Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Blaðsíða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1984. „Þolir prófið ekki opinberun?” — spyr Reynir Þór Jónsson, eini læknaneminn sem séð hefur úrlausn sína „Þaö tók Hannes Blöndal þrjá tíma aö fara yfir prófiö meö mér. Og ýmislegt bendir til aö hann geti ekki sinnt þessu verki nema meö viku eöa hálfsmánaöar fresti. Samkvæmt mínum útreikningum tekur yfirferö- in því 180 tíma fyrir allan hópinn og meö þessu áframhaldi lýkur henni ekki fyrr en í fyrsta lagi haustiö 1985.” Þetta sagði Reynir Þór Jónsson, einn læknanema á fyrsta ári, sem fengiö hefur aö sjá prófúrlausn sína i. svonefndu prófmáli Háskólans. Eins og kunnugt er báöu 60 nemendur á fyrsta ári um að fá aö sjá prófúr- lausnir sínar eftir að einkunnir lágu fyrir. Því var synjað á þeirri for- Reynir Þór Jónsson læknaneml. DV-mynd Loftur. sendu aö prófdómari heföi yfirfarið þær. Lögskýringanefnd Háskólans úrskuröaöi þó aö nemendur ættu rétt á aö fá aö sjá úrlausnimar ásamt út- skýringum kennara. Kennarinn, Hannes Blöndal, ákvaö þá aö aöeins yrði hægt aö yfirfara úrlausnir meö einum nemanda í einu, þrátt fyrir aö nemendur bentu á aö sýna mætti öll- umhópnum í einu. Læknanemarnir sættu sig ekki viö þetta og kæröu til menntamálaráð- herra. „Fyrir orö ráðherrans tók hann viðbragð og kallaöi mig á sinn fund,” sagðiReynir. „Þarvoru og þrírsam- kennarar hans og fóru þeir hver og einn yfir sinn þátt prófsins meö mér. Fjórir gegn einum bæla auöveldlega niður alla gagnrýni á prófið þótt ég sé ekki að segja aö til þess hafi komið í þessu tilviki. En hvernig skyldi standa á því aö ég einn hef veriö kallaður á fund Hannesar? Kannski vegna þess aö ég var sá eini úr hópnum sem aldrei kæröi hann fyrir menntamálaráö- herra? Getur veriö að prófiö þyldi ekki opinberun eöa gagnrýni stórs hóps samtaka nemenda? Eg ætla að láta öörum eftir aö svara þessum spurningum. Hins vegar er ég sannfærður um aö Hann- es ætlar ekki aö sýna fleiri nemum úrlausnirnar. Hann hefur veriö veik- ur síðan 20. apríl og þaö sitja áreið- aniega önnur verk í fyrirrúmi þegar hann kemst á fætur aftur,” sagöi Reynir Þór Jónsson. Ekki náöist í Hannes Blöndal til aö bera undir hann þessi orö. -KÞ Prófmál læknanema: Fyrir- spurn á Alþingi „Eg mun beina þeirri spurn- ingu til menntamálaráðherra, Ragnhildar Helgadóttur, hvaö hún ætli aö gera þegar prófessor viö Háskóla Islands neitar aö hlýöa hennar boði og um leið lög- skýringarnefnd Háskólans, sem eru hans yfirboðarar,” sagöi Stefán Benediktsson, þingmaöur Bandalags jafnaðarmanna, í samtali viö DV. Stefán mun bera fram fyrir- spurn á Alþingi í dag varðandi prófmál fyrsta árs nema. Þetta er síöasti fyrirspurnatími á Al- þingi á því þingi sem situr. „Þetta er mál sem verður að fá botn í sem allra, allra fyrst,” sagðiStefánBenediktsson. -KÞ Engar ákvaröanir voru teknar á ráöstefnu ASÍ um kjaramál í gær en niðurstaöan var að umræður um stetnuna þyrftu að fara fram innan félaganna áður en ákvarðanir yrðu teknar. DV-mynd Loftir. Tættu og trylltu við „risafururnar” — voru síðan handteknir eftir leit úr flugvél Sex piltar á Bronco-jeppa óku yfir svæöi kvikmyndagerðarmannanna á Skógasandi um sexleytið á sunnu- dagsmorgun. Djúp hjólför komu í sandinn rétt viö „risafurumar” sem þeir kvikmyndamenn höfðu komiö upp á sandinum. Piltamir voru handteknir eftir aö þeirra haföi verið leitaöúrflugvél. Piltamir óku inn á svæöiö úr öfugri átt og urðu þess ekki áskynja aö þeir væm að skemma fyrir kvikmynda- geröarmönnunum í Enemy Mine. Þeir gáfu sig á tal viö vaktmann á svæöinu. Þaö var svo ekki fyrr en piltarnir höföu ekið á brott sem hann varö þess var að piltamir höföu „skemmt” sandinn meö akstrinum. Piltamir voru handteknir í Mýr- dalnum á móts við Kaidrananes. Fariö var meö þá í blóðpruf u og þeim síöan sleppt. Hvort hjólförin veröa máö út er ekki vitað enda allt í óvissu um frek- arikvikmyndunEnemyMine. -JGH Ráðstefna ASÍ um kjaramál: Frekari fundahöld fyrirhuguð A ráöstefnu sem Alþýðusamband Is- lands hélt í gær kom það sjónarmið fram hjá meirihluta fundarmanna að ekki væm aðstæöur til þess aö taka nú þegar ákvöröun um hvort segja eigi upp samningum í haust og grípa til aö- gerða. Var ákveöiö aö boða til annarr- ar ráöstefnu síöar í þessum mánuöi og halda síðan formannafund í júlímán- uði. Engin ályktun var gerð á ráðstefn- unni. Hverju landssambandi og