Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1984, Qupperneq 8
8
DV. FÖSTUDAGUR11. MAl 1984.
Rafmagnsveitur ríkisins
auglýsa laust til umsóknar starf deildarstjóra hagdeildar. Við-
skipta- eða hagfræöimenntun tilskilin.
Umsóknir er greini menntun, aldur og fyrri störf sendist fyrir
20. maí 1984, merkt starfsmannahaldi. Upplýsingar veitir for-
stööumaður fjármálasviðs.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118,
105 Reykjavík.
KRANAMAÐUR ÓSKAST
Vanur kranamaður á byggingakrana óskast nú þegar.
Upplýsingar föstudag í síma 34788 og laugardag í síma 72627
og 20774.
Tilkynning til
söluskattsgreiöenda
Athygli söluskattsgreiöenda skal vakin á því að gjalddagi
söluskatts fyrir aprílmánuð er 15. maí. Ber þá að skila skattin-
um til innheimtumanns ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í
þríriti.
Fjármálaráðuneytið
LÖGMENN
Framhaldsaðalfundur Lögmannafélags íslands verður
haldinn í hliðarsal Hótel Sögu á morgun, laugardaginn 12.
maí, og hefst kl. 14.00.
Stjórnin.
FLUGLEIÐIR/V
BAKARI ÓSKAST
Óskum eftir að ráða bakara yfir sumarið. Nánari
uppiýsingar gefnar í síma 22322 hjá starfsmanna-
stjóra.
Hótel Loftleiðir.
LAUSAR STÖÐUR
Við Laugaskóla í Dalasýslu eru lausar til umsóknar eftirtald-
ar stöður. Umsóknarfrestur er til 20. maí nk.
1. Kennarastaða í hannyrðum og myndmennt.
2. Kennarastaða á barnastigi.
3. Staða skólabreyta.
Upplýsingar gefa Guðjón Sigurðsson skólastjóri í síma 93-4262
og Kristján Gíslason yfirkennari í símum 93-4264 og 93-4269.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að eindagi
launaskatts fyrir mánuðina janúar, febrúar og mars er 15.
maí nk. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða
dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með
gjalddaga.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtu-
manns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leiö
launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Neytendur Neytendur Neytendur
Komið hefur tii að hætta framleiðslu á mangósopa og jóga vegna samdráttar i sölu. Vegna stöðvunar á
dreifingu drykkjanna þriggja er hætta á skemmdum á hluta kókómjólkurbirgðanna. DV-mynd: Bj. Bj.
Þráteflið um mjólkurdrykkina stendur enn:
Verulegur samdráttur í
sölu kókómjólkur, mangó-
sopa og jóga árið 1983
Sem kunnugt er hefur Mjólkursam-
salan stöðvað dreifingu á kókómjólk,
mangósopa og jóga í verslanir. Stöðv-
un var ákveðin í kjölfar ágreinings
sem kom upp þegar fjármálaráöherra
ákvaö aö framfylgja lögum um inn-
heimtu 17% vörugjalds og söluskatts af
viðkomandi mjólkurdrykkjum. Nokkr-
ir þingmenn Framsóknarflokksins
hafa síöan lagt fram frumvörp á
Alþingi þess efnis að gjöldin tvö verði
afnumin af drykkjunum.
Svokölluð ráðherranefnd, skipuö
fjórum ráðherrum og öðrum aðilum,
hefur verið sett á Iaggirnar til að
kanna þetta mál frekar. Enn er máliö í
biðstöðu, mjólkurdrykkjunum þremur
er ekki dreift í verslanir og birgðir sem
til voru í verslunum á þrotum.
Áöur en til stöðvunar kom og birgðir
þraut höföu nokkrir matvörukaup-
menn innheimt söluskatt af kókó-
mjólkinni eða selt drykkinn meö sölu-
skatti.
Einn peli af kókómjólk kostaði í smá-
sölu 12,35 krónur. Með 23,5% söluskatti
fer pelinn í 15,25 krónur. Með 17%
vörugjaldi, sem eftir því sem við höf-
um komist næst, yrði lagt á 80% af
heildsöluverðinu og söluskatti færi pel-
inn af kókómjólkinni í um 17 krónur.
Menn greinir á um flokkun kókó-
mjólkur, hvort drykkurinn sé frekar
kakómjólk en mjólk. 93% innihalds er
mjólk.
Samdráttur í sölu
Samkvæmt ársskýrslu Mjólkursam-
sölunnar í Reykjavík var sala kókó-
mjólkur á árinu 1983 rúmlega ein millj-
ón lítrar. Frá 1981 hefur orðiö tæplega
20% samdráttur í sölu kókómjólkur.
Töluverður samdráttur hefur einnig
orðið í sölu á mangósopa og jóga. Af
mangósopa seldust rúmlega 24 þúsund
lítrar, sem er um 61% minni sala en ár-
ið 1981, og tæplega 39% minni sala en
1982.
Mangósopi er mysudrykkur. Tæp-
lega 76% samdráttur hefur veriö í sölu
á jóga, sem er drykkjarjógúrt, frá ár-
inu 1981, en 1983 seldust rúmlega 45
þúsund lítrar af jóga. Árið 1981, þegar
drykkjarjógúrtin kom á markaðinn,
seldust rúmir 63 þúsund lítrar af henni.
