Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Side 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIL1985. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Bolin ritstjóri tekur mjög undir með verjendum að norsk leyniskjöl hafi verið auðvelt að fá. Það kann að rýra mjög gildi upplýsinganna sem Treholt lét Sovét- mönnum í té. Treholt: Leyniskjöl á glámbekk — vitni fékk auðveldlega skjöl um af leiðingar brottreksturs varnarliðsins frá íslandi Lasse Qvigstad, saksóknari í Tre- holt-málinu, mun í dag eða ó allra næstu dögum flytja ræðu fyrir dóm- stólnum í Osló þar sem hann mun krefjast þess að Arne Treholt verði hnepptur í fangelsi fyrir njósnir. Dag- blaðið norska segist hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að hann muni krefj- ast þess að Treholt verði dæmdur í 15 ára fangelsi. Verjendur munu halda fram sak- leysi Treholts og munu kref jast þess að hann verði látinn laus. Treholt heldur því f ram að þeir f und- ir sem hann átti með sovéskum leyni- þjónustumönnum hafi veriö venjulegir fundir sendimanna tveggja ríkja, jafn- vel þó þeir hafi haft samsæriskennt yfirbragð. Nú er búið að spyrja síðasta vitnið í Treholt-málinu spjörunum úr. Það var Frederik Thorstein Bolin, ritstjóri Moss Avis. Hann var fréttamaður Aft- enposten í Brussel árin 1970 til 1976. Hann sagöi réttinum að aðgangur að leynilegum upplýsingum hefði verið mjög auðveldur fyrir blaöamenn, sér- staklega hjá Evrópubandalaginu. Bolin ritstjóri gaf eitt dæmi. Hann þekkti sendimann hjá Atlantshafs- bandalaginu. Þessi sendimaður lét hann fá afrit af skjali sem fjallaði um afleiöingamar fyrir norska öryggis- hagsmuni ef bandariski hervöllurinn í Kef lavík yrði lagður niður hér á landi. Verjendur hafa sagt að svo mikið hafi verið af norskum leyniskjölum í umferö að ekki hafi verið um njósnir að ræða þó Treholt hafi tekið þátt í að leka slíkum skjölum. Auk þess hafi sk jölin f lest verið tiltölulega meinlaus. Norska sjónvarpið segir að yfirvöld hafi ihugað að setja Treholt sendiherra á Islandi til að koma honum eitthvað þangað sem hann gæti ekki stundaö njósnastarfsemi á sérlega áhrifaríkan hátt. I staðinn var honum hleypt inn í norska vamarmálaskólann. Þetta var árið 1982. Atta milljónum dollara rænt úr peningahvelfingu Næststærsta rán í sögu Bandaríkjanna en þó skildu ræningjamir 12 milljónir eftir Fjórir grímubúnir ræningjar brutust uðuáföstudag. Kvikmyndatökuvélar innan Wells inn í miðstöð Wells Fargo-flutningafyr- Lögreglan er ekki í vafa um að ein- Fargo-miöstöðvarinnar mynduðu allt irtækisins í New York og höfðu á brott hver innan fyrirtækisins hafi veitt ræn- rániö en lögreglan vill ekki láta uppi með sér þaöan um átta milljónir doll- ingjunumupplýsingar. hvaðmyndirnarsýnahenni. ara í peningum. — En þeim sást yfir tólf milljónir dollara sem urðu eftir. Er þetta næststærsta peningarán sem framið hefur verið í Bandaríkjun- um. I desember 1982 var ellefu milljón- um dollara rænt úr brynvagnafyrir- tæki, sem annast flutninga á peningum og öðrum verðmætum, eins og Wells Fargo. Lögreglan fann yfirgefinn brynvagn frá Wells Fargo, sem ræningjarnir höfðu notað til undankomunnar. Höfðu þeir skilið hann eftir undir Brokklyn- brú. I samstarfi við alríkislögregluna, FBI, hefur New York-lögreglan góðar vonirumaðupplýsamálið fljótt. Ránið var framið á sextán mínútum. Ræningjarnir höföu brotið með sleggj- um múrvegg til þess að komast inn í geymslu fyrirtækisins og biðu þar fjög- urra varða sem opnuðu eldtrausta pen- ingahvelfinguna. Handjámuðu þeir verðina, hlóðu peningum í brynvagn og flúðu. I peningahvelfingunni munu hafa verið um 20 milljónir dollara í vörslu, var komið þar fy rir eftir aö bankar lok- Opinberír starfc- menn í verkfalli Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- Ljóst er nú orðið að meir en 20 þús- þjónustu munu hefja verkfall á manniDVíSvíþjóð: und sænskir starfsmenn í opinberri fimmtudag. — „Hið opinbera er búið að missa af lestinni. Möguleikamir á samkomulagi áður en verkfalliðskell- ur á em ekki lengur fyrir hendi,” sagði Rune Larsson, talsmaður opinberra starfsmanna. „Jafnvel þótt nýtt tilboð kæmi er tíminn of naumur til þess að við gætum tekið afstöðu til þess,” sagði hann enn- fremur. Þar sem verkfallið nær aðeins til lít- ils hluta opinberra starfsmanna munu áhrif þess ekki verða mjög veruleg fyrst í staö, en talsverö truflun mun þó verða til dæmis á samgöngum, kennslu í skólum og bamagæslu á dagheimil- um. TVO SKAL GRYTA Samkvæmt íslömskum lögum í Ir- an er búið að höggva aðra höndina af fimm þjófum, og íranskir dómstólar hafa skipað að tveir hórkarlar verði grýttir til dauða. Mortaza Moqtadaei, talsmaður hæstaréttarráðs í Iran, sagði að þessar tölur giltu fyrir níu mánaða tímabilið fyrir janúar á þessu ári. A þessu tímabili voru 160 manns húðstrýktir fyrir ýmis brot, svo sem kynmök utan hjónabands. Einn mað- ur var dæmdur til dauða fyrir kyn- villu. Moqtadaei sagöi að 19 moröingjar hefðu verið teknir af lífi, enda hefðu ættingjarnir ekki beðið þeim griða. Samkvæmt íslömskum lögum geta ættingjarnir gert það og borgaö „blóðpeninga” til að ættingjanum verðihlíft. Hættir Honecker for- mennsku? Honecker lét í veðri vaka að hann ætlaði að láta af formennsku en ekki forsetaembætti. Frá Ásgeiri Eggertssyni, fréttarit- ara DV í Miinchen: Samkvæmt heimildum, sem vestur-þýska tímaritið vitnar í, mun Eric Honecker, formaður austur-þýska kommúnistaflokks- ins, láta af embætti á næsta ári. Blaðið segir að Honecker hafi látið orð falla í þá veru í nánum vinahópi. Erich Honecker mun þó ætla að gegna áfram embætti sem forseti A-Þýskalands. — Hann er nú 72 ára gamall. Eftirmaður Honeckers í for- mannsembættinu á að veröa Egon Kranz, góður vinur Honeckers og ráðherra í ríkisstjórninni. • 20 tommu fjarstýrt litasjónvarp. • 8 stöðva val. • Quick-start In-liner myndlampi. • Tengi fyrir hátalara og segulbandsupptökur. m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.