Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1984, Síða 19
DV. LAUGARDAGUR12. MAl 1984.
19
RABBAÐ VIÐ ÓLAF
GUNNARSSON
RITHÖFUND SEM UM ÞESSAR
MUNDIR SENDIR FRÁ SÉR
SKÁLDSÖGUNA GAGA
sem ég kynntist, haföi til dæmis ekki
komið í bæinn í 16 ár og þaö var svipað
ástattumfleiri.”
ísland
— Þar hefur þá gefist gott næði til
skrifta?
„Já, það var mjög gott að vinna
þama. Eg hafði stórt og bjart herbergi
og var vel upplagður þetta tímabil.
Það voru helst blessuð bömin í hverf-
inu sem vildu ónáða mig. Þau gátu
ekki skiliö þennan furðulega mann
sem hékk einn heima af öllum pöbbum
á daginn og sat og starði út í garðinn
frá morgni til kvölds. Þau byrjuöu að
kvelja mig af niikQli útsjónarsemi á
timabili. Hringja á bjöUuna svona tutt-
ugu sinnum fyrir hádegi, fylla plast-
poka af vatni og fíra í gluggann hjá
mér og svo framvegis og svo framveg-
is. En ég fyrirgaf þetta aUt saman einn
dag. Eg var að ganga úti og þá hey ri ég
að einn óknyttakrakkinn segir:
„Þarna er þessi skrýtni. Þarna er rit-
höfundurinn,” og svo heyri ég að annar
segir með þeirri miklu viröingu sem
aðeins bömum er lagin: Já, og ég er
viss um aö hann er miklu betri en H.C.
Andersen. Eftir þetta fyrirgaf ég þeim
ant.”
— En nú fékkstu aUan tímann við Is-
land. Viö íslenskan veruleika og hvað
svo þegar þú kemur heim. Er ekki Is-
land öðruvísi en þaö Island sem þú
þekktir?”
„Nei, það held ég ekkL Það er erfitt
að kenna gömlum hundi að sitja. Is-
land er samt viö sig og ég held að þó við
bætum við nokkrum huggulegum veit-
ingastöðum klæddum furupanel þá
brey ti það Utlu um þjóðarmóralinn. En
þetta er mál sem ég nenni ekki að
ræða, satt að segja. Island er besta
land í heiminum en það er hér einn og
annar draugur á ferð, þvi er ekki að
neita.”
— Er ekki einmanalegt að sitja við
skriftir?
, Jú, en það fer nú svo að einveran
verður nokkurs konar virki höfundar-
ins fyrir rest, einveran fer að veröa
nokkurs konar griðastaður, maður
nærist á henni og sækir í hana styrk.”
Frumleiki
Skipulegguröu bækur þínar?
„Já, ég hef venjulega nokkuð góða
hugmynd um hvað mig langar til að
gera þegar ég byrja en það prógramm
vill riðlast. Eg held að á undan þeirri
stuttu skáldsögu GAGA, sem nú kemur
út, megi finna einar átta aðrar bækur,
sem ég hef byrjað á, sem í raun og
veru voru aðeins tilraunir til þess að
finna þessa.”
— Er þetta Science Fiction saga?
„Nei, þaö er hún ekki, en bókin notar
eitt og annað úr Science Fiction, sumar
aöferðir þeirrar sögu. Hún reynir ef til
vill aö skopstæla Science Fiction
söguna. Nei, kannski er það della ef ég
fer aöhugsa málið.”
— Er bókin frumleg?
„Nei, ég hef lítiö álit á frumleika. Eg
hef miklu meiri trú á menntun og
kunnáttu. Þetta tvennt og það að geta
skapað sjálfur. Eg var einu sinni i
Paris og hitti þar ungan, íslenskan
málara og bauð honum með mér á
Louvre safnið. „Nei, ég get ómögulega
farið,” sagði maðurinn. ,,Nú hvað er
þetta,” sagði ég, „ertu ekki málari?
Er það ekki gott fyrir þig að kikja á
miklu meistarana, Caravaggíó og þá
félaga? „Nei,” sagði maðurinn. „Eg:
vil ekki skemma í mér frumleikann.”
