Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1984, Qupperneq 5
DV. LAUGARDAGUR10. NOVEMBER1984.
5
Víkingasveitin æfir
á Hjalteyri:
„Hrotta-
sprenging-
ar einar
þrjár”
Víkingasveit lögreglunnar var í
fyrradag viö æfingar í gömlu húsunum
frá síldarævintýrinu á Hjalteyri.
„Þetta var heilmikill kraftur í þeim,”
sagði Hjalteyringur sem fylgdist með
úr fjarska. „Þeir virtust vera að leita
aö einhverju og fóru um alla verk-
smiðjuna, upp á þak og turn, og brutu
upp dyr og fleira. Svo voru þeir með
sprengingar þama, hrottasprengingar
einar þrjár. Það var líka búið aö segja
að það ætti að koma þyrla en hún kom
ekki, líklega vegna þess að það var of
dimmt.”
Að sögn Hjalteyringsins voru menn-
irnir 11 eöa 12 talsins og komu á tveim-
ur bílum frá lögreglunni á Akureyri.
Þeir voru í einkennisbúningi víkinga-
sveitarinnar.
Bjarki Elíasson, yfirlögregluþjónn i
Reykjavík, var með sveitinni. Hann
sagði í samtali viö DV að þetta hefði
veriö venjuleg æfing hjá henni. Sveitin
hefði áður farið út á land til æfinga.
Flogið hefði verið norður með Fokker
Landhelgisgæslunnar fyrir hádegi í
fyrradag og aftur til baka um kvöldið
að æfingu lokinni.
JBH/AKUREYRI
Fjörugar umræður um
kjaramál á
sjómannaþingi:
Sjómenn
lang-
þreyttir á
ráðsmennsku
stjórnvalda
Sjómannaþingi, sem staðið hefur
síðan á fimmtudag, lýkur í dag. Auk
umræðna um öryggismál hafa at-
vinnu- og kjaramálin verið fyrirferðar-
mest á þinginu.
Við setningu þess lagði Oskar Vig-
fússon, formaður Sjómannasambands-
ins, áherslu á að samdráttur í afla og
stöðug afskipti ríkisvaldsins af launa-
kerfi sjómanna legðust á eitt um að
rýra kjör þeirra. Stjórnvöld sjái það
ráð helst til að rétta hag útgerðarinnar
að ganga á hlut sjómanna og eru nú um
40% fiskverðs greidd útgerðinni
framhjá skiptum.
„Við stöndum frammi fyrir því, að
sjómenn eru í dag að flýja frá hluta-
skiptakerfi sem þeir hafa i áranna rás
verið tiltölulega sáttir viö, þar sem
þeim er núgert ókleift að lifa við það.”
Þegar á heildina væri litiö gerði Oskar
ráö fyrir að tekjur sjómanna hefðu
rýrnaö um hátt á þriðja tug prósenta
síðustumisserin.
-GK
Frumsýning á
Skagaströnd
Kúrekar norðursins, kvikmyndin
um íslenska kántríæðið, verður frum-
sýnd á Skagaströnd í dag. Ibúar villta
vestursins þar nyrðra bíða að vonum
spenntir eftir myndinni því þaö er ekki
á hverjum degi sem kvikmynd um
Skagaströnd er sýnd þar í samkomu-
húsinu.
„Eg verð ekki með neitt húllumhæ í
tilefni frumsýningarinnar,” sagði
Hallbjöm Hjartarson, aðalleikari
myndarinnar, í samtali við DV þar
sem hann stóð í eldhúsinu heima hjá
sér og matreiddi hrossakjöt. „Það er
nógkomiðaðsinni.”
-EIR.
Reyðarfjörður
skal fá kísil
— viðræðurvið
bandarískt
fyrirtæki
ganga vel
„Þetta er einhver misskilningur.
Breska fyrirtækið, sem um ræöir í
frétt NT, er eitt af fjölmörgum sem
leitaö hafa hófanna varðandi kísil-
málmvinnslu á Reyðarfiröi en aðal-
samningaviðræöurnar standa við
bandarískt fyrirtæki og þær ganga
vel að því er ég best veit,” sagöi
Sverrir Hermannsson iðnaðarráð-
herra aðspurður um fréttir þess efnis
aö erlendir aðilar hefðu misst áhug-
ann á væntanlegri kísilmálmverk-
smiðju á Reyðarfirði.
Að sögn Birgis Isieifs Gunnarsson-
ar, formanns stóriðjunefndar,
standa viðræður yfir við bandarískt
fyrirtæki, Dow Corning, og ganga
þær viðræöur vel. ,íig hef trú á því
aö kísilmálmverksmiðja rísi viö
Reyðarfjörð. Þessi breski aðili sem
dró sig út úr myndinni er einungis
peningafyrirtæki sem engan áhuga
haföi á kisilmálmi en vildi komast i
arðvænlega fjárfestingu,” sagði
Birgir Isleif ur Gunnarsson.
-EIR.
Nr. 1 í JAPAN
Já, í Japan, landi þar sem almenn
neytendaþekking er á háu stigi og gæðakröfur eru miklar, er
Panasonic mest keypta VHS myndsegulbandstækið.
Panasonic er að sjálfsögðu einnig
mest keypta VHS myndsegulbandstæki í heimi!
NV-370 NÝ HÁÞRÓUÐ TÆKI
FYRIR KRÖFUHARÐAN NÚTÍMANN.
• 8 liða fjarstýring
• Quarts stírðir beindrifnir mótorar
• Quarts klukka
• 14 daga upptökuminni
• 12 stöðva minni
• OTR: (One touch timer recording)
• Rafeindateljari
• Myndleitari
• Hraðspólun með mynd áfram
• Hraðspólun með mynd afturábak
• Kyrrmynd
• Mynd skerpu stilling
• Mynd minni
• Framhlaðið 43 cm breitt (Passar í hljómtækjaskápa)
• Upptökuminni til daglegrar upptöku t.d. er hægt
að taka 10—12 fréttatíma fram í tímann.
• Sjálfspólun til baka
• Fín Editering. Klippir saman truflanalaust nýtt og
gamalt efni.
• Tækið byggt á álgrind.
• Fjölvísir Multi-Function Display
. 5 ! i CTR
Vkfeo Casserte ftecorcíör NV-370
Verð aðeins
39.800.-
stgr.
Panasonic gæði. varanleg gæði.
AKRANES: Stúdíóval. AKUREYRi: Radíóvinnustofan Kaupangi. Tónabúðin. BORGARNES: Kaupfélagið.
ESKIFIÖRDUR: Pöntunarfélagið. HAFNARF|ÖRÐUR: Kaupfélagið Strandgötu. HELLA: Mosfell.
HORNAFIÖRDUR: Radíóþjónustan. NESKAUPSTADUR: Kaupfélagiö. SAUDÁRKRÓKUR: Rafsjá.
SELFOSS: Vöruhús KÁ. SEYDISF|ÖRDUR: Kaupfélagið. TÁLKNAFIÖRDUR: Bjarnarbúð.
VESTMANNAEY|AR: Músík og Myndir.
0
VJAPIS hf
BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 27133