Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1985, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1985, Blaðsíða 24
24 DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. JANUAR1985. Peningamarkaður Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureíkningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innistæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65—75 ára geta iosað innistæður með 6 mánaða fyrirvara. 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikning- arnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár. Reikningarnir eru verötryggðir og með 9% vöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá líf- eyrissjóðum eða almannatryggingum. Innistæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Vextir eru 31% og ársávöxtun 31%. Sérbók fær strax 3C%nafnvexti.2% bætast síðan við eftir hverja þrjá mánuði sem innistæða er óhreyfð, upp í 36% eftir níu mánuði. Arsávöxtun getur orðið 37.31% Innistæöur eru óbundnar og óverðtryggðar. Búnaðarbankinn: Sparibók með sérvöxtum er óbundin 35% nafnvöxtun og 35% árs- ávöxtun sé innistæða óhreyfð. Vextir eru færðir um áramót og þá bornir saman við vexti af þriggja mánaða verðtryggðum reikn- ingum. Reynist ávöxtun þar betri er mismun bætt við. Af hverri úttekt dragast 1.8% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Sparibókin skilar hærri ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða lengur. Iðnaðarbankinn: A tvo reikninga í bankanum fæst IB-bónus. Overötryggðan 6 mánaða reikning sem ber þannig 36% nafnvexti og getur náð 39.24% ársávöxtun. Og verðtryggðan 6 mánaða reikning sem ber 3.5% vexti. Vextir á reikningunum eru bornir saman mánaðarlega og sú ávöxtun valin sem reynist betri. Vextir eru færöir misserislega, 30. júní og 31. desembcr. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 35% nafnvöxtum og 35% ársávöxtun sé innistæða óhreyfð. Vextir eru færðir um ára- mót og bornir saman við vexti af sex mánaöa verðtryggðum reikningum. Reynist ávöxtun þar betri er mismun bætt við. Af hverri úttekt dragast 2.1% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Kjörbókin skilar hærri ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eöa lengur. Samvlnnubankinn: Innlegg á Hávaxta- reikning ber stighækkandi vexti. 24% fyrstu 2 mánuðina, 3. mánuðinn 25.5%, 4. mánuðinn 27%, 5. mánuðinn 28.5%, 6. mánuðinn 30%. Eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12 mánuði 32.5%. Sé tekið út standa vextir þess tímabiis þaö næsta einnig. Hæsta ársávöxtun er 35.14%. Vextir eru bornir saman við vexti á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum sparireikningum. Sé ávöxtun þar betri er munurinn færður á Há- vaxtareikninginn. Vextir færast misseris- lega. Útvegsbankinn: Vextir á reikningi með Ábót er annaðhvort 1% og full verðtrygging, eins og á 3ja mánaða verðtryggðum spari- reikningi, eða ná 33.4% ársávöxtun, án verðtryggingar. Samanburður er gerður mánaðarlega, en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 24%, þann almanaksmánuö. Sparisjóðir: Vextir á Trompreikningi eru stighækkandi. 