Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Side 16
16
Spurningin
Hvað finnst þér um af-
stöðu dómsmálaráð-
herra til áfengismála?
Bryndís Bjarnadóttir: Mér finnst af-
staöa hans fáránleg. Ég vil meira
frelsi og þar helst sölu á áfengum
bjór.
Birgir Björgvinsson: Mér finnst
fáránlegt aö banna bjórlíkiö og nú er
aðeins tímaspursmál hvenær Svalinn
veröur bannaöur. Eg er fylgjandi
meira frelsi og áfengum bjór. Þaö er
gaman aö skreppa á krá og fá sér
kollu.
Þórir S. Hersveinsson: Eg er á móti
því að hann sé einráður í því aö
banna bjórlíkið. Annars er ég hlutlaus
varðandi þaö aö leyfa áfengt öl.
Sjálfur fer ég aldrei á krá. Margir
hafa lagt í gífurlegan kostnað meö
opnun kráa og ég er alveg á móti því
aö einn maöur geti teflt slíkum fjár-
festingum í tvísýnu meö einu penna-
striki.
Hörður Jónasson, verslunarmaður í
Víöi: Eg er mjög ósammála honum.
Eg tel aö bjórinn komi til meö aö
bæta vínmenninguna hér á landi
mikið. Hlakka til aö fá aö drekka
alvöruöl á kránum. Þá býö ég Jóni í
glas.
Þórhalla Sigmarsdóttir: Eg er ekki
sammála honum i því aö banna bjór-
líkiö á kránum. Eg fer annað slagiö
og þykir þaö ágætt. Helst vildi ég
geta drukkið alvörubjór.
Grétar Kristjánsson: Eg er alls ekki
sammála honum. Eg vil ekta bjór. Eg
fer stundum á krá og læt mér þá
nægja bjórlíki. Eg er mjög ánægður
meö krárnar.
DV. MÁNUDAGUR 26. ÁGUST1985.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Þjóðgarðsverði svarað
Eðvarð Þ. Eðvarðsson néði besta
érangri íslensks sundmanns
hingað til er hann varð sjötti í
baksundi á Evrópumeistaramótinu.
Engar myndir
f rá Evrópu-
meistaramót-
inu í sundi
Sundáhugamaður hringdi:
Mig langar aö spyrja Bjarna Felix-
son, íþróttafréttamann sjónvarpsins,
hvers vegna ekkert hafi veriö sýnt frá
Evrópumeistaramótinu í sundi sem
fram fór í Búigaríu en þar náði Eðvarð
Þ. Eðvarðsson glæsilegan árangri er hann
varð sjötti í baksundi.
Lesendasíöan sneri sér til Bjarna
Felixsonar. Sagöi hann aö ætíö væri
erfiðara aö fá myndir af íþróttamótum
sem haldin væru austantjalds. Yfirleitt
heföu Noröurlöndin samvinnu í kaup-
um þaöan en ekkert þeirra keypti aö
þessu sinni og hefði íslenska sjónvarpiö
ekki bolmagn til að standa eitt aö slíku.
Kostnaöurinn heföi oröið gífurlegur því
ekki var hægt aö kaupa myndir frá úr-
slitunum einungis heldur frá öllu mótinu.
Ferðamaður skrifar:
Ekki efa ég aö fyrir þjóögarösveröi
á Þingvöllum eru reglur staðarins
skýrar. Ekki er þó víst aö gests augu
séu honum þar sammála.
„Tjaldstæði eru greinilega merkt.
Annars staöar má ekki tjalda.” Svo
skýrt stendur þar skrifað og lítur vel
út á pappír.
Tjaldstæðamerkin sýna hins vegar
aðeins hvar tjaldsvæöi byrja en ekki
hvar þau enda. Það verður aö miða
leiðbeiningar viö hinn venjulega vel-
viljaöa en ókunnuga feröamann
(BONUS PATER FAMILIAS). Þeg-
ar hann getur ekki fundiö endimörk-
in út frá aðgengilegum leiöbeining-
um og eigin hyggjuviti þá eru tjald-
svæöin einfaldlega ekki nægilega vel
merkt.
Það er útúrsnúningur aö segja aö
þeir sem fara út fyrir ómerkt landa-
mæri tjaldsvæöanna hafi ekki lesiö
reglurnar. Vandamáliö byrjar ein-
mitt þarna, aö þeir sem lesa reglurn-
ar geta ekki fundið nein mörk vilji
þeir tjalda til hliöar viö mesta skark-
alann þegar margt er um manninn.
