Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Síða 37
DV. LAUGARDAGUR 23. MARS1985.
37
Peningamarkaður
Haukur Halldórsson. Það er lágt undir loft í vinnustofunni en þó komast tröllin þar fyrir. DV-mynd KAE
ÞETTA ERALLT
SPRELLLIFA NDI
Haukur Halldórsson myndlistarmaður
ræðir tröllauknar hugmyndir
Innlán með sérkjörum
Alþýöubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri.
Innistæður þeirra yngri eru bundnar þar til
þeir verða fullra 16 ára. 65—75 ára geta losað
innstæður með 6 mánaða fyrirvara. 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikning-
arnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár. Reikningamir eru
verðtryggðir og með 9% vöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá líf-
eyrissjóðum eða almannatryggingum.
innstaeður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Vextir eru 31% og á'rsávöxtun 31%.
Sérbók fær strax 30%nafnvexti,2% bætast
síðan við eftir hverja þrjá mánuði sem
mnstæða er óhreyfð, upp í 36% eftir níu
mánuði. Arsávöxtun getur orðið 37.31%
Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Búnaðarbanklnn: Sparibók með sérvöxtum
er óbundin 35% nafnvöxtun og 35% árs-
ávöxtun sé innstæða óhreyfð. Vextir eru
færðir um áramót og þá bomir saman við
vexti af þriggja mánaða verðtryggðum reikn-
ingum. Reynist ávöxtun þar betri er mismun
bætt við.
Af hverri úttekt dragast 1.8% í svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Sparibókin skilar hærri
ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða
lengur.
Iðnaðarbankinn: A tvo reikninga í
bankanum fæst IB-bónus. Overðtryggðan 6
mánaða reikning sem ber þannig 36%
nafnvexti og getur náð 39.24% ársávöxtun. Og
verðtryggðan 6 mánaða reikning sem ber
3.5% vexti. Vextir á reikningunum eru bornir
§aman mánaðarlega og sú ávöxtun valin sem
reynist betri. Vextir era færðir misserislega,
30. júní og 31. desember.
Landsbánklnn: Kjörbók er óbundin með
35% nafnvöxtum. Vextir eru færðir um ára-
mót. Eftir hvem ársfjórðung eru þeir hins
vegar bomir saman við ávöxtun á 3ja mánaða
verðtryggðum reikningum. Reynist hún betri
gildir hún umræddan ársfjórðung.
Af hverri úttekt dragast 2.1% i svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Kjörbókin skilar hærri
ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða
lengur.
Samvinnubankinn: Innlegg á Hávaxta-
reiknlng ber stighækkandi vexti. 24% fyrstu 2
mánuðina, 3. mánuðinn 25.5%, 4. mánuðinn
27%, 5. mánuðinn 28.5%, 6. mánuðinn 30%.
Eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12 mánuði
32.5%. Sé tekið út standa vextir þess timabils
það næsta einnig. Hæsta ársávöxtun er
35.14%.
Vextir eru bomir saman við vexti á 3ja og 6
mánaða verðtryggðum sparireikningum. Sé
ávöxtun þar betri er munurinn færður á Há-
vaxtareikninginn. Vextir færast misseris-
lega.
tjtvegsíiankinn: Vextir á reikningi með
Abót er annaðhvort 2,75% og full verðtrygg-
ing, eins og á 3ja mánaða verðtryggðum
sparireikningi, eða ná 34,6% ársávöxtun, án
verðtryggingar. Samanburður er gerður
mánaðarlega, en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 24%, þann almanaksmánuð.
Verslunarbanklnn: Kaskó-relkningurinn er
óbundinn. Um hann gilda fjögur vaxtatímabil
á ári, janúar—mars, apríl—júní, júlí—
september, október—desember. I lok hvers
þeirra fær óhreyfður Kaskó-reikningur vaxta-
uppbót sem miðast við mánaðarlegan út-
reikning á vaxtakjörum bankans og hag-
stæðasta ávöxtun látin gilda. Hún er nú ýmist
á óverðtryggðum 6 mán. reikningum með
30% nafnvöxtum og 33.5% ársávöxtun eða á
verötryggöum 6 mánaða reikningum með 2%
vöxtum.
