Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1985, Side 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR1985.
Spurningin
Ert þú fylgjandi sjónvarpsút-
sendingum á fimmtudags-
kvöldum?
Sveinn Aðalsteinsson viðskipta-
fræðingur: Já, já, þaö er bara spurn-
ingin um kostnaöinn.
Sveinn Kragh, fv. stöðvarstjórkNei,
ég er ósköp ánægöur aö fá hvíld einu
sinni í viku.
Hanna Kristjánsdóttir nemi:Já, hik-
laust.
Þóra Sigurðardóttir flugfreyja: Já,
ég er þaö.
Sveinbjörg Baldvinsdóttir nemi:
Nei.
Oddný Sigurðardóttir húsmóðir:
Nei, mér finnst mötunin næg: Þaö ætti
að fækka útsendingardögum ef eitt-
hvaöværi.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Les
Rislágir ráðherrar
4969 - 6299 skrifar:
Aö kvöldi 12. febr. sl. var blaöa-
mannafundur í sjónvarpssal og þar
sátu fyrir svörum Steingrímur Her-
mannsson og Albert Guömundsson.
Hver voru svo aöaltrompin sem þeir
félagar slógu út á fundi þessum?
Steingrímur sló engu út en hann var
aö laumast meö eitt spil sem líklega
hefur verið jóker. Þetta spil mátti
enginn sjá. „En viö munum vinna á
þetta,” sagöi Steingrímur og drap
hendi á bakhliö spilsins!
Trompspilin hjá Albert voru
hjartakóngur og hjartadrottning og
veifaði hann þessum tveim spilum
oft og mikiö. Hann dásamaöi sambúö
íhaldsins og gömlu framsóknar-
maddömunnar í stjórnarflatsæng-
inni og þurfti enginn aö velkjast í
vafa um hversu rúmfarirnar væru
íðilgóöar. Auöséö var aö þessar ást-
arjátningar féllu vel í kramið hjá
Steingrími. Nú eru aðrir tímar en
fyrir kosningarnar 1979, en þá var
kjörorö Steingríms: ALLT ER
BETRA EN ÍHALDIÐ. Nú þætti
Steingrími líklega ganga guölasti
næst aö taka sér í munn seinni part
nýlegaortrarvísu:
„Allt er betra en íhaldið
eins og Tryggvi og pabbi sögöu. ”
„Allt er betra en ihaldið
eins og Tryggvi og pabbi sögðu,"
segir meðal annars i bréfi 4969 — 6299 um blaðamannafundinn i sjónvarpinu á dögunum.
Þennan sjónvarpsþátt horföi ég á
til enda, fyrst og fremst vegna þess
aö sjónarspil þetta minnti mig mjög
á þættina meðSteina og Olla.
Moggi sagði í forystugrein fyrir
skömmu aö fólk hefði beðið meö eft-
irvæntingu eftir boöskap forsætis-
ráðherra í útvarpi og sjónvarpi að
kvöldi gamlársdags 1984. Líklega
hafa þeir Moggamenn veriö nær því
einir um þá eftirvæntingarhitu. Fólk
bíður ekki lengur meö eftirvæntingu
eins né neins sem frá þessari ríkis-
stjóm kemur. Þaö er liðin tíð. Ríkis-
stjómin er rækilega búin aö sýna og
sanna aö hún er liðónýt og getur engu
stjórnaö. Þaö eina sem þjóöin bíður
eftir meö eftirvæntingu eru næstu
kosningar en þá rekur þjóöin þessa
stjórnarstefnu af höndum sér. Þá
verður fall gamla íhaldsins mikiö en
miklu mest verður þó fall Stein-
gríms-íhaldsins.
Mannlega
hliðin
á málinu
Hlustandi skrifar:
Fyrr í þessum mánuöi var mjög at-
hyglisverður þáttur í útvarpinu. Var
þaö þátturinn I sannleika sagt og var
hann í umsjá séra Önundar Björnsson-
ar. 1 þættinum fjallaöi hann um við-
kvæmt mál, en þaö var líknardráp.