24% fyrstu þrjá mánuðina, 4,— 6. mánuð 27%, eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12 mánuði 32.5%. Arsávöxtun 35.1%. Sé tekið út af reikningi á einhverju vaxtatímabilinu, standa vextir þess næsta timabil. Sé innistæða óhreyfð í 6 mánuöi frá innleggsdegi er ávöxtun borin saman við ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings. Sú gildir sem betri reynist. Verslunarbankinn: Kaskó-reikningurinn er óbundinn. Um hann gilda fjögur vaxtatímabil á ári, janúar—mars, apríl—júní, júlí— september, októbei —desember. I lok hvers þeirra fær óhreyfður Kaskó-reikningur vaxla- uppbót sem miðast við mánaðarlegan út- reikning á vaxtakjörum bankans og hag- stæðasta ávöxtun látin gildet. Hún er nú ýmist á óverðtryggðum 6 mán. reikningum með 30% nafnvöxtum og 33.5% ársávöxtun eða á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 2% vöxtum. Sé lagt inn á miðju tímabili og úinistæða látin óhreyfð næsta tímabil á eftir reiknast uppbót allan sparnaðartímann. Við úttekt fellur vaxtauppbót niður það tímabil og vextir reiknast þá 24%, án verðtryggingar. Ibúðalánareikningur er óbundinn og með kaskó-kjörum. Hann tengist rétti til lántöku. Sparnaður er 2—5 ár, lánshlutfall 150—200% miðað við spamað með vöxtum og verðbótum. Endurgreiðslutími 3—10 ár. tJtlán eru með hæstu vöxtum bankans á hverjum tíma. Sparnaður er ekki bundinn við fastar upphæðir á mánuði. Bankinn ákveður hámarkslán eftir hvert sparnaðartímabil. Sú ákvörðun er endurskoðuð tvisvar á ári. Ríkissjóður: Spariskirteini, 1. flokkur A 1985, eru bundin í 3 ár, til 10. janúar 1988. Þau eru verðtryggð og með 7% vöxtum, óbreytanlegum. Upphæðir eru 5.000,10.000 og 100.000 krónur. Spariskirteini með vaxtamiðum, 1. flokkur B 1985, eru bundin í 5 ár, til 10. janúar 1990. Þau eru verðtryggð og með 6.71 vöxtum. Vextir greiðast misserislega á tímabilinu, fyrst 10. júlí næstkomandi. Upphæðir eru 5, 10 og 100 þúsund krónur. Spariskirteini með hreyfanlegum vöxtum og vaxtaauka, 1. flokkur C1985, eru bundin tii 10. júlí 1986, í 18 mánuði. Vextir eru hreyfanlegir, meðaltal vaxta af 6 mánaða verötryggðum reikningum banka með 50% álagi, vaxtaauka. Samtals 5.14% nú. Upphæðir eru 5,10 og 100 þúsund krónur. Gengistryggð spariskirteini, 1. flokkur SDR 1985, eru bundin til 10. janúar eða 9. apríl 1990. Gengistrygging miðast við SDR-reiknimynt. Vextir eru 9% og óbreytanlegir. Upphæðir eru 5.000, 10.000 og 100.000 krónur. Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðla- bankanum, hjá viðskiptabönkum, spari- sjóðum og verðbréfasölum. Útlán Irfeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lána- upphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30—60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 144.000—600.000 eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggð og með 5—8% vöxtum. Lánstími er 15—35 ár eftir sjóðum og iánsrétti. Biötimi eftir lánum er mjög misjafn, breytilegur milli sjóða og hjá hverjum sjóði eftiraðstæðum. Hægt er að færa lánsrétt þegar viðkomandi skiptir um lífeyrissjóð eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. IMafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Reiknist vextir oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1.000 krónur liggja inni i 12 mánuði á 24,0% nafnvöxtum verður innistæðan í Iok þess tíma 1.240 krónur og 24,0% ársávöxtun í þvítilviki. Liggi 1.000 krónur inni í 6+6 mánuði á 24,0% vöxtum reiknast fyrst 12% vextir eftir sex mánuðina. Þá er innistæðan komin í 1.120 krónur og á þá upphæð reiknast 12% vextir seínni sex mánuðina. Lokatalan verður þannig kr. 1.254.40 og ársávöxtunin 25,4%. Dráttarvextir 1 þessum mánuði geta gilt tvenns konar dráttarvextir. Annars vegar 2,75% á mánuði og 33% á ári. Mánaðarvextir falla þá aö fullu á skuldir um leið og greiðsla fellur í eindaga. Hins vegar geta gilt dagvextir, sem munu gilda eingöngu frá og meö 1. febrúar. Dagvextir eru reiknaðir af Seðiabankanum fyrirfram vegna hvers mánaðar. 