Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Side 12
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. APRlL 1985. 12 Frjálst.óháÖ dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og Otgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 684411. Auglýsingar: SfDUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverö á mánuði 330 kr. Verð í lausasölu 30 kr. Helgarblað35kr. Slagorö og staðreyndir Ræðumenn munu brýna raustina á morgun, 1. maí. Ýmsir verða baráttuglaðir og gera miklar kröfur. Aðgát skal höfð. Flestir viðurkenna, að við bætum ekki lífskjör okkar með vísitölubindingu kaups eða miklum, almenn- um krónutöluhækkunum. Hið síðara sést á reynslunni af síðustu kjarasamningum. Alþýðusambandið lýsir nú yfir, að kaupmáttur tíma- kaupsins mimi um mánaðamótin ágúst-september verða 3—4 prósentum lakari en hann var, áður en síðustu samn- ingar voru gerðir í fyrrahaust. Sé þetta rétt, sýnir fátt betur kórvillu þeirra samninga. Þjóðarbúið stóð ekki undir hinum háu kauphækkunum. Því glötuðust þær. Menn skyldu einnig athuga, að vísitölubinding launa tryggir ekki kaupmáttinn heldur verðbólguna. Það sýnir fyrri reynsla af slíku. Það er ömurlegur sannleikur, að við erum að dragast aftur úr öðrum þjóðum í lífskjörum. Framleiðsla þjóðar- innar óx þó í fyrra í fyrsta sinn síðan 1981. Skýringin var aukning útflutningsframleiðslu. En í ár spáir Þjóðhags- stofnun aðeins eins prósents aukningu framleiðslu þjóð- arinnar. Þetta gerist á sama tíma og grannþjóðir okkar eru margar hverjar að komast úr öldudal og auka fram- leiðslu sína mun meira. Því vex munurinn á þeim og okk- ur og fleiri fara fram úr okkur. Aðalvandamál í efnahagsmálum okkar eru halli á við- skiptum við útlönd, erlend skuldasöfnun og verðbólga. Hallinn á viðskiptum við útlönd var í fyrra 6 prósent af framleiðslu þjóðarinnar. Því olli einkum aukning á al- mennum vöruinnflutningi og mikil vaxtabyrði af erlend- um skuldum. Áfram er í ár reiknað með viðskiptahalla, sem nemi meira en 5 prósentum af framleiðslu þjóðarinn- ar „og má nær alfarið rekja til mikilla vaxtagreiðslna til útlanda”, segir Þjóðhagsstofnun. Þegar stöðugur halli er á viðskiptum við útlönd, vaxa erlendu skuldimar. Vaxtagreiðslumar til útlendinga taka æ meira af afrakstri okkar framleiðslu, svo að minna verður eftir fyrir okkur sjálf. Verðbólga er í rénun síðustu vikur. En ræðumennimir 1. maí kunna að ráða miklu um, hvert framhaldið verður. Kjarasamningar eru flestir uppsegjanlegir frá 1. sept- ember. ASI-menn ræða nú, hvort flýta megi samningum og hækka kaup strax í vor. Líklega er flestum orðið ljóst, að við höldum ekki í við aðrar þjóðir um lífskjör nema til komi ný viðhorf, meðal ann- ars í kjaramálum. Spámar um eitt prósent aukningu þjóðarframleiðslu á þessu ári og vaxandi erlendar skuldir sýnir, að við kom- umst ekki áfram að óbreyttu. Tvennt þarf til fyrst og fremst: nýsköpun í atvinnulífi og stöðugleika í efnahagsmálum. Verðbólga er einhver versti óvinur launþegans. Það ætti öllum að vera ljóst. Verðbólga er einnig óvinur flestra fyrirtækjanna. Oðaverðbólgan dregur úr fram- leiðslunni. Erfitt er að ímynda sér, að við bætum okkar lífskjör að ráði á næstunni án stöðugleika í efnahagsmálum. Verði nýjar greinar byggðar upp á næstunni til þess að auka framleiðsluna, þurfa þær sérstaklega á stöðugum efnahag að halda. Þessu mega ræðumenn og kröfugöngumenn 1. maí ekki gleyma. Hávær hróp um bættan hag skila launafólkinu engu. Haukur Helgason. Ný hlunnindi — ný stefna Þaö voru fáir farþegar eftir í flóa- bátnum