Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR 23. MARS1985.
11
Hlustað með uólitíska eyranu
Eg er alltaf að reyna að fara
varlega á öllum sviðum eins og ríkis-
stjómin, bæði í fjármálunum og
uppvaskinu og þegar ég þarf að
skipta um peru tek ég rafmagnið af
húsinu, það er að segja ef Rafmagns-
veitan er ekki búin að taka af mér
ómakið.
En þrátt fyrir þessa varfærni á
öllum sviðum fer stundum fyrir mér
eins og ríkisstjórninni, ég verð fyrir
óvæntum áföllum og kollsteypum og
um daginn tognaði ég í öxlinni þegar
ég var i boltaleik við son minn og
fyrir utan sársaukann sem þessu
fylgdi þótti mér verst að ég hæfði
strákinn ekki einu sinni.
Vegna þess að ég er kominn á þann
aldur að ég ætti alls ekki að fara í
boltaleik var sársaukinn það mikill
sem tognuninni fylgdi að ég gat ekki
sofið neitt að ráöi í nokkrar nætur og
var það í sjálfu sér ágæt tilbreyting
frá því að geta ekki sofið fyrir
áhyggjum af uppsafnaöa vandanum
í eldhússkápnum.
En ég var ekki fyrr búinn að jafna
mig sæmilega eftir þetta áfall en ég
skellti bílskúrshuröinni á eyrað á
mér.það sem ég hlusta á pólitikina
með, og kom þetta sér afar illa fyrir
mig því að þetta sama kvöld átti aö
vera fundur í s jónvarpssal með borg-
arstjóranum í Reykjavík.
Þegar ég kom inn frá hurðar-
skellinum fór eyraö á mér að bólgna
og vildi konan mín endilega fara með
mig á einhvern spítala þar sem
þama var ekki um að ræða verð-
bólgu sem fer hjaönandi þessa dag-
ana aö mati einhverrar stofnunar úti
í bæ. Eg aftók auðvitað algjörlega að
fara á spítala þvi aö ég fór einu sinni
á röntgendeild á svoleiðis stofnun
þar sem ég hitti gamla konu sem var
búin að bíða eftir myndatöku í hálfan
mánuö og var hún satt aö segja farin
að halda að þeir heföu kannski
gleymtsér.
Mér fannst þetta skrítið því að
þarna voru langir gangar sem fólk í
hvítum sloppum stikaði eftir meö
einhver plögg undir hendinni og einn
maður aö minnsta kosti gekk þama
fram og aftur með hendur fy rir aftan
bak og horfði á tærnar á sér og frétti
ég síðar að hann fengi borgaö fyrir
þetta.
Eg tilkynnti konunni minni sem
sagt að ég færi ekki á neinn andskot-
ans spitala, hún yrði bara aö leggja
kaldan bakstur við pólitíska eyrað á
mér þvi að það væri álíka mikill
glæpur að missa af þættinum með
borgarstjóranum og að slökkva á
þjóösöngnum eða blanda saman kóki
og koniaki og drekka það ekki.
Aldrei þessu vant tók konan mín
þessari kurteislegu bón minni vel en
þrátt fyrir góöan bakstur missti ég
af upphafi þáttarins og var raunar
ekki farinn að heyra neitt að ráði
fyrr en farið var að tala um dag-
Háaloft
T"
BENEDIKT AXELSSON
heimilispláss og leikskólapláss sem
ég veit raunar ekki muninn á.
Þegar ég var að alast upp léku
börn sér annaðhvort á bryggjunni og
duttu í sjóinn eða priluðu i nýbygg-
ingum og stungu sig á nagla en hefði
aldrei dottiö i hug að láta leggja sig
inn á stofnun þar sem allir pissa
klukkan tiu og syngja á meöan um
gamla Nóa sem kann ekki aö sprauta
og brýturalla gíra.
Eg var alveg sammála borgar-
stjóranum i plássamálinu og hef
reyndar lengi haft þá skoðun að þaö
eigi aö leggja allar slíkar stofnanir í
landinu niður en hins vegar þori ég
ekki að tala um þetta þar sem fleiri
en tvær konur eru saman komnar þvi
að einu sinni átti að slá mig niður
fyrir að halda þessu fram og heföi
það sjálfsagt verið gert ef ég hefði
ekki verið talsvert yngri þá og sæmi-
lega fljótur að hlaupa.
En það sem mér fannst einna
athyglisverðast í þættinum var
umræðan um bQakostnað borg-
arinnar, fyrirspyrjandi hélt því fram
að hann væri sjötiu og f imm milljónir
en borgarstjórinn að hann væri bara
ellefu milljónir. Þarna munar hvorki
meira né minna en tiu fokheldum
parhúsum á besta staö i borginni eöa
fimmtíu þúsund koníaksflöskum og
þremur lítrum af kóki ef mönnum
finnst sá samanburður raunhæfari.
Reyndar kom fram í máli borgar-
stjóra að inni í háu tölunni væri
rekstur öskubílanna okkar og finnst
mér eins og honum ekki sanngjamt
að taka þá með í þessu dæmi því að
ég trúi því ekki fyrr en á reynir að
borgarfulltrúar og háttsettir
embættismenn borgarinnar ferðist á
milli kokdilliboöa i öskubílum.
Eg myndi aö minnsta kosti taka
þann kostinn að reyna frekar að
slaga á milli þeirra.
Kveðja Ben. Ax.
Eftir 2 umferðir eru eftirtalin pör í efstu
sætum:
SUg
1. Margr. Jensd.—Eggert Benónýss. 791
2. Gústaf Bjömss.—Rúnar Láruss. 760
3. Amar fngólfss.—Magnús Eymundss. 756
4. Jón V. Jónmundss.—Sveinbj. Eyjólfss. 752
5. Hildur Helgad.—Karólína Sveinsd. 740
6. Gísli Steingrímss.—Guðm. Thorsteinss. 736
7. Sigmar Jónss.—Vilhj. Einarss. 735
8. Guðrún Hinriksd.—Haukur Hanness. 724
Fyrir eða eftir bíó
PiZZA
HtíSIÐ
Grensásvegi 7
simi 38833.
ÁBYRGÐ
ÖKUMAIMN/I
Mikil-
vægt er
að menn
geri sér grein
fyrir þeirri miklu
ábyrgð sem akstri
fylgir. Bilar eru sterk-
byggðir í samanburði við
fólk. Athyglisgáfan verður því
að vera virk hvort sem ekið er á
þjóðvegum eða í þéttbýli.
0S95
UMFERÐAR
Eiríkur pítumeistari hefur nú opnað nýjan og
glæsilegan pítustað og býður upp á girnilegar
og Ijúffengar pitur svo og hamborgara og
ýmislegt meölæti.
OPIÐ ALLA DAGA KL. 10,00 - 23.30
NÆG BÍLASTÆÐI
Plta með buffi 135,- kr.
Plta með kótilettum 165.- kr.
Plta með kjúklingi (1/4) 200.- kr. (Vz) 290.- kr.
Plta með djúpsteiktum fiski 125,- kr.
Grænmetisplta 95.- kr.
Barnapíta 80. - kr.
«
&
leÍkIr
Ferðaleikir eru margir til og auka
ánægju yngstu feröalanganna.
Orðaleikir, gátur, keppni í hver
þekkir flest umferðarmerki og bíla-
talningarleikir henta vel í þessu
skyni.
uæ
UMFERÐAR
Ð
Pítu-húsið
IÐNBÚÐ 8, GARÐABÆ. SÍMI: 64 12 90