Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1984, Síða 10
10
DV. LAUGARDAGUR12. MAÍ 1984.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Grensásvegi 46, tal. eign Grensáskjörs hf.,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 15. maí 1984 ki. 11.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 127., 129. og 132. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Krummahólum 4, þingl. eign Jóns Vals Smárasonar o.fl., fer fram
eftir kröfu Veðdeiidar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn
14. maí 1984 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem augiýst var í 135., 139. og 140. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á D—tröð
8, hesthús, þingl. eign Birgis Árnasonar, fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn 14. maí
1984 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 9., 12. og 15. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á hluta í
Keldulandi 19, tal. eign Þórðar Walters, fer fram eftir kröfu Sveins H.
Valdimarssonar hrl. á eigninni sjálfri mánudaginn 14. maí 1984 kl.
11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Laugarnesvegi 82, þingl. eign Kristjáns
Kristjánssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og
Steingrims Eiríkssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. maí
1984 kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Langholtsvegi 51, þingl. eign Óla H. Sveinbjörns-
sonar o.fl., fer fram cftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eign-
inni sjálfri miðvikudaginn 16. maí 1984 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 97., 101. og 104. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Laugateigi 29, þingl. eign Kristjáns Kristjánssonar, fer fram eftir
kröfu Sparisjóðs Reykjavikur og nágrennis og Gjaldheimtunnar í
Reykjavik á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. maí 1984 ki. 10.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 9., 12. og 15. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 á Hamrabergi
17, þingl. eign Rósu Guðmundsdóttur, fer fram eftir kröfu Guömundar
Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. maí 1984 ki. 13.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 134., 137. og 140. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Njörvasundi 27, þingl. eign Loga Péturssonar, fer fram eftir kröfu Ás-
geirs Thoroddsen hdl., Landsbanka íslands, Gjaldheimtunnar í
Reykjavík, Björns Ólafs Hallgrímssonar hdl. og Steingríms Eiríks-
sonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. maí 1984 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Hábergi 7, þingl. eign Halldórs Baldurssonar, fer
fram eftir kröfuGjaldheimtunnar í Reykjavík, Guðmundar Jónssonar
hdl., Jóns Magnússonar hdl., Guðmundar Þórðarsonar hdl. og Haf-
steins Baldvinssonar hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. maí 1984
kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Laugalæk 18, þingl. eign Sveins Þ. Jónssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis, Sigurmars K. Albertssonar hdl. og Péturs
Guðmundarsonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16. maí 1984 kl.
10.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Þær leggja sitt af mörkum til styrktar efnalitlum mæðrum. Talið frá vinstri: Helga fíafnsdóttir, ritari
stjórnar Mæðrastyrksnefndar, Unnur Jónasdóttir, formaður stjórnar Mæðrastyrksnefndar, Sigrún
Ingólfsdóttir, nefndarmaður i Mæðrastyrksnefnd, og Guðlaug Ingólfsdóttir, starfsmaður Mæðrastyrks-
nefndar.
DV-mynd GVA.
Mæðradagurinn
á íslandi 50 ára
Þetta þætti eiginkonunni og móðurinni eflaust huggulegt að fá i rúmið
á morgun, en flestar sættu sig þó við eitthvað minna fint.
Mæðradagurinn er á morgun.
Þann dag vita allir góðir eiginmenn
og böm aö mamma á að fá morgun-
verðinn í rúmið ef hún svo óskar og
jafnframt á hún að fá blóm og frí frá
heimilisstörfum þann daginn.
En hvaöan er þessi mæðradagur
kominn? Hann er ekki íslenskur aö
uppruna heldur er hann kominn frá
henni Ameríku eins og svo margt
annaö.
Fyrst haldinn 1914
Það var árið 1907 að bandaríska
kvenréttindakonan Anna M. Jarvis
fékk þá hugmynd að koma á sérstök-
um degi til heiðurs mæðrum. Hún
kom hugmyndinni á framfæri og sjö
árum síöar undirritaði þáverandi
forseti Bandaríkjanna, Woodrow
Wilson, lagaákvæði þess efnis að
dagur þessi skyldi hátíðlegur haldinn
annan sunnudag í maí ár hvert. Þá
skyldi mæðrum vera þökkuð fórnfús
störf allt árið um kring með blómum
ogöðrugóóuatlæti.
