Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1984, Page 40
►V tY4’(
i • i
Fréttaskotið
68-78-58
SIMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984.
Opnað fyrir
álarækt
— með sóttvamar-
skilyrdum, breyta
þarf lögum
„Þeim sem sýnt hafa áhuga á þessu
hefur verið sent bréf þar sem fram
kemur aö innflutningur gleráls til ála-
ræktar kemur til greina,” sagði Jón
Helgason landbúnaðarráðherra i
gær.
Ahugamenn hafa beðið svarsins í of-
væni vikum saman því þeir telja ála-
rækt hér traustustu og arðbærustu
grein fiskiræktar. Lirfu eða seyði
álsins, gierálinn, verður hins vegar að
veiða við strendur erlendis og flytja
inn til uppeldis hverju sinni.
Fisksjúkdómanefnd mun meta það
hvort umsækjendur um innflutning
gleráls geta fullnægt kröfum um full-
komnar vamir gegn smiti frá honum
til þeirra fiskstofna sem fyrir eru hér.
Jafnframt þarf að breyta lögum um
vatnafiska til að heimila innflutning-
inn.
Landbúnaðarráðherra kvaöst undir-
búa frumvarp þar um og leggja
væntanlega fyrír næsta Alþingi.
HERB
Bamihent
útúr
skólabfí
Sá atburöur varð í vesturbæ Reykja-
víkur í fyrradag að 6 ára gömlum
dreng var vísaö út úr skólabíl og hann
skilinn eftir fjarri heimih sínu.
„Eg harma að þetta skuli hafa
komið fyrir og legg á það áherslu að
rekstur skólabílsins hefur gengið frá-
bærlega vel fram að þessu. Hér var á
ferðinni forfallabilstjóri og mun
honum eitthvað hafa runnið í skap,”
sagði Ingi Kristinsson, skólastjóri
Melaskóla. Mun hafa komið til
ryskinga milli tveggja stráka í skóla-
bílnum sem flytur nemendur Mela-
skóla, sem búa á Eiðisgranda, heim til
sín. Bilstjórínn var ekkert að tvinóna
viö hlutina heldur henti baminu út úr
bílnum. Það var síðan tekið upp í bíl
ókunnugra og keyrt til síns heima.
-EIR.
lukkudagar\
11. MAÍ
! 2250 I
! SKÖLATASKA FRÁ I.H. hf. í ,
AÐ VERÐMÆTI KR. 500,-
Vinningshafar hringi í síma 20068 ■
LOKI
Farínn austur — só ykk-
urá mánudaginn!
TRILLUSJÓMANNS Á
ÞÓRSHÖFN SAKNAÐ
Gjöfult er sjávarfang:
ESKFHMMNGAR
GANGAFJÖRUR
ÍRIÓRLEIT
Frá Emil Thorarensen, fréttaritara
DV á Eskifirði:
Fjöldi bjórdolla hefur fundist á
reki á Eskifirði og Reyðarfirði
undanfarna daga. Margar bjórdoliur
hefur einnig rekið á land. Hafa þær
f undist er gengnar hafa veríð fjörur í
botni Eskif jaröar og allt út fyrir Mjó-
eyri.
Þetta eru bláar bjórdollur frá
Carlsberg, 33 centilítra. , Jlann er
þrælgóður á bragöið. Og volkiö í s jón-
um virðist ekki hafa haft nein áhrif,”
sagði Eskfiröingur sem ég ræddi viö
ígær.
Það var fyrir um hálfum mánuöi
sem nokkrar bjórdollur fundust
fyrsL En eftir að fleiri bjórdollur
hafa fundist eru böm og unglingar
farín aö flykkjast niður í f jörumar í
leitaðbjór.
En hvaðan kemur þessi óvænta
sending? Tæplegast hefur bjórdoU-
umar rekið frá bruggverksmiðjun-
um i Danmörku? Menn bér hallast
helst aö þvi aö nú sé aö koma í leitim-
ar bjórinn sem sökk á hafsbotn
ásamt videospólum i desember og
frægtvarð.
Þá baföi skipverji eins bátsins bér
fyrir austan fest bjórinn og video-
spólurnar við belg. Þegar vitja átti
góssins var aUt sokkið. Fleiri
skýringar eru þó í gangi.
Þaö er f uUyrt að skipverjar af einu
kaupskipi hafi hent 11 kössum af
vodka og fleiri kössum af bjór fyrir
borð nýlega er þeir bjuggust við
mikiUi „tollarassíu” er aö iandi
kæmL
Hverjar sem skýringamar eru þá
hafa Eskfirðingar gengið á bragðið
um leið og þeir ganga fjörur í
'„löðrandi” firöinum.
-JGH
Carlsberg teygaöur á Eskifjarðarfjöru, vei kaldur úr sjónum.
DV-mynd Emil Thorarensen.