Þetta er vitaskuld sjónarmið út af
fyrir sig. Eg heyrði það einu sinni nefnt
sem dæmi um mikinn frumleika að
Leonardó da Vinci teiknaði vængi til að
setja ámennogþaölöngufyrirWright
bræður. En fuglinn var vitaskuld
fyrstur. Þessi frumleikadella er úr
sögunni. I gamla daga kipptu málarar
heilu pörtunum út úr annarra
myndum og skelltu inn i sínar. Eg afla
mér viða fanga. Þaö er ekki til frum-
legri hlutur í heiminum en steinvala
en samt er hún meira en fimm þúsund
milljón ára gömul. Takk.”
Hugrekki
— Lestu þá til þess að nota?
,,Já, já. Ef því er að skipta þá gæti ég
átt það til að kaupa mér stabba af bók-
um og pæla í gegnum þetta mjög mark-
visst og rólega, ég kasta ekki höndun-
umtilneins.”
— Hvemighagarðuvinnuþinni?
„Eg vélrita og lagfæri svo inn á og
vélrita svo áfram endalaust þar til ég
get ekki iagfært meira. Þá hætti ég og
sendi handritið til Jóhanns Páls,
forieggjara mins, og bíð eftir hvað
hann hefur aö segja en fyrir utan það
eitt aö vera forleggjari minn um aldur
og ævi þá er Jóhann einnig sálfræðing-
ur minn, fjárhagslegur ráögjafi,
skáldskaparlegur ráðunautur og ein
allsherjar stoð og stytta í lífinu. Eg
veit satt að segja ekki hvemig ég ætti
að fara að ef ég hefði ekki þann mann
einhvers staöar i nálægð. Þá yrði fyrst
einmanalegt við ritvélina.”
— Hvers myndirðu krefjast af einum
höfundi?
„Eg myndi krefjast hugrekkis. Þará
ég ekki við þetta frægá Hemingway
hugrekki né heldur það hugrekki sem
felst i því að geta talað hátt í bönkum
og sparisjóðum og verið ákaflega
einurðarfullur og ákveðinn við vini og
kunningja. Eg er að tala um það hug-
rekki sem þarf til að sýna fullan trúnað
við þann texta sem höfundur er að
semja. Svikja ekki handverkið. Láta
ekki einhverjar dillur stjórna sér.
Reyna að setja saman bók eftir sinni
bestu samvisku. En skrifa lika af
kunnáttu. Gáðu að þvL ”
— Þú nefndir Hemingway. Er þessi
bók eins og hinn frægi isjaki Heming-
ways. Það er að segja 9/10 neðan-
sjávar?
„Nei, en það á jú lesandinn aö dæma
um, ekki satt? En samt gerðist nokkuö
undarlegt með þessa stuttu sögu. Það
var eins og það kæmi inn einhver auka-
höfundur sem ég vissi ekki af og færi
að gera hitt og þetta sem kom mér
seinna meír dálítiö á óvart. En um
svona hluti á maöur ekki að tala. Það
er leyndarmál hvers höfimdar.”
Pólitik
— Hvaö um aðra höfunda?
„Hvaðáttuviö?”
— Ja&ialdra þina, íslenska og
yngri?
„Já, já, já. Eg mundi kannski einna
helst vilja nefna vin minn, Olaf Hauk,
sem mér finnst hafá samið langbestu
skáldsögu sinnar kynslóðar. Vatn á
myllu Kölska er glettilega mögnuð bók
ogfellurekki.
Af yngri mönnum vildi ég fremstan
telja Einar Kárason sem rey ndar gerði
mér þann heiður að sækja mig heim og
taka viö mig viðtal um daginn, rétt
eins og þú. Hann skrifar af miklum
krafti, energíi sem getur næstum gert
hvað sem er. Ef honum tekst aö halda
sig á mjóa veginum þá gæti þaö orðiö
spennandi höfundarferill, satt að
segja. En það er voðalegt af þér að
spyrja mig út í þessa stráka, þetta eru
allt ágætir vinir mínir.”
En er ekki skáldsagan takmarkað
form?
„Nei, hún er nefnilega ekki takmörk-
uö, hún er dásamlegust allra forma.
