Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1985, Síða 36
FRETTASKOTIÐ
(68)-@-(58)
Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um •
frétt — hringdu þá í
síma 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i '
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn..
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1985.
Evrópumót íslenskra
hesta í Svíþjóö:
Fyrstí
Evrópu-
titíllinn
íslenskur
Frá Eiríki Jónssynií Vórgárda,
Svíþjóð:
Evrópumót ísienskra hesta hófst
í Várgárda í Svíþjóö i gær meö
því að 15 kynbótahross voru leidd
fyrir dómara. Þetta er í fyrsta
skipti sem kynbótahross eru dæmd
á Evrópumóti og er dæmt eftir svo-
kölluðum FEIF-skala, en FEIF er
Félag eigenda íslenskra hesta. Ails
eru dómarar sjö, þar af tveir ís-
lenskir, þeir Þorkell Bjarnason og
Þorvaldur Árnason, en hann hefur
verið búsettur í Svíðþjóð alllengi.
Nú liggja úrsiit fyrir í kynbóta-
keppninni og í hryssukeppni sigr-
aði Hilda frá Olafsvík með ein-
kunnin: 8,21.Knapi hennar og eig-
andi er Sigurbjörn Báröarson. Þar
fengu Islendingar fyrsta Evróputit-
ilinn. I flokki stóðhesta sigraði
Gáski frá Gullberastöðum meö ein-
kunnina 8,25. Einnig var í gær
keppt í hlýðnikeppni B. Alls fóru 10
knapar í úrslit en einungis einn
islenskur er þar á meðal, Kristján
Birgisson á Hálegg. Þeir Benedikt
Þorbjörnsson á Styrmi og Hregg-
viður Eyvindsson á Fróða voru
nálægt úrslitum í 11. og 13. sæti.
Það var svissnesk stúlka, Sylvia
Dubs, sem varð efst í forkeppni á
Skollu.
I dag er forkeppni í fimmgangi,
fjórum gangtegundum, 250 metra
skeiði og víðavangshlaupi. Tæp-
lega 200 Islendingar eru staddir hér
og skemmta sér konungiega. -pá
Þurrkaður
eldsvoði
Þvottastörf geta verið varasöm.
Síðdegis i gær kviknaði í þurrkara í
íbúðarhúsi viö Engihjaiia. Var
þurrkarinn í gangi í kjállara húss-
ins en skyndilega varð vart við
mikla brælu og reyk frá tækinu.
Slökkviliðið kom á staðinn og
tókst að slökkva í þurrkaranum.
Ekki urðu skemmdir á íbúðum en
loftræsta þurfti vegna reyks. -EH.
ómissandi
LOKI
Það virðist vera kal í gras-
rótinni víðar en hjá
bændum!
Hrátt kjöt aftur til varnarliðsins:
Allur vamingur
hiá vamarliðinu
tollskoðaður
—f yrirhugað að bæta við tollvörðum
Hafinn er innflutningur á kjöti til
varnarliðsins á nýjan leik eftir að
fjármálaráðherra stöðvaði slíkan
innflutning með skipum. Undanfarn-
ar þrjár vikur hafa komið 5,6 tonn af
nautakjöti með flutningaflugvélum
hersins. Utanríkisráðuneytið telur
að þessi innflutningur sé leyfilegur
samkvæmt varnarsamningnum. Þá
hefur veriö ákveðið að heimila ekki
f jölskyldum búsettum utan vallarins
að fara með kjöt út af vellinum. Alls
eru 44 fjölskyldur utan vallarins. Þá
hefur samfara þessu verið ákveðið
að allur innflutningur til varnarliðs-
ins verði undir eftirliti tollvarða.
Fram að þessu hefur varningur á
vegum varnarliðsins ekki verið toll-
skoöaður.
Síðast í gær komu 1,9 tonn af
nautakjöti til Keflavíkurflugvallar
með flutningavélum hersins.
„Innflutningur með flugvélum
hefur reyndar aldrei fallið niður,”
segir Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
skrifstofustjóri varnarmálaskrif-
stofunnar, við DV. „Megnið af kjöt-
innflutningnum hefur komiö með
skipum en af og til með flugvélum.
Framvegis verður allt kjöt og
varningur til varnarliðsins
tollskoðað. Og Bandaríkjamam eru
því manna fegnastir að fylgst sé með
því hvað kemur inn á völlinn.”
Hann segir að þetta aukna eftirlit
muni auka útgjöld ríkisins vegna
toilgæslu ög fyrirsjáanlegt sé aö
bæta þurfi við tollvörðum.
Sverrir segir að utanríkisráðherra
sé um þessar mundir að vinna að því
að leysa þann ágreining sem er milli
f jármálaráðuneytisins og hans ráðu-
neytis.
APH
Frystigeymsla varnarliflsins ó
Keflavikurflugvelli, þar sem kjöt-
ifl er geymt. Á litlu myndinni er
flutningaflugvélin sem kom með
kjötið i gær.