— Flugvél fann trilluna mannlausa í gærmorgun
FuUorðins triUusjómanns frá Þórs-
höfn á Langanesi er saknað. Maðurinn
hélt út til veiða í góðu veðri um há-
degisbUið á fimmtudag og hugðist
koma aftur að landi um kvöldið. Það
var svo klukkan tíu í gærmorgun sem
trUla mannsins fannst um 4—5 sjómU-
ur norður af Grenjanesvita. Hún var
þá mannlaus. Maðurinn var einn á
triUunni.
„Fjörur aUt frá Grenjanesvita vest-
ur aö Hjálmarsnesi hafa verið gengnar
í dag. Og þá fóru alUr bátar héðan út í
morgun tU leitar,” sagði Olafur Rafn
Jónsson, lögreglumaður á Þórshöfii, í
samtaU við DV seinni partinn í gær.
Hann sagði ennfremur að enn heföi
leitin ekki borið árangur. Leit verður
haldið áfram í dag.
Síðast sást til mannsins í fyrrakvöld.
Þá var hann á línuveiöum vestarlega i
Lónafirði, einum fjarða ÞistUfjaröar.
Þegar spurðist í gærmorgun að maður-
inn hefði ekki komið að landi var leit
straxhafin.
LitU einkaflugvél fórþegar i loftið og
fann triUuna eftir um hálftíma. Þá
hafði hana rekið um tíu tU tólf sjómílur
f rá þeim stað þar sem hún sást síðast.
TriUan er eitt og hálft tonn.
Björgunarsveitin á Þórshöfn, sem hef-
ur st jórnað leitinni, heitir Haf UÖL
-JGH
Hagkaup flytur
inn kartöflur:
Koma um
miðja
næstu viku
Hagkaup hefur ákveðið að flytja
inn kartöflur án þess að hafa fengiö
leyfi til slíks innflutnings og nú er
verið að skipa út í Englandi 20 tonn-
um af 1. flokks kartöflum og eru
þær væntanlegar U1 landsins um
miðja næstu viku.
GisU Biöndal hjá Hagkaupi
sagði í samtaU viö DV að þótt þeir
hefðu ekki enn fengið leyfi tU inn-
flutningsins Utu þeir á slikt leyfi
sem formsatriði miðað við yfiriýs-
ingar forsætisráðherra og for-
manns Sjáifstæðisflokksins um
þetta mál.
” I ijósi frétta af afstöðu þeirra
til málsins höfum við ákveöiö þetta
og kannski verður leyfið komiö er
kartöflumar koma á hafnarbakk-
annhér,”sagðihann. -FRI
Kjöt-ogkartöflu-
skiptiSÍS:
Umboðslaun
nær800
þúsundkr.
Umboöslaun Sambandsins fyrir
útflutning á dilkak jöti tU Finnlands
voru liðlega 270 þúsund krónur.
Eins og áöur hefur komið fram í
fréttum fluttum við til Finnlands
105 tonn af dUkakjöti og keyptum af
þeim 2100 tonn af kartöflum.
Magnús Friögeirsson, fram-
kvæmdastjóri búvörudeUdar Sam-
bandsins, sagöi að hér væri ekki
um bein vöruskipti að ræða. Þegar
Isiendingar gengu i EFTA var upp-
haflega samið um að Finnar
keyptu árlega af Islendingum 100
tmin af dUkakjöti en fram að þessu
hafa Finnar ekki staðið við þann
samníng. Hann sagði að kartöflu-
kaupin hefðu líklega verið
hvetjandi á það að Finnar keyptu
dilkakjötið. Finnar borguðu 12,5
mörk fyrir kUóiö eða 62,50 krónur.
Sambandið fær hins vegar 2% í um-
boðslaun, sem eru reiknuð af
óniðurgreiddu verði kjötsins, sem
þávar 129,32 krónur.
Fram hefur komið í DV að um-
boðslaun tU SIS fyrir finnsku
kartöflurnar námu um hálfri
mUljónkróna. -APH
skoðana-
kannanir?
Ráðstefna um skoðanakannanir
fór fram á Hótel Sögu i gær á veg-
um Hagvangs hf. Þar var einkum
rætt um hvort þörf væri á lagasetn-
ingu um skoðanakannanir.
Sérstakur gestur var Normann
Webb, framkvæmdastjóri GaUup-
fyrirtækisins. Hann lýsti andstöðu
sinni við takmarkanir á frelsi tfl að
gera skoðanakannanir. Hann sagði
skoðanakannanir styrkja lýöræði.
Aörir framsögumenn voru Þor-
bjöm Broddason dósent, Jónas
Kristjánsson ritstjóri, Gunnar
Maack rekstrarráögjafi, Ami
Gunnarsson varaþingmaður og
Tómas Helgason yfirlæknir. Að
erindum loknum fóru fram paU-
borðsumræður.
Nánar veröur greint frá ráðstefii-
unnisiðaríblaðinu. -KMU.