Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1984, Page 4
4
DV. LAUGARDAGUR12. MAÍ1984.
DV yfirheyrsla
DV-yfirheyrsla
DV-yfirheyrsla
DV yfirheyrsla
Texti: Olafur E. Friðriksson og Herbert Guðmundsson
Myndir Gunnar V. Andrésson
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, íyfirheyrslu DV
„Ekki lögmál að Framsókn
verði alitaf í ríkisstjóm”
Ertu valdalaus í þessu stjórnar-
samstarfi?
„Ef ég á aö svara þessu í stuttu
máli, eins og þú biður um, er svariö
nei.”
Var ræða Friöriks Sophussonar á
Seltjamarnesi, þar sem hann sagði
aö þú ættir að taka sæti í ríkisstjóm-
inni, flutt í samráði við þig?
„Nei.”
En ertu sammála því sem Friðrik
sagði um stöðu þína, ríkisstjómar-
innar og flokks þíns i þessu stjóraar-
samstarfi?
„Menn verða að átta sig á því að við
stöndum á timamótum, bæöi stjómin
og eins þjóðin, hvað varðar þróun
efnahagsmála. Það er mikið verk að
baki við að ná efnahagslegu jafnvægi
og nú verður að tryggja að það geti
haldist. Auövitað eru blikur á lofti í
þessum e&ium sem stafa fyrst og
fremst af því aö þaö er of mikill halli
á rikissjóði miðaö viö þau markmið
sem við höfum sett okkur og það er
ekki það jafnvægi á peninga-
markaðnum sem æskilegt er til þess
að ná þessum markmiðum. En ég er
þeirrar skoöunar að við þetta sé hægt
að ráða ef menn taka hlutina föstum
tökum.”
Hveraig þé?
„Með auknu aðhaldi í ríkisfjár-
málum, meira aöhaldi en tekist
hefur fram að þessu og með aðgerö-
um á peningamarkaöinum. Þar er
auðvitað eðlilegast að gefa bönk-
unum aukið frelsi varöandi vaxta-
ákvarðanir eins og tekist hefur sam-
komulag um milli stjómarflokkanna
í bankamálanefndinni. Það liggja
fyrir tillögur um þaö efni í frum-
vörpum að nýrri bankalöggjöf. Það
er mjög mikilvægt atriöi.”
Er hægt að ná meiri sparaaði í
ríkisf jármálum á þessu ári?
,JEg held að það sé alveg útilokað
að ná meiri árangri á þessu ári.
Þetta er spurning um næsta ár og
e.t.v. næstu ár.”
Friðrik ræddi um nauðsyn þess að
skipta upp ráðherrum Sjálfstæöis-
flokksins. Hvaða ráðherraembætti
myndi þá hæfa formanni flokksins?
„Það skiptir ekki meginmáli
hvaða menn sitja fyrir okkar hönd í
ríkisstjórninni. Það er framganga
okkar stefnumála sem skiptir öllu
máU. Persónumar eru ekki aðal-
atriöið í þeim efnum. Menn geta auð-
vitað haft á því mismunandi
skoðanir hvort formaður flokksins
eigi að sitja i ríkisstjóm eöa ekki og
auðvitað hefur maður fundiö þaö að
það eru óskir mjög margra í flokkn-
um að svo sé. En þetta snýst ekki um
það hvort einhver persóna er ráð-
herra eöa ekki. Eg hef engan áhuga á
að fara í ríkisstjórn bara til að vera
ráðherra.”
Er það í þínu valdi að ákveða
hvenær þú tekur sæti í ríkisstjóra?
„Það er þingflokkurinn sem til-
nefnir ráðherra.”
Nú er farlð að ræða um að fresta
þingi vegna ágreinlngs stjóraar-
flokkanna um afgreiðslu ýmissa
mála. Er ekki farið að hrikta í
stjórnarsamstarfinu?
