Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Page 30
42
DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Það var mikið borafl hjá tannlækninum og að sjálfsögðu með tilheyrandi borhljóðum. örn Árnason
Jörundur i stólnum.
Róbótar i bæjarferð, Laddi og Pálmi Gestsson.
Elvis Presley lifandi kominn, Laddi i hlutverki
goðsins og tekur sig vel út.
OGÞÁ
VARKÁTT
íSÚLNASAL
Söguguspaug 1985 var frumsýnt í
Súlnasal Hótel Sögu fyrir
I stuttu.
Söguspaugiö gerði stormandi lukku í
I fyrra og var beöíð eftir þessari frum-
j sýningu meö mikilli eftirvæntingu.
Eins og viö var aö búast var fullt út úr
dyrum og komust færri að en vildu.
Þaö er fáum sem tekst betur 'aö kynda
undir hlátur landsmanna en einmitt
aöstandendum Söguspaugs. Þeir eru
Þórhallur Sigurösson, Örn Árnason,
Pálmi Gestsson, Jörundur Guðmunds-
son og Gísli Rúnar, en í sameiningu
eru þeir höfundar þeirra atriöa er
fram koma.
Undirleik á Söguspaugi ’85 annast
hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar.
Kreppugangsterar bregða á leik. Laddi, Jörundur, örn og Pálmi.
Náttsól, vinsælt tríó i Vestmannaeyjum, mun skemmta gestum Gest-
gjafans í vetur.
Eyjamenn fjölmenna á Gestgjafann.
NÝ ÖLSTOFA í VESTMANNAEYJUM
Vestmannaeyingar hafa ekki, frekar
en aðrir landsmenn, fariö varhluta af
ölstofumenningu þeirri sem nú gengur
yfir. Nú fyrir skömmu var opnuö önnur.
ölstofan í bænum og ber hún nafniö
Gestgjafinn. ölstofa þessi er í húsnæöi
því þar sem áður var veitingastaöur-
inn Gestgjafinn og er hún í eigu sama
aðila.
Staöur þessi, sem er allur hinn glæsi-
legasti, ber innréttingar frá fyrirtæk-
inu Árfelli hf. í Reykjavík og er óhætt
að segja aö mjög vel hafi tekist til við
hönnun innréttinga í staðinn.
Á staö þessum, sem tekur um 120
manns í sæti, er hægt að fá heita rétti
allan daginn auk þess sem hægt er aö
fá bjórlíki og önnur drykkjarföng eftir
því sem lög og reglur leyfa. Ráögert er
að verða meö einhverjar uppákomur á
staðnum um helgar. Tríóiö Náttsól,
sem skipað er fólki úr Eyjum, mun
taka létta slagara, sem allir geta
sungiö með, auk þess sem reynt veröur
að fá á staðinn jassista og einhverja
aöra góöa hljómlistarmenn til að sýna
listir sínar.
Eigandi staðarins er Pálmi Lórens-
son, en Pálmi rekur auk ölstofunnar
hinn glæsilega skemmtistaö Skansinn
og Hótel Gestgjafann en starfsemi
þessi er nánast öll undir sama þaki.
Þaö vantar því ekkert upp á það aö
hægt sé aö ná borgarmenningunni í
skemmtanalífinu í Eyjum.