1 janúar miðast þeir við 30,8% á heilu ári eða 2,566% á mánuði. Vextir á dag verða því 0,08555%. Ðagvextina má gjaldfæra á skuldir mánaðar- lega. Strax á öðrum mánuði frá eindaga koma því til vaxtavextir. Arsávöxtun janúarvaxt- anna verðurþví35,5%. Vísitölur Lánskjaravisitala fyrir janúar 1985 er 1.006 stig, 4.9% hærri en í desember. Miðað er við 100 íjúní 1979. Byggtogarvísitala fyrir fyrsta ársfjórðung 1985 er 185 stig en var 168 stig síðasta árs- fjórðung 1985. Miðaö er við 100 í janúar 1983. Andlát i Guðrún Björasdóttir lést 19. febrúar sl. Hún var fædd 27. febrúar 1897 á Mikla- bæ í Blönduhlíð í Skagafirði. Foreldrar hennar voru sr. Björn Jónsson og Guð- finna Jensdóttir. Hún giftist sr. Lárusi Amórssyni, en hann lést áriö 1962. Þau hjónin eignuöust fjóra syni. Utför Guðrúnar verður gerð frá Hallgríms- kirkjuídagkl. 13.30. Helgi Eggertsson lést 18. janúar sl. Hann fæddist í Reykjavík þann 14. júlí 1932, sonur hjónanna Isfoldar Helga- dóttur og Eggerts Bjama Kristjáns- sonar. Helgi lauk prófi frá Stýri- mannaskóla Islands 1957. Hann hóf störf hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar árið 1962 og starf- aði þar til dauöadags. Eftirlifandi eiginkona hans er Jóhanna Jóhannes- dóttir. Þau eignuöust sex börn. Útför Helga verður gerð f rá Fossvogskirkj u í dag kl. 15. Helga Sigurðardóttlr Wendeldo lést í Osló 27. janúar. Guðrún S. Pálsdóttir, Hvalsnesi, lést aökveldi 26. janúar. Halldóra Jónsdóttir er látin. Kjartan Árnason, Gnoöarvogi 36, lést á heimili sínu 28. janúar. Jón Stefán Rafnsson tannlæknir varð bráökvaddur aö kvöldi 27. janúar. Svanhlldur Áraadóttir, Leifsgötu 25, lést í Landakotsspítala sunnudaginn 27. janúar. Ása Áraadóttir andaðist aöfaranótt 27. janúar á Elliheimilinu Grund. Guðjón Jónsson bifreiöasmiöur og trésmiður, Hvassaleiti 42, verður jarð- ■ sunginn frá Bústaðakirk ju f östudaginn 1. febrúarkl. 13.30. Jóhannes Reykjalín Traustason, Ásbyrgi, Hauganesi, verður jarð- sunginn frá Stærri-Arskógskirkju fimmtudaginn31. janúarkl. 14. Einar Hilmar, Heiðarási 3 Reykjavík, áöur til heimilis aö Austurgötu 29, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, þriðju- daginn29. janúar.kl. 13.30. Gunnar Heigi Guðjónsson, Gnoöarvogi 30, andaðist i Landspítalanum laugar- daginn 26. janúar. Olfar P. Merk lést i Borgarspítalanum 26. janúar sl. Otförin fer fram frá Foss- vogskirkju31. janúarkl. 10.30. Baldvin Kristjánsson rafvirkjameist- ari, Vesturbergi 119, lést í Landspítal- anum26. janúar. Inglbjörg Guðmundsdóttlr, Höfn, Homafirði, lést 27. janúar. Hjörtur ögmundsson, fyrrum bóndi í Álftatröðum, andaðist á heimili sínu, Hörðalandi 8 Reykjavík, að kvöldi sunnudagsins 27. janúar. Sonui' minn, Erling Kristjánsson, lést i Osló þann 16. jan. Utför hans verður gerð frá Fossvogskirkju kl. 10.30 á morgun, miövikudag. Fyrir hönd aöstandenda, Svava Sigvaldadóttir. Tilkynningar Árshátíð Snæfellingafélags- ins Snæfeliingafélagiö í Reykjavík heldur árlega árshátíð sina laugardaginn 2. febrúar í Dom- us Medica og hefst hún kl 18.30 nieö borð- haldi. Eins og venja hefur veriö undanfarin ár veröur mætt timanlega til upphitunar. Vonast stjórn og skemmtinefnd til aö húsið fyllist af hressu og kátu fólki. Aðgöngumiðar veröa seldir hjá Þorgils í Lækjargötunni frá 31. jan.,sími 19276. Myndakvöld Útivistar veröur fimmtudaginn 31. jan. kl. 20.30 í Fóst- bræöraheimilinu, Langholtsvegi 109—111. Sýndar veröa myndir úr htoum sérstöku haust- og vetrarferðum Utivistar, þ. á m. úr Núpsstaðarskógum, Hánípufit, haustblóti á Snæfellsnesi, aðventu- og áramótaferðum í Þórsmörk. Þátttakendur feröanna eru hvattir til aö mæta. Allir velkomnir að koma og kynn- ast Utivistarferðum. Kaffiveitingar. Ttodfjöll í tunglsktoi. Helgarferö 1,—3. febr. Gist i skála. Skíöagöngur og gönguferðir m.a. á Tindfjallajökul. Farmiöar á skrifst., s. ■ 14606. Dagsferöir 3. febr. kl. 10.30. 