Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1985, Page 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. JANUAR1985.
13
Halldór Blöndal um stjórnarsamstarfíð:
„HAGSMUNAGÆSLAN FYRIR
SAMBANDIÐ ÞREYTANDI”
Tveir sinubrunar urðu með örstuttu millibili i Mosfellssveit um hádegi
ð föstudag. Varð annar við Brúarland, hinn við barna- og gagnfrœða-
skólann. Samkvœmt upplýsingum slökkviliðsins hefur verið mjög
lítið um sinubruna að undanfömu, enda janúarménuður ekki beint
timi sinubruna. -KÞ/DV-mynd Arinbjöm.
Frá Olafi B. Tboroddsen, Dalvik:
Halldór Blöndal og Bjöm Dagbjarts-
son komu á almennan stjómmálafund
á Dalvik i síöustu viku. Þeir ræddu
almennt um efnahagsmálin. Síðan
notaöi Halldór nokkum tíma til að
gagnrýna Jón Baldvin Hannibalsson
fyrir lausnir hans á efnahagsvand-
anum. Þeir félagar tóku samt fram að
Sjálfstæöisflokkurinn þyrfti ekki aö
vera hræddur um aö tapa fylgi til Al-
þýðuflokksins.
1 lok fundarins vom þeir félagar
spuröir meö hverjum þeir vildu helst
starfa ef til stjórnarslita kæmi. Þá
sagði Halldór að hann treysti á aö
stjómin gæti lokið ætlunarverkinu, aö
ná veröbógunni niður. Forsætis-
ráðherra heföi fullan huga á því en
yfirlýsingar einstakra þingmanna og
ráöherra Framsóknarflokksins væm
þannig aö ekki væri víst hvort hægt
væri aö starfa með þeim áfram. Þá
væri hagsmunagæsla Framsóknar-
fiokksins fyrir Sambandið nokkuö
þreytandi i samstarfinu.
Þá sagöi Halldór aö Sjálfstæðis-
flokkurinn ætti aö mörgu leyti mesta
samleið með Alþýöuflokknum og
Bandalagi jafnaöarmanna. Þrátt fyrir
stórar yfirlýsingar Jóns B. Hannibals-
sonar, þegar hann væri á atkvæöa-
veiöum í fjölmiðlum, sagöist Halldór
þekkja hann þaö vel aö hann vissi aö
Jón væri miklu skynsamari en þá virt-
ist vera. Svo sagöi hann aö gamla
viöreisnarstjórnin væri skásti
kosturinn, þ.e. Alþýöuflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn, ef kæmi til nýrr-
ar stjórnarmyndunar.
Einn fundargesta spurði Halldór
hvort ekki væri kominn tími til að sjálf-
stæðismenn tækju sæti í stjóm SIS.
Svaraöi Halldór þvi til aö svo sannar-
lega væri slikt orðið tímabært.
-EH. ,
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKADSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö
nefna það í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, i bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV
lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og
eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný-
komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa
keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þú hringir...
Við birtum... Það ber árangur!
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 1 i.
Opið:
Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00— 14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
ER SMÁAUGLÝSINGABLADIÐ
Frjálst.óháð dagblað
Þroskaþjálfi
Laus staða þroskaþjálfa viö vistheimilið Sólborg, Akureyri, frá 1. mars
næstkomandi. Upplýsingar 1 síma 96-21755 alla virka daga frá kl. 9—17.
Forstööumaður.
Getum afgreitt með stuttum fyrir-
vara rafmagns- og dísillyftara:
Rafmagnslyftara, 1,5-4 tonna."
Disillyftara, 2,0-30 tonna.
Ennfremur snúninga- og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í annan.
Tökum lyftara í umboössölu.
Flytjum lyftara um Reykjavík og nágrenr.i.
Littu inn — við gerum þér tilboð.
LYFTARASALAN HF.f
Vitastíg 3,. simar 26455 og 12452.
r ZANUSSI 1
ZB 2406 R Kæliskápur
Kælir: 240 Itr.
án frystihólfs.
Sama hæð og 200 I. frystir.
Mál: (H x B x D):
128,5 x 52,5 x 60 cm.
Sjálfvirk afhríming.
«8
Má snúa hurð.
Orkunotkun 33 W á klst.
Verð.... kr. 18.463,-
—5%stg kr. 17.540,-
VERKSMIÐJAN, HAFNARFIRÐI
SÍMAR: 5 00 22 • 5 00 23 ■ 5 03 22
V-vj I unvLm VIu iiHHLlI I löDhMU I
SÍMAR: 8 44 45-68 60 35