Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1984, Qupperneq 11
DV. LAUGARDAGUR12. MAI1984.
U
Hagi hf. á Akureyri í gang á ný:
„Breytum framleiðslunni verulega"
Til stendur aö Hagi hf. hefji aftur
starfsemi undir mánaöamótin en í
vetur var framleiöslu þessa stærsta
innréttingafyrirtækis landsins hætt og
starfsfólki sagt upp störfum.
„Við erum aö hugsa um aö fara í
gang meö hálfan mannskap og breyta
framleiöslunni verulega og framleiða
fyrst og fremst þá hluti sem viö getum
gert betur en aðrir,” sagöi Haukur
Arnason, forstjóri Haga hf., í samtali
viðDV.
„Þaö er allt sem heitir plötuvinnsla,
sérstaklega á plasthúðuðum plötum í
eldhús-, fata- og baðherbergisskápa.
Viö reiknum með aö ganga þannig frá
þeim að menn geti velt því fyrir sér
hvaö þeir vilji kaupa og tekið það síöan
í skottið á bílnum og farið meö þaö
heim.
Plöturnar veröa í öllum stæröum og
ósamsettar en meö þeim fylgja góðar
leiðbeiningar þannig aö fólk getur sett
þærsamansjálft.”
Haukur sagöi einnig aö stefnt væri
aö því að hafa 16 manns starfandi aö
framleiðslunni. Til aö hægt væri að
fara í þetta væri skilyrði aö hægt yröi
aö flytja út síöar meir. Fyrst þyrfti aö
koma framleiöslunni á ákveöiö
þróunarstig.
„Hagi á í samningum við sænska
fyrirtækið IKEA um að taka aö sér
smíði skápa í eldhúsinnréttingar. Þeir
yröu svo seldir ósamsettir í pakkn-
ingum og færu bæöi á innanlands- og
utanlandsmarkað,’ ’ sagöi Haukur.
-JBH/FRI
ÞJOFURINN
SKRÖKVAÐI
— skildi skellinöðnina ekki eftir
á Heílisheiði
Frétt DV nýlega um týnda
skellinööru á Hellisheiði varö til þess
aö skellinaöran kom í leitimar.
Vélhjólinu haföi verið stoliö af bæ í
ölfusi.
Lögreglan fann út hver þjófurinn
var. Þjófurinn kvaöst við yfirheyrslu
hafa skiliö skellinöðruna eftir uppi á
Hellisheiöi. Þess vegna baö yfirlög-
regluþjónninn á Selfossi, Jón
Guömundsson, DV um aö lýsa eftir
hjólinu.
Eftir aö blaöiö haföi sagt frá málinu
fékk lögreglan ábendingu um aö skelli-
naöran væri í Reykjavík. I ljós kom aö
þjófurinn haföi skrökvaö þegar hann
sagðist hafa skiliö hjóliö eftir á Hellis-
heiöi. Hann hafði ekið á því alla leið til
höfuöborgarinnar. Lygasagan var
tilraun hans til aö halda hjólinu eftir.
Þjófurinn, sem er ungur piltur, mun
oft hafa komist á skýrslur lög-
reglunnar fyrir afbrot.
-KMU.
SIGURVEGARARNIR FRÁ
SEGJA SÍNA SÖGU SJÁLFIR. . .
KOMDU OG HLUSTAÐU Á RÖKIN.
g
Enn á ný hefur tæknimönnunum frá SANYO tekist að hanna frábærlega fallega
hljómtækjasamstæðu sem sameinar bæði sérlega gott verð og mikil tóngæði.
SYSTEM 1400
Magnari: 2x60 sinusvött meö 5 banda
tónjafnara, Ijósamælum, „toudness",
„One touch Automatic" rafeindasnerti
tökkum, tengi fyrir heyrnartæki.