Megi fólk tjalda þar sem það helst
vill eins og þjóðgarðsvöröur segir,
þannig að mörk tjaldsvæöanna séu
sveigjanleg, þá veröa landveröir líka
aö sýna sveigjanleika og meta hvem-
ig fólk gengur um. Þurfi þeir aö reka
fólk af tjaldstæöi þá mættu gestir
sem koma fyrir hádegi gjarnan fá aö
vita þaö fyrir miönætti. Viö saman-
burð á Skaftafelli og Þingvöllum var
ég aðeins aö bera saman framkomu
landvarða gagnvart gestum. I tjald-
inu mínu var barn sem varö lítt
svefnsamt af hræöslu eftir heimsókn
landvarðanna. Varla þarf framkoma
landvaröa að fara eftir staðháttum.
Þar sem þeir eru margir sem á staö-
inn koma þá er þaö einungis af hinu
Séð yfir Valhöll og hluta þjóðgarðsins.
góöa aö menn viti aö hverju þeir
ganga og getur aðeins veriö í allra
þágu aö upplýsa slíkt í blööunum en
ekki bara prívat milli manna. Vil ég
aö lokum beina eftirtöldum spurn-
ingum til þjóögarösvaröar í þessum
tilgangi:
— Hvernig á hinn venjulegi feröa-
maöur aö vita, án þess aö honum sé á
það bent, hvar endimörk tjaldstæö-
anna eru? T.d. aö merkt tjaldstæöi
nær UPP AÐ GJÁ, þar sem þannig
háttar, en EKKIUPPIGJA?
— Er þaö í samræmi viö reglur
staöarins aö hávaöasamir landverö-
ir meö vasaljós veki friösama gesti
upp aö næturlagi?
— Hvers vegna fetta landverðir
fingur út í sum óleyfilega staðsett
tjöld en önnur ekki. Þar á ég viö
svæðin kringum bílastæðin, meö-
fram Hvanngjá, sem ekki eru merkt
tjaldstæði? Hvaö er á móti því aö hafa
merkt tjaldstæöi þar?
— Þar sem gengiö er upp aö
Öxarárfossi eru grasflatir sem virð-
ast í fljótu bragði ákjósanleg tjald-
stæöi. Hvaö er á móti því aö leyfa
þau þar?
— Friöaða svæöiö svokallaöa,
hvar fær hinn almenni feröamaöur
upplýsingar um staðsetningu þess?
Konur slæm-
ar í umferð
Lesandi skrifar:
Mig langar aö kvarta yfir konum í
umferðinni. Einkum þó kvenkyns bif-
reiöastjórum. Þaö er eins og þær hafi
ekki þessa meðfæddu tilfinningu fyrir
ökutækjum sem karlmenn hafa. Þær
eru sannarlega úti aö aka.
Allflestar komast þær þó í gegnum
eldraun bílprófsins og er spurningin
hvort ökukennarar, sem nær allir eru
karlkyns, láti þær njóta kynferðis síns
því veikasti blettur karlmanns er
kona. Um þaö vitnar lífiö og sagan.
Eina ráöiö viö þessum vanda er aö
fjölga kvenkyns ökukennurum, og þeir
finnast, því til eru þær konur sem eiga létt
meö aö stjóma ökutækjum, meira aö
segja stórum bdum og vinnuvélum. Og
þaö sem menn fæöast ekki með er yfirleitt’
hægt aö kenna þeim.
Bréfritari telur konur ekki jatn-
vel til þess fallnar og karlmenn
að stjórna ökutækjum.
AFBORGUNARSKILMÁLAR
STANGAST Á VIÐ KAUPALÖGIN
Kristjón Kolbeins hringdi:
Ég var aö kaupa hlut meö afborgun-
um um daginn og rak þá augun í
neðanmálsletriö. Þar voru skilmálarn-
ir tíundaöir og vakti athygli mina aö ef
seljandi heimtar hinn selda hlut til
baka á miðjum afborgunartímanum á
kaupandi engan rétt á því fé er hann
hefur greitt seljanda.
Þessi klausa stangast á viö þaö sem
efnislega stendur í kaupalögunum aö
seljandi eigi ekki rétt á aö fá hiö selda
nema kaupandi fái í staðinn það er
hann hefur reitt af hendi viö seljanda.