Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Page 34
34
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAI1984.
STORSVEITARJASSI
Jassleikarar á Akureyri sáu um að
slá botninn í Sæluviku Skagfirðinga í
ár. Henni lauk sunnudaginn 8. apríl
með því að fríður flokkur kom úr
höfuðstaö Norðlendinga með hljóðfæri
sín og spilaði í Félagsheimilinu Bif-
röst. Stórhljómsveit Tónlistarskólans
á Akureyri var aðaltrompið en á
stundum klofnaði hún í smærri
einingar, dixielandhljómsveit, quint-
ett, trió eða annað. I stórsveitinni voru
19 hljóðfæraleikarar og stjórnandi til
viðbótar, Edvard J. Frekdriksen heitir
hann.
Það er ekki á hverjum degi sem
jassistar á Akureyri fara svona ferðir
út fyrir bæjarmörkin. Stórsveitin er
heldur ekki gömul, allt er þetta í upp-
byggingu með auknum umsvifum jass-
deildarinnar við Tónlistarskólann. En
reynslan átti eftir að sýna að svona
heimsóknir eru vel þegnar. Áhuga-
menn um jass er að finna um allt land
og þá þyrstir í að fá þessa draumatón-
list sína beint í æö við húsvegginn hjá
sér.
Stórsveitarmenn lögðu upp frá must-
eri sínu, Tónlistarskólanum, á slaginu
kl. 16.00 á snotru bilrúgbrauöi. Til
marks um að þessum mönnum er
ýmislegt til lista lagt má geta þess að
bílstjórinn í ferðinni umbreyttist þegar
að tónleikunum kom í trommuleikara1
bandsins. Já, þama eru menn sem
vinna hjá Slippstöðinni, Pósti og síma,
og á hinum og þessum stöðum öörum.
Kennari einn sat þögull mestan hluta
ferðarinnar vestur og fór yfir próf
nemenda sinna. Ur honum varð píanó-
Jassgeggjunin á Króknum reiffólk upp úr sætunum, það klappaði, blistraði og hrópaði afánægju.
JASSDEILDIN ER
MEÐ STÓRSVEIT
SEM HORNSTEIN
Stórsveit Tónlistarskólans á Akur-
eyri var sett á laggirnar í febrúar 1983
og starfaði þá út vorönnina. Vegna
manneklu lá starfsemin niðri á haust-
önninni en aftur var farið af stað í
byrjun vorannar 1984. Æft hefur verið
reglulega einu sinni í viku. Hljómsveit-
in er skipuð áhugafólki utan úr bæ,
nemendum, lúðrasveitarmönnum og
kennurum.
I fyrrahaust fór af stað sérstök jass-
deild við Tónlistarskólann og hefur
stórhljómsveitin verið nokkurs konar
homsteinn hennar. Deildin er ennþá
‘undir blásaradeildinni en áhugi er
fyrir að gera hana að sérstakri deild
innan skólans næsta haust. Einn
kennari hefur veriö með þá kennslu
sem sérstaklega tengist jassinum, Ed-
vard J. Fredriksen. Hann hefúr jafn-
framt stjómað stórsveitinni.
Hljóðfæraleik sækja nemendur í aðrar
deildirskólans.
Edvard sagði í samtali við DV að
áhugi fyrir jassinum væri mikill. Það
sæist best á því að ekkert mál heföi
verið aö koma saman stórsveit núna.
„Við biðjum líka endilega fólk sem
hefur áhuga fyrir jassi og er eitthvað
að dútla viö hann að hafa samband viö
skólann. Eg er að vona að sveitin haldi
áfram af fullum krafti i haust og þá
langar okkur til aö fara eitthvað um
nágrenniö áður en tekur að snjóa. ”
Þó stórsveitir séu nokkrar til hér á
landi er ekki um auðugan garð að
gresja í íslenskum útsetningum fyrir
þær. Edvard sagöist halda að engin
slík væri til og það kæmi sér mjög illa.
Nóg væri af erlendum útsetningum
sem reynt væri að velja úr eftir f jár-
hagslegri getu. Þær væru mjög dýrar í
innkaupi en þrátt fyrir það yrði
strikinuhaldiö.
Akureyringum hefur ekki oft gefist
kostur á að heyra í þessari mögnuöu
stórsveit enda er ferill hennar ekki
mjög langur ennþá. Þeir Sauöárkróks-
búar sem komu í Bifröst til aö fylla sig
jasshunangi í lok sæluviku vita allt um
stuðið hjá stórsveitinni og
smáhljómsveitunum innan hennar.
Þetta sama lið verður með hátíð fyrir
jassgeggjara í Leikhúsinu 9. maí
klukkan 20.30. Þar verður meira en
tveggja tíma dagskrá sem félagarnir í
sveitinni standa fyrir og þeir fá til sín
sem gest hinn óþreytandi jassnagla
Ingimar Eydal. Nú safnast jass-
geggjarar bæjarins í Leikhúsið en
blessaður veri sá dagur þegar litlir
veitingastaöir rísa með afdrepi úti í
homi fyrir jassleikara sem þyrstir í að
fá útrás í list sinni. Hver vill ríða á
vaðið með slikan stað á Akureyri?
Finnur Eydai lætur ekki deigan síga i jassinum. í stórsveitinni blæs hann
tónana úr bassasaxinum sinum.
Texti og myndir: Jón Baldvin Halldórsson
p? í
Fuiitrúi Slippstöðvarinnar og for-
maður Jassklúbbs Akureyrar,
Eirikur Rósberg, tekursóló.
■ >
Ebbi stjórnandi kallar kvartettinn,
píanó, gitar, bassa og trommur
„kompuna"istórsveitinni. Þetta er
iir útlenskunni „accompaniment".
Kompan hefurþað hlutverk að drifa
allt áfram, er eiginlega drifið í
hljómsveitinni. Hér eru þrir þeirra,
Grímur Sigurðsson á bassa, Birgir
Karlsson gitar og Kristján Guð-
mundsson á pianó.
•*----------------«C
Stórsveitarmenn eru á öllum aldri
næstum því. Hérna eru fjórir i ham,
Eiríkur Rósberg og Sævar Vigfús-
son á trompetta og Sigurður
Ingólfsson og Guðlaugur
Baldursson á básúnur.