1. Fljótshlið. 2. ölkelduháls, skíðaganga kl. 13.00, Krókatjöm — Elliðakot. Utivistarfélagar: Greiöið heimsenda gíró- seöla fyrir árgjaldinu. Utivist. Kvöldvaka Ferðafélags ís- lands Miövikudaginn 30. janúar efnir Ferðafélagið til kvöldvöku í minningu Gests Guöfinnsson- ar. Guðfinna Ragnarsdóttir hefur valið efni sem flutt verður, ljóð, frásagnir o.fl. eftir Gest. Kvöldvakan hef st á ávarpi Davíðs Olafsson- ar, forseta F.I. Næst er samleikur á píanó, fiölu og þverflautu, leikiö lagið 1 grænum mó. Guðfinna Ragnarsdóttir o.fl. lesa kvæði úr verkum Gests, Ottar Kjartansson flytur ferðaminningu, ertodi um séra Jóhann eftir Gest les Guðfinna Ragnarsdóttir og síðast fyr- ir hlé flytur Arni Bjömsson lausavísur úr Ferðafélagsferðum eftir Gest. Að hléi loknu hefst skuggamyndasýning og að lokum verð- ur fjöldasöngur og sungiö ljóð Gests i grænum mó. Gestur lést 4. maí 1984 og var afar virkur fé- lagi í Ferðafélaginu, skrifaöi Árbók um Þórs- mörk og var í mörg ár einn af vinsælustu far- arstjórum félagsins. Kvöldvakan verður haldin í Risinu á Hverfi- isgötu 105 og hefst stundvíslega kl. 20.30. Að- gangurerkr. 50.- Trúnaðarbréf afhent Nýskipaður sendiherra Danmerkur, hr. Hans Andreas Djurhuus, afhenti í dag forseta Is- lands trúnaðarbréf sitt að viðstöddum Geir Hallgrímssyni utanrikisráðherra. Síðdegis þáöi sendiherrann boð forseta Is- lands á Bessastöðum ásamt fleiri gestum. Sendiherra Danmerkur hefur aðsetur í Reykjavík. Kvenfélag Árbœjarsóknar Aðalfundur Kvenfélags Arbæjarsóknar verður haldinn í safnaðarheimilinu þriðju- daginn 5. febrúar nk. kl. 20.30. Venjuleg aðal- fundarstörf. Stjórnin. Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps veröur haldið laugardaginn 2. febrúar nk. í fé- lagsheimiltou Seltjarnamesi. Húsið verður opnað kl. 19 og hefst borðhald kl. 19.30. Skemmtiatriði verða meðan á borðhaldi stendur og að því loknu mun hljómsveitin Stuðlatríó leika fyrir dansi til kl. 02. Miðaverð er kr. 800.-. Þátttaka tilkynnist til Góu 33825, Þóreyjar 37414 eða Friðriks, 39570, fyrir 30. janúar. Kvennalistafundur Kvennalistinn heldur kynningarfund í félags- helmilinu á Seltjamarnesi f dag, þriðjudaginn 29. janúar, kl. 20.30. Komið og kynnist kraft- miklu kvennastarfi 1 kjördæminu. Saurbœingar hór og þar Blótum öll þorrann i félagsheimili Kópavogs þann 9. febrúar. Pantið miða timanlega í sim- um 83843,42361,30211 og 621541. Námskeið fyrir þá sem vilja hætta að reykja Islenska bindindisfélagið heldur námskeið dagana 3.-7. febrúar nk. Þetta er hin vel þekkta 5—daga áætlun gegn reykingum. Á námskeiðið, sem haldið var fyrir jólin, komust margir ekki og hefur verið hringt mikið og óskað eftir öðru námskeiði. Greini- lega fjölgar þeim stöðugt sem vilja losna við reykingamar. Að vanda verður námskeiðiö til húsa í Háskóla Islands, Hugvístodahúsi, stofu númer 101, og hefst kl. 20.30 hvert kvöld. Aðalleiðbeinandi og stjórnandi verður Jón Hjörleifur Jónsson og með honum læknarnir Sigurður Björnsson, dr. G. Snorri Ingimarsson, Sigurgeir Kjartansson og