Baldri, þegar búiö var aö losa í Flatey, og Jón Dalbú, skipstjóri haföi í önnum við að stýra skipi sinu um flókiö skerjahafið milli eyjanna, því tuttugu og tveir snúningar voru borö í borö á rattinu. Rafstýrið var bilað. En þaö aftraöi honum þó ekki frá því aö koma viö í Skáleyjum, þar sem leiðin er svo þröng, aö svört skerin strjúkast nánast viö kalt stálið í byrðingnum og þú sérö þangið bærast við síðurnar. En áfram plægöi Baldur azúrblátt eyjahafiö meö 22 snúninga í borö, og manni varö ósjálfrátt hugsað til þjóðarskútunnar sem er stirö um þessar mundir, enda þunglestuð af heimspeki og beinagrindum Evrópu- kommúnismans, svo ekki sé meira sagt. Þenpan dag var annar dagur í sumri, og því komin harpa meö fína sólstafi og landið og fjörðurinn baöaöi í sumri svo langt sem augaö eygði, eða frá Hagatöflu að Brjáms- læk, sem núorðið er skrifaöur meö N- i, en ekki M-i eins og til forna', og hef ur nafnið þar meö minni vigt bæði á prenti og í f ramburði öllum. A leiðinni inn í Vatnsfjörðinn spjallaði ég við bóndann frá Barða- strönd, sem nú var á heimleið með fjölskyldu sína til að taka á móti sumrinu, sem ekki var samt sárs- aukalaust. Búiö var aö skera allt hans fje út af riöu, og fjölskyldan þanneigin séð verklaus, og varð aö vera það í tvö löng ár, eða án kind- anna, sem voru einu húsdýrin, því verið var aö uppræta riðuveikina, ýmist með skurði, eöa með öðrum hávaðasamari aðferðum. Bóndi án búsmala Ég vil ekki neita því hér, að mér var það nokkur ráðgáta, hvaö bóndi hefði fyrir stafni, eftir aö búið var með bréfi að skera allt hans fje, svo ég áræddi að spyrja og þá kom í ljós aö hann var á leiðinni til þess að sjá fallegt og til að fara á grásleppu, en hann reri úr Haukabergsvaðli. Og þar framleiddi hann, eins og nú er sagt, grásleppuhrogn. Saltaði líka grásleppu og hengdi. Dg eftir rúmt ár, eða svo, fær hann aftur að hafa kindur. Heilbrigt fje, og þá fellur alit íljúfa löð. Þetta þykir ef til vill ekkert merkilegt, en segir okkur þó að víða má hafa nokkra nyt af hlunnindum til sveita, en ég gleymdi þó aö spyrja hann hvort enn væri farið í skarf í Stórfiskasker. Hvort enn væri sel- veiði, hrístekja og skógarhögg, eða reki, því nú sló Jón Dalbú af sinni gnoö og lagðist fimlega upp aö tré- bryggjunni á Brjámslæk, meö 22 snúninga í borðiö. Svo var byrjað að hifa bíla og gáma í land og um borö, Eftir helgina JÓNAS GUÐMUNDSSON RITHÖFUNDUR og viö virtum fyrir okkur landiö á meðan, baöaðísól. Allt virtist með sömu ummerkjum og seinast. Allt var á sínum staö, kirkjan og surtarbrandsgiliö í dalnum, en niðri við ströndina voru þó komnar skemmur, sem benti á nýja drift, enda eru menn nú aftur byrjaðir aö stunda þarna útgerð. Veiða meöal annars hrefnu. Við virtum einnig fyrir okkur Breiðf jörð, þann eina staö á Islandi, þar sem menn höfðu aldrei oröiö svangir, þótt plágur gengju yfir landið. Yst var Oddbjamarsker, þar sem blýtappi er haföur í vatnsbólinu, því það fer undir sjó á flóði, svo Sauðeyjar, Hergilsey og Skáleyjar, eða hvað þær nú annars hétu þessar eldfornu matarkistur, sem núorðið eru flestar aðeins nýttar yfir sumarið, því önnur úthöld hafi hingað til þótt betri, en þar sem tím- innstóökyrr. Byggö er nú aftur að koma í Flatey og einnig í sumar af betri eyjunum og einhver sagöi að mikil auöæfi væru enn ósnert í skel í firðinum norðan- og innanverðum, því nú mun sá matur vera talinn dýrastur og bestur, sem á árum áður var í hæsta lagi notaður í beitu. Nýja hlunnindastefnan Því miöur missti ég of fljótt af bóndanum sem geröi út úr Hauka- bergsvaðli, af