Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Page 11
DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBROAR1985.
11
Hrossarækt
íVíkingasal
I „Sandkornsdálkum” í DV birtist
frétt meö fyrirsögninni „Hvasst í
Víkingasal?” um fræöslufund um
hrossarækt, sem veröur haldinn þ. 28.
febr. nk. í Víkingasal Loftleiöahótels á
vegum fræöslunefndar Fáks.
Út af fyrir sig er ágætt aö vekja
athygli á umræddum fundi en fullmik-
ill æsingafréttastíll finnst mér þar
vera, auk þess ekki alveg rétt meö
fariö. Ég kann vel aö meta fréttir í
léttum dúr en þetta með Flugleiðaþot-
una er nú bara bull.
Ekki veit ég um heimildarmann
blaðamanns, aiia vega var ekki leitaö til
mín. Eins og öllum hestaunnendum er
kunnugt, eru hrossaræktarmálin ákaf-
lega viökvæm. Svona fyrirfram skrif
geta alveg eins oröiö til skaöa frekar
en hitt og væri þaö miður.
Hlutverk fræöslunefndar Fáks er aö
efna til fræöslufunda fyrir félagsmenn
um flest er lýtur aö hestamennsku. Til-
efnið að við boðum til þessa fundar er
aö upplýsa hestaeigendur um hvaö er
aö gerast í hrossaræktarmálunum og
aö hverju beri aö stefna.
Fundurinn er auk þess haldinn í
beinu sambandi viö fjórðungsmótið
(FH 85), sem veröur haldiö á félags-
svæöi Fáks 27,—30. júní nk., enda mun
Þorkell Bjarnason kynna hvaða lág-
markskröfur veröa gerðar til þátttöku
kynbótahrossa og afkvæma þeirra á
FH85.
Framsögumenn fundarins veröa 5 en
ekki 3 eins og er í fréttinni, þ.e. Þorkell
Bjarnason hrossaræktarráöunautur,
Grímur Gíslason, Blönduósi, í stjórn
Félags hrossabænda, séra Halldór
Gunnarsson, Holti, varaform. Fél.
hrossabænda, Haraldur Sveinsson,
Hrafnkelsstööum, form. Hrossarækt-
arsamb. Suðurlands, Leopold
Jóhannesson, Hreðavatnsskála, í
stjórn Fél. hrossabænda. Þeir tala í
eigin nafni, allir landsþekktir í samb.
v. hrossaræktarmál, málhressir vel og
kunna aö koma fyrir sig orði.
Hókon Jóhannsson,
formaður fræðslunefndar Fáks.
„Ástin sigrar”á Húsavík
Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur,
Húsavík:
Þaö uröu mikil átök á Húsavík
nýlega. Átökum þessum var beitt við
tannlæknastól nokkurn og notuö til
aö flytja hann frá tannlæknastofun-
um í leikhúsiö.
Það voru félagar í Leikfélagi
Húsavíkur sem stóöu í ströngu og
nutu þeir aðstoðar lögreglu staðarins
og krafta þeirra Þórhalls
Sigurössonar leikstjóra og Olafs
Hauks Símonarsonar rithöfundar.
Þaö var hin besta skemmtun aö
fylgjast með flutningnum á stólnum,
og ef eins gaman veröur aö horfa á
nýja gleöileikinn eftir Olaf, sem
Leikfélagið er aö æfa, mega leikhús-
gestir bíöa spenntir eftir sýningum,
sem áætlaö er aö hefjist um miöjan
mars.
Nýja leikritiö heitir „Ástin
sigrar”.
Tannlæknastóllinn var greinilega
mjög þungur, en Þórhallur
Sigurösson leikstjóri segir aö leik-
ritiö sé miklu léttara en stóllinn þó
verði hann nokkurs konar þunga-
miöja í verkinu, enda sé ein af aðal-
persónunum tannlæknir. En ástin
sveimi þar allt í kring og sé sterkasta
afliö í verkinu, eins og í lífinu sjálfu.
Vettvangur leiksins gæti veriö Húsa-
vík nútímans, en verkiö sjálft sé lauf-
léttur gaman- og gleðileikur um
ástina.
Þórhallur fékk leyfi frá störfum
viö Þjóðleikhúsiö til að setja upp
þessa sýningu, en þar setti hann upp
„Milli skinns og hörunds” eftir Olaf
sem sýnt var í vetur við mjög góðar
undirtektir. Þórhallur segir þaö
tvöfalda ánægju að setja upp nýtt
íslenskt leikrit, þaö sé gaman að
koma og vinna meö leikfélaginu á
Húsavík, þar ríki kraftur, drift og
myndarskapur.
