Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1985, Síða 27
DV. MÁNUDAGUR 26. ÁGUST1985.
27
þróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
frægu staði sem ég hef lesið um og svo
verður gaman að sjá Gullfoss og Geysi
svo fátt eitt sé nefnt,” sagði Herbert
ennfremur, glaður mjög að hafa komið
til tslands.
íslandsmet Sigurðar
Hafnfirðingurinn Sigurður Pétur
Sigmundsson varð annar í hálf-mara-
þonhlaupinu og setti tslandsmet á
vegalengdinni. Hljóp á 1:08,13,9 og
bætti metið á aðra mínútu. Hins vegar
söknuðu margir aö Siguröur skyldi
ekki keppa í maraþonhlaupinu því
hann á talsvert betri tíma en Josef
Hermann sem þar sigraði. En
Siguröur ætlar innan skamms utan til
þátttöku í maraþonhlaupi og það er
mjög krefjandi. Því lét hann hálfa
vegalengdina nægja að þessu sinni.
17 km skokkinu var þátttaka mest og
þar sigraði Hannes Hrafnkelsson.
Hljóp mjög vel og náði ágætum tíma.
Framkvæmd hlaupsins var að flestu
leyti ágæt en áhorfendur voru alltof
fáir, jafnt við markiö sem í hlaupinu
sjálfu. Otlendingarnir eiga öðru að
venjast á því sviði og létu það talsvert í
ljós eftir hlaupiö. Lítiö sem ekkert um
hvatningu á leiðinni.
Hér á eftir fara nöfn fimm fyrstu í
hverjum flokki — þó aðeins fjórar
stúlkur í maraþonhlaupinu.
Maraþonhlaup karla
1. Josef Hermann, V-Þýskal. 2:30,03,5
2. Reinhardt Bushmann, V-Þ 2:35,44,7
3. Don Rich, USA 2:41,52,1
4. Henry Richard, Bretl. 2:42,09,0
5. Martin Hunt, Bretlandi 2:50,13,2
Kvennakeppnin
1. Leslie Watson, Bretlandi 2:52,44,4
2. Lilly Viðarsdóttir, Isl. 3:33,25,8
3. HillaryJoby, Islandi 3:44,53,9
4. Linda Behrens, USA 3:45,59,8
Hálit maraþon karla
1. HerbertSteffny,V-Þýskal. 1:06,09,7
2. Sig. P. Sigmundsson, lsl. 1:08,13,9
3. DuncanScott,USA 1:09,37,5
4. JónDiOriksson, Isl. 1:11,41,6
5. Már Hermannsson, Isl. 1:13,01,7
Kvennakeppnin
1. Ásta Asmundsdóttir, Isl. 1:35,00,6
2. Fríða Bjarnadóttir, Isl. 1:36,28,1
3. Björg Kristjándóttir, Isl. 1:44,41,2
4. Orsúla Junemann, Isl. 1:49,20,3
5. Valborg Jónsdóttir, Isl. 1:50,05,6
7 km hlaup
1. Hannes Hrafnkelsson, Isl. 22:34,5
2. Steinn Jóhannsson, Isl. 23:13.7
3. Craig Vois.USA 23:41,2
4. Finnbogi Gylfason, lsl. 24:25,8
5. Sigfús Jónsson, Islandi 24:37,2
-hsim.
Góður sigur
KA á Leiftri
Frá Stefáni Arnaldssyni, fréttaritara
DV á Akureyri.
KA hélt striki sinu í toppbaráttu 2.
deQdarinnar á laugardaginn er liðið
heimsótti Leiftur til Ölafsfjarðar og
vann sigur, 4—1, eftir að Akureyrarlið-
ið hafði haft 0—1 forystu í hléi.
Það var Steingrímur Birgisson sem
náði forystunni fyrir KA á 25. mínútu.