Sig- urður Ámason, Eric Guðmundsson sjúkra- þjálfari. Með fræðslumyndum, kvikmynd- um, litskyggnum, tölfræðilegum upplýsing- um, læknisfræðilegum staðreyndum og mæltu máli verður allt gert til hjálpar fólk- inu að sigrast á reykingavananum. Þátt- tökugjaldið er kr. 500,00. Innritun er í síma 13899 á skrifstofutíma og 36655 á kvöldin. Einnig er hægt að innritast við upphaf nám- skeiðsins. Orlof húsmæðra í Reykjaík heldur kvöldvöku á Hótel Sögu, Súlnasal, nk. fimmtudag 31. janúar kl. 20. Húsið opnað kl. 19. öllum heimill aðgangur. Kvenfélag Kópavogs heldur spilakvöld þriöjudaginn 29. janúar kl. 20.30 ífélagsheimilinu. Aðalfundur skíðadeildar Fram verður haldton miðvikudagton 30. janúar 1985 kl. 20.30 í félagsheimili Fram við Safamýri. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Fressköttur hvarf frá Hjallavegi sl. föstudag. Þeir sem ein- hverjar upplýsingar geta gefið um hann vinsamlega hrtogi í síma 32104. Allt efni sem á aö koma í Hvaö er á seyði um helgina, sem fylgir blaðinu á föstudögum, þarf að berast blaðinu í síðasta lagi fýrir hádegi á miðviku- dögum. Afmæli 85 ára afmæll á i dag, 29. janúar, Guð- laugur G. Guðmundsson bóndi, Stóra Laugadal í Tálknaflrði. — Hann verður í dag staddur á heimili dóttur sinnar, Miötúni 18 í Tálknafirði. Eiginkona Guðlaugs er Hákonía Pálsdóttir. 90 ára afmæli á í dag, þriðjudaginn 29. janúar, Andrés Þormaij.fyrrum aðal- gjaldkeri Pósts & síma, Sóleyjargötu 33 hér í bæ. Hann var um áraraðir einn af forvigismönnum Fél. ísl. sima- manna. Var t.d. formaður i stjórn þess með hléum á árunum 1932—1953. Þá var hann ritstjóri Símablaðsins og lengi formaður eftirlaunadeildar FlS. VEXTIR BftNKfl OG SPflRISJÚÐfl (%) innlAn með sérkjörum SJt StRUSTA llfl HiiiHi 1 .8 II li !i íi INNLÁN Overðtryggð sparisjOosbækur Öburaín irataða 24,0 244) 24.0 245 245 245 245 24.0 245 24,0 SPARIREIKNINGAR V mánséa uppsögn 27 5 28.8 274) 275 275 27,0 275 265 27,0 27,0 6 mánaAa uppsögn 364) 39,2 304) 315 365 315 295 305 31,5 12 mánaéa uppsögn 324) 34,6 32.0 315 31,0 18 mánaða uppsögn 344) 36,9 345 SPARNAOUR - LANSRÉTTUR Sparað 3-5 mánuði 274) 275 275 275 265 275 275 Sparað 6 mán. og maáa 304) 305 27,0 275 295 305 30,0 INNLANSSKlRTEINI Ti 6 mánaða 31,5 345 304) 31,5 31,5 31,5 305 31.5 TtKKAREIKNINGAR Avbanwaðtnngar 224) 224) 185 19,0 195 195 195 195 185 Hlauparaðuwigw 194) 165 185 195 195 125 195 195 185 INNUN verðtryggð SPARIREIKNINGAR INmtnNl.wugn 44) 45 25 0.0 2.5 15 15 15 15 6 mánaðs uppsögn 6.5 65 35 35 35 35 25 25 3.5 innUn gengistryggð GJALOEYRISREIKNINGAR Bandwfltjadoðww 95 95 85 85 75 75 75 7.0 85 Slariingxpund 95 95 85 85 85 85 85 85 85 Vesturjrrsfc mörk 44) 45 45 45 4.0 45 «5 «5 45 Danskw krúnur 95 95 85 8.5 8.5 8.5 8,5 85 85 útlAn úverdtryggð AiMENNIR VlXIAR Iforvextk) 314) 315 315 315 31,0 315 315 315 315 VIOSKIPTAVlKLAR (forvextsr) 324) 325 325 325 325 325 325 325 ALMENN SKULOABRiF 344) 345 345 34.0 34.0 345 345 345 34,0 VIOSKIPTASKULOABREF 354) 355 355 355 355 35.0 HLAUPAREIKNINGAR Yfkdráttur 324) 325 325 325 325 325 325 325 25,0 útUn verðtryggo SKULDABRÉF Að 2 1/2 ári 44) 45 4.0 45 45 45 45 45 4.0 Lengri en 2 1/2 ár 54) 5.0 55 55 55 55 55 55 5.0 ÚTUN Tll FRAMLEIÐSLU VEGHA INNANLANOSSðLU 244) 245 245 245 24,0 24,0 245 245 245 VEGNA ÚTFLUTNINGS SOR reðuárnym 95 95 95 95 95 9.5 95 9.5 95 SENDISVEIIMN Óskum að ráða sendisvein strax. Þarf að hafa umráð yfir bifhjóli. Rolf Johansen og c/o, Laugavegi 178, sími 686700.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.