Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1985, Síða 32
44
DV. FÖSTUDAGUR16. AGUST1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Vel lærða
Karen
Svona vilja þeir hafa leggina í
Dallas. Karen Criswell þótti hafa þá
fegurstu í fylkinu og nú velur hún úr til-
boðum um leik í auglýsingum og sjón-
varpi. Það er von að hún hafi lagt
stjarneðlisf ræðina á hilluna í bili...
■■yfí'ý Xr
.
\ ■
KOMDU EF ÞÚ ÞORIR
Buster heitir hann, þessi hvolpafaðir, og ekki beint árennileg barnapía. Afkvæmi hans eru enda með þeim
dýrustu i Bretlandi þvi faðirinn var valinn fegurstur bolabíta þar í landi á stórri og virtri hundasýningu ný-
verið.
Er Silvía óf rísk?
Þær sögur ganga nú fjöllunum
hærra í Svíþjóö að Silvía, drottning í
Svíaríki, eigi von á sínu fjórða barni.
Hugsiö ykkur, ljósmyndarar leggja
sig alla fram um að mynda drottn-
inguna á þann hátt að upp komist
hvort hún sé ófrísk eða ekki. Miklar
getgátur eru í gangi og grannt er
fylgst með klæðaburöi drottningar-
innar hvar sem til hennar sést. Það
sem hefur ýtt undir sögurnar er m.a.
klæðnaður hennar en hún hefur oft
sést í víðri peysu, aha hugsa Svíar,
hún er ófrísk. Karl Gústaf hefur ekki
tjáð sig um málið og svarað spum-
ingum rannsóknarblaðamanna á
mjög tvíræðan hátt eins og „að það
sé gott aö eiga stóra fjölskyldu” og
fleira í þeim dúr. Enn sitja menn því
sveittir í Svíþjóð og velta þessari
mikilvægu spurningu fyrir sér. Er
Silvía ófrísk?
Albert, prins af Monaco, ásamt vinkonu sinni fyrrverandi, Patriziu
Pellegrino.
Prins Albert æf ur
Prins Albert hugsar óblítt til vin-
konu sinnar, hennar Patriziu
Pellegrino, sem hann er með hér til
hliðar á myndinni. Ástæðan er sú að
stúlkan sú arna lét hafa sig i að
líkjast Grace heitinni furstafrú af
Monaco, móður Alberts, í ítalskri
kvikmynd. Eins og við sjáum á hinni
myndinni er árangurinn ótrúlegur.
Aumingja Patrizia tapaöi þarna
hugsanlegum eiginmanni og það
ekki af verri ættinni því Albert varö
svo vondur aö hann neitaði að hitta
hana aftur. Svona getur lífið verið
átakanlegt...
Patrizia í gervi Grace f urstafrúar.