík, sem einnig er í opinberri heimsókn í París. Bjarni Guðnason hefur áöur setið á Alþingi sem þing- maður fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna en við síöustu þing- kosningar skipaöi hann 3. sætið á lista Alþýðuflokksins í Reykjavík. Þá hefur Guðmundur H. Garðars- son einnig tekið sæti á Alþingi sem varamaður Péturs Sigurðssonar, þing- manns Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík. Guðmundur hefur áður setið sem varamaður á þessu þingi. -ÖEF. Slæmt vinnuslys varð við flutningaskipiö Esjuna sem liggur í Reykjavíkurhöfn, síðdegis í fyrra- dag. Einn af skipverjunum var við vinnu sina á landgangi skipsins er hann missti fótanna og klemmdist annar þeirra milli landgangsins og skipsins. Kalla þurfti til slökkviliðið sem kom með klippur sínar, eða atgeir, til að losa manninn. Tók það nokkum tíma en maðurinn er illa fótbrotinn eftir slysið. -FRI. Fyrirlestur endurtekinn Fyrirlestur Þórhalls Vilmundar- sonar prófessors, Hver var hetjan i Hólminum? vakti mikla athygli, þegar hann var fluttur fyrir tveim vikum, og vegna fjölda tilmæla úr ýmsum áttum verður fyrirlesturinn endurtekinn miðvikudaginn 9. maí kl. 20.40 í há- tíðarsal Háskóla Islands. Ollum er heimill aðgangur. Vidtalið við John Peterson: Samkomurnar voru í síðustu viku I viðtalinu við John Peterson, Bandaríkjamanninn sem biður fyrir sjúku fólki og þeim sem eiga í erfiðleik- um, sem birtist í DV í gær, var sagt að hann yrði á samkomum í Brautarholti 28 á fimmtudags-, föstudags- og laug- ardagskvöld. Þessar samkomur voru haldnar í síðustu viku. Astæðan fyrir því aö þetta var í viðtalinu, er sú að undirritaður ræddi við John Peterson í síðustu viku og reiknaði með því að viðtalið birtist áður en samkomurnar yrðu haldnar. Undirrituðum varð það hins vegar á aö taka þessa klausu ekki út úr viðtalinu er það var sett inn í blaðið til birtingar í gær. Beöist er velvirðingar á þessu. Jafn- framt er þeim sem hafa áhuga á að vita meira um John Peterson, bent á aðhringjaísíma 78307. -JGH. Kvartaði vegnabrytans — en kærði ekki kokkinn I frétt hér í blaðinu fyrir skömmu sagði, að trúnaðarmaður starfsmanna Litla-Hrauns hefði kært kokkinn fyrir skemmdan mat. Það rétta er að trúnaðarmaðurinn kvartaöi viö for- stjóra Litla-Hrauns vegna brytans á staðnum. Hér er um að ræða pylsupakka sem brytinn hafði lagt á borð fyrir næturvaktina. Á pakkanum stóð hver væri síðasti leyfilegur söludagur og var liðinn hálfur annar mánuður frá þeim degi. Var pylsupakkinn tekinn úr umferö. Bjarni Guðnason, varaþingmaður Alþýðuflokks. Elsa Kristjánsdóttir, varaþingmaður Alþýðubandalags. FISKVERKENDUR - UTGERÐARMENN ■ ■■"V Er hægt að tvöfalda verðmæti þess tak- markaða afía sem að landi kemur með nýjum framleiðsluaðferðum? Og hvað ef hægt væri að framkvæma slika verðmætaaukningu á ótrúiega hag- kvæman hátt? Hafið þið athugað möguleikana með gámafrystingu? Væri hugsanlegt að hægt væri að fjár- magna fjárfestinguna með framleiðslu? Við höfum frystigámana, geymslugám- ana og fíutningagámana. Hafið samband og ræðum þessar spurningar, það getur borgað sig. UPPGERÐIR GAMAR FYRIR KÆLI- og frystivörur LEIGA EÐA SALA FRYSTI-OG KÆLIGÁMAR hf SKÚLAGÖTU 63RVK. S.25880

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.