Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Blaðsíða 4
DV. MÁNUDAGUR 26. ÁGUST1985.
Talsverð veiði í Geirlandsá á Síðu:
27 laxar, 45 bleikjur,
3 urríðar og minkur
Geirlandsá á sér langan aðdrag-
anda og safnast hún saman langt
norðan af heiðunum. Nokkrar þverár
falla í hana, stærstar eru Miðtungnaá
og Þverá. Geirlandsá hefur gefið 27
laxa, er 11,5 pund sá stærsti og veiddi
Jóhanna Stefánsdóttir hann. Var
þetta fyrsti lax sumarsins í
Geirlandsá og veiddist þann 3. júlí.
45 bleikjur hafa veiðst en ekki nema
3 urriðár ennþá og veiddi Jón R.
Ársæisson þann stærsta í vikunni, 5
punda fisk í Ármótunum og tók
fiskurinn Reflex spún.
Lax er aö finna í nokkrum hyljum
eins og í Ármótunum, Fjárhúsa-
bakka, Skóghyl og Flatarhyl. Þó
rígndi daginn sem við mættum til
veiða í ánni gaf hún ekkert meira
fyrir það. Ofsalega er langt síðan
maður hefur séð rigningu. 1 veiðibók-
inni þann 16. ágúst er skráður einn
minkur og var hann skotinn við
Tvistæðingshyl. Hefur líklega ekki
fengið tíma til aö taka agnið eins og
minkurinn forðum í Gljúfurá.
Vorveiðin í Geirlandsá gaf 92 urr-
iða og bleikjur, veiddust tveir 9
punda og voru þaö þeir stærstu. Re-
flex spúnninn gaf langflesta fiskana.
Það er gaman að dvelja við Geir-
landsá og veiöa, þó það mættu vera
fleiri fiskar í henni. En sjóbirtingur-
inn er víst á leiðinni og laxinn líka en
Geirlandsá er ein frægasta sjóbirt-
ingsá landsins og veiðast þeir oft
ótrúlega vænir og fallegir. Bara að
laxinn skemmi ekki fyrir og yfir-
taki þessa viðkunnanlegu veiðiá,
þar sem keflvískir veiðimenn eyða
mörgum stundum ár hvert.
Eitt vekur athygli þegar veitt er í
ánni og það eru góðar merkingar við
hyljina, ber að þakka það. Maður
fann þó veiðistaðina allavega, þó öllu
erfiðara væri að finna fiskinn, maður
fékkþóísoðið.
G.Bender
Sssm
Hann ar fallegur, Hagafossinn í Geirlandsá, en þar fengust bleikjur og
voru þnr smáar. DV-mynd G.Bender
Jón R. Ársælsson tekur 5 punda urriðann sporðtaki og landaði honum
skömmu seinna. DV-mynd G.Bender.
SJOBIRTINGURINN A LEIÐINNI
Marga er víst farið að klæja í lóf-
ana að komast eitthvað austur og
glíma við sjóbirtinginn. Núna er tím-
inn að kama, sjóbirtingur er víst far-
inn að sjást og farinn aö taka agnið.
Kringum Kirkjubæjarklaustur er
að finna margar frægustu sjó-
birtingsár landsins og veiðin oft ótrú-
leg. Nægir að nefna ár eins og
Fossála, Grenlæk, Laxá, Brúará,
Vatnamót og Geirlandsá.
Þegar við vorum þama í síðustu
viku hafði lítið sést af sjóbirtingi í
þeim sumum, þó var hann eitthvað
farinn að sýna sig. Ætli hann sé bara
ekki á leiðinni? En fyrir neðan
Vatnamótin hafði frést af góðri veiði
og hafði veiðst vel af fallegum sjó-
birtingi. Svo mikil er aðsóknin í
veiðileyfi að fyrir löngu er uppselt í
margar ámar og þarf aö panta með
löngum fyrirvara. Þó er séns á veiði-
leyfum í Laxá, Brúará, Vatnamótum
og Fossálum sem við nefndum hér á
undan.
G.Bender
Hreyfíngá
Þormóði
ramma?
„Okkur hefur borist erindi frá
framkvæmdastjóra Þormóðs
ramma á Siglufirði þar sem hann
fyrir sina hönd óskar eftir viðræö-
um viö ráðuneytíð um að starfs-
mönnum fyrirtækisins verði seldur
hluti rikisins,” sagði Höskuldur
Jónsson, ráðuneytisstjóri fjár-
málaráðuneytísins, í samtali við
DV.
„Við hittum framkvæmdastjór-
ann fyrir tveimur vikum og þá
báðum viö hann aö gera grein fyrir
því hverjir þetta væru og hvaöa
verð yrði um að ræöa,” sagði
Höskuldur og sagði aö ekki hefði
veriö gert meira í málinu af hálfu
fjármálaráðuneytisins.
Hlutur ríkisins er um 70% af
hlutafénu en að öðru leyti er
Siglufjarðarbær stærsti eigandinn.
Höskuldur Jónsson sagði að ríkis-
sjóður væri þó í ábyrgð fyrir lánum
sem væru mun hærri en sem svarar
eignarhlutdeild ríkisins í fyrirtæk-
inu.-pá
r mm
I
vinnslunni
Frá Ara Liebermaun, Grundar-
firðl:
Engin starfsemi er í útgerðar-
fyrirtækjunum í Grundarfiröi
þessa vikuna enda sigla báðir tog-
ararnir tíl Englands með fiskinn.
Til að leysa þetta vandamál
hefur Hraðfrystihús Grundar-
fjaröar keypt 15 tonn af fiski frá
Reykjavík. Fiskinum er síðan ekið
hingaðvestur.