Fjallaöi hann einstaklega vel um þetta
og var sérlega gott aö heyra hvernig
hann tók á hinni mannlegu hlið máls-
ins. Leiö mér mun betur eftir aö hafa
hlustað á Önund í þessum þætti, og vil
ég þakka honum kærlega fyrir orö
hans.
Fyrir-
byggjandi
starf
Jón hringdi:
Ég sá nýlega grein í DV þar sem
fjallað var um hvað hvert dauðaslys í
umferöinni kostaöi þjóöarbúiö. Mig
langaði til að kasta þeirri spurningu
fram hvort hiö sama gilti ekki um öll
þau sjálfsmorð sem framin eru hér á
landi ár hvert. I framhaldi af því held
ég aö þaö mundi borga sig aö leggja
meiri vinnu í fyrirbyggjandi starf til aö
sporna gegn sjálfsvígum, t.d. meö
rekstri geöathvarfs fyrir unglinga.
HRINGIÐ
í SÍMA
68-66-11
kl. 13 til 15
m
Er eitthvað sameiginlegt með hundum og drukknum óþrifalýð?
Hundaskatt á óþrifalýð
Guðrún Jacobsen skrifar:
Þaö eru vinsamleg tilmæli mín til
borgaryfirvalda aö sá drukkni óþrifa-
lýöur sem notar stöðumæla borgarinn-
ar fyrir allmenningspissirí verði skikk-
aöur til þess aö gjalda líka hundaskatt
til ríkisins. Þetta sér-islenska fyrir-
brigöi er dagleg sjón á götum Reykja-
víkur. Sektina mætti nota til aö gera
könnun á því úr hvaða atvinnustétt
þessir upprennandi stofnanameðlimir
eru ættaöir.
Yfirheyrsla
vegna
bankaláns
Þórarinn Björnsson, Laugarnes-
tanga 9 b, skrifar:
I lesendadálki DV 8. febrúar ’85
birtist frásögn Einars sem hringt
haföi í blaöiö (þaö vantaði bæöi föö-
urnafn og heimilisfang þessa
manns). Eg hef nokkrum sinnum
kvartað og þakkaö í dagblöðunum,
t.d. skoraö á þá sem skrifa og
hringja að gera það undir fullu nafni
og heimilisfangi eöa nafnnúmeri.
Þaö geri ég og þori. Ég er alveg tilbú-
inn aö svara til saka fyrir mín skrif.
Ef menn þora þaö ekki eiga þeir
hreinlega að láta slíkt eiga sig.
En komum nú að fyrirsögninni á
mínumskrifum.
Hún er orörétt fyrirsögn þessa
blessaða föður- og heimilislausa Ein-
ars. Hann byrjar orörétt í sínu tali:
„Ég lenti inn á einni af
peningastofnununum um daginn
og hugöist fá lán. Þar var ég yfir-
heyröur af bankastjóranum og látinn
gera nákvæma grein fyrir því í hvaö
ég ætlaði að nota peningana.” Mér
finnst þessi reynsla Einars svo
furðuleg aö ég get vart trúaö henni
vegna kynna minna af aðalbönkun-
um í Reykjavík. Þar hef ég fengið
lán meö fáum orðum þegar ég hef
verið i vanda. Ég tek þó fram að ég
hef alltaf byrjað á þvi að kynna mig
og mínar aðstæður áður en ég hef
beðiö um lánið. Það kann aö vera
þess vegna sem ég hef ekki komist í
sama vanda og Einar og aldrei orðið
fyrir öðru en því besta af hendi bank-
anna. Þó er ég aðeins meðalmaður í
þjóðfélaginu.
Langi þig, Einar, til að gera at-
hugasemd við skrif min þá geröu það
undir fullu nafni og heimilisfangi.