Sé lagt inn á miðju tímabili _Qg inn stæða
látin óhreyfð næsta tímabil á eftir reiknast
uppbót allan sparnaöartímann. Við úttekt
fellur vaxtauppbót niður þaö tímabil og vextir
reiknast þá 24%, án verðtryggingar.
tbúðalánareikningur er óbundinn og með
kaskó-kjörum. Hann tengist rétti til lántöku.
Spamaður er 2—5 ár, lánshlutfall 150—200%
miöað við sparnað með vöxtum og
verðbótum. Endurgreiðslutími 3—10 ár.
Utlán eru með hæstu vöxtum bankans á
hverjum tíma. Sparnaður er ekki bundinn við
fastar upphæðir á mánuði. Bankinn ákveður
hámarkslán eftir hvert spamaðartímabil. Sú
ákvörðun er endurskoðuð tvisvar á ári.
Sparisjóðir: Vextir á Trompreikningi eru
stighækkandi. 24% fyrstu þrjá mánuðina, 4,—
6. mánuð 27%, eftir 6 mánuði 31.5% og eftir 12
mánuði 32.5%. Arsávöxtun 35.1%. Sé tekið út
af reikningi á einhverju vaxtatimabilinu,
standa vextir þess næsta tímabil. Sé
innstæða óhreyfð í 6 mánuði frá innleggsdegi
er ávöxtun borin saman við ávöxtun 6
mánaða verðtryggðs reiknings. Sú gildir sem
betri reynist.
Rikissjóður: Spariskírteini, 1. flokkur A
1985, eru bundin í 3 ár, til 10. janúar 1988. Þau
eru verðtryggð og með 7% vöxtum,
óbreytanlegum. Upphæðir em 5.000,10.000 og
100.000 krónur.
Spariskírteini með vaxtamiöum, 1. flokkur
B 1985, eru bundin í 5 ár, til 10. janúar 1990.
Þau eru verðtryggð og með 6.71 vöxtum.
Vextir greiðast misserislegá á timabilinu,
fyrst 10. júlí næstkomandi. Upphæðir eru 5,
10 og 100 þúsund krónur.
Spariskirteini með hreyfanlegum vöxtum
og vaxtaauka, 1. fiokkur C1985, eru bundin til
10. júlí 1986, í 18 mánuði. Vextir eru
hreyfanlegir, meðaltal vaxta af 6 mánaða
verðtryggðum reikningum banka með 50%
álagi, vaxtaauka. Samtals 5.14% nú.
Upphæðir em 5,10 og 100 þúsund krónur.
Gengistryggð sparlskirteini, 1. fiokkurSDR
1985, eru bundin til 10. janúar eða 9. apríl 1990.
Gengistrygging miðast við SDR-reiknimynt.
Vextir eru 9% og óbreytanlegir. Upphæðir eru
5.000,10.000 og 100.000 krónur.
Spariskírteini rikissjóðs fást í Seðla-
bankanum, hjá viðskiptabönkum, spari-
sjóðum og verðbréfasölum.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru i landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lána-
upphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30—60 mánuðir. Sumir sjóðir
bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og
áunnin stig. Lán eru á bilinu 144.000—600.000
eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin em
verðtryggð og með 5—8% vöxtum. Lánstími
er 15—35 ár eftir sjóðum og lánsrétti.
Biðtími eftir lánum er mjög misjafn,
breytilegur milli sjóða og hjá hverium sióði
eftiraðstæðum.
Hægt er að færa lánsrétt þegar viðkomandi
skiptir um hfeyrissjóð eða safna lánsrétti frá
fyrri s jóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir f eitt ár og reiknaðir í
einu lagi yfir þann tíma. Reiknist vextir oftar
á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin
verður þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1.000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
24,0% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
þess tíma 1240 krónur og 24,0% ársávöxtun í
því tilviki.
Liggi 1.000 krónur inni í 6+6 mánuði á 24,0%
vöxtum reiknast fyrst 12% vextir eftir sex
mánuðina. Þá er innstæðan komin í 1.120
krónur og á þá upphæð reiknast 12% vextir
:seinni sex mánuöina. Lokatalan verður
þannig kr. 1.254.40 og ársávöxtunin 25,4%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir
1 mars em dráttarvextir 4%. Dráttarvextir
á ári reiknast 48%, dagvextir em því 0.1333%.
