Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Blaðsíða 16
16 DV. LAUGARDAGUR 23. MARS1985. Til sölu Citroén GSA Pallasárg. 1982. Hagstætt verð. Upplýsingar í síma 53647. SÓFASETT, BORÐSTOFUHÚSGÖGN, SVEFNHERBERGISHÚSGÖGN, STAKIR STÓLAR OG MARGT FLEIRA. HÚSGÖGN, SEM ÖLL ERU NÝ OG ÓGÖLLUÐ, VERÐA SELD MEÐ 30-50% AFSLÆTTI. EINIIM ER HÆGT AÐ GERA GÓP KAUP. OPIÐ LAUGARDAG KL. 9-17. SUNNUPAG KL. 14-17, HUSGAGNAUTSALAN Sidumúla 30, sími 68-68-22. Árg. Km Kr. Toyota Crown disil 1980 123.000 320.000 Opel Rekord sjálfsk. 1982 47.000 470.000 Volvo Lapplander yfirb. 1980 12.000 670.000 Mazda 6261600 1981 28.000 245.000 Mitsubishi Colt 1980 75.000 170.000 Citroen Visa II 1981 45.000 165.000 Honda Accord EX hatchback 1982 39.000 395.000 CH Capri Classic 1979 73.000 400.000 Ch Nova sjálfsk. 1978 53.000 180.000 Vauxhall Chevette st. 1977 80.000 95.000 Opel Kadett, sjálfsk. 1982 54.000 295.000 Buick Skylark LTD 1977 49.000 240.000 Lada Sport 1979 59.000 160.000 Isuzu pickup bensín 1982 20.000 360.000 Oldsm. Delta88 1980 425.000 Ford Fiesta Ghia 1978 70.000 155.000 CH Malibu Classic 1981 56.000 420.000 BMW518 1982 52.000 450.000 Opel Rekord dísil 1981 330.000 Mazda E 1600 sendiblfr. 1982 47.000 260.000 Mazda 323, 5 dyra 1978 75.000 120.000 Buick Park Avenue 1981 91.000 850.000 Opiö virka daga kl. 9 — 18 (opið 1 hádeginu). Opiö laugardaga kl. 13—17. Simi 39810 (bein lina). BÍLVANGUR Sf= HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 Graham Greene: ekkert gaman að vera áttræður. . . GrahamGreene: Seðfð eftir anda- gift í ellinni Graham Greene er nú áttræöur. Á afmælinu hans síöastliöiö haust lét brugghúslö, sem langafi hans stofn- aöi áriö 1799, framleiöa sérstaka út- gáfu af ljósu St. Edmunds öli meö miöum er heiöruöu rithöfundinn. Þetta kunni hann vel aö meta og þó ekki síöur hádegisveröinn og bjór- drykkjuna sem honum var boöiö til af þessu tilefni uppi i sveit ó Englandi. Að öðru leyti varö afmælisdagurinn honum til lítillar ónægju og hann hefur heldur ekki gaman af þvi aö vera áttræður. Stærsti kosturinn, gefur hann i skyn, er sá aö áttræöur maður á dá- góöa möguleika á aö losna viö aö geispa golunni i kjarnorkubáli. Á hinn bóginn hefur hann engan áhuga á að „lifa sjálfan mig” og á þó við aö skrokkurinn hjari löngu eftir aö vit- glóran er guf uö upp. Nlræöur frændi hans var eitt sinn á leiö á fund i flotamálaráöuneytinu til þess aö ræöa hvort flytja ætti hrein- dýr til Skotlands (!) og varð þá fyrir neöanjarðarlest i undirgöngum London. Þetta var á stríðsórunum og gamli maðurinn lifði af. Ari síöar datt hann niður úr tré og enn tórði hann. „Eg vil ekki veröa svona gamall,” segir Greene og þar er engin ástæða til aö draga í efa ein- lægni hans. Tíundi maðurinn Greene er bæöi hógvær og spar- neytinní orðavali. Hann telur að bækur sínar hafi veriö heiöarlegri en sjálft líf hans og þar skortir þó ekki á sannleiksástina. Er hann gaf út þriðju skáldsögu sina ó fjórða ára- tugnum var hann tekinn í gegn af rit- dómara einum sem sagöi hann stæla Joseph Conrad og nota alltof mikiö af háfleygum líkingum og falskri ljóðrænu í bókum sínum. Þessi rit- dómari haföi mikil áhrif á Greene. Hann talar eins og dómurinn hafi birst í gær og leggur sig f ram um aö i samræöum sé hann jafnhreinn og beínn og i siðari bókum sínum. Sparsemi hans, sjálfstjóm og jafn- vel nokkur fjarlægð — aÚt má finna í „nýju bókinni” hans, Tíunda manninum. Þá sögu skrifaði hann sem undirbúning fyrir kvikmynda- handrit rétt eftir síöari heims- styrjöldina, á sama hátt og Þriöja manninn nokkru siðar. Greene telur aö