„Þessi hugmynd stafar ekki af
ágreiningi stjórnarflokkanna. Hún
stafar einfaldlega af því að þaö er
mikið af málum óafgreitt og ef það
vinnst ekki tími tU að afgreiða þau
þá er ástæðulaust að setja þinginu
þau tímamörk aö nauösynleg mál
náist ekki fram af þeim sökum. En
hitt er alveg ljóst aö það hafa komiö
upp ákveðin mál þar sem leiðir skilja
milli flokka og snúast um grund-
vallarágreining, eins og til dæmis í
húsnæðismálum. Við erum ekki
tilbúnir að fóma okkar grundvallar-
stefnu í þeim málum. ”
Era þessi mál farin að há flokk-
unum í stjóraarsamstarfinu?
„Eg held að það sé ekki ástæða til
þess að láta þessi atriði, sem hafa
komið upp, koma í veg fyrir aö menn
haldi þessu áfram og freisti þess að
ná samstöðu um raunhæfar aðgerðir
fyrir næstu misseri. Það er ekkert
tilefni til uppgjafar eins og sakir
standa.”
Nú hefur Sjáifstæðisflokkurinn
lagt áhersiu á endurskoðun sölu- og
verðmyndunarkerfis landbúnaðar-
vara, aukið frelsi í útvarpsrekstri og
uppstokkun Framkvæmdastofnunar
og rikisbankanna en ekkert þessara
mála virðist ætla að ná fram að
ganga. Hvaða tilslakanir vill
fiokkurinn gera í þessum efnum?
„A þetta hefur í sjálfu sér ekki
reynt ennþá. Það var samstaöa að
því er varðar endurskipulagningu
bankakerfisins í bankamáianefnd-
inni. Það er að því stefnt að þær
breytingar verði lagðar fyrir Alþingi
næsta haust og taki gildi um næstu
áramót eins og upphaflega var ráð
fyrir gert.”
Þessu er þveröfugt farið með
Framkvæmdastofnun og fram-
kvæmdasjóðinn.
„Þar varð ekki samstaöa í þeirri
nefnd er um það fjallaði og það mál
verður að taka upp með öðrum hætti
milli stjómarflokkanna. Þaö er eitt
af þeim atriðum sem nú koma til
samninga milli flokkanna þegar
menn takast á við verkefnaáætlun
fyrir næstu misseri. ”
En útvarpslagafrumvarpið?
„Eg tel að það verði að ná fram að
ganga á þessu ári. Það væri auðvitað
æskilegast að það gerðist á þessu
þingi en ég efast um að það náist
meirihlutasamstaöa á þinginu
núna.”
Endurskoðun landbúnaðar-
kerfisins?
„ Já, það hefur verið unnið að því
verkefni. Við höfum iagt í það all-
mikla vinnu innan flokks og ég vænti
þess að við höfum okkar stefnu-
mótun fullbúna innan ekki langs
tíma.”
í hvaða meginátt gengur hún?
„Þetta erum við að undirbúa og
það kemur í ljós þegar því starfi er
lokið. Við ætlum okkur að ná sáttum
milli framleiðenda og neytenda.”
Þú segir að ríkisstjórain sé á tima-
mótum og þú hefur lýst ýmsum
ágreiningsefnum við Framsóknar-
flokkinn og markmiðum sjálfstæðis-
manna í þeim efnum. Telurðu að aðr-
ir stjóramálaflokkar en Fram-
sóknarflokkurinn væru heppilegri
samstarfsaðilar til að fylgja þessum
markmiðum fram?
„Það er ljóst að við stjómar-
myndunina síðastliðið vor var á það
reynt hvort unnt væri að mynda
stjóm með öðrum hætti. Það tókst
ekki af ýmsum ástæðum. Eg er ekki
viss um aö þaö hafi orðið neinar
grundvallarbreytingar á þessu eina
ári. En við erum auövitaö opnir fyrir
því að starfa með öðrum flokkum og
þaö er aö sjálfsögöu ekkert lögmál
að Framsóknarflokkurinn eigi alltaf
að vera í ríkisstjóm.”
