Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1985, Síða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. APRIH985. Bókin bersögla: Göða ferð til Parls- ar. Sagan um Trehoitog frúáíslensku: Góða ferð til Parísar Góöa ferö til Parisar, bókin hennar Kari Storækre, sem olli öllu fjaðrafok- inu í Noregi í vetur, er komin út á ís- lensku. Bókin seldist grimmt í Noregi, enda Kari eiginkona Ame Treholt. Ame Treholt hefur nú setiö í ein- angrunarfangelsi í 15 mánuði, grunaö- ur um njósnir. Handtaka eiginmanns- ins hefur komið þungt niður á Kari og 5 ára syni þeirra, Þorsteini. Góða ferð tU Parisar er sögð hispurs- laus bók þar sem Kari lýsir meðal ann- ars hugarkvölum sínum vegna þeirrar leyndar sem hvíldi yfir lögreglurann- sókninni. „Eg vissi ekkert hvað eiginmaöur minn hafði brotið af sér, hvort hann var sekur eða saklaus,” segir Kari. Góða ferð tU Parisar er 175 blaðsíöur og skiptist í 14 kafla. Það er Fjölva-út- gáfansemgefurbókinaút. -JGH Ókeypis brúð- kaupsferð til Júgóslavíu Nýgiftum hjónum stendur nú til boða að fara í brúðkaupsferð til Júgóslavíu, þeim algjörlega aö kostnaöarlausu. Það em Samvinnuferðir-Landsýn sem bjóða upp á ferðina í samvinnu við júgóslavnesk ferðamálayfirvöld. Þetta er í annað sinn sem Islendingum er boöin þátttaka. A hverju ári er haldin brúðhjónahá- tíð í PUtvice þjóðgarðinum í Júgó- slavíu. Taka brúðhjón víðs vegar úr heiminum þátt í henni. Samvinnuferöir-Landsýn lýsa eftir brúðhjónum sem áhuga hafa á þessari ferð. öllum hjónum sem gifst hafa á þessu ári er boðið að senda inn um- sókn. Skily rði fyrir þátttöku em þessi: Hjónavígslan hafi farið fram á tíma- bilinu 1. janúar 1985 — 20. maí 1985. Þetta verður að vera fyrsta hjónaband beggja. Maðurinn má ekki vera eldri en 30 ára og konan ekki eldri en 28 ára. Þau þurfa að tala eitt eöa tvö erlend tungumál. Starf annars aöilans verður að tengjast, eða hafa tengst, menningu listum eða vísindum. Fjögurbáknfyríreitt „Tilraun til að slá ryki í augu kjós- enda,” sagði Svavar Gestsson, for- maður Alþýðubandalagsins, í gær á Al- þingi eftir að forsætisráðherra, Stein- grímur Hermannsson, hafði mælt fyrir þremur stjórnarfrumvörpum um ný- sköpun atvinnulífs og sjóða í neðri deild. Svavar gagnrýndi frumvörpin og sagði að hvergi væri tekið á málum til eflingar atvinnulifs í frumvörpun- um. Hér væru aðeins á ferð loftfimleik- ar stjórnarflokkanna. Taldi hann að með breytingum þessum, sem frum- vörpin boða, væri verið að skerða vald Alþingis og auka báknið. Fram- kvæmdastofnun, sem ætlunin mun vera að leggja niður, heyrir undir ríkis- stjómina en verðandi Þróunarfélag, Byggðastofnun og Framkvæmdasjóð- ur Islands munu heyra undir forsætis- ráðherra. Formaður Alþýðubanda- lagsins sagði að hér væri verið að búa til fjögur bákn í kerfinu fyrir fleiri for- stjóra og embættismenn. -ÞG Matthías Bjamason samgönguráðherra: Næsta stórverkefnið ný fíugbraut á Egilsstöðum „Næstu stórverkefni á sviöi flug- mála verða ný flugbraut á Egilsstöð- um og varaflugvöllur fyrir utan- landsflugið. Hvað varðar Reykjavíkurflugvöll hefur enn ekki verið tekin ákvörðun um framtíð hans en það mál er í höndum svokallaðrar flugvalla- nefndar.” Þetta sagði Matthias Bjarnason samgönguráðherra í skýrslu til landsfundar Sjálfstæðisflokksins. I framhaldi af þessum orðum spurði DV ráðherrann hvort þetta þýddi að flugstöö fyrir Reykjavíkurflugvöll