Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Side 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. APRlL 1985.
13
Gullna hliðið
I flokka- og embættismanna-
kerfinu á Islandi er til himnaríki.
Þar eru menn sem eru svo
sannfærðir um eigið ágæti að það
hvarflar aldrei að þeim að þeir eigi
að lifa svipuðu lífi og fólkið á jarðar-
borunni fyrir neðan þá. Þetta er
himnaríki allsnægta sem birtast t.d.
í sérdeilis hagstæðum bifreiöahlunn-
indum. Það er reyndar alveg óljóst
hvers vegna íbúar þessa himnaríkis
þurfa sérstök bifreiðakjör. Enginn
veit á hvaða vegum himnaríkis þeir
eru úti að aka. Þaö skiptir okkur
jarðarbúanna vafalaust litlu máli
því vegir þeirra þama uppi eru víst
órannsakanlegir.
En vistin í þessu ríki himnanna
virðist erfiö og ströng því þar eldast
menn þrisvar sinnum hraðar en
jarðarbúarnir. A.m.k. er talið
nauðsynlegt að þeir njóti fullra líf-
eyrisréttinda eftir aöeins 15 ára
starfsaldur.
Hér hafa verið tekin dæmi um kjör
ríkisbankastjóra. En það búa vafa-
laust fleiri i þessu riki sérkjaranna.
Hve margir toppar opinberra fyrir-
tækja og stofnana skyldu vera á
frium bílum og njóta annars konar
og fjölbreytilegra sérkjara? Ætli
Landsvirkjun hafi ekki keypt bíla
undir sína forstjóra?
Hver hefur eftirlit?
Lykla-Pétur fjórflokkanna leyfir
engum að skyggnast inn í himininn.
Hann heldur dyrunum lokuðum,
nema rétt á meðan útvöldum sálum
ervippaðþarinn.
En tveim duglegum dagblöðum
lánaðist að kíkja inn um stundar-
kom. NT sagði frá því hvemig allir
fjórflokkarnir hefðu allt frá 1970
staðið vörð um bílafríðindin og
Helgarpósturinn sagði frá lífeyris-
réttindunum.
Nú er það umhugsunar virði að það
voru dagblöð sem skýrðu frá himna-
ríkiskjörunum í ríkisbönkunum.
I öllum ríkisbönkunum eru hins
vegar bankaráö sem eru kjörin af
Alþingi. Þar sitja meira að segja 9
alþingismenn. Réttlæting fjór-
flokkanna á þessu ráðslagi er sú að
þingið eigi að hafa eftirlit fyrir hönd
þjóðarinnar.
Athugum það nánar. Stefán Val-
geirsson alþingismaður hefur verið
um skeið í bankaráði Búnaðar-
bankans. Hann ætti að hafa vitað um
ráðningarkjör bankastjóranna lengi.
Ætli hann hafi beitt sér sérstaklega
fyrir afnámi þessa sérréttinda- og
bitlingakerfis? Var hann ekki sjálfur
að reyna að koma sér í bankastjóra-
stól? Ætli þeir Tómas Ámason og
Lárus Jónsson hafi verið ötulir tals-
menn þess í þingflokkum sínum áður
en þeir fóru í bankastólana að þetta
hákjarapukur væri afnumið?
Sameinaðir stöndum vér
Staöreyndin er sú að um þetta allt
A „Flokkarnir kjósa ekki bankaráð
til að hafa eftirlit fyrir hönd
þjóðarinnar. Þeir vilja sitja þar allir til
að hafa höndina hver á öxlinni á öðrum
og ábyrgjast samtrygginguna.”
„Kerfið fðr þé á taugum þegar i Ijós kom, að Alþýðuflokkurinn hafði ekki kjörfylgi til að koma að manni i
bankaráðum. Af hverju mátð þá ekki lúta þekri kosningu og lýðræðWegu niðurstöðu að Alþýðuflokkurinn ekv
fakflega missti aám mannT"
GUÐMUNDUR
EINARSSON,
ALÞiNGISMAÐU R i
BANDALAGI JAFNAÐARMANNA
hefur rikt mesti einhugur í öllum
flokkum. I þeim öllum eru menn sem
vona að einhvem tíma komist
flokkurinn þeirra í þá aöstöðu aö
setja þá í poka og fleygja þeim inn
fyrir gullna hliðiö eins og sálinni
hansJóns.
Flokkamir kjósa ekki bankaráð til
að hafa eftirlit fyrir hönd þjóðar-
innar. Þeir vilja sitja þar aiiir til að
hafa höndina hver á öxlinni á öðrum
og ábyrgjast samtrygginguna.