svæða- sambandi var boöiö aö senda á hana fimm fulltrúa hverju og fimm fulltrú- ar voru frá félögum meö beina aðild aö Alþýöusambandinu. Umræöuefniö var staöa kjaramála nú og í sumar. Sam- kvæmt heimildum DV var þaö sjónar- miö ríkjandi aö stööu þessara mála þyrfti aö ræöa í félögunum áöur en ákvarðanir yröu teknar. Þá létu menn í ljós efasemdir um aö hægt yröi aö ná betri samningum í haust meö því aö segja upp núgildandi samningum fyrir 1. september og efna til verkfaUa. I núgildandi samningum eru þau ák væöi aö hægt er aö segja þeim upp 1. september meö mánaðar fyrirvara. En ef þaö er gert fellur niöur umsamin 3% grunnkaupshækkun sem á aö leggj- ast á laun 1. september. oef j dag mælir Dagfari______________I dag mælir Pagfari_____ í dag mælir Dagfari Tanngarður í kirkjugarði Það bar helst til tíðinda í Uðinni viku að prófdómarar í tannlækna- deild neituðu að útskrifa einn nemendanna þar sem prófstykkið fannst ekki. Það hafði nefniiega komið í ljós að nemandinn haföi smíðað tanngarð í sjúkling sem síðan hafði iátist. Tanngarðurinn var sem sagt jarðaður suður í Fossvogs- kirkjugarði enda ekki til siðs á Islandi að hirða lausamuni af hinum látnu áður en líkin eru jarðsett. Auðvitað er ekki við tannlækna- nemandann að sakast þótt lát sjúklingsins hafi borið að áður en prófnefndin gaf sér tima til að skoða meistarastykkið. Fólk lifir og deyr eftir öörum náttúrulögmálum en þeim hvenær það fer til tannlæknis. Hefði enda varla verið ástæða fyrir sjúklinginn að leggja í þann kostnað og fyrirhöfn að fá sér nýjan tanngarð, ef hann hefði séð það fyrir að andiátið væri á næstu grösum. Einhvern veginn er þó að skiija að prófdómarar vilji láta það bitna á vesalings tannlæknanemanum að tanngarðurinn er ekki lengur ofan jarðar úr þvi það telst frágangssök í prófi i tannlæknadeildinni að smíða tanngarða i manneskjur sem endist ekki líf til að láta skoða upp í sig. Verður ekki betur séð en að nemendur í tannlækningum verði hér eftir að biðja sjúklinga sína um læknisvottorð um góða heilsu og kaupa sér tryggingu fyrir því að þeir haidi lífi fram yfir próf. Aö minnsta kosti sýnist það óvarlegt að smíða tanngarða i aidraö fólk og heilsuveilt í Ijósi þeirrar staöreyndar að próf- dómarar taka ekki mark á prófverk- efnum sem jarðsett eru í kirkju- garðinum. Sýnist þá þrengjast hringurinn fyrir blessaða nemendurna vegna þess að nú til dags gerist það æ fátiðara aö ungt fólk og heilsuhraust þurfi á gervitönnum að halda i hold og góm. Hvað þá að það taki út úr sér gómana þegar það leggst til hinstu hvildar. Þegar prófdómarar höfðu visað nemandanum frá af fyrrgreindum á- stæðum gerði hann þá kröfu að líkið yrði grafið upp svo staöfesta mætti prófstykkið og ágæti þess. Þess er getið í fréttum að aðstandendur hins látna séu því samþykkir. Nú hafa það verið taiin helgispjöU hin verstu að raska ró látinna manna og róta upp í gröfum. En í þessu tilviki eru góð ráð dýr og sjá ailir að mikið liggur viö þegar um heilan tanngarð er að ræða sem háæruverð prófnefnd í akademískum fræðum þarf að skoða í bak og fyrir. Tanngarðar eru þeirrar gerðar að hvorki ryð né mölur fá þeim grandað og ætti góm- urinn handa prófnefndinni að líta nokkuð hcillega út, hvað sem líkinu liður að öðru leyti. Hlýtur það aö vera gleðiefni fyrir prófnefndina sem viðurkennlr ekki háskólamenntun út yfir gröf og dauða. Verður einnig að viðurkenna að i þessari málsmeðferð felst festa og strangur prófagi. Að öðrum kosti gæti svo farið að tanniæknanemar geri sér það að leik í framtíðinni að vísa á tanngóma suður í kirkjugarði án þess jafnvei að hafa nokkurn tima smíðað þá. Hitt verður verra að sjúklingurinn er ekki til frásagnar um hvernig tanngómurinn hafi reynst. Hlýtur þaö væntanlega að vera þungamiðja hverrar tannsmíði að tennurnar séu þannig úr garði gerðar að þær séu nothæfar fyrir þann sem hefur þær uppi í sér. Látið fólk mun ekki hafa mikiö gagn af tanngörðum, þótt góðir séu, og er það í sjálfu sér mikil synd. Þannig geta úrvals tanngómar farið fyrir lítið þegar stutt er milii viðgerðar og dauða. En þar sem mikilvægt er fyrir prófnefnd, nemanda og æru heiliar háskóladeildar að lík sé grafið upp í Fossvogskirkju- garðinum til að skoða tanngarð, verður hinn látni auðvitað aö hlíta því. Mun það verða í fyrsta skipti sem tanngarður er tekinn til prófs í vigðri mold. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.