Fiskleysið mun enn aukast á
næstunni vegna þess að veiðikvóti
togaranna er að verða búinn. Til
víðbótar þessu veröa allar trillur
að leggjast í höfn samkvæmt nýju
reglunum sem taka gildi 1.
september.
Minni fiskvinnslufyrirtaddn í
Grundarfirði verða einkum fyrir
baröinu á hráefnisleysinu. Eitt
þessara fyrirtækja er Stólpi hf.
sem sérhæfir sig í framleiöslu á
reyktum fiski. Þrátt fyrir aö mikil
eftirspum sé eftir slíkri vöru hér
ínnanlands og á erlendum
mörkuðum eru eigendur fyrir-
tækisins neyddir til að loka vegna
þess að þeir fá ekkert hráefni.
Þetta þýðir ekki bara atvinnuleysi
heldur tap á gjaldeyristekjum fyrir
landið.
í dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
Bannað að pissa i portum
Það ætlar ekki af bjómum að
ganga. Nýjustu tíðindin em þau, að
dómsmálaráðherra, sá sem leyfði
bjórlikið á sínum tima, hefur ákveðið
að banna það aftur. Það er að segja
banna að það sé bmggað nema
viðskiptavinimir séu viðstaddir
bmggunina. Margt hafa nú stjóm-
málamennirair okkar afrekað um
dagana en sennilega hefur Jón
Helgason sett nýtt met i dellugerð-
inni. Það dellumakarí hófst þegar
hann gerði þjóðina út af örkinni og
bauð upp á þann barbarisma í fyrsta
skipti í mannkynssögunni að hella í
sig vodka, viskii og öli úr einu og
sama glasinu. Jafnvel forhertustu
drykkjumönnum hafði ekki komið til
hugar sú tegund víndrykkju og kalla
þeir þó ekki alit ömmu sina, alkóhói-
istamir. Þá setti Jón met. Nú hefur
hann siegið gamla metið með því að
fyrlrsklpa mönnum bann við þessum
framlegu drykkjusiðum. Skýringin
mun vera sú, að ráðherranum bárast
elnhverjar kvartanir um að bjór-
þambarar pissuðu í portum, þar sem
þeir mega ekki pissa. Er. það
áreiðanlega i fyrsta skipti sem ráð-
herra á Islandi og þótt víðar væri
leitað hefur afskipti af því, hvar
kjósendur hans kasta af sér þvagi.
Mistökin hjá bjórkránum liggja sum
sé í því, að hafa ekki passað betur
upp á það, hvar gestirnir pissa,
þegar þeim er mál, og verða þessar
skýringar ekki skildar öðravisi en
svo, að ráðherrann reikni með því að
samkvæmisblöðrarnar gæti sóma
sins og pissiríið batni þegar gestirnir
sjái sjálflr þegar braggið fer fram.
Dómsmálaráðherrann okkar hefur
nefnilega ekki gengið svo langt að
banna bjórlíkið með öllu. Skiiyrðið
fyrir því, að það sé drukkið er háð
því, að kúnninn sjái það með eigln
augum, þegar blöndunin fer fram.
Hann mælir með aðferðinni
„blöndun á staðnum” eins og Sverrir
Runólfsson forðum. Þótti það snjöll
aðferð hjá Sverri þangað til hún var
reynd. Þá fór allt í handasköl. Von-
andi er að það fari ekki eins fyrir
blöndun ráðherrans.
Þetta þýðir væntanlega, að
ráðuneytið og víneftirlitið verður að
hafa gæslumenn á hverjum bar, til
að fylgjast með þeim drykkjum sem
blandaðir era ofan í kúnnana. Annað
væri ómark. Ef það stangast á við
lög og ráðherratilskipanir að fólk
blandi bjór, vodka og viskí í sama
sjússinn, er vitaskuld áríðandi að
yfirvöld landsins sjái til þess að þau
lög verði virt. í rauninnl er þetta svo
flókiö mál, að Dagfara finnst að
ráðuneytið eigi að gefa út reglugerð
um það, hvemig blanda eigi
drykkjum. Til að mynda upplýsa, að
asnl sé ekki asni, nema hrista
saman vodka og seven up. Ef
ráðherrann telur ástæðu til að skipta
sér af braggun bjórlíkis, af hverju þá
ekki af samsetningu kokkteila og
annarra vínfanga, sem menn leyfa
sér að neyta?
Það er að visu rétt og satt, að menn
pissa ekki sérstaklega úti í portum
við slíka drykkju, en ef það telst brot
á þeirri vínmenningu, sem ráðherr-
ann vill innleiða i landinu, að bragga
bjórlíki nema að kúnninn sjái til, af
hverju þá ekki að stíga skrefið til
fulls, og kveða skýrt á um vínblöndur
almennt? Þá kæmist system í gal-
skabet og p61iti.sk viðurkenning feng-
ist á drykkjuskap íslendinga.
íslenski dómsmálaráðherrann
mundi áreiðanlega vekja heims-
athygli með því að verða fyrsti
pólitíkusinn sem tæki sér það vald,
að hrista kokkteila ofan í þjóð sina.
Þá geta menn orðið fullir með
ráðherraleyfi svo framarlega sem
þeir helltu ofan i sig víninu i réttri
röð og pissuðu í salerni. Jón ráðherra
mundi þá ekki aðeins setja per-
sónulegt met og Islandsmet. Það
væri heimsmet. Fyrir utan það,
hversu gaman það verður þegar lög-
reglan fer að eltast við fyllibyttur,
sem verða fullar öðravisi en ráðherr-
ann vill að þær verði fullar!
Dagfari