A.m.k. fannst Sjálfstæöisf lokknum
hann endilega þurfa aö tryggja
Alþýðuflokknum sæti i banka-
ráðunum fyrir jól. Kerfið fór þá á
taugum þegar í ljós kom að Alþýðu-
flokkurinn hafði ekki kjörfylgi til að
koma að manni í bankaráöum. Af
hverju mátti þá ekki lúta þeirri
kosningu og lýðræðislegu niðurstöðu
að Alþýðuflokkurinn einfaldlega
missti sinn mann? Af hverju gekk
maður undir manns hönd í það í
marga daga í öllum skúmaskotum
þingsins að koma kratanum ein-
hvem veginn inn? Var þaö ekki af
þvi að þeir eru öruggastir þegar þeir
eru þama allir? Þá eiga þeir sam-
trygginguna vísa og stuðninginn við
mannaráöningamar, lánin og aðrar
þær fýrirgreiðslur sem fjórflokka-
kerfiðbyggirá.
Guðmundur Einarssson.
Bandalag jaf naðarmanna
gegn landsbyggðinni
Bandalag jafnaöarmanna hélt
landsfund i haust og kaus sér for-
mann sem væntanlega á að fylgja
fram „stefnu” Bandalagsins. Af
lestri stjórnmálaályktunar lands-
fundarins er hins vegar fátt að finna
sem varðað getur vegferð þeirra á
sviði landsmála. Þar er sú leið póker-
spilarans valin að gefa fátt til kynna
nema það sem helst getur blekkt.
Hlutverk formanns og landsnefnda
verður því væntanlega að hlera
almenningsálitið og taka stefnuna í
hverju máli með hliðsjón af því.
Stefnan verður því stefna líðandi
stundar. Yfirskrift stjórnmála-
ályktunar BJ er: „Nýtt afl, nýjar
leiðir”. Ekki er þar fjallað um
spurningu höfuðkratans um það
hverjir eigi Island. Hins vegar er
vandi þjóðarinnar talinn stafa af
kjördæmapoti og sérhagsmuna-
vörslu stjómmálamanna. Vanda
þjóðarinnar ætlar BJ að leysa með
því að fækka kjördæmum í eitt og
efla sjálfsstjóm héraöa (væntanlega
gömlu kjördæmin?) auk þess að
brjóta á bak aftur fámennisvald SIS.
Ekki er í lítið ráðist. Er nú komið
nokkuð annað snið á valddreifingar-
hugmyndir Bandalagsins sem ýmsir
frambjóðendur þess töldu í síðustu
kosningum vera franskrar ættar og
voruaðalmálBJ.
Ekki var það efnisrýrð ályktunar
Bandalagsins sem fékk mig til þess
FH IHDTELLDFTLEtOI 8 |
■•I;1 1 {{
| I í I
1 1 n |í 1 ^ ! 1 11 II Sf fl
„Af lestri stjómmáiaályktunar landsfundarins er hins vegar fátt að
finna sem varðað getur vegferfl þeirra á sviði landsmála."
„Stjómmálaflokkur, sem ætlar
öörum þræöi að byggja tilveru sína
á því að ala á ófriöi meö þjóðinni og
draga landshluta til ábyrgðar um
ástand í þjóðfélaginu, getur tæplega átt
formælendur, nema í hópi grínista.’
11
STURLA BÖÐVARS-
SON
SVEITARSTJÓRI,
STYKKISHÓLMI
að drepa niður penna heldur
tilraunir Bandalagsins til þess að
gera stjórnmálamenn landsbyggðar-
innar ábyrga fyrir því sem kallað er
„vandi þjóðarinnar”. Er þar
væntanlega bæði átt við sveitar-
stjórnarmenn sem og þingmenn
þegar talað er um kjördæmapot í
ályktun þeirri sem glumdi í fjöl-
miölum. Þegar talað er um kjör-
dæmapot í þessum og þvílíkum hópi
er venjulega átt við baráttu fyrir
eflingu atvinnulífs, t.d. endurnýjun
togaraflotans á landsbyggðinni eða
uppbyggingu nýrra fyrirtækja. Þessi
árátta, sem nú er staðfest í stjóm-
málaályktun, er vægast sagt
furðuleg vegna þess að a.m.k.
nokkrir af forystumönnum Banda-
lagsins (þar á meðal formaöur) ættu
að vita að nóg er komið af áróðri
gegn landsbyggðinni og tilraunum til
þessaö kljúfalandiðuppístríðandi
hagsmunasvæði. Slíkur mála-
flutningur er stórskaðlegur og ef til
vill jafnhættulegur og áhrif SlS í
þjóöfélaginu.
Stjórnmálaflokkur, sem ætlar
öðrum þræði að byggja tilveru sína á
því að ala á ófriði með þjóðinni og
draga landshluta til ábyrgðar um
ástand í þjóðfélaginu, getur tæplega
átt formælendur, nema í hópi
grínista. . .. „
Formaður BJ verður engu að siöur
að gefa skýringar á árásum á lands-
byggðina og þá menn sem staðið
hafa í ströngu við að tryggja stöðu
byggðanna.
Bandalagsmenn verða að „taka
höndum saman og hætta að bulla og
fara að gera eitthvaö” svo vitnað sé
til orða formannsins, í stað þess að
beina því til þjóðarinnar.
Sturla Böðvarsson
sveitarstjóri Stykkishólmi.