Mæðrastyrksnefnd
Eftir fyrri heimsstyrjöldina barst
þessi siður til Evrópu og 1927
kom hugmyndin fyrst svo vitað
sé til umræðu í Kvenréttindafélagi
Islands. Enn liðu þó nokkur ár þar til
dagurinn var hátíðlegur haldinn hér-
lendis en 1928 beitti Kvenréttinda-
félagið sér fyrir því aö Mæörastyrks-
nefnd var komið á laggimar.
Nefndina skipuðu fulltrúar 17
aðildarfélaga Bandalags kvenfélaga
I Reykjavík og meginverkefni
nefndarinnar var og er að safna fé til
styrktar efnalitlum mæðrum. Fyrsti
formaður stjórnar nefndarinnar var
Laufey Valdimarsdóttir.
Blómasala hefst
Fyrsti mæðradagurinn hér á landi.
var svo haldinn 19. júní 1934 á al-
þjóða kvennadeginum og á því
mæðradagurinn hér á landi 50 ára af-
mæli á morgun.
Mjög fljótlega var dagurinn færður
frá 19. júní til annars sunnudags í
maí og hefur hans verið minnst á
þeim degi síöan.
Samtímis sem fyrsti mæðradagur-
inn var haldinn hérlendis hóf Mæðra-
styrksnefnd sölu blóma á mæðradag-
inn til að afla fjár til starfsemi
sinnar. Fljótlega tóku blómaverslan-
ir að keppa viö nefndina um blóma-
söluna þennan dag og í dag má segja
að þær hafi yfirtekið blómasöluna
meðöllu.
. Mæörastyrksnefnd þótti, sem
eölilegt var, réttlátt að hún fengi ein-
hverja prósentu af blómasölu blóma-
verslana til starfsemi sinnar og fyrir
nokkrum árum tókust samningar
milli nefndarinnar og samtaka
blómasala um ákveðinn hluta
sölunnar sem rynni til nefndarinnar.
Til að byrja með skiluðu allir hlutn-
um samviskusamlega en í fyrra var
svo komið að einungis tvær blóma-
verslanir skiluðu hlutnum til
nefndarinnar.
Ókeypis lögfræðiaðstoð
I Mæðrastyrksnefnd sitja í dag
tveir fulltrúar frá 15 kvenfélögum í
Reykjavík eöa 30 fulltrúar alls. Hlut-
verk nefndarinnar er enn sem fyrr
að styrkja efnalitlar mæður á hvaða
aldri sem er til einnar viku sumar-
dvalar einhvers staðar á landinu.
Nefndin aflar sér fjármagns með
blómasölu og almennri fjársöfnun á
mæöradaginn eins og fyrr greinir og
samskonar söfnun fer einnig fram í
desembermánuði árhvert. Ennfrem-
ur fær nefndin óverulega styrki frá
borg og ríki.
Fyrir nokkrum árum bryddaði
nefndin upp á þeirri nýbreytni aö
bjóða skjólstæðingum sínum ókeypis
lögfræðiaöstoö og er lögfræðingur til
viðtals einu sinni i viku, á mánudög-
um, á skrifstofu nefndarinnar að
Njálsgötu 3. Skrifstofan er annars
opin á þriöjudögum og föstudögum
milii kl. 14 og 16 fyrir þá eða þær sem
þangaðviljaleita.
Formenn stjómar Mæðra-
styrksnefndar eftir Laufeyju Valdi-
marsdóttur voru þær Guðrún Péturs-
dóttir, Jónína Guðmundsdóttir, Aldís
Benediktsdóttir og núverandi
formaður er Unnur Jónasdóttir.
Mæðrafélag
Reykjavíkur
Lengi vel var starfandi annaö
félag í Reykjavík, sem barðist fyrir
réttindum til handa mæðrum, giftum
sem ógiftum. Félag þetta var
Mæðrafélag Reykjavíkur og var
mæðradagurinn ekki siður dagur
þess en Mæðrastyrksnefndar. Með
árunum færðist starf félagsins yfir á
aðrar hendur og í fyrra var félagið
formlega lagt niður með viðhöfn.
Fyrsti formaður Mæörafélags
Reykjavikur var Katrín Pálsdóttir
og síðasti formaðurinn var dóttir
hennar, Margrét Þórðardóttir.
-SþS