Útvarp: Digital Ouart; Synthesizer, FM
stereo/mono, MW-LW. Sjálfvirkur
stöðvarleitari, 20 stöðva minni, rafeinda-
snertitakkar.
Segulband: Dolby B og C, 2 mótorar,
„Synchro-Recording", tengi fyrir tvo
hljððnema, metal, crom og normal
snældustillingar, rafeindasnertitakkar.
Plötuspilari: Alsjálfvirkur, „Synchro-
Recording", hraðastillir, vökvalyfta,
sispilunartakki.
Hátalarar: 651110 sínusvatta, 3 way
hátalarar.
Fallegur viðarskápur með reyklituðu gleri.
VERO AÐEINS KR. 49.918,00, STAÐGREITT.
SYSTEM 220
Magnari: 2x24 sínusvött. „Loudness"
tengi fyrir heyrnartæki. Útvarp:
FM/stereo/mono, LW MW bylgjur. Segul-
band: rafeindasnertitakkar, Metal, crom
og normal stilling, Oolby Nr. suðhreinsi
kerfi, tengi fyrir hljóðnema og heyrnar-
tæki. Plötuspilari: hálfsjálfvirkur, reimdrif-
inn með vökvalyttu. Hátalarar: 50 sinus-
vött, 3 way. Fallegur viðarskápur með
reyklituðum glerhurðum og loki. Verð
aðeins KR. 25.981,00, STAÐGREITT.
GXT-200
Vönduð sambyggö hljómtækjasamstæða.
Magnari: 2x10 sínusvött með aðskildum
bassa og diskant. Útvarp: FM
stereo/mono, LW, MW bylgjur, Segul
band: Metal, crom og normal stillingar.
DOLBY Nr. suðeyðir. Plötuspilari: Hálf
sjálfvirkur með moving magnet pick-up
og demantsnál. Hátalarar: 50 sínusvatta
og 3 way. Fallegur viðarskápur með
reyklitum glerhurðum og glerloki.
AÐEINS KR. 18.873,00 STAÐGREITT.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 91 35200
HERNÁM
Eg hef bara veriö að þvælast
þarna. Stokkíö úr vinnu og verið
að forvitnast,” segir Halldór
Nikulásson sem tók meöfylgjandi
myndir. Þær eru tckuar 10. maí
1940, fyrir rétt rúmum f jörutíu og
fjórum árum, þegar Bretar her-
námu Islaud.
A efri myndinni sjást tvö her-
skip en á neðri myndinni er her-
skip fyrir miðju og flutningaskip
að öllum líkindum fyrir aftan.
Fyrir framan herskipið er flug-
bátur. „Og lengst til vinstri sýn-
ist mér vera Færeyingur,” segir
Halldór.
Halldór var um tvítugt þegar
hann tók myndina. „Eg var ekki
með neina dellu beint, en tók
myndir,”segirhann.
GLUGGAR OG HURÐIR
Fúavörn og flögnuð málning er ekki vandamál hjá okkur
Þeir
grotna
ekki
niður,
þessir
PVC plastgluggar og hurðir, er sterk, endingargóð og
áferðarfalleg framleiðsla sem hentar bæði í ný og eldri hús.
PVC Prímó eykur verðgildi fasteigna og sparar viðhalds
kostnað og vinnu.
Hagstætt verð, föst verðtilboð. Þið hringið, við tökum gamla
gluggann (hurðina) úr og setjum í þann nýja.
Við þéttleikaprófanir á Norðurlöndum er Prímó í hæsta
gæðaflokki. 60% þeirra sem endurnýja glugga í eldri húsum í
Danmörku nota PVC Prímó plastglugga.
Hægt er að velja um þrjá liti á gluggum og hurðum.
í glugga og hurðadeild framleiðum við einnig álglugga og -
hurðir. Fagmenn hjá NÝBYGGINGU S/F sjá um ísetningu.
mAlmtækni sf
Vagnhöfða 29 110 Reykjavík. Simi 83705 og 83045.