Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Side 2
2 DV. LAUGARDAGUR 23. MARS1985. Aðalfundur Samvinnubankans Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík, í dag laugardaginn 23. mars 1985 og hefst kl. 13.30. ‘ Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir á fundarstað. Bankaráð Samvinnubanka íslands hf Frá blaðamannafundinum þar sem námstefnan um líftækni var kynnt. NÁMSTEFNA UM UFTÆKNI Líftækni hefur verið mjög til um- ræðu undanfariö enda binda menn von- ir við að hún geti orðið grundvöllur nýrrar atvinnugreinar hér á landi jafn- framt því að sty rkja þær sem fyrir eru. I framhaldi af tillögu, sem flutt var á Alþingi fyrir um ári, var skipuö nefnd á vegum iðnaðarráöuneytisins til að annast kynningu á aðferðum og möguleikum líftækni. Nefndin tók til starfa í nóvember sl. og er hún skipuö sérfróðum aðilum, tilnefndum af iðnaöarráðherra, VSI, Háskóla Is- lands, Tækniskólanum, Sambandi ísl. sveitarfélaga og rannsóknarráði rík- isins. I dag, laugardag, stendur nefnd þessi aö námstefnu um líftækni í sam- vinnu viö endurmenntunamefnd Há- skólans. Þar verður gerö grein fyrir hugtakinu líftækni og notkun líftækni- legrar aðferðar. Reynt verður að draga fram sérstööu tslands, fjallað verður um rannsóknarverkefni, sem nú er verið að vinna að, auk verkefnis sem þegar er búið að hrinda í fram- kvæmd. Ljóst er að líftæknin á eftir að marka spor í íslensku atvinnulífi í framtíðinni. Það er því brýnt að virk umræða sé um þessi mál, að fólk sé upplýst um hvað líftæknin fjallar um og viti um möguleika hennar. Forráða- menn námstefnunnar vonast því eftir að þingmenn, sveitarstjórnarmenn og atvinnurekndur láti sjá sig um helgina en leggja samt ríka áherslu á að nám- stefnan er öllum opin. Hún hófst kl. 9 í morgun í Borgar- túni 6, á f jórðu hæð, og stendur til kl. 16. -JKH. MEÐ: DISKETTUDRIFI, JOY- STICKS, PRENTARASNÚRU, SEGULBANDSSNÚRU, 16 KB STÆKKUN, SJÓNVARPSTENGI. * Stækkanleg í 192 KB RAM. * Microsoft Basic 32 KB ROM. * Skiptanlegt val, 40/80 stafir í linu. * Hámarksupplausn 560 x 192. * Sértalnaborö. * 2MHZ, 650ZA Processor. * Innbyggt Centronics Parallel prentara interface. * Fjöldi lykla I borði 81. * Reset takki. * RGB útgangur. * CP/M kerfi fáanlegt. * Eitt stærsta úrval af forritum í heiminum í dag gengur á vélina. Kr. 39.900 stgr. KOMIÐ OG SKOÐIÐ LASER 3000, ÞAÐ BORGAR SIG. Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200 Amnesty í Gerðubergi Islandsdeild Amnesty International gengst fyrir sýningum í menningar- miðstöðinni Gerðubergi sem hefjast á morgun, sunnudaginn 24. mars, og lýkur skömmu eftir páska. Er þetta liður í baráttu Amnesty gegn pyntingum en sú herferð samtakanna hófst í apríl í fyrra og er reyndar eitt af höfuðbaráttumálum samtakanna. I Gerðubergi verður annars vegar sýnd veggspjaldaröð gerö af Amnesty International um þemað „Aðgengi aö föngum”. Er þar átt við aö læknum, ættingjum og lögfræðingum sé veittur greiður og reglubundinn aögangur að föngum í einangrunarvist þegar eftir handtöku. I þeim efnum er pottur brotinn víða um heim. Þá munu sex nemendur úr grafíkdeild Myndlista- og handíða- skóla Islands sýna myndir er þeir hafa gertumpyntingar. A meðan á sýningunni stendur verða jafnhliða haldnir almennir fundir í Gerðubergi. Á morgun, 24. mars, verða sýnd tvö myndbönd, annað um pyntingar á níunda áratugnum, hitt um aðalstöðvar Amnesty í London. Laugardaginn 30. mars mæta svo þeir Ámi Gunnarsson og Bernharður Guðmundsson og segja frá ástandinu í Eþíópíu. Báðir fundirnir hefjast klukkan 16.00. -EIR. FISKHÁTÍÐ í VÖRUMARKAÐNUM Vörumarkaðurinn mun gangast tyrir fiskhátíð í verslunarhúsi fyrir- tækisins að Eiðistorgi 11 sunnudaginn 24. mars. Á hátíðinni verða kynntar allar helstu fiskafurðir Islendinga, bæði úr sjó og vötnum, ásamt leið- beiningum um matreiðslu og fram- ireiðslu. Tilgangur fiskhátíðarinnar er að kynna fólki þá ótal möguleika sem bjóðast í matargerö með fisk sem hrá- efni, einnig að sýna hversu mikið úrval er af fiski og fiskafurðum á markaðnum og sýna hvemig má not- færa sér fiskinn bæði hversdagslega og til hátíðabrigða. Ahersla er lögð á tilbúna fiskrétti sem matreiðslumenn Vörumarkaðar- ins útbúa og seldir em tilbúnir í ofninn. I frétt frá Vömmarkaðnum segir að fiskborð eitt mikið verði sett upp og lengd þess verði um 18 metrar, hlaðiö fiskréttum auk margra sérkynninga á einstökum afurðum. Auk þessarar fiskhátíöar eru jafnan haldnir svo- nefndir fiskdagar á mánudögum og þriðjudögum. ÁE Stórstúkan skorar á Jón Baldvin Stórstúka Islands hefur sent frá sér áskorun til Jóns Baldvins Hannibals- sonar að mæta til kappræöna um áfengisvandamál og áfengan bjór. Á fundurinn að fara fram í einhverjum samkomusal í borginni. Eins og kunnugt er neitaði útvarps- ráð á sínum tíma að leyfa Stórstúkunni að efna til kappræðna í sjónvarpssal. Jón Baldvin Hannibalsson er stadd- ur erlendis þessa stundina. -EH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.