Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Side 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1984.
37
Dæmalaus 'Veröld Dæmalaus V’eröld Dæmalaus Veröld
Ekki er vitað hvaða getnaðar-
vörn þessi bandaríska kona
notar. Aftur á móti er hún að
mála sig um augun.
Getnaðarvarnir
—vinsældalisti:
Óf rjósemi í
fyrsta sæti
Rúmlcga 33 milljónir banda-
riskra kvenna stunda getnaðar-
varnir í einni cöa annarri mynd.
Athyglisvert er að 34,8% þeirra
telja ófrjósemi öruggustu leiðina
til að forðast þungun og gangast
því undir læknisaðgerð í því
skyni cða láta eiginmcnn sína
gera það. Ofrjósemi er því í
fyrsta sæti vinsældaiistans /
getnaðarvarnir.
Annars lítur listinn þannig út:
29,9% treysta á pilluna, 13,4% á
smokkinn og 6,9% á lykkjuna.
Afgangurinn dreifist á margs
konar aðrar varnir og varúöar-
ráðstafanir sem of langt mál yrði
upp að telja. Þó má geta þess að
0,4% láta sér nægja að fara í
sturtu eftir samfarir.
Lappi igóðu yfir/æti í Suðursveitinni áður en offitan varð honum um megn.
Lucy átti bróður sem hét Lappi og...
HANN DÓ AF
VÖLDUM OFFITU
„Ég man vel eftir þegar við fórum að
ná í hann Lappa út á Smyrlabjörg sem
er næsti bær hér \ ið,” sagði Eyþór
Ragnarsson á SkálafeUi í Suðursveit er
DæVe sló á þráðinn. „Þá voru þau
systkinin nýgotnir hvolpar, við tókum
Lappa með okkur hcim en Lucy fór í
bæinn. Ef ég man rétt var þriðja
systkinið í körfunni en hvað varð um
það veit ég ekki.”
Að sögn Eyþórs var Lappi
skemmtUegasti hundur og alls óvitlaus
en því miður urðu örlög hans heldur
dapurleg. A unga aldri tolldi hann vart
við á bænum vegna „útstáelsis” og var
þá gripið til þess ráðs að vana hann.
„Það tókst ágætlega en í stað þess að
vera að eltast við tíkur hér um allar
sveitir hóf hann að safna á sig spiki og
varð svo feitur undir lokin að hann gat
vart gengið,” sagði Eyþór. „Það end-
aði því með því að honum var fargað á
fimmtaári.”
En það er huggun harmi gegn að
Lucy systir hans varð frægasti hundur
íheimi.
Breskur
huglæknir
í miðbæ
Reykjavíkur
Reykvíkingum og öðruni lands-
mönnum gefst nú kostur á að kynuast
huglækningum og beitingu þeirra. Ger-
ist það á tveim helgarnámskeiðum
sem breski huglæknirinn Agar Nares
heldur um næstu helgi og þarnæstu.
Agar Nares á aö baki hefðbundiö
nám í sállækningum auk þess sem hún
hefur um 6 ára skeiö unnið með að-
feröir kennara síns, Robert Moore,
sem á undanförnum árum hefur vakið
athygli langtút fyrirstrendurEnglands
fyrir kenningar sínar um orkulækn-
ingar. Þær felast í því að kenna fóki að
beita hugarorku við lækningar á sjálfu
sér jafnt sem öðrum.
Fyrir þá sem áhuga hafa á helgar-
námskeiðum þessum dugir ekki að
senda hugskeyti heldur leita nánari
upplýsinga í síma 13877 eftir klukkan Breskur huglæknir dvelst um þessar mundir í Reykjavik. Þessi mynd er
fram undir miðnætti. aftur á móti tekin i miðborg Lundúna. .jtui-
HEIMSLJÓS
Panda-bimir
í æðiskasti
Aðframkomnir af hungri hafa
pandabimir í Mið-Kina sótt
bændur beim, brotist inn í hús
þeirra og hirt ailt ætilegt. Hefur
vart staðið steinn yfir steini cftir
hcimsókniraar.
Kyn-
skiptingur
Robert Sylvester, fyrrum for-
scti bæjarstjórnarinnar í St. Paul
í Bandaríkjunum, hefur gengist
undir aðgerð sem breytti honum
úr karlmanni í kvcnmann. „Eg
vissi ckki að þetta yrði svona
crfitt. Maður verður að læra að
fara á saleraið, ganga á þokka-
fullan hátt og ótal margt annað
sem mig óraði ekki fyrir,” sagði
bcjarstjórnarforsetinn fyrrver-
audi sem nú hcitir Susan Kimber-
ley.
Eldflauga-
banar
Atta friðarsinnar í Flórida
brutust inn i vopnaverksmiðjur
þær sem framleiða Pershing-2
cldflaugaraar og cyðilögðu bæði
verkfæri og nokkrar cldflaugar.
Helitu þeir blóði yfir flaugarnar
og máluðu vígorð á veggi þar
sem þess var krafist að fé yrði
frekar varið til framleiðslu land-
búnaðartóla cn hcrgagna.
Ný mynt
íNígeríu
Nigeriumcnn ætla að skipta
um gjaldmiðil. Vonast yfirvöld til
að með þvi móti veri hægt að
hafa hendur á stórfúlgum sem
svartamarkaðsbraskarar liggja
á. Hver borgari fær 2 vikur tii aö
skipta fé sínu yfir í nýja mynt og
getur hver og einn ekki skipt
meiru en 210 þúsund krónum án
þcss að skýra það frekar.
Dauður
■ / ■ r
njosnari i
kvenklæðum
Einn af virtustu starfsmönn-
um leynilegu bresku rannsóknar-
stofnunarinnar sem m.a. fæst við
hernaðarleyndarmál fannst
látinn fyrir nokkru — klæddur
kvenmannsfötum. Hami hét
doktor Paul Dean, 49 ára, kvænt-
ur og tveggja barna faðir. Þrátt
fyrir margvisleg öryggispróf,
scm starfsmcnn stofnunarinnar
cru látnir gagnast undir, hafði
enginn doktor Paul grunaðan um
að vera kynvillingur.
* UÉmáÉUáMillÉliÉÉH