En beint svar við spuraingunni:
Eru aðrir flokkar heppilegri sam-
starfsaðilar til að fylgja þessum
markmiðum fram?
„Það fer auövitað eftir einstökum
málum. Það er engin algild regla til
um það. Um sum mál eigum viö
örugglega auðveldara meö að ná
samstöðu við aðra flokka, um önnur
ekki. Inn í þetta kemur auövitaö
staöa stjómarandstöðuflokkanna.
Það er ljóst að stjórnarandstöðu-
flokkarnir eru mjög veikir eins og
sakir standa. Alþýðubandalagið er í
sárum eftir upphlaupin í kjara-
málum í vetur og hinir stjórnarand-
stööuflokkamir mjög veikburða.”
Er þér kunnugt um þreifingar
sjálfstæðismanna bjá stjóraarand-
stöðuflokkunum til að grennslast
fyrir um hvort þeir myndu ganga til
stjórnarsamstarfs við Framsóknar-
flokkinn ef það slitnaðl upp úr þessu
stjóraarsamstarfi?
„Sjálfstæöisflokkurinn hefur ekki
staðiðfyrirþví.”
En einhverjir þingmenn f lokksins?
Er þér kunnugt um það?
„Nei, en ef svo væri þá væri það
ekki í umboöi flokksins.”
Launþegahreyfingin hefur gagn-
rýnt að ríkisstjórnin hafl látið laun-
þega greiða niöur verðbólguna en
hafi í raun ekki gert neitt annað, ekki
tekist á við nein grundvallarvanda-
mál.
„Þetta er alrangt. Það var tekist á
við grundvallarvandamál. I fyrsta
lagi var gengið leiðrétt og þar með
hleypt nýju blóði inn í framleiðsluat-
vinnugreinarnar sem voru komnar
að því að stöðvast. Að öðrum kosti
blasti við mjög víðtækt atvinnuleysi.
Víxlgengi kaupgjalds og verölags
var stöðvað og gengisstefnunni var
breytt frá daglegri gengisfellingu til
stöðugs gengis. Þetta eru auðvitað
grundvallarbreytingar. Menn tóku
ákvöröun um það aö horfast í augu
við að við höfðum borgað okkur
fyrirfram af laununum með hinum
mikla viðskiptahaila sem varð á
árunum 1980 til 1982. Þetta er grund-
vallaratriði í efnahagsstjóm, að
horfast í augu við vandamálin í stað
þess að loka augunum fyrir þeim.
Þetta hefur leitt til algerra umskipta i
efnahagsmálum þannig að það er
fjarstæöa aö ekki hafi verið tekist á
við grundvallarvandamál.
Hitt er alveg ljóst að ef þessi
árangur á að verða varanlegur þá
verða að koma til mjög víðtækar
skipulagsbreytingar á stjórn
peningakerfisins til þess að tryggja
arðsemi í uppbyggingu atvinnuveg-
anna og takmarka ríkisumsvif til
þess að gefa atvinnulifinu aukið svig-
rúm þvi eina ieiðin til aö bæta lífs-
kjör er aukin framleiöni og aukin
verðmætasköpun. ”
En treystirðu stjórnarsamstarfinu
til þess að standast þau átök sem
yrðu ef launþegahreyf ingin risi upp á
afturfæturaa, eftir ekkert annað en
kjaraskerðingu?
„Það er ekki hægt að gefa sér þá
fullyrðingu að launþegahreyfingin
muni risa upp á afturfæturna ef hún
finnur aö stjómvöld eru að takast á
við þessi verkefni af fullri alvöru. Þá
held ég að fólkið í landinu muni
standa með stjórnvöldum. Að öðru
leyti er ekki unnt að svara spurningu
semþessari.”