Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Side 35
DV. ÞRIÐJUDAGUB 30. APRIL1985. 35 Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tiðarandinn Tiðarandinn Hákon Róbert fnr hér hjélp móður slnnar við að festa é sig hjélminn. MOÐIRIN FYLGDI SYNINUM „Eg var mikið á hestbaki í sveitinni í fyrrasumar.” Það er Hákon Róbert Jónsson, 9 ára, sem þetta mælir. „Eg kann að beisla, kemba og veit alveg hvemig á að fara að hestum. Svo veit ég líka hvemig á að leggja á hest.” — Hvers vegna fórstu þá í reiðskól- ann? „Það var kona sem mamma þekkir sem sagði mér af þessum námskeið- um. Hún ráðlagði mér að fara svo að ég lærði undirstöðuatriðin alveg upp á hár. Svo ætlar hún að leyfa mér aö fara á bak sínum hestum þegar ég er búinn á þessu námskeiði. Eg á nefnilega ekki hest sjálfur. Kannski fæ ég hann í fermingargjöf,” segir Hákon ákafur og með það er hann rokinn að beisla. „Mamma, hjálminn” Þetta var fyrsti tíminn hans Hákonar. Móöir hans stóö álengdar og fylgdist með honum. „Ég vildi fylgja honum svona í fyrsta skipti. Nei, ég hef sjálf ekkert verið á hestum. Hákon var aftur á móti mikiö á hestbaki í Biskupstungunum þar sem hann var í sveit í fyrra. — Langar þig ekkert á bak? „Eg veit það ekki, ég er satt að segja hálfsmeyk við hestana. Ég hef ekkert kynnst þeim. En það getur vel verið að ég drífi mig á námskeið fyrst sonurinn erbyrjaður.” „Mamma, komdu með hjálminn,” kallar Hákon utan úr giröingu þar sem hann er að búa sig undir að fara á bak. Móðir hans fer út í bíl, sækir hjálminn og hjálpar Hákoni að festa hann tryggilega á sig. Það er enginn hesta- maöurán hjálms. „Margir koma aftur og aftur” „Það eru i rauninni mörg nám- skeið i gangi í einu,” sagði Hrönn Jónsdóttir, umsjónarmaður reiðskól- ans, þegar hún var spurð hvemig kennslunni þar væri háttaö. Nem- endur geta byrjað á námskeiði hve- nær sem er. Hvert námskeið er fimm skipti, tveir tímar í senn, og kennt er eftir hádegi alla daga vikunnar. Fjöldi nemenda í hverjum tima er misjafn, svona á bilinu 5—8.” Námskeiðin í ár byrjuðu 20. mars. Þau munu standa fram i lok maí en þá verður skólinn færður upp í Salt- vík. Þar er hann starfræktur á sumr- in í samvinnu við Æskulýðsráð. Skemmtilegt áhugamái A námskeiðunum eru nemendum kennd undirstöðuatriði hesta- mennskunnar, t.d. taumhald og að leggja á. Reiðskólinn sér nemendum fyrir hestum og reiðtygjum. Flestir, sem taka þátt í námskeið- unum, eru byrjendur á aldrinum 8— 12 ára. Fæstir hafa áöur komið á hestbak. Hrönn var spurðaöþví hvenær hún hefði fengið áhuga á hestamennsku. „Eg man það ekki glöggt, en ég hef verið i kringum hesta síðan ég var lítil.” — Af h verj u fórstu að kenna ? „Eg frétti af því að þetta starf væri laust og sótti um. Eg hef lesið mér nokkuð til um hesta og einnig sótt námskeið. Þetta er þriðja eða fjórða árið sem ég kenni héma.” — Hafa námskeiðin verið vel sótt? „Já, það hefur verið góð þátttaka. Krakkarnir eru mjög áhugasamir. Margir þeirra koma hingað aftur og aftur á námskeið, enda er hesta- mennskan mjög skemmtilegt áhuga- máL” „Alveg frábært” „Vá, ætlarðu að taka viötal við okkur?” sögðu vinkonurnar Silja Kristjánsdóttir og Sigrún Omars- dóttir einum rómi þegar blm. tók þær tali inni í hesthúsi. „Já, er það ekki alveg tilvalið?” „Jú, jú” varsvarið. — Hvað hafið þið farið í marga tíma? „Þetta er seinasta skiptið hjá okkurídag.” — Hvers vegna fóruð þið í reiðskól- ann? „Eg sá auglýsingu í DV frá Fáki,” segir Silja. Ég hringdi strax í Sig- rúnu og spuröi hana hvort hún væri ekki til í aö koma á hestanámskeiö. Hún var til í það og við létum innrita okkur sama dag. Svo hef ég líka gaman af að vera í kringum hesta, mér þykir svo vænt um þá.” „Ég þekki líka marga sem eiga hesta og langar að læra að sitja hest,” bætirSigrún við. — Þið eigiö þá ekki hesta sjálfar? „Nei, ekki ennþá a.m.k. Eg fæ kannski einn í fermingargjöf,” segir Sigrún. „Eg á ekki hest heldur,” seg- irSilja. „Eg vildiaðégættieinn.” „En við getum fengið að fara á bak hjá fólki sem við þekkjum þegar okk- ur langar til. Svo verðum við báöar í sveit í sumar og þar fáum við örugg- lega aö fara á hestbak. Bæirnir eru báðir í Rangárvallasýslunni þannig að við getum farið saman í útreiðar- túra. Þaðverðurfrábært.” — Hafið þið lært undirstöðuatriði hestamennskunnar á þessu nám- skeiði? „Já, við kunnum alveg orðið að beisla og leggja á. Við höfum reynd- ar báðar verið dálitiö á hestbaki áður en við komum á námskeiðið þannig að við getum líka báðar setið hest.” — Hefur þessi tími í reiðskólanum verið skemmtiiegur? „Já, alveg frábær,” svöruðu þær stöllur. ,Er þetta ekki alveg frébært?" Sigrún og Skjóni stinga saman nefjum. Hrönn sýnir Hákoni hvernig é afl festa tauminn. Hann haffli reyndar beislafl éflur i sveitinni en allur er varinn góflur. Texti: ÞorsteinnJ. Vilhjáimsson Myndir: KristjánAri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.