yrði sett aftur fyrir flugbraut á Eg- ilsstööum og varaflugvelli: „Því get ég ekki svarað á þessu stigi. Það verður að meta og vega á hverju liggur mest. Eg tel að af öll- um þessum framkvamdum liggi langmest á nýjum flugvelli á Egils- stöðum. Hann verður ófær í leysing- um á vorin. Eg held að það sé ekki neitt áhorfsmál,” sagði Matthías. Um þaö hvort varaflugvöllur fyrir utanlandsflugið ætti að koma á und- an flugstöð í Reykjavík sagöi sam- gönguráðherra: „Það verður að ráðast af því hvaða tiUögur eru gerðar af flugmálayfir- völdum á hverjum tíma og hverjar f járveitingar tU flugmála verða.” — Hvar telur þú að varaflugvöUur eigi að bygg jast upp? „Það Uggur ekki alveg fyrir. Það bendir margt tU þess að þaö verði á Sauðárkróki. En það liggur ekki al- vegfyrir.Eg bíö eftir einu áliti, frá flugvallanefnd. önnur nefnd, sem var undir forsæti Jóhannesar Snorrasonar flugstjóra, hafði lagt tU Sauðárkrók og fjölmargir aðUar aðr- ir,” sagði Matthías Bjamason. -KMU. Áætlun um flugvelli „Það er lagt tU að byggð verði ný flugbraut á EgUsstöðum í stað þess- arar gömlu. Flugbrautin verði flutt nær bakka Lagarfljóts,” sagði Birgir Isleifur Gunnarsson, formaður flug- vaUanefndar, sem fyrir nokkru skU- aði skýrslu um framtíð Egilsstaða- flugvallar. „Við erum einnig að skoöa vara- flugvöU og gera heildaráætlun um uppbyggingu flugvalla á Islandi, hvaða kröfur eigi að gera til flug- vaUa og hvaða útbúnaður eigi að vera á þeim. Við erum ekki komnir að niður- stöðu um hvar varaflugvöllur eigi að vera. Á sínum tíma var samin skýrsla á vegum Flugmálastjórnar þar sem fjórir staðir voru aðallega athugaöir. Það voru Akureyri, Sauð- árkrókur, Egilsstaðir og Húsavík.” Birgir Isleifur sagði að flugvaUa- nefnd væri einnig að athuga bygg- Egilsstaðaflugvöllur. Nœsta stórvarksfni I flugmólum varflur afl byggja nýja flugbraut nœr Lagarfljóti vegna aurblaytu sam kemur & vorin I nú- verandi flugbraut. ingu flugstöðvar í Reykjavík og stað- setningu hennar. Fyrir liggur að ágreiningur er á miUi Flugmála- stjómar og Flugleiða um staðsetn- ingu flugstöðvar við Reykjavflcur- flugvöU. Um forgangsröð stórverkefna í flugmálum sagðiBirgirlsleifur: „Það er Alþingi sem endanlega ákveöur það. Það er mjög erfitt fyrir mig aö segja nokkuð um það. Við gerum engar tiUögur um það, tökum eiginlega Reykjavíkurflugvöll út úr sem sjálfstætt verkefni. Síðan verði því raðað inn í þessa flugvallauppbygg- ingu.” Hann sagði að nefndin myndi leggja til að í framtíðinni yrði gerð flugvaUa- áætlun eins og vegaáætlun. -KMU. |J0fl|L J JjWmÆimJmÆ Höfum fyrirliggjandi eftirtalda varahluti: Húdd................ uno í allar gerðir: Aðaiijós.............uno Kúplingsbarka Ailfboddíhiuti:::::::::::::::::: uno Handbremsubarka Hjóikoppa............uno Felgur Loftnet..............uno Ljósarofa Toppgrindur.........UNO Vatnskassarofa Skrautlista........... UNO , Skíðaboga............UNO Uliurota Pústkerfi............132 Pakkningasett Hijóðkúta............127 Spegla Allar bón- og hreinlætisvörur. Olíudælur og vatnsdælur. Ennfremur höfum við úrval varahluta á lager og ítollvörugeymslu. Komið við og kynnið ykkur FIAT-þjónustu I ~'f7 I// FIAT einkaumboo a íslanoi 7/ iVi!Wl\khW!l:iJMmMKrllmm //davíd sigurðsson hf. // . Smidjuvegi 4. Kopavogi. Simar 77200 /Z. S“!DJUVEGI 4- KÓPAVOGI. SÍMI 77200. / /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.