Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1985, Side 5
DV. FÖSTUDAGUR16. AGUST1985.
5
Rís stóriðja milli BlönduóssogSkagastrandar?
Heimamenn velta fyrir sér
mögulegu hafnarstæði
„Heimamenn hafa rætt viö
iðnaðarráðuneytiö, stóriöjunefnd og
staðarvalsnefnd og í framhaldi af
þeim viðræðum var ákveðið að gera
þarna dýptarmælingar,” sagði Sig-
fús Jónsson, sveitarstjóri á Skaga-
strönd, en Húnvetningar hafa verið
að velta fyrir sér möguleika á að
gera höfn á ströndinni milli Blöndu-
óss og Skagastrandar í sambandi við
stóriðju á svæðinu. „Hugmyndin er
að þarna rísi stóriðjuver sem nýtti
orku úr Blönduvirkjun. Enn eru
menn ekki farnir aö velta fyrir sér
hvers konar framleiðsla yrði þarna
enda er það í raun stóriðjunefndar að
segja til um það. Málið er enn allt á
byrjunarstigi en heimamönnum hef-
ur sýnst að það sé möguleiki á góðri
höfn við bæina Syðriey og Eyjakot.
Þar er eyja skammt undan landi og
ef hún yröi tengd því væri þegar
kominn skjólgarður fyrir væntan-
lega höfn. Þessar dýptarmælingar
ættu aö skera úr um hvort hafnar-
aðstaða sé möguleg þarna.”
Sigfús sagði aö þetta breytti hug-
myndum manna um hafnargerð á
Skagaströnd og Blönduósi. Höfnin á
Skagaströnd er þegar mikið notuð,
meðal annars af aðkomubátum en á
Blönduósi hafa sjómenn verið að ýta
á sveitarfélagið með að bæta hafnar-
aðstöðuna þar. Slíkar framkvæmdir
yrðu vafalaust kostnaðarsamar.
Hins vegar, ef að höfn yrði gerð við
stóriðjuna, þá mætti nýta hana fyrir
aðkomubáta og báta frá Blönduósi.
„Menn eru ekkert farnir að líta á
þetta sem raunhæfan hlut ennþá,”
sagöi Sigfús. „Þetta er bara hug-
mynd sem menn eru uð vinna að.”
-JKH.
Þetta er eyjan sem Húnvetningar
telja að gæti nýst sem skjólgarður
fyrir stóriðjuhöfn milli Blönduóss
og Skagastrandar.
DV-mynd PK.
ÁVONÁ JÁKVÆÐ-
UM VIÐBRÖGÐUM
— frá Kísilið junni og iðnaðarráðherra, segir formaður Rannsóknastöðvarinnar við Mývatn
„Okkur hafa ekki borist svör
ennþá, enda gáfum við þeim frest til
20. þessa mánaðar, en ég á von á því
að viðbrögðin verði jákvæð,” sagði
Þóroddur Þóroddsson, formaður
stjórnar Rannsóknastöðvar Náttúru-
verndarráðs við Mývatn, í samtali
viöDV.
Náttúruverndarráð hefur boðið
iðnaöarráðuneytinu og Kísiliðjunni
að skipa fulltrúa í fimm manna
nefnd sérfræðinga til að vera ráðgef-
andi fyrir stjórn Rannsóknastöðvar-
innar varðandi komandi rannsóknir
á lífríki vatnsins og áhrifum efnis-
töku Kísiliðjunnar á það. I vor neit-
aði Náttúruverndarráð að tilnefna
mann í fjögurra manna nefnd
iðnaðarráðherra sem hann skipaði
til þessara rannsókna. Taldi ráöiö aö
það ætti að leiöa rannsóknirnar sam-
kvæmt lögum.
„Við erum þegar byrjaðir að vinna
úr þeim gögnum sem safnast hafa á
undanförnum árum,” sagöi Þórodd-
ur.
— Er langt starf framundan?
„Þaö er erfitt að dæma um það
hversu langt það er. Hins vegar
hefur Líffræöistofnun gert áætlun
upp á þrjú til fjögur ár. Vísinda-
mennirnir, sem við þetta starfa,
gera sér grein fyrir aö þetta eru
mjög viðamiklar rannsóknir og
tímafrekar þótt ekki séu þær mann-
frekar.”
— Hversu mikið fjármagn hafiö
þið til þessa á þessu ári?