Vísitölur
Lánskjaravísitalan
fyrir mars 1985 er 1077 stig, en var 1.050 stig í
febrúar. Miðað er við 100 í júní 1979.
Byggingarvisitalan
fýnr fyrstu þrjá mánuði ársins er 185 stig.
Hún var 168 stig síðustu þrjá mánuði ársins
1984. Miðað er við 100 i janúar 1983.
„Ætli ég sé heiðinn? Ég veit það ekki
en hitt er víst aö bæði tröllin og gamla
ásatrúin heilla mig,” svaraði Haukur
Halldórsson myndlistarmaður, þegar
hann var spurður um ástæður fyrir
„fomeskjunni” sem ræður ríkjum á
sýningu hans i Listamiðstöðinni.
„Eg hef oft velt áleitni tröllanna
fyrir mér,” heldur Haukur áfram. „Eg
hef gaman af þessum formum, stærð
og smæð, náttúru og manni. Kannski
má rekja þennan áhuga til þess þegar
ég var smápjakkur. Þá las ég þjóðsög-
urnar og drakk þennan hugarheim í
mig. Þar sem ég var í sveit var gamla
trúin á álfa, huldufólk og tröll í fullu
gildi og okkur krökkunum sagöar sög-
ur af þeim, ef til vill til að halda stjóm
á okkur. Þessar sögur eru norskar og
írskar að uppruna. Eg trúi þvi stað-
fastlega að Irarnir hafi verið hér þegar
Norðmennimir komu. Líttu bara á
írskt nafn eins og Esja. Það þýðir göm-
ul kona. Er þar ekki ein skessan kom-
in?
Sveinbjörn Beinteinsson allsherj-
argoði er góður vinur minn. Kynnin við
hann hafa ekki orðið til að draga úr
áhuganum á fornfræðunum. Þær em
stórkostlegar sögumar um Oðin sem
gaf auga fyrir skáldskapinn eða um
Þór sem alltaf var að slást við tröliin.
Ætli tröllin séu ekki náttúran. Þeir sem
hafa gengið um drungalegt gil í tungls-
ljósi vita það. Hver veit nema að það sé
lif í steinunum. Er þetta ekki aUt
spreUUfandi?! Hver veit nema jörðin
sé Ufandi einstakUngur, fljúgandi um
heiminn með nokkra mUljarða á fram-
færisínu?
Eg hef gert líkneski eða altari fyrir
Sveinbjörn allsherjargoða. Það sýnir
Þór með Mjölni. Eg spurði Sveinbjörn
hvort Mjölnir hefði ekki verið það stór
að Þór hefði orðið að tvíhenda hann.
Sveinbjöm sagði aö þetta hefði verið
sleggja mikU. Líkneskið verður reist á
Draghálsi í sumar og ef við Sveinbjöm
verðum duglegir ætlum við að reisa hof
líka.”
Haukur hefur fleiri plön og stærri á
takteinunum. Eitt er að stofna félag
um Helreiðina eftir Ásmund Sveinsson
og láta steypa þá styttu í sæmUegri
stærð.
„Helreiöin yrði symból fyrir Is-
land,” segir Haukur. „Auövitaö er
þetta dýrt fyrirtæki en hvað skyldu
Bandaríkjamenn vera búnir aö græða
mikið á Frelsisstyttunni eöa Frakkar á
Eiffelturninum. Eg vU láta reisa Hel-
reiðina yfir Vesturlandsveginn í Tíða-
skarðinu. Hún þyrfti að vera nokkuð
há, svona 60 metrar upp í haus. Það
væri hægt aö hafa fundasal í magan-
um. Eg fer innan skamms í aö gera
plön og ljósmynda þetta og sendi síðan
íslensku þjóðinni tUlögurnar til um-
sagnar. Helreiöin ris trúlega ekki um
mína daga þannig að það kemur trú-
lega i hlut annarra að sjá um fram-
kvæmdir. En með nútíma tækni á þetta
ekki að vera nokkurt mál. ”
En málverkið; verður framhald á
sýningum innanhúss þrátt fyrir stór-
brotnari áætlanir?