Ölafur var í stuttri heimsókn á
Húsavík, hann sagöi að sér litist vel á
Höfundur leikritsins, Ólafur Haukur Símonarson, ásamt leikfélagsfólki og leikstjóra leikritsins.
DV-mynd Ingibjörg.
þaö sem hann væri búinn aö heyra af
verkinu og efaðist ekki um að leik-
félagiö skilaði þokkalegri sýningu.
Elja og áhugi væri forsenda fyrir að
leiklistin næöi þroska í landinu og
höföaöi til fólksins. Höfundur verks
heföi alltaf blendnar tilfinningar
fyrir frumsýningu.
Þar sem mér finnast tannlækna-
stólar ein óskemmtilegustu sæti sem
ég get hugsað mér spurði ég Olaf
hvaö hann væri aö nota tannlækna-
stól í gleöileik.
Hann sagöi aö alls konar stólar
heföu verið notaöir i leikritum, þar á
meöal oft tannlæknastólar, þaö væri
engin nýjung.
Mörg leikfélög höföu beðið um aö
fá aö sýna „Ástin sigrar”. Leikfélagi
Húsavíkur hlotnast sá heiður nú á
áttugasta og fimmta leikári sínu.
Þetta er þriöja verkefni leik-
félagsins á þessu leikári, í haust voru
teknar upp sýningar á Sölku-Völku
sem sýnd var á síðasta leikári og
fyrir jól var sýnt barnaleikritiö
Gúmmí-Tarsan.
„Okkur er sérstaklega mikill
heiöur og ánægja aö fá aö njóta
krafta þessara góöu manna sem
starfa nú með okkur, þaö er mikill
styrkur aö hafa þá sér viö hliö. Viö
höfum reynt áöur aö fá Þórhall sem
leikstjóra en þá tókst þaö ekki, svo
viö lítum á þaö sem nokkurs konar
sigur aö hafa hann hérna núna,”
sagði Anna Ragnarsdóttir, formaður
Leikfélags Húsavíkur.
-EH.
Samtök heimsf riðar og sameiningar:
Moonistar
hjálpa til
í garðinum
„Viö gerum hvaö sem er. Eiginlega
allt sem fólk biöur okkur um ef viö
mögulega getum komiö því við,” sagöi
Patricia Ivarsen í Samtökum heims-
friöar og sameiningar í samtali viö
DV. Samtökin eru þekktari sem
hreyfing Sun Myung Moon sem býr í
Bandaríkjunum og var mikiö í heims-
fréttunum er hann var dæmdur fyrir
skattsvik er þóttu meö ólíkindum.
Aö undanförnu hafa fjölmargir
Reykvíkingar fengiö tilkynningu inn
um bréfalúguna hjá sér frá íslenskum
moonistum. Þar bjóöast þeir til að þvo
glugga fólks, laga til í garðinum, gæta
barna, mála hús aö utan og innan og
fjölmargt annaö. Fyrir ekki neitt.
„Viö getum nú ekki annað öllum
beiðnum þar sem viö erum svo fá í
söfnuöinum,” sagöi Patricia. „Alls sjö
hér á landi, þar af tveir á Eskifirði. ”
Samtök, heimsfriðar og sameining-
ar voru stofnuö í Kóreu áriö 1954 og á
ensku nefnast þau Unification Church.
Aö sögn Patriciu er söfnuöurinn
stærstur í Japan og nágrenni.
„Þaö er eins og sumir séu hræddir
að þiggja hjálp okkar, sérstaklega hér
í höfuðborginni. Á Akureyri er fólk
aftur á móti opnara. Það hef ég sjálf
reynt,” sagði Patricia.
— En smíöiö þið skútur, skerpið
skauta, búiötil þrumuost og grauta?
„Viö gerum allt sem viö getum,”
sagði Patricia en hún er eiginkona trú-
boöans Halvards Ivarsen er kom hing-
aö til lands áriö 1975 frá Noregi. Hann
starfar annars viö aö stoppa upp fugla.
Þeir sem óska aöstoöar í garöinum
eöa annars staöar geta hringt í síma
28405 og þá verður maður kominn á
staöinn fyrr en varir.
-EIR.
VORUM AÐ FÁ AFTUR ÞESSI
ÓDÝRU SÓFASETT MEÐ ÁKLÆÐI
Opiö föstudag til kl. 7, laugardag kl. 10—4.
«.g| HUSGÖGN
PM Skeifan 8 Simi 39595
SÚ EINA RÉTTA.
NÁTTÚRULÆKNINGA-
BÚÐIN
Laugavegi 25, sími 10262 og 10263.