Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1984, Blaðsíða 12
12
DV. LAUGARDAGUR10. NOVEMBER1984.
Dodp Ram van B-150 4x4 1980. Fyrat tkráður 1/4 1981, ekám aðakn
38.000 km. Véi V8 318 ckL, apfak., vökvaatýrí, aftiemiar, útvarp/íegufcand,
ítaA glar, krftkafcig. antnngntáiar, spoke-falgu', tkéttariáda, o.fL Feröakm-
réttkig meó aaatum fyrir 6 aftur f sam brayta mé f svefnptéss fyrír 5 maran,
ekkanriialw, vaskur ojUi. Blfcn ar tvfitur, fés- og dökkbiér og hafur varið
f eigu sama manns fté upphafl TJ sýnis og sölu um helgkia, béða dagana kL
13.00-17.00.
uururi hf
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
TÖLVUNÁMSKEIÐ
EASYWRITER II
Ritvinnslukerfið Eayswriter II eða Ritvinnsla II, eins og kerfið
hefur verið nefnt á íslensku, er eitt af örfáum sem hefur verið
íslenskað að fullu. Með því er átt við að öll samskipti notandans
við kerfið eru á íslensku, sem telja verður mikinn kost. I saman-
burði við önnur ritvinnslukerfi, s.s. Word, er Easywriter II til-
tölulega einfalt og auðlært en býður ekki upp á alla sömu mögu-
leikaogt.a.m. Word.
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að þjálfa þátttakendur í notkun rit-
vinnslukerfisins Easywriter II. Námskeiðið fer að mestu leyti
fram með verklegum æfingum sem leystar verða á tölvubún-
aði SFl undir handleiðslu leiðbeinanda.
EFNI:
— Vélbúnaður
— Grundvallaratriði við ritvinnslu
— Eásywriter II skipanir
— Easywriter II æfingar
— Meðferð skjala
— Meðferð búnaðar
ÞÁTTTAKENDUR
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem áhuga hafa á að kynnast
og þjálfast í notkun Easywriter II.
LEIÐBEINANDI:
Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen,
ritvinnslukennari hjá Stjóm-
unarfélagi Islands.
Tími — Staður:
19.-21. nóv. kl. 13-17
Síðumúli 23.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU í SÍMA 82930.
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSLANDS fíK23
Viðar leikarí Eggertsson minnir ekk-
ert sérstaklega mikiö á hænu í útliti
eöa atgervi; engu aö síöur er hann
Egg-leikhúsiö og hefur nú orpið öðru
sinni. Menn muna væntanlega að Viðar
gerði garðinn frægan á Edinborgarhá-
tíðinni fyrir fáeinum misserum en þá
sýndi hann einþáttung fyrir einn áhorf-
anda í einu og byggði á verki eftir
Samúel gamla Beckett. Og nú þegar
varphljóö heyrðist í leikhúsi Viðars á
ný var heldur ekki fariö í smiðju til
neinna smákaila; í gærkvöldi frum-
sýndi Egg-leikhúsið verk eftir Arna
Ibsen sem byggt er á samskiptum
þeirra William Carlos Wiiliams og
Ezra Loomis Pound.
Þeir Williams (1883—1963) og Pound
(1885—1972) voru hvor um sig meðal
merkustu skálda þessarar aldar og
þeir voru líka miklir vinir, svo ólíkir
sem þeir voru. Báðir voru bandarískir
aö uppruna en Pound gaf þjóðerni sitt
meira eða minna upp á bátinn og hélt
sig í útlöndum meðan Williams ræktaöi
garðinn heima fyrir. Hann gerðist
læknir í smábæ í New Jersey; í ljóðum
sínum veitti hann athygli náttúrunni,
skýjunum, fólkinu heima og málfari
þess. Slíkt nægði Pound ekki. Hann
heillaöist af klassiskri menningu
Evrópu, þó hann liti um leiö á sig sem
boðbera nýrra tíma, og í höfuðverki
sínu — Cantos, upp á tæplega eitt
þúsund síður — reyndi hann að bræða
saman alla þekkingu mannsins frá
upphafi; alla menningarstrauma, alla
hugsun. Hann vildi líka frelsa heiminn
og gekkst í því skyni undir fasismann á
Italíu og á seinnistríösárunum út-
varpaöi hann áróðri fyrir Mússólíni
yfir Bandaríkin. Williams, heima í
Rutherford, hafði að sjálfsögðu
skömm á þvílíku athæfi. Höfuðverk
hans er samstæður flokkur ljóðabóka
um bæ einn í nágrenninu — Paterson —
og honum þykir takast langtum betur
upp að lýsa sínum litia og afmarkaða
heimi heldur en Pound aö lýsa ver-
öldinni allri í Cantos. Þó má ekki
gleyma því að Pound var auðvitað séní
og fá ljóðskáld hafa haft meiri áhrif á
kollega sína þessa öldina en einmitt
hann.
Rökræður gegnum útvarp
I leikriti Arna Ibsen líkir Williams
Pound vini sínum við jökulá sem ryðst
niður til sjávar og eyðileggur allt sem
á vegi hennar veröur en ber um leið
með sér nýjan jarðveg. Sjálfum sér
líkir Wiiliams við skjaldböku sem þok-
ast niður gljúfrin sem jökuláin hefur
myndaö, og af þessu dregur leikritið
nafn sitt — „Skjaldbakan kemst
þangað líka”. Það byggist upp á rök-
ræðum þeirra félaganna um líf og list
— yfirleitt hafa þeir gerólíka skoðun á
hverju máli. Pound skammar Willi-
William Carlos Williams fViðar Eggertsson) hlustar eftir rödd vinar síns.
ER VORIÐ
r_________
UTRÆTT
mAl?
— Egg-leikhúsid frumsýndi í gær
99Skjaldbakan keitist þangad líka”
eftir Arna Ibsen