Hætta á skemmdum
Samkvæmt upplýsingum Birgis
Guðmundssonar framleiðslustjóra
Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi,
framleiðanda drykkjanna þriggja, eru
til birgðir af kókómjólk sem nema um
60 þúsund lítrum. Um 14 þúsund lítrar
af kókómjólk eru með siöasta söludag í
júnílok. Ef dreifing fer ekki af stað aft-
ur fljótlega er hætta á aö einhver hluti
birgðanna skemmist. Vegna samdrátt-
ar í sölu á mangósopa og jóga hefur
komiö til að hætta framleiðslu þeirra
aö sögn Birgis Guðmundssonar.
Agreiningurinn um gjöld af kókó-
mjólk, mangósopa og jóga er ekki til
lykta leiddur og á meðan er drykkjun-
um ekki dreift í verslanir og neytendur
veröa að vera án þeirra.
„Lítið er spurt um drykkina,” sögðu
nokkrir kaupmenn, sem við höfðum
samband viö, en aðrir sögðu aö eftir-
spurnin væri töluverð.
Þessi ummæli, á hvom veginn sem
er, segja þó ekki mikið, fólk spyr sjálf-
sagt ekki um vöru sem það veit að ekki
er fáanleg og hvers vegna.
-ÞG
Verð á mjólkurvörum:
Rannsóknin nær of skammt
Eins og kunnugt er hefur fjármála-
ráðherra farið fram á að gerð verði
rannsókn á verömyndun ýmissa
mjólkurvara sem mjólkursamlögin
verðleggja sjálf.
Stjómir Neytendafélags Reykja-
víkur og nágrennis og Neytendasam-
takanna fagna þessu frumkvæði ráð-
herrans. Þær telja þó aö þessi rann-
- segja neytendafélögin
sókn nái of skammt og telja fulla
þörf á að gerð verði mun víðtækari
rannsókn á verðmyndun mjólkur-
vara. Þær nefna m.a. að verð á
jógúrt sé óeðlilega hátt og að það sé
óeölilegt að skyr skuli hækka um 140
prósent í verði þegar settir séu sam-
anvið þaöávextir.
Verð á gosdrykkjum
Þessi samtök mótmæla einnig
þeim verðbreytingum sem gerðar
hafa verið á ýmsum drykkjarvörum,
Þaö sé ekki raunhæft að þegar gjöld
á gosdrykkjum séu lækkuð skuli
gjöld á ávaxtasafa og fleiri
drykkjarvörum hækka.
prósent 1. febrúar. Þó getur tæpast talist að um háar upphæðir sé að ræða
þegar bókasöfnin eru notuð reglulega.
Borgarbókasafnið:
Gjaldtaka
hækkaði um
100 prósent
— í byrjun ársins
Þann 1. febrúar síöastliðinn hækk-
uðu öll gjöld sem viðskiptavinum er
gert skylt að greiöa á Bœ-garbókasafn-
inu í Reykjavík um 100 prósent. Á
Borgarbókasafninu verða notendur
þess að greiða ákveðið ársgjald. Fyrir
fullorðna var þetta gjald fyrir hækkun
100 krónur en er nú orðið 200 krónur.
Barnagjaldiö hefur hækkað úr 25 krón-
um í 50 krónur. Oll önnur gjöld hafa
hækkað að sama skapi. Þetta eru
reyndar ekki mjög háar upphæðir og
samkvæmt heimildum DV brjóta þessi
gjöld í bága við samþykkt sem gerö
hefur verið í UNESCO. Þar er kveðið
svo á um að aðgangur að almennings-
bókasöfnum eigi að verða ókeypis, en
heimilt sé þó að sekta lánendur fyrir
vanskil. --
1 flestum bókasöfnum landsins eru
tekin þessi gjöld, en á Akureyri er
aögangurinn ókeypis.
A sama tíma sem ákvarðanir um
þessar hækkanir hafa verið teknar hef-
ur verið dregið úr bókakaupum fyrir
Borgarbókasafnið. En sjálfsagt á það
rætur sínar að rekja til slæmrar fjár-
hagslegrar stöðu borgarinnar. Von-
andi verður breyting á því þegar
þaðástand batnar.
Elfa Björk Gunnarsdóttir borgar-
bókavörður sagði aö þaö væri rétt að í
samþykktum UNESCO væri ýjað að
þvi að aðgangur að almenningsbóka-
söfnum ætti að vera ókeypis. Þar væri
kannski höfðað sérstaklega til vanþró-
uðu ríkjanna. Hún sagði að þaö væri
sin skoðun að gjaldtaka bókasafna ætti
aldrei að vera svo há að fólk veigraði
sér viö að fá lánaðar bækur. Það mætti
sjálfsagt deila um hvort núverandi
gjald væri of hátt. En það væri tæpast
hægt að segja að það væri hátt miöað
viö það verð sem nú er á bókum. Fyrir
þetta gjald gætu lánendur tekið aö láni
eins margar bækur og þeir vildu.
—--------------- -----------APH