sagan „geri sig bara vel” en engu aö síöur steingleymdi hann henni eftir aö Metro- Goldwyn-Mayer vanrækti aö gera biómynd eftir henni. Greene fór frá Englandi fyrir rúm- um tuttugu árum og hefur siöan búið í Antibes á frönsku Rivíerunni. Hann býr þar í miðlungs íbúö vlö miölungs götu og situr enn flesta morgna viö skrifborð sitt og horfir yfir snekkju- höfnina, gamla virkiö og Miðjarðar- hafiö. Mistök óhjákvæmileg Ljósiö er yfriö, útsýniö til fyrir- myndar en þetta veröur honum ekki endilega aö liöi. Greene álítur síð- ustu bók sína, Getting to Know the General, um Omar Torrijos hers- höföingja og fyrrum Panamaforseta, hafa veriö „mjög ófullnægjandi”, alltof sundurlausa og eiginlega hvorki minningabók, sjálfsævisögu néferðabók. En það er of seint að velta sér upp úr mistökum. Mistök eru hvort eð er óhjákvæmilegur fylgifiskur rit- starfa, segir Greene. Hann vitnar gjarnan i ljóðlínu eftir John Masefield: „The long defeat of doing nothing well”. — „Hinn langdregni ósigur aö gera ekkert Vel.” Það myndi liklega fáum jafnvel rnetnum rithöfundum og Greene liðast aö tala um mistök en honum tekst þaö. Eftir öll þessi ár, sem ætla mætti að heföu skolað á land einhverri visku, þá er þema siðustu skáldsögunnar, Monsjör Kíkóta, ekkert annaö en efinn einn eins og hann bendir s jálf ur á. Hann er ekki meö neitt i smiðum um þessar mundir og þaö veldur hon- um áhyggjum. „Eg vildi gjarnan vera útbrunninn en mér líður ekki þannig. Því er ég hræddur við að lifa of lengi án ritstarfanna. Einu sinni hélt ég aö ég væri búinn aö vera, það var eftir aö ég skrifaði A Bumt-Out Case. Þaö var allt annaö en gaman að hugsa: „Eg er búinn.” En núna hef ég heldur ekki mikla trú á ann- arribók.” Að drepa tímann. . . Meðan hann bíöur eftir innblæstri dundar hann vlð hitt og þetta. Hann skrifar bréf, les eöa bætir viö draumaskrá sína. I skránni eru rösk- ar 800 síður og þær eru flokkaöar eftir stafrófsröö svo hann getur á svipstundu flett upp á draumi um Krúsjof eöa Haítí. „Þetta drepur tímann þegar ég er ekki aö vinna,” segirhann. Og hann hefur gaman af aö spjalla og er umhugaö um aö leiörétta ýmis- legt sem sagt hefur veriö eöa skrifað um hann. Ennþá heldur hann uppi vömum fyrir fornvin sinn, Kim Philby, en segir að rithöfundurinn Paul Theroux hafi gert of mikið úr vináttu sinni við Fidel Castro í bók- inni Picture Palace. Auberon Waugh skrifaði einu sinni aö Greene svæfi meðskammbyssusérviöhlið; hrein- asta bull, segir hann. Gabriel García Márquez kvaö Greene hafa tekið þótt i rússneskri rúllettu í Víetnam; þaö er líka rangt. „García Márquez fer ekki alltaf rétt meö,” segir Greene. „Hann er ágætur maöur en hann fer ekki alltaf rétt með.” Hann vill lika leiörétta orö sín um aö hann vildi heldur enda ævina i Rússlandi en i Kalif orníu. „Eg meinti þetta sem kaldhæöni. Eg myndi nefnilega enda ævina miklu fljótar i Rússlandi en í Kali- forníu. Rússar taka ritstörf hátíð- lega og þess vegna myndi ég fyrr en varöi lenda i fangabúöum sem á sinn hátt er hrós fyrir rithöfund. 1 Kali- fomíu getur maður hins vegar hjaraöalltof lengi.” VIII ekki gefast upp Greene er semsé ekki sérlega glaösinna um þessar mundir. En hann vill ekki gefast upp. „Eg er aö athuga hvort ég get haldið áfram meö bók sem ég hætti viö fyrir tíu árum til þess að skrifa Mannlega þáttinn. Eöa var það Heiöurskonsúllinn? Liklega var það Heiðurskonsúllinn.” Og hefur hann von um aö geta tekiðupp þráðinn? „Eg er að skoða þaö en ég er ekki viss. Eg er aö kaiuia hvort — hvort efniö iifnar viö..." Þýtt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.