Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1985, Page 19
DV. MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRUAR1985.
19
UMSJÓN ÞÓRIR GUÐMUNDSSON OG GUÐMUNDUR PÉTURSSON
Stjórnarerindrekstur eða sala á
rikisleyndarmálum? Treholt með
iraska agentinum Radi
Mohammed á Hilton hótelinu í
Aþenu.
Dómsalurinn:
UÓSMYNDUN OG BEIN
ÚTSENDING BÖNNUÐ
Læknisyfirlýsingin um aö þaö gæti
skaöað heilsu Treholts aö útvarpa og
sjónvarpa fyrsta degi réttarhaldanna
kom eins og gjöf af himnum ofan fyrir
verjendur Treholts en eins og þruma
úr heiöskíru lofti fyrir norska ríkisút-
varpiö.
Verjendurnir höföu reynt aö fá út-
sendingunni aflýst en án árangurs. Þá
skrifaði fangelsislæknirinn í Dramm-
en-fangelsinu, aö eigin frumkvæöi aö
því er virðist, yfirlýsingu þess efnis aö
Hér er bannað að taka myndir næstu fimm vikurnar. Þetta er dómsalurinn
i Þinghúsinu i Osló þar sem Treholt-réttarhöldin fara fram.
álagið á Treholt vegna allrar umfjöll-
unarinnar væri nógu mikið, bein út-
sending gæti farið alveg meö hann.
Yfirmenn dómsalarins tóku þá yfirlýs-
ingu strax til greina og bönnuðu beina
útsendingu.
Þetta kom ríkisútvarpinu og
sjónvarpinu sérdeilis illa. Stofnanirnar
höföu komiö sér upp fréttamiðstöö í
næsta húsi viö réttarsalinn. Þaöan átti
aö stjórna beinni útsendingu. Nú var
bara lesið þaöan ákæruskjaliö sem
Treholt var birt og fréttir fluttar á
venjulegan hátt.
Einnig er bönnuö öll ljósmyndun í
réttarsalnum meöan réttarhöldin
standa yfir. Arne Treholt getur neitaö
aö fara inn í salinn þangaö til allir
ljósmyndarar eru farnir út. Eina
myndefniö sem vænta má héöan af úr
dómsalnum eru því teikningar.
-ÞóG.
Um megn að
vera
við réttarhöldinff
— segir Thorstein Treholt, faðir Arne Treholts
,,Eg ætla ekki aö mæta í réttarsalinn
viö málaferlin yfir Arne. Ég er orðinn
74 ára gamall og geðshræringarnar
gætu oröiö mér um megn,” sagöi Thor-
stein Treholt í viötali við norska „Dag-
bladet”.
Faöir Arne Treholts veröur því ekki
á áhorfendapöllunum viö málflutning-
inn og er þaö aö ráöi verjandans Ulf
Underland.
„Þetta var mér erfiö ákvöröun, því
aö ég er viss um aö Arne heföi gjarnan
viljað sjá mig í réttarsalnum. — En
þaö þýöir ekki aö ég láti neitt um máliö
framhjá mér fara. Ég mun fylgjast
grannt meö því í útvarpi og sjónvarpi,
enda styðjum viö Arne heilshugar,”
sagöi faöirinn áfram í viötalinu.
Thorstein segist síðustu vikurnar
hafa fengið daglega í pósti aö meðal-
tali um fjögur bréf þar sem fólk lýsir
stuöningi og samúö meö Treholt. Af
rúmlega þúsund bréfum er aöeins eitt
nafnlaust og andsnúiö skammarbréf.
Thorstein átti í tuttugu ár sæti á stór-
þinginu norska og um f jögurra ára bil
sæti í ríkisstjórn.
Hann telur aö fjölmiðlarnir hafi
meövitaö eöa ómeðvitað hagaö frétta-
flutningnum af Treholtsmálinu þannig
aö Arne sé dæmdur fyrirfram, áöur en
rétturinn hefur fjallaö um mál hans.
Er hann efins um aö Arne fái réttláta
málsmeöferö eða dóm.
m
Thorstein Treholt, faðir Arne,
sonarsonurinn Knut.
TOYOTA
o/z <
Nybylavegi 8 200Kopavogi S. 91-44144
Opið á lauóardögum kl. 13 til 17.
f
NOTAÐIR BÍLAR TIL SÖLU
Mazda 626 HT 2000 árg. '80, ekinn
75.000, grár. Verð 230.000,-
Toyota Land-Cruiser station disil
árg. '81, ekinn 60.000, rauður.
Verð 750.000,-
Toyota Camry DX árg. '83, 5 gíra,
framhjóladrif, m/vökvastýri, ek-
inn 48.000, vinrauður. Verð
400.000,- Sérlega vel með farinn.
Toyota HiLUX 4x4 disil árg. '82,
ekinn 57.000, drappi. (sóllúga, út-
varp/segulb., breið dekk og
felgur o.fl.) Verð 440.000,-
Mazda 626 2000 árg. 79, sjálfsk.,
ekinn 68.000, grár. Verð 190.000,-
Toyota Corolla Twin cam 16 valve
árg. '84, m/beinni innspýtingu,
vál 124 din. hö., ekinn 9.000,
silfur/svartur, læst drif, sport-
sæti, álfelgur. Verð 540.000,-
Mazda 929 árg. '82, ekinn 45.000,
rauður. Verð 395.000,-
Toyota Tercel árg. '82, 4ra dyra, 5
gíra, ekinn 52.000, vínrauður.
Verð 250.000,-
Toyota Corolla árg. '80,4ra dyra, 4
gfra, ekinn 54.000, Ijósblár. Verð
195.000,-
Toyota Torcel árg. '83, 3ja dyra, 5
gíra, ekinn 15.000, grár. Verð
310.000,-
Toyota Carina DL árg. '80, ekinn
54.000, gullsans. Verð 225.000,-
Mazda 323 station árg. '82, 5 gira,
ekinn 54.000, Ijósgrænn sans.,
sumardekk á felgum, út-
varp/segulb. Verð 275.000,-
Toyota Crown station bensín árg.
'81, ekinn 64.000, rauður. Verð
420.000,-
Toyota HIACE disll árg. '82,
m/gluggum, ekinn 65.000, bfár.
Verð 450.000,- Einkabill.
Toyota Carina DX, 5 gira, árg. '82,
ekinn 40.000, Ijósgrænn sans.
Verð 310.000,-
Toyota Cressida disil árg. '82,
sjálfsk., ekinn 150.000, Ijósblár,
rafmrúður. Verð 360.000,-