Hún er endalaus speglasalur og rang-
hali, völundarhús, labyrint, eöa hvað
þetta nú allt er kalíað.”
— „Má ég koma meö klassíska
spurningu? Hvar stendurðu í pólitík?
„Eg stend satt að segja hvergi nú
orðið. Ef ég ætti að kjósa einhvem þá
kysi ég jörðina. Nú er kominn tími til
að menn hætti að rífast og taki höndum
saman um að passa hnöttinn. Annars
fer það svo að þeir hafa engan hnött til
aö þrasa um eftir nokkur ár. Þetta
vissi Krúsjoff þegar hann sagði árið
1953 „we dont want to colonise Mars
together with the Americans”.”
— Eru þetta ekki dönsk áhrif ?
„Nei, þetta eru ekki dönsk áhrif. Við
erum á ystu nöf núna. Það hlýtur hver
maður að sjá og það er viðurstyggð að
fólk jarðarinnar láti bjóða sér þetta.
Það ættu allir menn að fara í hnattar-
verkfall og láta þessa vitfirringa taka
þetta sprengidrasl sitt úr sambandi.
Við höfum ekki leyfi til aö haga okkur
svona. Við höfum skyldur gagnvart
hinum ófæddu. Við erum aöeins gestir
hér í stutta stund og höf um ekki leyfi til
að eyðileggja þessa dásamlegu
plánetu.
Guð
Maöur þarf ekki annað en að ganga
út í móa hér á Islandi til þess að manni
verði ljóst að við búum í paradís. En
mér finnst satt að segja að ég hafi ver-
ið dauður lengi. Eg hef gengiö um og
mér hefur liðið eins og manni sem veit
að hann á að deyja eftír stuttan tima og
mér finnst eins og allir í kringum mig
séu draggar.
Þú situr og horSr á f jölskyldu þina
við matarborðið þegar hún tekur ekki
eftir þvi og það er næstum þvi óbæri-
leg kvökl. Við erum að tala í alvöru,
ekkisatt?”
— Er þetta ekki einum of mikill
heimsharmur?
„Nei, það er það ekkL Hvað sýnir
mannkynssagan okkur? Hafa menn
nokkum tímann hagað sér gáfulega?
Hefur ekki alltaf allt farið á hinn
versta veg? Það yrði kraftaverk nú ef
stríði yröi afetýrt en kannski tekur guð
i taumana. Það gæti farið svo að hann
fengi nóg og leyfði okkur ekki að eyði-
leggja jörðina.”
— Þútrúiráguð?
, JEg á bágt með að sjá hvemig hægt
er að fara að þvi að trúa ekki á guð. I
þessu stórkostlega úníversi sem er allt
i kringum okkur er guö ekki efamáL
Hann er s jálfsagður. ”
— Og hvað um son hans?
„Heyröirðu hana gala?”
ZtMDGESTOne ?er$Í!stns
Nú eru fyrirliggjandi hjá hjólbarðasölum um land allt
Bridgestone radial og diagonal sumarhjólbarðar.
Óbreytt verð frá í fyrrasumar!
Sölustaðir:
Reykjavík og nágr.
