Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Síða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI1984.
7
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Borðum
ekki
kartöflur
„Við erum hætt að borða kartöflur á
mínu heimili,” sagði einn „grandvar”
neytandi við okkur hér. Eftir fréttir af
skemmdu, finnsku kartöflunum, sem
dreift hefur verið í verslanir, og slsma
reynslu af þeim eru raddir neytenda
orðnar háværar. Við höfum heyrt frá
fjölmennum starfshópum á nokkrum
vinnustöðum. Hugur er í fólki að hætta
kartöfluneyslu, í bili að minnsta kosti,
á meðan ekki býðst annað betra.
Og auðvitað er hægt að snúa sér að
öðru, eins og hrísgrjónum, spaghetti
og grænmeti. Ef farið er út í að reikna
það dæmi hvað er dýrt og ódýrt er víst
að kartöflupoki með 10—15% rusli af
heildinni sé ekki dýr.
Nú hefur Grænmetisverslunin
reyndar innkallað allar kartöflur úr
verslunum á Reykjavikursvæöinu eða
það verk stendur yfir. Hvort annaö
betra kemur í staöinn verður að koma í
ljós, en þangað til er betra að sjóða
hrísgrjón með soðningunni.
-ÞG.
UPPBOÐ
ÓSKILAMUNA
HALDIÐ Á
NÆSTUNNI
Hið árlega uppboð á óskilamunum
verður haldið bráðlega. Enn hefur ekki
verið ákveðið hvenær það verður
haldið en búast má við þvi að það verði
nú í byrjun maí.
Haldið er uppboð á þeim óskilamun-
um sem hafa borist til lögreglunnar og
eru það hlutir sem hafa legið þar í eitt
ár eða lengur án þess að þeirra hafi
verið vitjað. Eins og venjulega má
búst við því að nokkur f jöldi hjóla verði
á þessu uppboði og er oft hægt að gera
ágætis kaup.
Uppboðið er haldið í Borgartúni 7 og
verður auglýst í dagblööunum hvenær
þaðáaðfarafram.
APH.
Sjöfn í stað
Friggjar
Samband islenskra samvinnufélaga
hefur nú nýverið tekið upp á þeirri
nýjung i verslunum sinum að hafa á
boðstólum ákveðnar vörutegundir á
tilboðsverði.
Þetta framtak hefur verið nefnt
samvinnusöluboö. I fyrsta söluboöinu
var boðiö upp á vörur frá verk-
smiöjunni Frigg, sem framleiðir
þvottaefni. Hjá KEA á Akureyri hafa
þessar vörur ekki verið. í söluboðinu.
Hjá SIS fengum við þær upplýsingar að
kaupmönnum væri í sjálfsvald sett
hvort þeir væru með allar vörurnar í
viökomandi sölutilboði eða ekki.
Hjá KEA var okkur sagt að vörur
frá Frigg væru einungis seldar í
tveimur verslunum KEA og þótti því
ekki ástæða til að hampa þessum
vörum með sérstöku tilboði. Hins veg-
ar hafa sambærilegar vörur frá Sjöfn á
Akureyri verið settar á tilboðsverð í
verslunumKEA.
-APH.
Vantar
þeytara í
hrærivélina
Ellen Sveins hringdi og bað okkur
um að hjálpa sér. Hana vantar nýjan
þeytara í hrærivélina sína sem er af
Hamilton Beach gerð.
Hún sagðist hafa reynt mikið til aðfá
þennan þeytara en enginn vissi hver
hefði umboð fyrir þessar hrærivélar.
Þessar vélar áttu miklum vinsældum
að fagna hér áður fyrr og fékk Ellen
sína vél fýrir 25 árum og gengur hún
ennsemný.
Eftir að hafa hringt nokkur símtöl
komumst við að því að umboðið er í
höndum Ljósbogans að Mjölnisholti 14.
Þar fengum við þær upplýsingar að til
væru nokkrir varahlutir j þessar vélar
en framleiðsla þeirra er löngu hætt.
Og svo var að heyra að líklega væri til
þeytarihjá þeim.
Vertíöartilbod
Nú ber vel í veiði.
2
>
J3
I
"SIRIMIR
im
SNORRABRAUT 56 SIMI 1 35 05 GLÆSIBÆ SIMI 3 43 50
AUSTURSTRÆTIÍO SÍMI 27211
Ekki bara benjuleg verslun!