„Á fjárlögum höfum viö 1,3 millj-
ónir. Það er að vísu mestallt bundið,
helmingurinn til endurbóta á rann-
sóknastööinni sjálfri, um 250 þúsund
við landvörslu, svo sem launakostn-
að og rekstur á bílum, og jafnmikið
eða meira vegna kostnaöar við rekst-
ur rannsóknastöðvarinnar. Hins veg-
ar fengum við nýlega einnar milljón
króna aukafjárveitingu til rann-
sóknarstarfa á þessu ári. Á næsta ári
höfum við svo sótt um tvær og hálfa
milljón tii þess. Hversu fljótt þessar
rannsóknir ganga svo fyrir sig ræðst
aö mestu leyti af fjármagninu sem
við höfum,” sagði Þóroddur.
Nefnd sú sem Náttúruverndarráð
hyggst skipa verður skipuð fimm
mönnum. Þrír veröa skipaðir af
rannsóknastöðinni, fjórði frá Kísil-
iðjunni og sá fimmti frá iönaðarráð-
herra ef þeir tveir síðarnefndu
þiggja boöið. -KÞ.
Framkvæmd-
um á Laugar-
nesi frestað
A fundi bargarráðs nú í vikunni
var ákveðið að fresta ölium
ákvörðunum um skipulag á Laugar-
nesinu. Á að kanna nánar hvort ein-
iiverjar fornleifar er að finna á
nesinu.
Eins og DV hefur skýrt frá hefur
Borgarskipulag unnið aö skipulagi á
Laugarnesinu í Reykjavík að undan-
förnu. Stóð til að taka ákvöröun þar
að lútandi í sumar. Var meiningin að
leggjavegþarum.
Margir borgarar risu þá upp og
mótmæltu því aö hróflað yrði við
nesinu. I framhaidi af þvi ákvað
borgarráö að fela umhverfismála-
nefnd að láta kanna nánar hvort ein-
hverjar fornleifar væru þar. Á
meðan þær kannanir fara fram er
öllum framkvæmdum þar skotiö á
frest. Ekki er um neina timasetningu
að ræöa á þeim fresti.
-Kl>
■
Hafnarfjarðarlögreglan
losnar úr prísundinni
— útboð í innréttingar
„Þaö er búið að samþykkja að
heimila útboð í innréttingar í nýju lög-
reglustöðina í Hafnarfirði,” sagði Þor-
steinn Geirsson, ráðuneytisstjóri í
dómsmálaráðuneytinu, í samtali við
DV.
„Búist er við að framkvæmdum
ljúki þarna um áramótin 1986—’87.
Það er kominn skriður á málið,” sagði
Þorsteinn.
Gamla lögreglustöðin stendur við
Suðurgötu 8 í Hafnarfirði. Þarna eru
tvö sambyggð hús, annaö byggt um
aldamótin en hitt byggt árið 1946.
Vinnueftirlitiö og Heilbrigðisráö
Hafnarfjarðar hafa lýst því yfir að að-
búnaður á lögreglustöðinni sé óvið-
unandi.
Að sögn lögreglumanns í Hafnar-
firöi þá stenst húsnæðið engan veginn
nútímakröfur. Þar vinna um 40 manns
og er unnið allan sólarhringinn.
Fangaklefarnir, sem eru rétt innan
við almenninginn, bjóöa ekki upp á
lágmarksþrifnað vegna þess hve þeir
eru gamlir og lúnir. Þar er heldur
engin loftræsting, svo megnan ódaun
í nýju lögreglustöðina
leggur um bygginguna. „Við komum
með fólk hingað í allskyns ásigkomu-
lagi og þegar ekki er hægt að þrífa
nægjanlega vel á eftir, þá byrjar auð-
vitað aö lykta,” sagði lögreglumaður-
inn.
Nýja hús lögreglunnar í Hafnarfirði
stendur á mótum Helluhrauns og
Flatahrauns. Húsið stendur tUbúiö
undir tréverk. Það var keypt fyrir
tveimur og hálfu ári en var áður í eigu
Blikksmiöju Hafnarf jarðar. -EH.
Maður á lyftara slasaö-
ist töluvert þegar lyftar-
inn valt í Traöarholti í
fyrradag. Var lyftaran-
um ekiö undan halla og
í beygju meö þeim
afleiðingum aö hann fór
á hliðina. Ökumaöurinn
tvíbrotnaöi á fæti og
skarst í slysinu.
EH/DV-mynd S.