Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Qupperneq 1
Frjálst, óháð dagblað DAGBLAÐIЗVÍSIR 97. TBL. - 75. og 11. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1985. Niðurstöður rannsóknar á tíu Islendingum: AIDS-MOTEFNIFINNSTI ÍSLENSKUM BLÆÐARA „Það hefur fundist einn blæðari sem myndað hefur mótefni gegn veiru sem veldur sjúkdómnum AIDS. Fyrir nokkru var á vegum Blóðbankans gerð rannsókn á tíu Islendingum erlendis. Þá fundust tveir menn sem myndaö höfðu umrætt mótefni. Blæðarinn var annarþeirra.” Þetta sagði Olafur Jensson, yfir- læknir Blóðbankans. Olafur sagði að annar mannanna hefði síðan gengist undir staðfest- ingarpróf. Þar hefði sannast að hann myndaði mótefnið. Blæðarinn hefði hins vegar ekki fengið niðurstöður úr slíku prófi enn og því væri ekki hægt að fullyrða að hann myndaði mótefni gegn AIDS-veirunni þótt það hefði fundist við frumrannsókn. Aðspurður hvenær Blóðbankinn gæti hugsanlega hafið rannsóknir á blóðgjöfum kvað Olafur hann alls ekki tilbúinn til þess enn. Að vísu hefði hann yfir að ráða lítilli rannsóknarstofu sem notuð hefði verið til að greina lifrarbólguveiru B. Stofuna mætti nota til rannsókna á blóðgjöf um. Hins vegar yrði aö koma til heimild til slíkra rannsókna, aukin fjárveiting og mannafli, til að hægt væri að hefja þær. Mætti gera ráð fyrir að sú viðbótarstarfsemi kostaöi 3—4 milljónir, miðað við rekstrarkostnað Blóðbankans. Þá sagði Olafur aö einnig þyrfti að koma upp sérstakri rannsóknarstofu fyrir áhættuhópa, þ.e. þá sem virtust við frumrannsókn hafa myndað mótefni gegn AIDS. -JSS Eyðilegt er um að litast I aðalvinnslusal fyrirtækis- ins. í glugganum stendur að lokað só vegna árs- hátíðar. DV-mynd KAE. / Aj«t ýf f* " +? ^ -r' \ i4<t 4 Lokuðu vegna árshátíðar—opna ekki á ný: Skyndileg stöövun Benson i Heimilislæknar hættakvöid-og helgarvóktum — sjábls.2 Víetnamtíu árumeftir strídslok -sjábls, 10-11 • Skmmí auglýsingum — sjábls.6 Benson, innréttingaverslunin, er hætt starfsemi vegna erfiðleika í rekstri. Arshátíð fyrirtækisins var haldin á föstudagskvöldið. Um helgina var svo hringt í starfsfólkið og því til- kynnt að starfseminni væri hætt. Benson fyrirtækið er til húsa að Borgartúni 27 í Reykjavík. Hjá fyrir- tækinu unnu allt að 30 manns. Fyrir- tækið sérhæfði sig í beyki, svokölluðu beykilímtré. Skyndileg stöðvun fyrirtækisins hef- ur komið á óvart. Það kom starfsfólk- inu líka á óvart. Árshátíð fyrirtækisins var haldin uppi í Skíðaskálanum í Hveradölum á föstudagskvöldið og allt virtist eðlilegt. Það var svo um helgina sem hringt var í starfsfólkið og því tilkynnt form- lega að rekstrinum væri hætt. Nokkrir þeirra mættu þó til vinnu í gær, mánu- dag. Það var svona veriö að ganga frá. Fyrirtækið lagði eingöngu áherslu á beyki í framleiðslu sinni. Það var með allt tréverk innanhúss, smíðaði stiga, sjáeinnigbaksíðu fataskápa, baðinnréttingar svo og eld- húsinnréttingar. Markaður fyrirtækisins var mestur í Reyk javík en þó nokkuð var líka selt út á land , mest af eldhúsinnréttingum. Benson hefur auglýst mikið undan- farið, til dæmis í sjónvarpinu. Reynt var að rífa söluna upp en allt kom f yrir ekki; einu stærsta innréttingafyrirtæki landsins hefur verið lokað. -JGH íslenskt hugvitog eituríyfjasmygi — sjábls.4 Áttamilljónum dollararænt — sjábls.9 Heimsókní reiöskóla Fáks sjábls. 34-35

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.