Hjólbarðahöllin, Fellsmúla 24 sími 81093
Hjólbarðastöðin s/f, Skeifan 5 " 33804
Höfðabekk h/f, Tangarhöfða 15 " 85810
Hjólbarðaviðgerð Vesturbæjar, Ægissíðu 104 " 23470
Hjólbarðaviðgerð Otta Sæmundssonar, Skipholti 5 " 14464
Dekkið, Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði " 51538
Landsbyggðin:
Hjólbarðaþjónustan, Brekkubraut 23, Akranesi sími
Hjólbarðaþjónustan, Dalbraut 13, Akranesi " 93-1777
Hjólbarðaviðgerðin h/f, Suðurgötu 41, Akranesi " 93-1379
Vélabær, Bæ Borgarfirði v " 93-7102
Bifreiðaþjónustan, v/Borgarbraut, Borgarnesi " 93-7192
Hjólbarðaþjónustan, Borgarbraut 55, Borgarnesi ” 93-7658
Hermann Sigurðsson, Lindarholti 1, Ólafsvík " 93-6195
Hjólbarðaþjónusta Grundarfjarðar,
(Þórarinn Sigurðss.), Borgarbr. 2 " 93-8698
Nýja Bílver h/f, v/Ásklif, Stykkishólmi " 93-8113
Dalverk s/f, Búðardal " 93-4191
KF. Hvóunmsfjarðar, Búðardal " 93-4180
Bílav. Guðjóns, Þórsgötu 14, Patreksfirði " 94-1124
Vélsmiðja Tálknafjarðar, Tálknafirði " 94-2525
Vélsmiðja Bolungarvikur, Bolungarvík ” 94-7370
Hjólbarðaverkst. v/Suðurgötu, ísafirði " 94-3501
Staðarskáli, Stað Hrútafirði ” 95-1150
Vélaverkstæðið Víðir, Víðidal, V-Hún " 95-1592
Hjóhð s/f, v/Norðurlandsveg, Blönduósi " 95-4275
Vélaval s/f, VarméihUð, Skagafirði ” 95-6118
Vélsmiðjan Logi, Sauðármýri 1, Sauðarkróki " 95-5165
Verzl. Gests Fanndal, Siglufirði " 96-71162
Bifreiðav. Kambur, Dalvík " 96-61230
Bílaverkst. Dalvikur ” 96-61122
Bílav. Hjalta Sigfússonar, Árskógarströnd ” 96-63186
Hjólbarðaþjónustan, HvannarvöUum 14B, Akureyri " 96-22840
Kaupfélag SvEilbarðseyrar, Svalbarðseyri " 96-25800
SniðiU h/f, Múlavegi 1, Mývatnssveit " 96-44117
Foss h/f, Húsavík " 96-41345
KF. Þingeyingja, Húsavík " 96-41444
KF. N-Þing., Kópaskeri " 96-52124
KF. Langnesinga, Þórshöfn " 96-81200
KF. Vopnfirðinga " 97-3209
Vélsmiðjan Stál, Seyðisfirði " 97-2300
Dagsverk, v/VaUarveg, Egilstöðum ” 97-1118
Hjólbarðaverkst. Brúarland, Egilstöðum " 97-1179
KF. Héraðsbúa, Egilstöðum " 97-1200
Hjólbarðaverkstæðið FeUabæ, Egilsstöðum " 97-1179
Síldarvinnslan h/f, Neskaupsstað " 97-7500
Benni og Svenni, Eskifirði " 97-6499
Verzl. EUasar Guðnasonar, .
Útkaupstaðabr. 1, Eskifirði ” 97-6161
Bifreiðaverkstæðið LykiU, Reyðarfirði " 97-4199
Bila og Búvélav. Ljósalandi, Fáskrúðsfirði ” 97-5166
Verzl. Djúpið Djúpavogi * 97-8967
Bílav. Gunnars Valdimarssonar,
Kirkjubæjarklaustri " 99-7030
Víkurklettur, við/Smiðjuveg, Vik í Mýrdal " 99-7303
Erlingur Ólafsson, HvolsvelU " 99-8190
KF. Rangæinga, HvolsveUi " 99-8113
KF. Rangæinga, Rauðalæk * 99-5902
Hjólbarðaverkstæði Bjöm Jóhannssonar,
Lyngási 5, HeUu ” 99-5960
Hannes Bjarnason, Flúðum, Hrunamannahr. " 99-6612
Vélav. Sig. H. Jónssonar, Túnsbergi, Hmnam.hr. " 99-6769
Gúmmivinnustofan, Austurvegi 56—58, Selfossi " 99-1626
BUaverkstæði Bjarna, Austurmörk 11, Hveragerði " 99-4535
Bifreiðaþjónusta Þorlákshafnar,
Unubakka 11, Þorlákshöfn " 99-3911
Hjólabarðastofan Flötmn, Vestmannaeyjum " 98-1523
Smur og hjólbarðaþjónusta, Vatnsvegi 16, Keflavik " 92-2386
Hjólbarðaverkstæði Grindavíkur " 92-8397
Þeir kröfuhörðu velja Bridgestone!
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
SGV