því að búiö var að ganga frá fjám hans og bústofni. Og þótt efstu brúnir fjalla væru hvítar eftir lurkinn sem gerði í byrjun vikunnar, var alit svo undarlega bjart og vorlegt. Fuglar himmsins annaðhvort á flugi eða á sundi. Selur og grásleppa moggaði í ládeyðunni og einhvers staðar sunnar voru menn í þangskuröi, því verið er að loka hryllingsbúðinni á Islandi fyrir fullt og fast. Menn hafa nefnilega loks komið auga á það, aö meö hinum svo- nefndu hefðbundnu atvinnuvegum hefur þjóðin ekki lengur í sig og á. Nær daglega er sagt frá hinum nýju úrræðum. Loödýrabúum, laxa- stöðvum, orkuverum, heitu vatni, gufu, frystitogurum, rækju- trollurum, stóriðju og efnum, sem við á vonarvölinni kunnum varla aö bera í munni. Bændur eru meira aö segja aftur byrjaðir aö veiöa silung í * net niöur um ís og senda sem gjald- " vöru á markað að vetrarlagi. Þetta eru sumsé hin nýju úrræöi ' Islands. Ný hlunnindi og sem dæmi k um verömætin, þá fá Norðmenn nú T meira fyrir eldislax sinn á • Bandaríkjamarkaði en fyrir flökin 1 en sem kunnugt er, þá ræöst peningaleg hamingja Islendinga einkum af verði á þorskblokk og flökumá Bandaríkjamarkaði. Maður bankar því í tré á svona ögurstund í atvinnu og munaði, því innst inni vitum viö að þessa þjóö vantar fyrst og fremst auknar tekjur, en ekki breytt hlutaskipti, þótt jöfnuður sé af hinu góða. Hver einasti maður, svo að segja, hefur því komist á þá réttu skoöun aö nýgreinar hljóti nú aö blómstra í landinu, þar sem hamingjan hefur undanfarin ár einkum byggst á ofsjónum og flökum. Einokunarverslun í hættu? Því er heldur ekki aö leyna, aö manni brá dálítið í brún, þegar maður byrjaði að lesa handritin frá dauöahafi Mjólkursamsölunnar, sem nýverið hélt aðalfund sinn í þungu skapi. Jörðin er nefnilega byrjuð að gliðna og bændauppreisn á næsta leiti, ef ekkert verður aðgert. Hið merka frumvarp, sem landbúnaðarráðherra hefur látiö semja, hittir þá nefnilega illa. Aö vísu er Mjólkursamsalan sterkt fyrirtæki og traust, en er ekki gefiö fyrir siðbreytingu, svona vægast sagt. I ályktun aðalfundarins segir „aö ekki verði annað séð en aö fella eigi niður ákvæði núgildandi laga um verömiðlun mjólkur á sölusvæði Mjólkursamsölunnar og fella þaö undir samningsgerð milli fram- leiösluráðs annars vegar og annarra mjólkursamlaga hinsvegar og/eða ákvörðun landbúnaðarráðherra um skipan sölusvæða og verkaskiptingu á milli mjólkursamlaga. Þá virðist stefnt að því að fella niður einka- sölurétt á ferskum mjólkurvörum á Samsöiusvæöinu og heimila öðrum að selja sínar vörur þar.” Ennfremur: „Þetta ákvæði gæti leitt til þess að sölustöövarnar eyddu á skömmum tíma eignum sínum í hallarekstur”, en með orðinu sölustöð mun vera átt við Undan- rennumusterið mikla. Við á Samlagssvæðinu vitum auðvitaö aö þetta er rétt. Þetta gæti til dæmis þýtt þaö að Mjólkurbú Flóamanna breyttist aftur í mjólkur- stöð og setti ódýra mjólk á femum á markaðinn í Reykjavík og aö grautarhúsið í Borgarnesi byrjaöi aö nota mjólkurpökkunarvélarnar fyrir mjólk, jógúrt, eða þann þykka rjóma er Sigurður Guðbrandsson gerði fræganumalltland. Þannig er þaö nefnilega í útlöndum, aö ef lægra verð fæst frá einum framleiðanda en öðrum, — þá kaupa menn það sem ódýrara er, því gæðin fýlgja yfirleitt hagkvæmni í rekstri. Það er því dálitiö draugaleg staöreynd, þegar stærsta og fullkomnasta mjólkurstöð landsins, virðist ekkert hafa að óttast, nema samkeppni. Vonandi taka þingmenn frumvarpinu þó fagnandi. Þaö gerumvið. Jónas Guömundsson rithöfundur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.