Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Page 3
DV. LAUGARDAGUR 23. MARS1985.
3
Hafskip:
Hlutafjáraukning
gengur vel
„Ég get ekki sagt annaö en aö hluta-
fjáraukningin gangi prýðilega, Wuta-
féö hefur verið aukið um 60 milljónir og
gert er ráö fyrir að auka þaö um 20
milljónir til viðbótar,” sagöi Ragnar
Kjartansson, framkvæmdastjóri
skipafélagsins Hafskips.
Áaðalfundi, hinn9. febrúarsíðastlið-
inn, var tekin ákvöröun um að auka
hlutaféð um 80 milljónir króna vegna
slæmrar eiginfjárstöðu félagsins. Fé-
lagið varð fyrir nokkru tjóni á síöasta
ári, meðal annars vegna verkfalla og
einnig eru mikilvægar framkvæmdir
framundan hjá félaginu.
Rétturinn til forkaupa á hlutafé
rennur út 9. apríl, og hafa þegar 150 til
200aðilarnotfærtsérþannrétt. -ÁE
Isfahani Sameen, varaheimsforseti JC:
í KOPAVOGIIDAG
Varaheimsforseti JC-hreyfingar-
innar, Isfahani Sameen frá Sri Lanka,
kom til Islands í gær. Hann mun dvelja
hér fram á mánudag.
I dag verður Sameen gestur á sam-
eiginlegum fundi JC-félaganna á
höfuðborgarsvæðinu. Fundurinn verð-
ur í Kópavogi, nánar tiltekið Þinghóli,
Hamraborg 11, og hefst klukkan 15.
Það er JC-Kópavogur sem hefur veg
og vanda af fundinum.
En Sameen mun ekki einskorða sig
við höfuðborgarsvæðið. Hann mun
halda austur fyrir f jall og mæta á fund
hjá JC-Selfossi.
Isfahani Sameen
frá Sri Lanka,
varaheimsforseti
JC. Fundurinn i
Kópavogi hefst
klukkan 15 í dag,
laugardag.
Hann heldur einnig vestur á bóginn,
verðurá fundihjá JC-Stykkishólmi.
-JGH
Hagnaður hjá jámblendinu:
Verðlauna starfsfólkið
Járnblendiverksmiðjan á Grundar-
tanga skilaöi hagnaði í fyrsta skipti á
síðasta ári. Þetta kom fram á aðal-
fundi félagsins sem haldinn vár fyrr í
vikunni. Nam hagnaðurinn 132 milljón-
um króna en í fyrra var tap upp á 113,5
milljónir króna hjá verksmiðjunni.
Til þess aö sýna starfsfólki þakklæt-
isvott fyrir að sýna umburðarlyndi í
samningum sínum viö fyrirtækiö hefur
stjórn þess ákveðið aö verðlauna
starfsfólkið. „Við munum greiða
hverjum fastráönum starfsmanni
verðlaun sem samsvara náiega einum
mánaðarlaunum. Lausráðið fólk mun
fá svipaða uppbót,” sagði Stefán Reyn-
ir Kristinsson, fjármálastjóri fyrirtæk-
isins. -EH.
Steindór auglýsir eftir fleiri bílum:
Þjónusta leigubfla
löngu orðin úrelt
— segir stöðvarstjóri Steindórs
Steindór býður upp á litla sendibila sem þennan.
Bifreiðastöð Steindórs hefur auglýst
eftir fleiri sendibílum. Nú eru starf-
andi innan við 20 bílar þar. Talið er að
þörf séfyrir50 bíla.
„Við erum að koma á fót þjónustu
sem neytendur hefur vantað. Við
bjóðum upp á smásendibíla á lægri
taxta heldur en leigubílar til mann-
flutninga hafa gert frá upphafi og hafa
í raun ekki heimild til aö gera.
Til þess að geta sinnt Reykjavíkur-
markaðinum áætla ég að við þyrftum
um 50 bíla,” sagði Guðmundur Rúnar
Ásmundsson, stöðvarstjóri á Steindóri.
— Erþörfinsvonamikil?
„Já, hún er það. Það eru 600 leigu-
bílar hér í dag og 10—15 prósent af
þeirra vinnu er pakkakeyrsla. Við
ætlum okkur að ná þeim markaði.
Eg held líka að menn ættu að forðast
það að líta á markaðinn sem eina köku
sem er óbreytanleg.”
— Nú ætlið þið að reyna að koma
meöfleirinýjungar.
„Við álítum að við getum flutt fólk
gegn lægra gjaldi með því að leggja
minni fjármagnskostnað í bílana. Við
viljum gera leigubílaakstur að neyslu-
vöru, ekki að lúxus, eins og hann er í
dag. I dag er til dæmis orðiö nær
óþekkt að leigubílar séu stöðvaðir úti á
götu vegna þess að þeir eru svo dýrir
miöað við kaupmátt almennings.
Við hér teljum að ef leigubílaakstur
yrði gefinn frjáls gætum við boðið al-
menningi upp á ódýrari akstur. Við
viljum byrja með litla bíla á umtals-
vert lægra gjaldi. Einnig viljum viö
stórlækka startgjaldið. Við viljum
lækka kílómetragjaldiö og einnig af-
nema svæðaskiptinguna. Fólk, sem
býr fyrir utan Reykjavík, býr við
skerta samgöngumöguleika og það á
ekki líka að refsa því í sambandi við
leigubíla. Það er ekkert lengra að fara
í Hafnarfjörð en í Breiðholt og það á
ekki að þurfa að borga tvöfalt fyrir að
fara þangað,” sagði Guðmundur.
Hann segir einnig aö gildandi reglu-
gerð um leigubilaakstur sé orðin úrelt
og sé í raun siðleysi og gegn hags-
munum neytenda. Þá brjóti hún einnig
í bága við stjórnarskrána.
„Staðreyndin er sú aö þjónusta
leigubílstjóra er orðin stöðnuð. Þetta
er orðinn hálaunaður forréttindahópur
í þjóðfélaginu og ekki i takt við
tímann,” sagði Guðmundur Rúnar
Asmundsson, stöðvarstjóri á Steindóri.
-APH.
Opið í dag, laugardag, kl. 13—18.
BGILL
VILHJÁLMSSON HF.
Smidjuvegi 4, Kópavogi. Simar 77200 - 77202.
VERÐ SEM SLÆR ALLT UT
FENGUM ÖRFÁA
FIAT 127 STATION
Nú búinn aflmikilli 1050 cm vél, framhjóla-
drifinn, með fimm gíra. Verulega vandaðar
innréttingar. Sérstaklega styrktur fyrir erfiðar
aðstæður. Aksturseiginleikar FIAT 127
fólksbllsins eru auðvitað alþekktir í gegnum
árin og STATION 127 hefur þá alla og
kannski ögn fleiri.
Vegna ótrúlega lágs innkaupsverðs og hagstæðra samninga getum við boðið
EÍAT 127 STATION á þessu frábæra verði eða á aðeins
kr. 239.000,-
á götuna m/ryðvörn og skráningu.
FIAT127 STATION
sameinar þægindi fólksbflsins og flutningsgetu sendibflsins á sérstaklega
smekklegan hátt. Heil ósköp af plássi til flutninga, afturhurðin opnast alveg
niður að gólfi og með því að leggja aftursætið fram er hægt að flytja mikið af
plássfrekum vamingi.