Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1985, Blaðsíða 2
2
DV. FÖSTUDAGUR16. AGUST1985.
Óþarfí aö blanda
Þorsteini Páls-
synií umræöuna
— segir Albert Guðmundsson um „lekann”
„Þetta eru ekkert ööruvísi umræíiur
heldur en yfirleitt eiga sér stað þegar
pólitíkusar fara af stað til aö reyna
aö nota mál sjálfum sér til fram-
dráttar,” sagði Albert Guömundsson
fjármálaráðherra vegna þeirrar
miklu umræðu sem verið hefur í
framlialdi af sölu hlutabréfa ríkis-
sjóðs í Flugleiöum.
A viðskiptasíöum Morgunblaösins
í gær er nafn Þorsteins Pálssonar,
formanns Sjálfstæðisflokksins,
dregiö inn í umræðuna um það hver
lak upplýsingum um tilboð Birkis
Baldvinssonar. Velt er vöngum yfir
því hvort Albert Guðmundsson kunni
að hafa skýrt frá efnisatriðum í
tilboði Birkis á vikulegum fundi
ráðherra Sjálfstæðisflokksins með
formanni flokksins.
,,Ég skýrði ekki frá tilboðinu þar
og ég sé enga ástæðu tii aö blanda
formanni Sjálfstæðisflokksins inn í
þetta mál. Ég skýrði honum ekki frá
þessu. Eini vettvangurinn þar sem
ég skýröi frá þessu var ríkisstjórnar-
fundur. Ef menn vilja vita hvaðan
lekinn kemur er best aö spyrja Flug-
leiöir,”sagði Albert.
Hann kvaðst ekkert hafa á móti því
að rannsakaö yrði hvaðan lekinn
kom.
,,Ég er reiðubúinn til þess að gefa
upplýsingar til hvers sem er. Ekki
bara rannsóknarnefnd. Þaö getur
hver Islendingur sem vill,
einstaklingur eða hópar, komiö
hingað og fengiö allar þær upplýs-
ingar sem hann vill um málið. Hann
getur fengið aðgang að því að
rannsaka það sem hann vill í þessu
máli.
En ef einhver getur sagt mér
hvaða leið er betri til þess aö nífalda
hlutaféö frá fyrsta boöi — því að
þetta var boðið út á sínum tíma og
tilboð opnuö á ákveðnum tíma. Þá
var hæsta boð sjö milljónir króna.
Nafnverð sem sagt. Á tíu ára skulda-
bréfi. Það var frá Starfsmannafélagi
Flugleiða.
Og ég verð að segja alveg eins og
er. Ég átti ekki von á tilboði frá Flug-
leiðum eftir þau ummæli sem for-
ystumenn þess höfðu viöhaft,” sagði
Albert.
-KMU.
Blindrafélagsmálið:
„Framkvæmdastjórinn hefur
dregið að sér verulegt fé”
— segir Hallvarður Einvarðsson rannsóknarlögreglustjóri
„Rannsókn málsins miðar vet
áfram. Það má segja að hlutur fram-
kvæmdastjórans sé uppiýstur í megin-
atriðum,” sagði Hallvaröur Einvarðs-
son, rannsóknarlögreglustjóri ríkisins,
í samtali við DV. ,,Það er ljóst að fram-
kvæmdastjóri félagsins hefur dregið
að sér verulegt fé í starfi úr sjóðum
þessara samtaka,” sagði Hallvarður.
Aðspurður sagði rannsóknarlög-
reglustjóri aö hann væri ekki reiðu-
búinn aö nefna neinar f járhæðir í þessu
sambandi, né vildi hann tjá sig um
hvort fjárdrátturinn stæði eingöngu í
sambandi við happadrættisstarfsemi
Blindrafélagsins.
Framkvæmdastjóranum var sleppt
úr gæsluvarðhaldi í fyrradag. Upp
komst um málið þegar endurskoðandi
Blindrafélagsins kom auga á hnökra í
bókhaldinu. I kjölfar þess bað stjórn
félagsins um opinbera rannsókn og
framkvæmdastjórinn var settur af.
-EH.
Vodkalækur á Kleppsveginum
Drjúgur vodkalækur myndaðist á Kleppsvegi skömmu eftir hádegi i gær. Vörubíll kom akandi neðan úr
bæ mefl farm af Smirnoff-vodka á leifl í vörugeymslur ÁTVR, Stuðlahálsi. Lögreglan ók framhjá og hugfl-
ist kanna hvernig hlaflið væri á bilinn og gaf merki um stöflvun. Vodkabillinn hemlaði en ekki tókst betur
til en svo afl stæflan riðlaðist öll og féll fremsti hluti hennar i götuna. Vifl það brotnafli töluvert af flöskum
og streymdi innihaldifl um götuna. Annar bíll og öruggari var kvaddur á vettvang og var farmurinn borinn
yfir i hann. Viðstaddir munu ekki hafa fundifl á sér vifl lækinn.
-pá/DV-mynd S.