DV-mynd PK
Norski báturinn við Korpúlfsstaði:
Hefur lengi verið á
flækingi i kerfinu
Norski báturinn, sem fauk og
skemmdist við Korpúlfsstaöi nú í
vikunni, hefur lengst af verið á hálf-
gerðum flækingi í kerfinu, að sögn
Gísla Árna Eggertssonar hjá
Æskulýðsráði. Margir hafa reynt að
nota hann en allir gefist upp við þaö.
Síðasta tilraunin sem gerö var til að
nota hann var þegar sjóskátafélagið
Klífir haföi bátinn en gekk
brösuglega að sigla honum. Honum
var því skilað til borgarinnar aftur
fyrir tveimur árum og hefur hann
síðan veriö í vörslu Æskulýðsráðs,
fyrst einn vetur í Nauthólsvík og svo
á Korpúlfsstöðum.
Að sögn Gísla hefur báturinn
skemmst áður, í fárviðrinu sem
gerði veturinn ’81. Þá skemmdist
hann dálítið og var gert við hann í
Bátalóni í Hafnarfirði. Gísli kvaöst
gera ráð fyrir að nú yrði leitað til
bátasmiöa um viögerð á bátnum.
Hann sagði að vandamáliö meö
bátinn heföi verið það að engin hefð
er fyrir notkun báta af þessari gerð
hér á landi, en annar eins bátur sem
gefinn var til Húsavíkur hefur þó
gengið mun betur og verið notaöur
talsvert.
Gísli Arni sagöi að mikil vinna
væri fram undan við viðgerð bátsins
norska, reiðinn er orðinn fúinn og
skipta þarf um allt tóg í honum.
-pá
Kristin Kvaran og Kolbrún Jöns-
dóttir, þingmenn BJ, eru báflar í
hinu nýstofnaða félagi, Félagi
jafnaflarmanna.
DV-mynd VHV
Átökin innan Bl:
Félagjafnaðar-
manna stofnað
„Markmiö þessa félags er að
taka af öll tvímæli um að okkur er
aivara með umræöunum í sumar,
en þessi hópur hefur hist reglulega
og rætt jafnaðarstefnuna og helstu
áherslur hennar og grundvallar-
atriöi,” sagði Kristín Kvaran
alþingismaður um stofnun nýs
félags innan Bandalags jafnaöar-
manna i gærkvöldi.
Komið var saman á Torfunni
klukkan hálfsjö og félagið stofnað,
það heitir Félag jafnaðarmanna.
Þoriákur Helgason, skólameistari
á Selfossi, er formaður, Jónína
Leósdóttir varaformaður, Kristín
Kvaran ritari og Árni Sigurbjöms-
son gjaldkeri.
— Telurðu að fólk haldi að BJ sé
að klofna? „Við óttumst ekkert í
þessu sambandi. Bandalag
jafnaðarmanna ætti ekki að klofna
vegna þess að stofnað er félag um
framgang jafnaðarstefnunnar.”
— Eruð þiö á leið inn í Aiþýðu-
flokkinn?
„Þú segir nokkuð, en sá mögu-
leiki hefur ekkí sérstaklega veriö
tekinn fyrir á fundum okkar.”
En hvað segir Guðmundur
Einarsson þingmaöur um hið nýja
félag?
„Ég hef í sjálfu sér ekkert viö
það aö athuga aö stofnað sé félag
innan Bandalags jafnaðarmanna.
Það eina sem ég hef áhyggjur af er
að fólk haldi að við séum að klofna,
að út á við verði það túlkað
þannig.” -JGH
i
\í
f
f
f
Margiráhuga-
samirum varirar-
/iðsffutningana
Sjö islensk skipafélög, eitt fær-
eyskt, nokkur bandarísk og fáein
frá meginlandi Evrópu hafa sýnt
áhuga á að bjóða í flutninga til
bandaríska herliösins á
Keflavikurflugvelli.
1 gær framlengdu bandarísk yfir-
völd frestinn til aö bjóða i
flutningana. Atti fresturinn að
renna út í næstu viku, fimmtudag-
inn 22. ágúst. Var hann framlengd-
ur til 12. september. Samkvæmt
heimildum DV mun ástæðan fyrir
frestuninni vera sú að mun fleiri
hafa sýnt áhuga á að bjóða í verkið
en bandarísk yfirvöld héldu.
Útboðsgögnin eru öll í Washington
og því mjög erfitt um vik fyrir
marga að nálgast þau, sein póst-
þjónusta og svo framvegis. Hafa
Bandarikjaraenn séð sér akk í því
aö framleng ja frestinn og gefa með
því fleirura ráðrúm til aö nálgast
gögnin.
Islensku skipafélögin sjö, sem
áhuga hafa á flutningunum, eru
Eimskip, Hafskip, Skipadeild Sam-
bandsins, Víkurskip, Nesskip,
Skipamiðlun Gunnars Guðjóns-
sonarogSjóleiðir. -KÞ
t
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4