Leiftur jafnaði er tíu minútur voru
liðnar af seinni hálfleiknum. Tryggvi
Gunnarsson náði síðan forystunni
aftur fyrir KA. Tryggvi var síðan á
ferðinni aftur um miðjan seinni hálf-
leikinn er hann skoraði þriðja mark
KA. Bjarni Jónsson átti síðan lokaorð-
ið fyrir KA er hann skoraði fjórða og
síöasta mark leiksins.
Njáll Eiðsson og Erlingur Kristjáns-
son voru bestu leikmenn KA. Liðin
náðu hvorugt aö sýna sínar bestu
hliðar á malarvellinum í Olafsfirði.
Akureyringarnir voru þó allan tímann
sterkara liðið.
Staða Leifturs er mjög dökk í 2.
deildinni. Liðið er nú neöst í deildinni.
Helgi Jóhannsson átti bestan leik hjá
Leiftri. -fros
Rixfrá Arsenal?
Howard Wllklnson, framkvæmdar-
stjóri Sheffield Wednesday, liðs
Sigurðar Jónssonar i 1. deild ensku
knattspyrnunnar, er nú á höttunum
eftir Graham Rix frá Arsenal.
Wilkinson hefur lengi verið aðdáandi
Rix sem leikið hefur með enska
landsliðinu. Leikmaðurinn er
óánægður hjá Arsenal. Fyrirliða-
staðan var tekin af honum og hann
sektaður eftir að hann hafði ekið bíl
drukkinn. Sheffield-liöið hefur þó enn
ekki gert tilboð í kappann. -fros.
Herbert Steffny kemur i mark langfyrstur í hálfa maraþonhlaupinu. Mjög gófiur hlaupari sem varð i þriðja sœti í New York maraþonhlaupinu 1984.
DV-mynd Kristján Ari.
Hversdagsleikinn á Islandi er
kvaddur á fimmtudags-
morgni. Flogið er til Luxem-
borgar og streitunni leyft að
líða úr skrokknum. Á flug-
vellinum bíður bílaleigubíll
sé þess óskað; með sölu-
skatti, tryggingum og óbeisl-
uðum kílómetramæli, kost-
ar sá ódýrasti 1.650,- kr. í
þrjá daga, fyrir fjóra í bíl.
Til Daun er tveggja tíma
akstur og þar er upplagt að
eyða síðdeginu; slappa af,
fara í sund eða tennis,
spila minigolf eða billjard
- allt eftir þörfum hvers
og eins. Um kvöldið bjóða veitingahúsin og bjór
gera reyfarakaup á
úrvalsvarningi.
Á laugardeginum er rétt að
setja stefnuna á Köln — þar
er ekki síður hagstætt að
versla og urmull síungra
menningarverðmæta gleðja
augað. Ekki er úr vegi að
smakka á vínframleiðslu
bændanna í héraðinu og
gleyma stund og stað í
Fantasíulandi þar sem jafn-
vel ímyndunaraflið verður
h VKlR KR 1 ^ _ Á sunnudegi er öllu paikkað
——* **•*•*• *~— niður nema góða skapinu og
besta hluta ferðalagsins
(heimferðin - heimkoman - tollurinn) notið til
I.ONG HFir.l
I DAUN EIFEL
stofurnar ykkur velkomin, og
nóttin er ávallt ljúf í rúmgóðum
og glæsilegum sumar-
húsunum. Á föstudegi er
tilvalið að skreppa í
verslunartúr til borgar-
innar Trier í Móseldal.
Þar er fallegt og þar má
hins ýtrasta.
Þetta tilboð gildir frá 1. sept. - 7. okt. og aftur
13. - 30. okt.
Dæmi um verð(flug og gisting án flugvallarskatts):
6 í 3ja herbergja húsi,kr. 13.288.- pr. mann
4 í 2ja herbergja húsi.kr. 13.634.- pr. mann
2 í stúdíóíbúð kr. 13.942.- pr. mann
FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL
Ferðaskrifstofan Úrval v/AustuvöIl. Sími 26900.
V
GOTT FÓLK