Tveir piltar sem voru á vélhjóli hlutu rispur og skrámur þegar ökumaður
missti vald á því á Bústaðavegi í fyrrakvöld. Var vélhjólamaðurinn að taka
tram úr bíl sem var beygt inn Ásgarð með ofansögðum afleiðingum.
-EH/DV-mynd S.
Stúlkan sem vann
málið gegn borginni
— við birtum enn nokkra kafla úr hinum
athyglisverða dómi Bæjarþings Reykjavíkur
Viö birtum áfram hluta úr dómi
Bæjarþings Reykjavíkur í máli
tvítugu stúlkunnar í Garðabæ gegn
borgarsjóði og DV hefur greint frá
undanfarna daga.
Stúlkan datt 11 ára úr rólu á
leikvelli í Garðabæ og missti tvær
framtennur í efri gómi og laskaði sex
tennur í þeim neðri.
Stúlkan fór á slysadeild Borgar-
spítalans. I dómsmálinu, sjö árum
síðar, snerist allt um það hvort
stúlkan hefði komið meö tennurnar
með sér á slysadeildina og hvort
mistök hefðu átt sér stað er
tannígræðsla var ekki reynd.
Stúlkan staðhæfði í máli sínu að
önnur framtönnin hefði verið hálf-
laus, þegar hún kom á slysadeildina
og hina heföi hún haft með sér. -JGH.
„Sú lausa” tekin
úr með pinsettu?
„Foreldrar stefnanda (stúlk-
unnar) hafi engar kröfur gert á
hendur stefnda fyrr en í ljós hafi
komið í byrjun árs 1983 aö stefnandi
þurfti aö bera hluta kostnaöar vegna
smíöi brúar.
Foreldrar stefnanda höfðu engar
fyrirætlanir um að gera neinar
kröfur vegna þessa atviks og sé því
engin ástæða til aö ætla að þau hafi
ekki skýrt satt og rétt frá öllu.
Einnig sé bent á greinargerð
Sigurjóns H. Olafssonar, tannlæknis
á Borgarspítala, á dskj. nr. 14 en þar
segi m.a. „Að vel íhuguöu máli er
mjög ólíklegt, að foreldrar
sjúklingsins heföu nokkurn tímann
nefnt úrdrátt á tönn hér á staðnum ef
einhver fótur heföi ekki verið fyrir
því. Er til dæmis hægt aö ímynda sér
að sú tönn sem enn laföi í munni hafi
verið það laus, að vakthafandi læknir
hafi einungis þurft að fjarlægja hana
meðpinsettu.””
Nokkrum línum neðar segir:
„Hvað varði það er segir í greinar-
gerö læknaráðs Borgarspítalans
(dskj. nr. 21) um það að viðkomandi
aöstoðarlæknir telji „með ólikindum
að hann hafi dregið úr tönnina” sé
bent á fyrrgreinda ábendingu
Sigurjóns Olafssonar um að tönnin
kunni að hafa verið svo laus að hægt
hefði verið að fjarlægja hana með
pinsettu.. .
... I greinargerð læknaráðs
Borgarspítalans sé megináhersla
lögð á að ekki sé sannað að önnur
tönnin hafi veriö dregin úr á slysa-
varðstofunni.”
Athygli er vakin á aö í þessum
kafla dómsins er veriö að segja frá
hluta af rökum stúlkunnar fyrir
dómskröfu sinni.
Til útskýringar þá er pinsetta það
þegar ekkert hald er í tönninni og því
þarf ekkert átak til að fjarlægja
viðkomandi tönn. Þegar tannlæknar
pinsetta tönn nota þeir litla töng, þá
sömu og þegar þeir fjarlægja til
dæmis bómull úr munni við tann-
viðgerðir. -JGH.
Torveldar dómurinn
hjálp á slysadeild?
„Auk þess sem ósannað sé með
öllu aö mistök hafi átt sér stað í með-
ferð stefnanda á slysadeildinni sé
engin vissa fyrir því að tannígræðsla
hefði tekist þótt hennar hefði verið
kostur og hún reynd.
Tannlæknir stefnanda (stúlk-
unnar) telji möguleikana á því að
græða lausa tönn „e.t.v. 70—90%”
sbr. dskj. nr. 5. Jafnvel þótt á áliti
þessu væri byggt, sé óvissan um það
hvort koma hefði mátt í veg fyrir
tjón stefnanda svo mikil að hvergi
nærri sé fullnægt almennum skil-
yröum skaöabótaréttarins um bóta-
skyldu.
Þá verði að undirstrika aö enginn
eigi kröfu á því að læknishjálp,
hversu góö sem hún sé, komi í veg
fyrir tjón. Sérstaklega hljóti þaö að
eiga við um skyndihjálp í slysatil-
fellum, eins og veitt sé á slysadeild
Borgarspítalans. Væri þaö beinlínis
til þess falliö að torvelda þá hjálp og
þjónustu sem þar er veitt, ef ganga
ætti svo langt í því að leggja bóta-
skyldu á þá sem þar vinna eins og
krafist sé i þessu máli. ”
Og við vekjum athygli á því að
þessi hluti er tekinn upp úr umf jöllun
dómsins á rökum borgarinnar fyrir
sýknu.
-JGH.