„Eg er orðinn svolítið leiður á sýn-
ingum. Það er orðið svo mUciö af sýn-
ingum og þær verða pinulítið sterUíser-
aðar. Samt á ég ekki von á að ég losni
við trölUn í bráð. Þau eiga örugglega
eftir að sækja á mig á næstu árum. En
þaö getur vel verið að þau eigi eftir að'
þróast út í eitthvað allt annaö. I upp-
hafi teiknaði ég tröUin „eðlUeg” en það
var ekki nógu gott. Síðan hefur þetta
verið að þróast og á vonandi eftir að
gera það enn. Ef til viU verð ég farinri
áömála kvenfólk áður en ég veit af.
Eg ætla að reyna aö komast til Kan-
ada og athuga hvaö lifir af gömlu sög-
unum þar. Mig langar tU að prófa það
og vökva svoUtið rætumar. Vestur-Is-
lendingar hafa áhuga á gömlu sögun-
um og hvi skyldi maður ekki kanna
þann jarðveg nánar.
Nú, í fyrra fór ég í postulínið og hef
verið að gera tilraunir með það í vetur.
Ég fékk að vera á verkstæði hjá vini
mínum og mátti leika mér eins og ég
vildi. Eg mála á postulínið með sér-
stakri aðferð til að fá áferöina slétta.
Pensla nota ég aldrei og hugsa að ég
kunni það ekki. Það þarf ekki að
pensla. Eg nota olíuUti, tréliti, kol og
pastel. PensiU kemur hvergi nálægt
myndunum. Puttarnir eru bestir. Það
er gott að mála með puttunum pg
VEXTIR BANKA OG SPARISJÓÐA (%l
innlAn med sérkjörum is | |
SJA sérlista i! 11 II Jl II il Jl II II Ú
innlAn óverðtryggð
SPARISJÖOSBÆKUR öbundn inintaóa 24.0 244) 244) 244 244 24.0 244 24,0 244 24.0
SPARIREIKNINGAR ](. mNað. uppúgn 27 4 284 274) 274 274 274 274 27A 274 27.0
6 mánaóa uppsögn 364) 394 304) 314 364 31,5 314 30.0 314
úaMiKrá 324) 34.6 324) 31.5 324
18 mána&a uppsogn 374) w.« 374
SPARNAOUR - LANSRÉTTUR Sparað 3-5 mánuði 274) 274 274 274 274 274 27,0
Sparað 6 mán. og maai 31,5 30.0 274 274 314 30.0 30.0
INNLANSSKlRTEINI Ti 6 mánaða 324) 34.6 30,0 314 314 31,5 324 314
tCkkareiknmgar Avisanvaðirangar 224) 224) 184 114 194 194 194 194 184
Hlauparaðmingar 19,0 164) 184 114 194 124 194 194 184
innlAn verdtryggd
SPARIREIKNINGAR 3p mánaða uppsöpn 4.0 44) 24 0.0 2.5 14 2.75 14 14
6 mánaða uppsöyi 6.5 6,5 34 3.5 3.5 34 34 2.0 3.5
innlAn gengistryggd
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandadkjadolarar 9.5 94 94 8.0 74 . 74 74 74 84
Starfingspund 10.0 9.5 104 114 104 104 104 104 8.5
Vastur þýsk mötfi 4.0 44) 44 54 4.0 44 44 44 44
Danskar krðma 10.0 9.5 104 94 104 104 104 104 8.5
útlAn óverðtryggd
AIMENNIR VlXLAR (lorvaxta) 314) 314) 314 314 314 314 314 314 314
VIÐSKIPTAVlXLAR (forvaxtá) 324) 32.0 324 324 324 324 324 324 324
ALMENN SKULOABRÉF 344) 344) 344 34.0 34,0 34.0 34.0 344 344
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 354) 354 354 35,0 354 354
HLAUPAREIKNINGAR Yfwdráttur 324) 324 324 324 324 324 32.0 324 32.0
útlAn verðtryggo
skuldasrEf Að 2 1/2 árí 44) 44 44 4.0 44 44 44 44 4.0
Langri an 2 1/2 ár 54) 54 54 5.0 54 54 54 54 54
útlAn til framleiðslu
VEGNAINNANLANDSSOLU 244) 244 244 24,0 24,0 24,0 244 24.0 24.0
VEGNA ÚTFLUTNINGS SDR raðinánynt 94 94 84 94 94 94 94 94 9.5
G.K.
Sérverslun með
'SKRIFSTOFUHUSGOGN
' _ _ ______ _ _ Skemmuvegi
A. GUÐMUNDSSON -
Sími 73100